Morgunblaðið - 19.08.1998, Page 30

Morgunblaðið - 19.08.1998, Page 30
. 30 MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Um bók- menntir og markað „ Undir þessu ofriki markaðarins verður skírskotun bókmenntanna annarleg. Það er eins ogþær tali út úr eyðu, ein- hverju hugmyndalegu tómi og hafi ekk- ert að markmiði nema sjálfar sig. “ Nýlegur listi Random House- bókaútgáfunnar í Bandaríkjunum yfir hundrað bestu skáldsögur aldarinnar ritaðar á ensku hefur vakið menn til um- hugsunar um tengsl mai’kaðs og bókmennta enn einu sinni. Það hefur nefnilega komið í ljós, eins og sagt var frá í Morgunblaðinu fýrir skömmu, að upphaflega var stofnað til listans af fyrrum forstjóra Random House með það fyrir augum að koma skriði á bóksöluna. Sömuleiðis hefur komið í Ijós að það voru í raun ekki dómnefndarmennimir tíu sem röðuðu VIÐHORF Eftir Þröst Helgason bókunum á listann eftir gæðum heldur ráðamenn hjá Random Hou- se, sjálfsagt markaðs- og sölu- stjórarnir sjálfir. Árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa: Bækumar sem vora á listanum seljast eins og heitar lummur, gamlir rykfallnir lager- ar af Odysseifí eftir Joyce og Brave New World eftir Aldous Huxley hafa tæmst og pening- amir streyma í kassann hjá út- gefendum. Margir hafa fengið óbragð í munninn vegna þessara vinnu- bragða bandaríska útgáfurisans en aðrir hafa talað um „mark- aðslegt meistaraverk". Umræð- an myndi þó verða áhugaverðari ef athyglinni yrði meira beint að tengslum markaðsins og bók- menntasköpunarinnar sjálfrar. Það er þar sem markaðssjónar- miðin era að vinna mest tjón og eru raunar langt komin með að gera bókmenntimar að kenni- markalausri flatneskju. „Eftir þær breytingar sem hafa átt sér stað í Rússlandi að undanfomu hefur staða rithöf- unda breyst veralega,“ sagði rússneski rithöfundurinn Vyacheslav Kupriwanov í viðtali sem birtist í Lesbókinni um helgina og bætti við: „í dag er ekki lengur spumingin: „Um hvað má ég skrifa?“, heldur: „Hvað get ég fengið útgefið?““ Breytingin hefur með öðram orðum verið úr einu ritskoðun- arkerfinu í annað. Það er engin ný speki að markaðurinn rit- skoði en það er vafalaust óþægi- leg uppgötvun fyrir þann sem hefur séð „frelsi" markaðarins í hillingum í áratugi. Við þessar breytingar segir Kupriwanov að margir rússneskir höfundar hafi misst fótanna og sumir jafnvel tekið líf sitt. Ritskoðun mark- aðsins birtist með einkar skýr- um hætti í Rússlandi. Að sögn Kupriwanovs er erfitt að fá bækur útgefnar, „markaðssetn- ing er dýr og vinnandi fólk hefur ekki ráð á að kaupa bækur al- mennt“. Útlitið er alls ekki gott hjá þessu bókmenntalega stór- veldi, að mati skáldsins: „Ný kynslóð [rússneskra] rithöfunda vex nú úr grasi, kynslóð sem heyr erfiða lífsbaráttu og þarf því að vinna jafnvel fulla vinnu áður en sest er niður að ritstörf- um. Þetta verður til þess að fag- legum rithöfundum fækkar og gæði bókmenntanna verða síðri.“ Markaðurinn er nú meginvið- miðun bókmenntanna. Fagur- fræði markaðarins ræður því hvað er lesið og hvað ekki og hún spyr ekki að hugmyndaleg- um eða listrænum átökum held- ur að söluvænlegri ásjónu. í kapphlaupi um kaupendur skiptir bros rithöfunda meira máli en bókmenntagáfa þeirra. Matthías Viðar Sæmundsson, dósent í íslenskum bókmennt- um við Háskóla íslands, segir þetta bei’a vitni um óöryggi og vanmáttarkennd bókmennt- anna frammi fyrir markaðnum í grein sinni „Markaður, ríki, bókmenntir" (1991): „skáld- skapurinn stendur ekki lengur undir sjálfum sér. Þegar svo er komið að útlit og framkoma höfundar skipta meira máli í huga fólks en bókmenntasköp- un hans, þegar höfundurinn sjálfur tekur þátt í og gengst upp í hringdansi vitleysunnar, þá er illt í efni. Þetta líkist einna helst æðisgengnu dauða- hlaupi; nöfnum og bókum er troðið í fólk eins og fiski sem úldnar næsta dag sé hann ekki strax etinn.