Morgunblaðið - 19.08.1998, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Afkoma
Samvinnu-
*
sjóðs Islands
30% betri
en í fyrra
Rekstrartekjur Olís drógust saman um 6% á milli ára
Hagnaðurnam 124
milljónum króna
Wm Olíuverslun íslands hf.
1 1 1 1 r- 1 Ur milliuppqjöri 1998 Jan.-júni 1998 Jan.-júní 1997
Rekstrarreikningur MHijónír króna Breyting
Rekstrartekjur 3.558 3.777 -6%
Rekstrarqjold 3.371 3.554 -5%
Rekstrarhagn. I. afskr. og fjárm.liði 187 223 -16%
Afskriftir (74) (65) +14%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) 12 (38) -
Skattar (35) (40) -13%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 90 80 +13%
Óreglulegar tekjur 34 -
Hagnaður tímabilsins 124 80 +55%
Efnahagsreikningur Miiijónir króna 30/6 ‘97 30/6 '96 Breyting
I Eignir:_\ Veltuf jármunir Fastafjármunir 2.808 3.226 2.899 2.901 -3% +11%
Eignir samtals 6.034 5.800 +4%
\ Sku/dir oa eiaið fé;Á Skammtímaskuldir 2.158 2.272 -5%
Langtímaskuldir 1.523 1.339 +14%
Eigið fé 2.353 2.189 +7%
Skuldir og eigið fé samtals 6.034 5.800 +4%
Kennitölur Jan.-júní: 1998 1997 Breyting
Veltufjárhlutfall 1,30 1,28
Eiginfjárhlutfall 39% 38%
Veltufé frá rekstri Milijónir króna 152 159 -4,4%
Arðsemi eigin fjár 11,0% 8,0%
HAGNAÐUR Olíuverzlunar ís-
lands hf. (OLÍS) nam 124 milljón-
um króna á fyrri árshelmingi en
þar af var hagnaður af óreglulegri
starfsemi 36 milljónir. Hagnaður af
reglulegri starfsemi
varð um 90 milljónir
króna, samanborið
við 80 milijónir í
fyrra, og nemur
aukningin um 13%.
Rekstrartekjur
OLÍS námu 3.558
milljónum króna á
tímabilinu, saman-
borið við 3.777 millj-
ónir í fyrra, og hafa
því lækkað um 6%.
Rekstrargjöld hafa
lækkað um 5% milli
ára, námu nú 3.371
milljón króna en
3.554 milljónum á
umræddu tímabili í
fyrra.
Miklar endurbætur
á þjónustustöðvum
Lækkun rekstrar-
tekna má einkum
rekja til lækkunar
eldsneytisverðs á
heimsmarkaði að því
er fram kemur í
frétt frá OLÍS. Þar kemur fram að
á árinu hafí verið unnið að veiga-
miklum endurbótum á þjónustu-
stöðvum félagsins á Reykjavíkur-
svæðinu og þar með ljúki því end-
urbótastarfi á stöðvunum, sem
hófst árið 1996.
Nýlega gekk OLÍS frá sölu allra
eigna og lóða í aðalstöðvum fyrir-
tækisins í Laugamesi til Reykja-
víkurhafnar, vegna endurskipu-
lagningar svæðisins. Samhhða því
hefur stjórn félagsins ákveðið að
reisa nýjar aðalstöðvar fyrir félag-
ið á lóð þess við Sundagarða 2.
Framkvæmdir munu hefjast innan
tíðar og áætlað er að
þeim ljúki haustið
1999.
Heildareignir
OLÍS 30. júní sl.
námu 6.034 milljón-
um króna, eigið fé
var 2.353 milljónir
og eiginfjárhlutfall
39%. Arðsemi eigin
fjár var 11%. Bók-
fært verð eignar-
hluta félagsins í öðr-
um félögum var í lok
júní 720 milljónir
króna. Þar af var
eignarhlutur í félög-
um á hlutabréfa-
markaði bókfærður
á 510 miiljónir
króna en markaðs-
verð sömu hluta var
1.356 milljónir. Það
var því 846 milijón-
um hærra en bók-
fært verð og hafði
hækkað um 208
milljónir króna á ár-
inu.
