Morgunblaðið - 19.08.1998, Page 42

Morgunblaðið - 19.08.1998, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ Sólberja- og blá- berjakrap (Sorbet) ✓ I síðustu viku fóru Kristín Gestsdóttir og bóndi hennar út á Snæfellsnes að heilsa upp á vinkonu þeirra sem var farþegi á þýsku skemmtiferðaskipi. VIÐ höfðum pantað svefnpokapláss á Hótel Framnesi, sem er ný- stofhað hótel í hjarta bæjarins með útsýni yfír höfnina. Á móti okkur tók elskuleg kona sem vísaði okkur á stúdíóíbúð með dásamlegum rúmum, snyrt- ingu og vel útbútnum eldhúskrók með eldavél, ísskáp og öllum áhöldum meira að segja brauðrist og kaffivél. Þetta greiddum við fyrir eins og annað svefnpoka- pláss. Skipið hafði hreppt vont veður í hafi og var 9 V2 klst. á eftir áætlum. Það lagðist upp að á Grundarafirði kl. 17.30 í þvílíkri rigningu að við höfum sjaldan upplifað annað eins. Þegar við ókum niður á hafnargarðinn full tilhlökkunar að hitta góða vin- konu, sprakk á bílnum og mátti bóndi minn snarast í regngalla og vaðstígvél og skipta um dekk meðan ég fagnaði gestinum. Á M/S Bremen voru yfir fjögur hundruð manns - farþegar ásamt áhöfh og þjónustuliði að koma úr siglingu frá vesturströnd Græn- lands og Baffinslands. Rútur komu sér fyrir við skipshlið og farþegar klæddir rauðum úlpum og vaðstígvélum streymdu í þær til að fara í útsýnisferð fyrir jökul - til hvers - það sá ekki út úr aug- um fýrir þoku og rigningu. Við heyrðum einn farþegann segja um leið og hann renndi upp rennilásnum á úlpunni: „Þetta er nú einu sinni Island.“ Hin aust- uriska vinkona okkar mótmælti kröftuglega, hún hefði oft komið til íslands og þar væri Paradís á jörðu. Við hefðum vel getað hald- ið gesti okkar veislu í matsalnum á hótel Framnesi, en þar var boð- inn gimilegur matseðill, en vin- konan bauð okkur í staðinn til málsverðar um borð í skipið, sem kalla má fljótanadi lúxushótel, þar nutum við margréttaðrar máltíðar með bukkandi þjór.a á hverjum fingri. Einn réttanna sem við borðuðum var sól- beijakrap (sorbet) í kampavíni sem ég stældi þegar heim kom, en ég bjó líka til blábeijakrap. Þegar við ókum heimleiðis frá Grundarftrði daginn eftir var stytt upp og litimir vom hreinir og ógleymanlegir eftir rigning- una, enda geysifagurt á þessum slóðum, en þá vom farþegar M/S Bremen fjarri góðu gamni. Við stoppuðum bílinn við lyngi vaxinn hvamm í Kerlingarskarði og tínd- um nokkur vel þroskuð aðalblá- ber til að setja í krapið. Sólbeijakrap 1 kg vel þroskuð sólber _______ö di vatn_____ 2 V2 dl flórsykur safí úr Vá sítrónu 4 eggjahvítur kampavín eða eplasafi með gosi (cider) 1. Hreinsið sólberin af grein- um, þvoið og setjið í pott ásamt 2 dl af vatninu og sjóðið við hægan hita þar til berin eru orðin mjúk. Setjið þá á sigti og merjið í gegn með sleif. 2. Setjið sykur og það sem eft- ir er af vatninu í pott og hitið varlega þar til sykurinn er upp- leystur. Aukið þá hitann og sjóð- ið þar til þetta er um 1 V2 dl. Kælið. 3. Blandið kaldri sykurkvoð- unni út í kaldan berjasafann. Setjið í skál í frysti í u.þ.b. 2 klst. Hrærið tvisvar í meðan þetta er að frjósa en það á ekki að harð- frjósa. 4. Þeytið eggjahvíturnar, blandið saman við ísinn með gaffli, setjið aftur í frysti og harðfrystið. 