Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 27 Reuters VRISKIR vegfarendur fylgjast með sjónvarpsávarpi Clintons á Times-torgi í New York. „óþarflega afdráttarlausar". Lögmenn forsetans voru andvígir því að hann bæri vitni fyrir rannsókn- arkviðdómnum og óttuðust að hann kæmi sér í óleysanlegar lagaflækjur. Kendall vildi að Clinton hafnaði því að Starr gæti kallað forsetann íyrir, að því er Washington Post hefui’ eftir heimildamönnum sínum, og Robert Bennett, sem er lögfræðingur forset- ans í máli Jones, hvatti til þess að for- setinn myndi annaðhvort neita að svara saksóknara eða veita greið svör við öllum spurningum. Efnisleg sönnunargögn Fréttaskýrendur telja að ein helsta ástæða þess að Clinton breytti fram- burði sínum þegar kom að vitnisburð- inum frammi fyrir rannsóknarkvið- dómi Starrs hafí verið sú, að saksókn- arinn hafi undir höndum sterkar, efn- islegar vísbendingar um samband forsetans við Lewinsky. Fréttaritið Time birti lista yfir umræddar vís- bendingar: Kjóllinn. Kom aftur í ljós í júlí og talið var að hann gæti komið sér illa fyrir forsetann, fyndust á honum líf- jlintons Reuters >sávarp sitt í Hvíta húsinu. sóknara sem í fyrstu beindist að einkaviðskiptum sem fóru fram fyr- ir 20 árum. Má ég bæta því við, að fyrir tveim árum fann óháð alríkis- stofnun ekkert rangt við umrædd viðskipti, hvorki af minni hálfu né eiginkonu minnar. Rannsókn sér- staks saksóknara beindist sfðan að starfsliði mínu og vinum, síðan að einkalifi minu. Og nú er verið að rannsaka rannsóknina. Þetta hefur staðið of lengi, kostað of mikið og sýni sem samræmdust erfðaefni for- setans. Alríkislögreglan hefur rann- sakað kjólinn, en niðurstöðunum er haldið vandlega leyndum. Umræðupunkarnir. Minnisplagg sem Lewninsky lét Lindu Tripp 1 té með tillögum um hverju Tripp ætti að svara yrði hún yfirheyrð. Ljóst þykir að Lewinsky hafi notið aðstoðar lög- lærðra manna við samningu punkt- anna. Afhendingarnótur. Sýna hvaða gjöfum Lewinsky tók við í Hvíta hús- inu. Bækurnar. Lewinsky keypti skáld- söguna Vox, sem fjallar um símakyn- líf, Clinton mun hafa gefið henni Lea- ves of Grass, eftir Walt Whitman. Stuttermabolur, hattprjónn og næla. Gjafir frá forsetanum, Lewin- sky mun hafa sagt að forsetinn hafi sagt við sig: „Ef þú átt þær ekki get- urðu ekki afhent þær.“ Harði diskurinn. Lewinsky sendi mörg tölvuskeyti sem gætu veitt vís- bendingar um sambandið. Símsvarasegulbandið. Vitni hafa greint frá því að þau hafi heyrt skila- boð frá forsetanum. Aðgönguskjölin. Hver hleypti skaðað of marga sem ekkert hafa til saka unnið. En þetta mál er á milli mín, þeirra tveggja manneskja sem ég elska mest - konu minnar og dóttur okkar - og Guðs. Ég verð að laga það sem farið hefur úrskeiðis og ég er reiðubúinn til að gera allt sem þarf til að það takist. Ekkert skipt- ir mig meira máli. En þetta er mitt einkamál og fjölskyldulíf mitt á að tilheyra fjölskyldu minni einni. Þetta kemur engum við nema okk- ur. Jafuvel forsetar eiga einkalíf. Það er kominn tími til að láta af tilraunum til að eyðileggja líf ein- staklinga og hætta snuðri um einkalíf og fara að huga að þjóðlíf- inu. Þetta mál hefur truflað lands- menn allt of lengi, og ég axla ábyrgðina á mínum þætti í þessu öllu saman. Meira get ég ekki gert. Nú er kominn tími - reyndar er komið fram yíír þann tíma - til að halda áfram. Okkar bíða mikilvæg verkefni - við þurfum að grípa tækifæri sem máli skipta, Ieysa knýjandi vanda- mál, horfast í augu við öryggismál sem ekki verður vikist undan. Þess vegna fer ég þess á leit við ykkur í kvöld að þið snúið baki við sýning- unni sem staðið hefur undanfarna sjö mánuði, reynið að þjappa þjóð- inni aftur saman og beinið athygl- inni aftur að verkefnum og öllum þeim fyrirheitum sem bíða Banda- ríkjanna á næstu öld. Ég þakka þeim sem hlýddu. Góða nótt. Lewinsky inn í Hvíta húsið og hve oft? Áleitnasta spurningin Fréttaskýrandi New York Times velti því