“ Undh' þessu ofríki markaðar- ins verður skírskotun bók- menntanna annarleg. Það er eins og þær tali út úr eyðu, ein- hverju hugmyndalegu tómi og hafi ekkert að markmiði nema sjálfar sig. Viðmiðin era ætíð aðrar afurðir markaðarins. Öll sérkenni skírskota þangað en listrænn og hugmyndalegur framleiki era tabú. Og afstaða er auðvitað ekki tekin nema í samræmi við skoð- un markaðarins. Raunar má líta á hina bókmenntalegu orðræðu sem eins konar markaðstorg þar sem menn hittast og skiptast á textum. Hér verður ekkert nýtt til, heldur aðeins endurteknar tilvitnanh- og vísanir úr eldri textum. Til að þrífast í þessu markaðsumhverfi þarf rithöf- undurinn aðeins að ná tökum á þeirri orðræðuhefð sem fyrir er; tali hann svo innan hennar er hann hólpinn, þá er hann í lif- andi samræðu við markaðinn en útkoman, útkoman verður ávallt „hið sama“. Sú er krafa markað- arins: „Hið sama“. Undir ofríki markaðarins er eins og rithöfundar skrifi í kappi við dauðann. Það verður að koma bók annað hvert ár, ann- ars er dauðinn vís. Lögmálið er: Skrifið eða hverfið! Markaður- inn er orðinn að eins konar nátt- úrulögmáli sem höfundar verða að taka mið af, ef ekki veslast þeir upp, deyja og gleymast. Lífslíkur aukast með hverri bók. Hvemig bók skiptir ekki máli. Bara að það sé útgefin bók. Bara að menn nái að skila af sér. Framleiða. Framleiða. Fram- leiða. Sjúklingarnir eiga upp- lýsingar í sjúkraskrám FYRIR nokkram ár- um vann ég mál fyrir Hæstarétti um rétt einstaklinga til að kynna sér sjúkraskrár um sjálfa sig. Upphaf- lega ætlaði ég að krefj- ast eignarhalds á eigin skrám til að fá úr því skorið hver væri í rauninni eigandi þess- ara skráa, en lögfræð- ingur minn réð mér frá því, illu heili. Síðar var fest í læknalög að sjúkraskrá væri eign þeirra sjúkrastofnana eða læknis er gerði hana. Mikilvægt atriði sem skýrist hér fyrir neðan! En þegar lögin um réttindi sjúklinga vora sett i fyrra var þessu breytt. Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlög- maður hefur fært rök fyrir því að í þeim lögum hafi það verið vilji lög- gjafans, Alþingis, að sjúklingarnir sjálfir séu eigendur ski’ánna (Læknablaðið, júní 1998, bls.500- 502). Össur Skarphéðinsson, sem var formaður heilbrigðisnefndar þingsins þegar lögin um réttindi sjúklinga voru afgreidd, tekur und- ir það sjónarmið í leiðara DV 10. ágúst, enda mælti hann svo í fram- söguræðu sinni á Alþingi fyrir framvarpinu um réttindi sjúklinga „... að það sé siðferðilega ekki hægt að segja að sjúkraskrá sem felur í sér sjúkrasögu einstaklings sé eign einhvers annars en viðkomandi sjúklings." Og þessi „siðferðilega" viðmiðun varð sem sagt að lögfest- um rétti sjúklinga með lögunum. Þótt ég sé ekki löglærður vil ég draga augljósar ályktanir af þess- um forsendum, en vegna afskipta minna af rétti sjúklinga varðandi sjúkraskrár þeirra er ég ef vill ekki lakari „fulltrúi" þein’a en Elín Pálmadóttir! Þetta hlýtur að merkja það að hver og einn sjúk- lingur eigi sína sjúkraskrá. Það er eina hugsanlega eignarhald þeirra vegna einstaklingseðlis skránna. Eg á mínar sjúkraskrár en engar aðrar. Sameiginlegur eignarréttur og sameiginlegt forræði nokkurs aðila yfir öllum skránum getur því ekki verið fyrir