5. Takið ísinn úr skálinni með kringlóttri ísskeið, nota má stærstu skeið af mæliskeiðum, setjið ískúluna í glas á fæti og hellið kampavíni eða eplasafa yf- ir. Setjið skeið í glasið. Blábeijakrap _________1 lítri bláber_______ ___________5 dl vatn__________ _________2 dl flórsykur_______ _________4 eggjahvítur________ Grand Marnier eða annar líkjör (má sleppa) 1. Þvoið og hreinsið bláberin, setjið síðan í matvinnslukvöm eða blandara og merjið alveg í sundur. 2. Búið til sykurlög eins og segir í sólberjauppskrifinni hér á undan. 3. Blandið saman bláberjum og sykurkvoðunni og frystið eins og segir í sömu uppskrift. Setjið þeyttar eggjahvítur út í og farið að eins og segir þar. 4. Takið úr frysti um 15 mín- útur fyrir notkun, hrærið laus- lega í sundur með gaffli, setjið í glas og berið strax á borð. Setja má ögn af líkjör yfir ef ykkur sýnist svo. í DAG VELMKMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Mótmæli gler- augum á Esjuna! ÉG mótmæli harðlega að það verði sett gleraugu á Esjuna. Er ekki hægt að setja þau á einhvern annan stað, þau eyðileggja hana alveg hvað sem þau verða þarna lengi. Esjan er fal- leg eins og hún er og það er ekkert að augunum í henni, hún þarf ekki að nota gleraugu. Ég krefst þess að þessi fáránlegu gleraugu verði sett á ann- an stað. Ásta Sigurðardóttir, 8 ára. Innsigli skal hann heita EYGLÓ og Margrét höfðu samband við Velvakanda vegna fyrirspurnar í Vel- vakanda um hvað hringur- inn á kók-flöskunum væri kallaður. Þær segjast kalla þennan hring innsigli. Góð þjónusta KATRÍN hafði samband við Velvakanda og vildi hún lýsa ánægju sinni með góða þjónustu sem hún fékk hjá versluninni Radix ehf. á Grensásvegi. Segist hún keypt hvíldardýnu hjá þeim sem hún er mjög ánægð með og vill hún senda þeim þakidr. Tapað/fundið Filma týndist í Paradís FILMA í svörtu plasthylki tapaðist við Glanna eða Paradísarlaut í Borgarfirði föstudaginn 7. ágúst sl. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að láta vita í síma 557 7502 (á kvöldin) eða 453 8153. Sjóngleraugu týndust SJÓNGLERAUGU með svartri umgjörð týndust líklega á Skuggabar eða á Sólon sl. laugardagskvöld. Upplýsingar í síma 898- 3477 eða 552 3477. Fund- arlaun. Minolta-myndavél týndist MIN OLTA-myndavél týndist í Stykkishólmi eða í nágrenni 25.-26. júlí. Þeh' sem hafa orðið varir við myndavélina hafi samband í síma 555 3486. Taska týndist við Vífilsstaði TASKA týndist í nágrenni Vífilsstaða sl. sunnudag. Taskan er brún leðurtaska og í henni var seðlaveski, vasabók, snyrtivörur og fleira. Þeir sem hafa orðið varh' við töskuna hafi sam- band í síma 5812911, 557 3286 og 5812955. Fundarlaun. Bakpoki tekinn í mis- gripum á Heijólfi BAKPOKI, grænn, var tekinn í misgripum á Herjólfi um verslunar- mannahelgina. I pokanum var myndavél, fatnaður o.fl. Þeir sem kannist við bakpokann hafi samband í síma 567 5025. Kvenreiðhjól týndist frá Blönduhlíð ROADMASTER, fjólu- blátt og bleikt, 26 tommu kvenreiðhjól hvarf frá bak- garði við Blönduhlíð 7 um sl. helgi. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið hafi samband í síma 561 5488. Sandalar teknir í misgripum SANDALAR voru teknir í misgripum í sundlauginni í Húsafelli. Ef einhver kannast við þetta ei' hann beðinn um að hafa sam- bandí síma 560 9496 eða 553 7647. Dýrahald Högni óskar eftir heimili 4 MÁNAÐA blíður og manneskur högni fæst gef- ins vegna sérstakra ástæðna. Upplýsingar í síma 557 6315. Kettlingar óska eftir heimili KETTLINGAR óska eftir heimili. Kassavanir og vel upp aldh'. Upplýsingar i síma 567 5327. Túlli er týndur TÚLLI er svartur högni sem týndist frá Drápuhlíð 47 sl. fóstudag. Hann er með hvítan blett á bringu og eyrnamerktur. Þeh' sem hafa orðið varir við hann hafi samband í síma 561 0005. SKAK llni.vjón Margcir Pétnrsvon STAÐAN kom upp á opna „LASK“ mótinu í Svíþjóð sl. vetur. Gunnar Finnlaugsson (2.200) hafði hvítt og átti leik gegn Per Sörenfors. 