fyrir sér í gær hvort vitnis- burður og ávarp forsetans á mánudag hafi sýnt fram að að „maðurinn sem varð forseti með því að tala máli þeirra sem „fara að reglunum" hafi rétt eina ferðina látið undan með- fæddri hvöt til að beygja þær og brjóta". Hvernig svo gáfaður maður og snjall pólitíkus hafi getað látið eftir sér að haga sér svo sem raun hafi borið vitni einmitt þegar Starr var að hefja rannsókn sína á embættisfærsl- um hans sé áleitnasta spurningin um William Jefferson Clinton. Þetta sé þó ekki ný spurning, og að mörgu leyti hefð mátt búast við þessu, að svo færi fyrir þessum for- seta að loforð hans féllu í skuggann af göllum hans. Clinton hefði nefnilega alltaf verið sannfærður um að hann væri snjallari, orðheppnari og betur máli farinn en nokkur andstæðingur, og oft hafi sú reynst raunin - nógu oft til að hann héldi að þetta væri satt. „Flestir vilja telja sjálfa sig harla góða,“ sagði Stanley Renshon, stjórn- málafræðingur og sálkönnuður við New York-háskóla, í bók sinni um Clinton, Glæstar vonir (High Hopes), 1996. „En Bill Clinton virðist vera farinn að trúa því besta um sjálfan sig, annaðhvort með því að víkja sér undan eða virða að vettugi vísbend- ingar úr eigin gjörðum um að ekki sé allt svo sem hann telur það vera.“ Afneitun og hólfaskipting Fréttaskýrandi New York Times segir að Clinton kunni að hafa fengið í vöggugjöf hæfileikann til afneitunar og hólfaskiptingar. Þessir hæfileikar hafi verið meðal þess sem hafi gert móður hans, Virginíu Kelley, kleift að komast af eftir að faðir Clintons lést, þrem mánuðum áður en hann fædd- ist. Þessir sömu hæfileikar hafi gert forsetanum kleift að halda það sem margir nefndu frábæra stefnuræðu aðeins nokkrum dögum eftir að Lewinsky-málið kom upp á yfirborð- ið. „Þegar slæmir atburðir gerast heilaþvæ ég mig þai' til þeir eru horfnir úr huga mér,“ skrifaði móðir Clintons í sjálfsævisögu sinni, sem birt var 1994, eftir að hún lést. „í huganum bý ég til loftþéttan kassa. Inni í honum hef ég það sem ég vil hugsa um og allt annað er hinum megin við veggina. Inni er hvítt, úti er svart. Einu gráu tónarnir sem ég tek mark á eru í mínu eigin hári.“ Misjöfn við- brögð við játn- , ingu forsetans Washington, París, Bonn, Páfagarði, Bagdad. Reuters. VIÐBROGÐ í Bandaríkjun- um við uppljóstrunum Bills Clintons, Bandaríkjaforseta, þess efnis að hann hefði ekki sagt allan sannleika um samskipti sín við Monicu Lewinsky voru af ýmsum toga í gær og fyrrakvöld. Viðbrögð stjórnmálamanna í Bandaríkjunum tóku oftar en ekki mið af flokksskír- teinum manna og þannig lýstu þau AI Gore, varaforseti Clintons, og Madel- eine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, bæði stuðningi sínum við Clinton. Newt Gingrich, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni bandarísku, sagði hins vegar of snemmt að dæma í máli Clintons og kvaðst vilja bíða uns Kenneth Stan-, sérlegur saksóknari, nokkuð um mál- ið. Gore sagðist „stoltur" af Clinton fyrir að sýna það hugrekki að viður- kenna þau mistök sín að hafa átt í kynferðislegu sambandi við Lewin- sky. Sagði Gore tíma til kominn að þessi mál öllsömul yrðu tekin af dag- skrá þannig að Clinton gæfist næði til að gegna starfi sínu. Óldungadeildarþingmaðurinn Tom Harkin tók í sama streng. „Við erum öll mannleg. Við gerum öll mistök, jafnvel forsetar." Quayle vill afsögn Clintons Repúblikanar voru hins vegar fæstir á sama máli. Dan Quayle, fyrr- verandi varaforseti Bandaríkjanna, sagði t.d. í viðtali á sjónvarpsstöðinni ABC í fyrrakvöld að forsetinn ætti að setja hagsmuni þjóðarinnar ofar sín- um eigin og fór Quayle fram á afsögn Clintons. Bob Barr, þingmaður Repúblikana í fulltrúadeildinni, sagðist ekki hafa áhuga á því sem forsetinn vildi að fólk tryði enda væru staðreyndir málsins ljósar. „Hér höfum við for- seta sem segir við þjóð sína: „Ég er lygari. Ég framdi meinsæri." Það er ljóst að staða slíks forseta er afar veik á