hendi. Sjúklingur á eigin sjúkraski’á og þar með einnig upplýsingarnar í henni, því þær era sá kjarni skránna sem gefur þeim bæði heilsufarslegt og fjár- hagslegt gildi. Án upplýsinganna er engin sjúkraskrá. I athugasemdum við endurskoð- að frumvarp til laga um gagna- grann á heilbrigðissviði stendur hins vegar: „Vegna eðl- is þessara upplýsinga og hvernig til þeirra er stofnað geta þær ekki lotið lögmálum eignar- réttar í venjulegum skilningi. Stofnanfr, fyrirtæki eða einstak- lingar geta því ekki átt þær eða verið með for- ræði þeirra." Þetta stangast heldur betur bæði á við læknalögin frá 1988, en eftir þeim höfðu stofnanfr eða einstakir læknar ótví- rætt lagalegan eignar- rétt á skránum um hríð, og sömuleiðis lög- in um réttindi sjúklinga þar sem Alþingi færði beinlínis eignarrétt- inn frá sjúkrastofnunum til sjúk- linga (einstaklinga) eftir skýlaus- um orðum framsögumanns þess Sjúklingur á eigin sjúkraskrá, segir Sigurður Þdr Guðjóns- son, og þar með einnig upplýsingarnar í henni. lagaframvarps, þótt sá eignarrétt- ur sé bundinn ýmsum takmörkun- um líkt og eignarréttur læknalag- anna. En nú geta einstaklingar allt í einu ekki átt skrámar á neinn hátt! Maður fer nú bara hjá sér yf- ir þessu hringlandaragli löggjafar- samkundunnar. En Alþingi verður að standa við sín lög og vita hvað þau merkja. Það er óþolandi að það umbylti skilningi sínum á eigin lög- um eftir hentisemi eða vegna hags- muna eins aðila án þess að breyta þeim fyrst að réttum þingræðis- reglum. Og það er óhjákvæmilegt að komi til kasta dómstóla ef ríkis- valdið ætlar að ráðskast með sjúkraskrárnar þrátt fyrir lögin um réttindi sjúklinga. En jafnvel þó sjúklingarnir ættu ekki skrárnar, að hyggju dómstóla, heldur væra þær sameign þjóðar- innar, opnaði það ríkisvaldinu eng- an veginn siðferðilega greiðan veg til að ráðstafa þeim. Það er að mínu viti reginvilla að flokka sjúkra- skrár sem auðlind á sama hátt og auðæfi hafsins og hálendisins eins og gert hefur verið. Auðlindir hafs og hálendis eru fyrst og fremst efnahagslegar þó náttúraverndar- sjónarmið og vistfræði komi við sögu. Þetta era ekki mennskar auðlindir. Við þurfum ekki að spyrja þorskhausana í sjónum eða þúfnakollana á heiðunum um eitt eða neitt. Við getum ekki ofboðið sæmd þeirra eða persónuhelgi. Upplýsingar úr sjúkraskrám snerta hins vegar alltaf beint ein- hvern sérstakan, mjög auðsæran- legan einstakling, sem umgangast verður af tillitssemi og nærgætni eftir skráðum og óskráðum regl- um. Sjúkraskráin er hluti af ævi- sögu hans, oft og tíðum sársauka- fyllsti og viðkvæmasti hluti hennar. Það nær því engri átt að líta á sjúkraskrár þjóðarinnar, jafnvel þótt þær væra sameign hennar, sömu augum og efnahagslegar auð- lindir hafs og hálendis. Það sam- ræmist blátt áfram ekki hugsunar- hefðum siðmenntaðs þjóðfélags til að gera sér skynsamlega grein fyr- ir heiminum; náttúralögmálunum og manneskjunni. Og það er í hróp- andi andstöðu við mannvirðingu og húmanisma. Aldrei má líta á mann- eskjuna eingöngu sem tæki að markmiðum, þó góð séu, eða svifta hana mennsku sinni með því að hlutgera hana sem hverja aðra vöru, eins og bíl eða heimilistæki, er lúti þá engu nema viðskiptaleg- um markaðslögmálum. Mér virðist sem enginn Islendingur hafi geng- ið lengra í slíkri hlutgeringu í mál- flutningi sínum en Kári Stefáns- son, nú síðast í Ríkissjónvarpinu 12. ágúst, þar sem hann ræddi hik- laust um upplýsingar úr sjúkra- skrám sem hvem annan söluvarn- ing. Og þessi viðskiptahugsunar- háttur smitar hratt út frá sér í