16. Bxh7+!! - Kxh7 17. Bxg7? (Gunnar hyggst vinna með glæsi- legu fléttustefi sem fyrst sást í skák hjá Emanúel Lasker, síðar heimsmeistara. Það er oft kallað tvöföld biskups- fórn Laskers. En Gunnar velur ekki rétta leikja- röð sem var: 17. Dh5+! - Kg8 18. Bxg7! - Kxg7 19. Dg4+ - Khö 20. Hb3! og svartur er vamarlaus) 17. - Hg8! 18. Bal - f6 19. Hb3 - Hg6? (Það bjargar hvitu sókninni að svartur finnur ekki bestu vörnina, sem var 19. - Da5 að mati Gunnars.) 20. Dh5+ - Kg7 21. Hh3 - Kf7 22. Hg3 - Re5 23. Bxe5 - Dxc2 24. Re4 og svartur gafst upp. HVÍTUR leikur og vinnur. HÖGNI HREKKVÍSI „ Rafmagnsteppið /xms nxr ekjo' lengf&!‘ Víkverji skrifar... YÍKVERJI er ekki áhugasamur sjónvarpsglápari en tvær síð- ustu helgar hefur svo brugðið við að hann hefur verið nánast límdur við skjáinn. Ástæðan er sú að sjón- varpsstöðin Sýn hefur verið með beinar útsendingar frá golfi. Um fyrri helgi var það Landsmótið sem fram fór í Keflavík og síðustu helgi var það PGA atvinnumannamótið í Bandaríkjunum. Er skemmst frá því að segja að þeim tíma var vel varið sem eytt var fyrir framan skjáinn. Bæði mótin voru ákaflega spennandi fram á síð- ustu holu og mörg falleg tilþrif sáust, sem glöddu golfáhugamenn. Það gefur auga leið að mun fag- mannlegar var staðið að sýningu bandaríska mótsins enda þaulvanir menn með margfaldan tækjakost á við íslenzka kollega sína. En út- sendingin frá Keflavík var merki- lega góð og snurðulaus þegar haft er í huga að um var að ræða íyrstu beinu útsendingu sinnar tegundar hérlendis. Páll Ketilsson og Úlfar Jónsson önnuðust lýsingar frá báðum mót- unum og fórst það mjög vel úr hendi. Víkverji telur sig mæla fyrir munn golfáhugamanna á íslandi þegar hann þakkar Sýn framtakið og vonast eftir framhaldi á beinum útsendingum. XXX FYRST Víkverji er byrjaður að ræða um íþróttir og sjónvarp verður hann að viðurkenna að bein- ar útsendingar frá Formulu 1 kappakstrinum á RÚV hafa reynst meira spennandi sjónvarpsefni en hann bjóst við. Víkverji átti ekki von á að endast til að horfa á bíla aka hring eftir hring í tvo klukku- tíma en annað kom á daginn. Þessi íþrótt hefur margar hliðar þegar betur er að gáð og sérfræðingur RÚV, Gunnlaugur Rögnvaldsson, hefur gert sitt til að gera kappakst- urinn að mjög áhugaverðu sjón- varpsefni. Gunnlaugur var svolítið seinn af stað, eins og það er kallað á kappakstursmáli, en hefur náð góð- um tökum á verkefninu eftir því sem á sumarið hefur liðið. XXX HÉR í blaðinu hafa að undan- fómu verið talsverð blaðaskrif um veitingastaðinn Bing Dao á Akureyri. Hafa menn bæði skrifað með og á móti staðnum. Svo vill til að Víkverji hefur sr.ætt á Bing Dao í nokkur skipti á undanförnum misserum og er tilbúinn að gefa honum hin beztu meðmæli. Til að mynda hefur Víkverji fengið á Bing Dao þá beztu pekingönd sem hann hefur bragðað á ævinni. Þjónustan var þar að auki mjög góð í alla staði. Víkverji mun hiklaust heimsækja staðinn næst þegar hann leggur leið sína til Akureyrar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.