Minni framlegð
Heiðar Guðjónsson, verðbréfa-
miðlari hjá Lslandsbanka, segir að
afkoma OLIS sé umfram vænting-
ar á verðbréfamarkaði, helst vegna
viðsnúnings á fjánnagnsliðum þai-
sem muni 50 milljónum króna á
milli ára. „Raunveruleg framlegð
úr rekstri hefur minnkað, hún var
224 milljónir króna í fyrra en 187
milljónir nú. Framlegð virðist því
fara minnkandi hjá OLIS eins og
hinum oh'ufélögunum. Ekki má þó
gleyma sjómannaverkfallinu en
það hafði töluverð áhríf á rekstur
OLÍS til hins verra. OLÍS og
ESSO standa nú upp úr í þessari
grein, líklega að stóru leyti vegna
samstarfsins í Olíudreifíngu hf.
sem hefur skilað þeim verulegri
rekstrarhagræðingu. Bilið virðist
því vera að breikka á milli ESSO
og OLÍS annars vegar og Skelj-
ungs hins vegar. Búast má við að
gengi hlutabréfa í OLIS haldist
óbreytt þrátt fyrir þessa niður-
stöðu og ekki útlit fyrir að þau
hækki á næstunni," segir Heiðar.
HAGNADUR Samvinnusjóðs ís-
lands hf. á fyrri árshelmingi þessa
árs nam tæpum 56 mkr., sem er
30% betri afkoma en á sama tíma í
fyrra en þá var hagnaðurinn 43
mkr. I fréttatilkynningu frá sjóðn-
um segir að þessi afkoma sé mun
betri en áætlanir hafi gert ráð fyrir.
Hagnaður fyrir skatta var 69
mkr. en var 51 mkr. á sama tíma í
fyrra.
Heildarútlán jukust um 24% og
námu ný lán til viðskiptavina félags-
ins um 2,3 milljörðum króna á fyrri
hluta ársins. Útlán og aðrar eignir í
lok tímabilsins námu alls rúmum 6,8
milljörðum ki-óna en niðurstaða
efnahagsreiknings tæpum 7,9 millj-
örðum.
Eigið fé sjóðsins fyrstu sex mán-
uði ársins nam 1.408 mkr. eða um
17,9% af heildar fjármagni félags-
ins. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu
var nokkuð lakari en á sama tíma-
bili fyrra árs eða 8,2% í stað 12,9% á
sama tímabili í fyrra. Eiginfjárhlut-
fall (CAD) var 16,6%.
í fréttatilkynningunni segir að
lækkun arðseminnar megi rekja til
sterkrar eiginfjárstöðu félagsins.
„Með sömu aukningu í umsvifum á
síðari hluta ársins má reikna með
betri arðsemi eiginfjár síðari hluta
ársins en fyrri hluta þess,“ segir
ennfremur í fréttatilkynningunni.
Framkvæmdastjóraskipti
Kristinn Bjarnason hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Sam-
vinnusjóðsins tímabundið frá 1.
september nk. Hann tekur við
starfínu af Arnóri H. Arnórssyni,
sem fer í eins árs námsleyfi.
Kristinn hefur gegnt staifi fjár-
málastjóra hjá fyrirtækinu frá því
hann hóf störf þar vorið 1996. Krist-
inn starfaði áður hjá endurskoðun-
arfyrirtækinu PrieewaterCoopers í
Reykjavík.
Hagnaður rúmlega tvöfaldaðist hjá Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi
Svipuð velta en
meiri framlegð
Haraldur Böðvarssi Úrmilliuppgjöri 19' - ■■ }n hf. i 98 ÉMsa&yJ
Rekstrarreikningur Muijónir króna Jan.- júnf 1998 Jan.- júní 1997 Breyting
Rekstrartekjur (nettó) 2.270,3 2.231,5 +2%
Rekstrargjöld (nettó) 1,815,7 1.797,7 +1%
Hagnaður fyrir afskriftir 454,5 433,8 +5%
Afskriftir (193,3) (211,6) -9%
Fjármagnsliðir nettó (12,4) (102,1) -88%
Eignaskattur (9,4) (11,0) -15%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 239,5 109,1 +120%
Aörar tekjur 22,0 98,8 -78%
Áhrif hlutdeildarfélaga (8,1) 0 -
Hagnaður tímabilsins 253,4 207,9 +22%
Efnahagsreikningur m jmb 1998 1997 Breyting
1 Eianir. I Milliónir króna
Fastafjármunir 5.500,1 5.228,4 +5%
Veltufjármunir 1.054,3 787,9 +34%
Eignir alls 6.554.4 6.016.4 +9%
i Skuldir og eigið tó:;
Eigið fé 2.765,2 2.132,2 +30%
Langtímaskuldir 2,881,7 3.110,1 -7%
Skammtímaskuldir 907,5 774,1 +17%
Skuldir og eigið fá alls 6.554.4 6.016.4 +9%
Sjóðstreymi Milljónir króna 1/1-30/6 '98 1/1-30/6'97 Breyting
Veltufé frá rekstri 375,8 312,0 +20,4%
HAGNAÐUR Haralds Böðvars-
sonar hf. fyrstu sex mánuði ársins
var 253 milljónir króna, samanbor-
ið við 208 milijónir á sama tíma í
fyrra, og jókst því um 22% á milli
ára. Rekstrartekjur jukust um 2%
á milli ára og námu nú 2.270 millj-
ónum en rekstrargjöld jukust um
1% og námu 1.815 milljónum
króna.