þjóðfélaginu og er háskalegri en flest annað. Hann er hvorki afrek né ævintýri. Og það er varla ein- leikið hve mjög menn forðast að fjalla um siðferðilega undirstöðu gagnagrunnshugmyndarinnar. Það leiðir af framansögðu að skilyrðislaust verður að afla form- legs leyfis hvers sjúklings að fyrra- bragði til að flytja upplýsingar úr sjúkraskrá hans yfir í miðlægan gagnagrunn. Að öðrum kosti er brotið á lögfestum mannréttindum hans og eignarrétti. Þessari mann- réttindakröfu (ekki „ósk“ heldur kröfu) mun ég fylgja eftir innan tíðar í annarri blaðagrein. Einnig verður reynt að sýna fram á það að ákvæðið um rétt sjúklinga til að standa utan við gagnagrunninn sé óframkvæmanlegt í reynd í núver- andi mynd þess í framvarpsdrög- unum. Höfundur er rithöfundur. Sigurður Þór Guðjónsson BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Tæplega 30 pör í sumarbrids FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 13. ágúst spiluðu 26 pör Mitchell tví- menning. Spilaðar vora 9 umferðir með 3 spilum í umferð. Meðalskor var 216 og þessi pör urðu efst: N/S Ragnheiður Nielsen - Hjördís Sigurjónsd. 253 Erla Sigurj ónsdóttir - Guðni Ingvarsson 237 Eggert Bergsson - Þórir Leifsson 235 Una Ámadóttir - Kristján Jónasson 225 A/V Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðarson 273 Hallgr. Hallgrímss. - Sigm. Stefánss. 268 Arngunnur Jónsd. - Vilhj. Sigurðss. jr. 256 Þórður Ingólfsson - Eyvindur Magnússon 237 Föstudaginn 14. ágúst mættu 28 pör til leiks. Miðlungur var 216 og árangur efstu para varð þessi: N/S Arngunnur Jónsdóttir - Jakob Kristinsson 282 Rúnar Lárusson - Magnús Sverrisson 254 Guðl. Sveinsson - Sæmundur Bjömsson 253 A/V Isak Örn Sigurðsson - Jón Þorvarðarson 271 Guðjón Bragason - Hermann Friðriksson 265 Alda Guðnadóttir - Kristján B. Snorrason 237 Eftir tvímenninginn var að venju spiluð útsláttarsveita- keppni. Tíu sveitir tóku þátt og eftir skemmtilega og spennandi spilamennsku vann sveit Önnu Ivarsdóttur keppnina. Með Önnu spiluðu Guðjón Bragason, Gylfi Baldursson og Hermann Friðriks- son. I öðru sæti varð sveit Frið- riks Jónssonar en auk hans spil- uðu Páll Þór Bergsson, Vilhjálmur Sigurðsson jr., Eggert Bergsson og Baldur Bjartmarsson í sveit- inni. Staðan er enn óbreytt í Horna- fjarðarleiknum. Reglur leiksins eru þær að bronsstig einhverra fjögurra samliggjandi spilakvölda eru lögð saman og þeir tveir spil- arar sem ná flestum stigum á slíku tímabili fá vegleg verðlaun. Þar er um að ræða flugfar á Hornafjarð- armótið í tvímenningi sem haldið verður í haust, keppnisgjöld og gistingu á Hótel Höfn. Eins og staðan er núna eru það Gylfi Bald- ursson og Anton R. Gunnarsson sem eru á leiðinni austur í haust. Gylfi skoraði 109 stig á fjögurra daga tímabili, en Anton fékk 92 stig. Báðir náðu þessum árangri snemma sumars. Siglufjarðarleikurinn stendur frá 19. júlí til 19. ágúst. Hæsta pró- sentuskor eins kvölds í sumar- brids á þessu tímabili mun gefa rétt til eftirfarandi verðlauna: Keppnisgjöld á 60 ára afmælismót Bridsfélags Siglufjarðar, auk gist- ingar á staðnum á meðan mótið stendur yfir (21. - 23. ágúst nk.). Jón Viðar Jónmundsson og Leifur Aðalsteinsson eru líklegir til að hljóta verðlaunin, því þeir náðu 69,09% skori 24. júlí og enn hefur ekkert par náð sambærilegum ár- angri. I sumarbrids er spilað öll kvöld nema laugardagskvöld og hefst spilamennskan alltaf kl. 19:00 Spilastaður er að venju Þöngla- bakki 1. Allir eru velkomnir og hjálpað er til við að mynda pör.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.