alþjóðlegum vettvangi,“ sagði Barr. Margir flokksfélaga Clintons í Demókrataflokknum voru reyndar varkárir í viðbrögðum sínum, t.d. sagði fulltrúadeildarþingmaðurinn James Traficant jr. á Fox News Channel að sumir félaga sinna væru ekki alveg sannfærðir. „Ef forsetinn laug að okkur í kvöld í annarri um- ferð, eins og hann laug að okkur í fyrstu umferð, þá er ég einn þeirra Demókrata sem munu styðja form- lega ákæru vegna embættisafglapa." Viðbrögð dagblaða Leiðarahöfundar The New York Times voru langt frá því sáttir við _ sjónvarpsávarp Clintons. Segja þeir ’’ að Clinton hafi látið hjá líða gott tækifæri til að græða sár bandarísku þjóðarinnar. Játning Clintons hafi „varla verið fullnægjandi" og segir blaðið að fullyrðing hans um að svör hans við yfirheyrslur í janúar hafi verið „lagalega rétt“ sé „móðgun“. Segir blaðið að helstu erfiðleikar rík- isstjórnar Clintons hafi ávallt tengst þeim eiginleika Clintons að tefja, rangtúlka og afvegaleiða en að hann ætti að gera sér ljóst að allt misjafnt komist upp um síðir. Dagblöð í Evrópu virtust mest hneyksluð á því hvers vegna einkalíf forsetans og kynlíf væri svo mjög í rannsókn. Þetta átti sérstaklega við^. um dagblöð í Frakklandi og Þýska- landi og sagðist þýska blaðið Bild vita um marga hneykslissöguna af þýsk- um stjórnmálamönnum en að rit- stjórum þess myndi aldrei láta sér koma til hugar að fylgja þeim eftir af slíkri hörku. Franska dagblaðið Le Monde hafði síðan játningu Clintons í flimtingum á forsiðu sinni. Gat þar að líta skopteikningu af Clinton þar sem hann grátandi biður frelsisstyttuna afsökunar um leið hann styður hönd sinni á öxl hennar. „Ekki káfa á mér,“ er hins vegar svar styttunnar. Bresku dagblöðin fordæmdu flest Clinton og The Sun sagði forsetann hafa dregið embætti sitt niður í svaðið. Sænska dagblaðið Aftonbladet spurði hvort Bandaríkin ættu eftir að geta „hreinsað af sér smánarblettiná* sem komið hefðu á ímynd þeiiTa eftir „hina fáránlegu uppákomu" á mánudag. Áhrifamesta dagblað í írak kom hins vegar með áhugaverðustu kenn- inguna í málinu öllu þegar það hélt því fram í gær að öll væru kvenna- vandræði Clintons komin upp á yfir- borðið vegna samsæris Israels og gyðinga í Bandaríkjunum sem vildu sjá á bak Clinton til að A1 Gore, vara- forseti, gæti tekið við forsetaembætt- inu, en að sögn dagblaðsins Babel er -* Gore hallari undir ísraelsstjórn en Clinton. Hillary gegndi lykilhlutverki EIGINKONA Banda- ríkjaforseta, Hillary Rodham Clinton, hef- ur gegnt lykilhlut- verki í skipulagningu vitnisburðar eigin- manns síns og sjón- varpsávarpinu sem hann flutti að því loknu, að því er kanadíska blaðið Glo- be and Mail hefur eftir „nokki-um ráðgjöfum" forsetans. Einn ráðgjafanna sagði að Hillary hefði aðstoðað við að skrifa ávarp forsetans og tekið virkan þátt í allri skipulagningu sl. helgi. „Hún hefur sýnt styrk eins og venjulega,“ sagði ráðgjafinn. „Hvernig heldurðu að það sé að eiga svona konu?“ Aðstoðarmenn forsetans og fréttaskýrendur hafa margir hald- ið því fram að Hillary hafi fyrst fyrir fáeinum dögum komist að því að eiginmaður hennar hafi átt í ein- hverskonar sambandi við Monicu Lewinsky. Nokkrir vina hennar hafa þó sagt að þeir neiti að trúa því að hún hafi ekki vitað hvemig komið var. Náinn vinur forset- ans tjáði Globe and Mail að hann væri sannfærður um að Hillary hafi vitað strax í janúar sl. að eiginmaður hennar hefði staðið í kynferð- islegú sambandi við Lewinsky. „Við hverju býstu? Hún er snjall- asti lögfræðingurinn í bænum.“ Þessi sami vinur, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagðist telja að þeim upplýsingum hefði verið lekið til fjölmiðla að forsetafrúin hefði ekki vitað hvemig í pottinn var búið til þess að bæta ímynd hennar. Sagði hann að skoðana- könnun, sem Hvíta húsið hafi stað- ið að, hafi sýnt að vinsældir hennar meðal almennings hafi stóraukist undanfama daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.