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri HB, segir nokkrar
ástæður hafa vegið þyngst varð-
andi bætta afkomu fyrirtækisins.
„Veiðar og vinnsla gengu vel á
fyrri árshelmingi, bæði hvað varð-
ar uppsjávarfisk og bolfisk. Betur
veiddist af úthafskarfa en í fyira
og við náðum meira af kvótanum í
Síldarsmugunni til vinnslu heima
fyrir en í fyiTa. Vegna upptöku
aflamarkskerfis á síldinni gátum
við landað henni hér á Akranesi og
nýtt hana í eigin bræðslu í stað
þess að landa henni hjá öðrum. Af-
urðaverð er hátt um þessar mund-
ir, ekki síst á mjöl og lýsi, og það
hefur að sjálfsögðu komið sér vel.“
Hagnaður af reglulegri starf-
semi HB var 239 milljónir á fyrri
árshelmingi, samanborið við 109
milljónir á sama tímabili í fyrra, og
nemur aukningin tæpum 120%.
Veruleg breyting til batnaðar verð-
ur á fjármagnsliðum og munar þar
90 milljónum króna á milli ára.
Skiptir miklu máli í því sambandi
að gengisþróun hefur verið fyrir-
tækinu hagstæð á árinu.
Landvinnslan
skilar arði
HB hefur sameinast nokkrum
öðrum sjávarútvegsfyi-ii-tækjum á
síðustu áram, síðast Miðnesi hf. í
Sandgerði í fyrra. Haraldur segir
að hagræðing vegna samlegðará-
hrifa sé byrjuð að skila sér og gam-
an sé að geta nú skýrt frá því að
allar deildir fyrirtækisins skili
hagnaði. „Sala HB á frystiskipinu
Ólafí Jónssyni í síðustu viku var
liður í því hagræðingarferlinu og
kvóti þess fer nú til annarra skipa
fyrirtækisins. Landvinnslan hefur
lengi verið erfíð og afkoman ekki
viðunandi. Það hefur nú breyst til
betri vegar, bæði á Akranesi og í
Sandgerði, og má þakka það hag-
ræðingu, hærra afurðaverði og
aukinni tæknivæðingu."
370 miiljóna hagnaði spáð
Samkvæmt rekstraráætlun HB í
ársbyrjun var gert ráð fyrir að
hagnaður ársins af reglulegri starf-
semi yrði um 250 milljónir króna
og lætur næiri að það markmið
hafi náðst á fyrri hluta ársins. Nú
hefur rekstraráætlun verið endur-
skoðuð og segir Haraldur að með
fyrirvara um óvissu í veiðum og
vinnslu sé gert ráð fyrir að hagnað-
ur af reglulegri starfsemi verði um
370 milljónir á árinu. Þá megi
áætla að velta fyrirtækisins verði
um fimm milljarðar króna á árinu.
„Ástand þorskstofnsins virðist fara
batnandi og útlit með loðnuveiðar
er gott og því lítum við með bjart-
sýni fram á við,“ segir Haraldur.
Langt umfram
væntingar
Töluverð viðskipti urðu með
hlutabréf í HB í gær eða fyrir 14
milljónir króna að markaðsvirði. I
þeim hækkaði gengi bréfanna um
3,5% og var lokaverðið 6,52.
Heiðar Guðjónsson, verðbréfa-
miðlari hjá Islandsbanka, segir að
milliuppgjör HB sé gott og langt
umfram væntingar. „I fljótu bragði
sýnist mér að HB sé eina sjávarút-
vegsfyrirtækið sem skilar meiri
vergum hagnaði á milli ára, þ.e.
meiri hagnaði fyrir afskriftir og
vexti. Loðnuvertíðin kom talsvert
ver út nú en á síðasta ári og ekki
náðist að veiða allan kvótann. Ha-
græðing innan fyrirtækisins virðist
hins vegar vera svo mikil að hún
nær að vega upp þessi áfóll og það
er eitthvað sem markaðurinn bjóst
ekki við. Búast má við að HB eigi
að geta náð enn frekari hagræð-
ingu á árinu og hagnaður ætti því
að geta orðið enn meiri á næsta ári.
Það ætti því ennþá að vera eitthvað
svigrúm til hækkana hlutabréfa
HB í ljósi aukins hagnaðar á næsta
ári.“