Morgunblaðið - 19.08.1998, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
SOPHIA Loren ásamt sonum sínum, Carlo og Eduardo Ponti, og eigin-
manninum Carlo Ponti.
Sophia Loren
lögð á
►LEIKKONAN ástsæla Sophia
Loren var lögð inn á spitala í
New York á mánudag eftir að
hafa fengið hjartsláttartruflanir.
Að sögn talsmanns hennar verð-
ur hún í nokkra daga á sjúkra-
húsi í rannsóknum og mun að því
loknu taka sér góða hvfld. „Þetta
er í fyrsta skipti sem þetta kem-
ur fyrir,“ bætti hann við. „Hún
hefur alltaf verið frekar hraust
og það er óvenjulegt að henni líði
ekki vel.“
Eiginmaður Sophiu Loren,
Carlo Ponti, sagði ítölskum fjöl-
spítala
miðlum að konan sín hefði sagt
við sig: „Nú get ég loksins
hvflst." Hann bætti við: „Upp á
síðkastið hefur hún ferðast of
mikið, útaf skuldbindingum
vegna kvikmynda og útgáfu."
Ponti sagði einnig að Loren gæti
ekki verið viðstödd Kvikmynda-
hátíðina í Feneyjum í byrjun
september þar sem hún átti að
taka við verðlaunum fyrir
æviframlag sitt til kvikmynda.
„Hún verður að taka mánaðar-
hvfld og fara vel með sig,“ sagði
hann að lokum.
CiSLENSKA ÓI'LHAN í
__Miðaiala 551 1475 «
Lau. 22. allra síðasta sýning.
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðasala simi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
á Stóra sviði kl. 20.00
eftir Jim Jacobs og Warren Casey.
Fös. 21/8, uppselt,
lau. 22/8, uppselt,
lau. 22/8, aukasýning kl. 23.30.
sun. 23/8, kl. 16.00, uppselt,
sun. 23/8, uppselt,
fim. 27/8, laus sæti,
fös. 28/8, örfá sæti laus,
fös. 28/8, aukasýning, kl. 23.30,
lau. 29/8, aukasýning kl. 16.00,
lau. 29/8, uppselt,
sun. 30/8, nokkur sæti laus.
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13—18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383.
Kaftiífikhímft
I HLAÐVARPANUM
Vcsturgötu 3 ______________
SUMARTÓNLEIKAROÐ
KAFFILEIKHÚSSINS
-Ágústkvöld". Signý Sæmundsdóttir
syngur lög úr öllum áttum.
fim 20. ágúst kl. 21 laus sæti
MENNINGARNÓTT
í KAFFILEIKHÚSINU lau. 22. ágúst
„Lff rnanns" e. Leoníd Anrejev.
Frums. í tilefni Menningarnætur.
kl. 22 laus sæti
Kvennaband harmonikufélags
Reykjavikur kl. 23 laus sæti og að-
gangur ókeypis
□raugasögur úr miðbænum í flutn-
ingi Erlings Gíslasonar,
kl. 00.30 laus sæti, aðg. ókeypis
Miðasala kl. 15 til 18 alla virka daga
Miðapantanir allan sólarhringinn í síma
551 9055. Netfang: kaffileik@isholf.is
fim. 20/8 kl. 20 UPPSELT
fös. 21/8 kl. 20 UPPSELT
fös. 21/8 kl. 23.30
aukas./örfá sæti
sun. 23/8 kl. 20 örfá sæti laus
fim. 27/8 kl. 20 örfá sæti laus
lau. 29/8 kl. 20 UPPSELT
lau. 29/8 kl. 20 UPPSELT
Miðasala opiil kl. 12-18
Ósáttar pantanir seklar daglega
MiðasöUsími: 5 30 30 30
Miöaverö aöeins kr. 790,-
Innifalið I verði er: Miði á Hróa hött
Miöi I Fjölskyldu -og Húsdýragarðinn
Frítt I öll tæki I garðinum
Hestur, geitur og kanínur eru í sýningunni
Sýningin fer fram í sirkustjaldi
Miðasala: 562 2570 • Nótt&Dagur
Söngleikja-leikritið í
Fjölskyldu -og Húsdýragarðinum
— Mlð. 19. ðgúst ki. 14:30"-—
Fim. 20. ágúst kí. 14.30
Fös. 21. ágúst kl. 14.30
Allra síðustu sýningar.
Miöaverð kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Vöröufélagar LÍ fá 30% afslátt
Sýnt í íslensku óperunni
Miðasölusími 551 1475
\ JSP-1 JjJ jj
amnraen
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
fim. 20/8 kl. 21 örfá sæti laus
fös. 21/8 kl. 21 Aukasýning
lau. 22/8 kl. 23
FÓLK í FRÉTTUM
Spielberg
heldur
efsta
sætinu
Titill Síðasta vika fllls
1. (1.) Saving Private Ryan 947m.kr. 13,2 m.S 126,0 m.$
2. (-) How Stella Got Her Groove Back 815m.kr. 11,3 m.$
3. (-) TheAvengers 742m.kr. 10,3 m.$
4. (4.) There's Something About Mary 635m.kr. 8,8 m.$ 91,3 m.$
5. (2.) SnakeEyes 622m.kr. 8,6 m.$ 31,6 m.$
6. (3.) Halloween: H20 610m.kr. 8,5 m.$ 40,1 m.$
7. (6.) Ever After: A Cinderella Story 432m.kr. 6,0 m.S 34,0 m.$
8. (5.) The Parent Trap 408m.kr. 5,7 m.$ 43,6 m.$
9. (7.) The Negotiator 303m.kr. 4,2 m.$ 32,5 m.$
10. (9.) Armageddon__________________298m.kr. 4,1 m.$ 180,0 m.$
STÓRMYND Spielbergs „Saving
Private Ryan“ hélt efsta sæti á lista
yfir mest sóttu kvikmyndir vestan
hafs fjórðu helgina í röð, þrátt fyrir
að fjórar nýjar myndir væru frum-
sýndar vítt og breitt um Bandarík-
in. _
Á meðal þeirra mynda sem eru
nýjar á lista er „How Stella Got Her
Groove Back“ sem hafnaði í öðru
sæti. „The Avengers" olli vonbrigð-
um og náði aðeins þriðja sæti.
Stór þáttur í velgengni „Saving
Private Ryan“, þar sem Tom Hanks
er í aðalhlutverki, er að áhorfendur
fara oftar en einu sinni á myndina.
Útgöngukannanir sem gerðar voru
um helgina leiddu í ljós að fimmt-
ungur bíógesta hafði séð myndina
áður.
Myndin hefur nú halað inn 125,8
milljónir dollara og hefur því verið
spáð að heildartekjurnar í Banda-
ríkjunum eigi eftir að fara upp í 180
milljónir.
Stella, sem byggð er á skáldsögu
Terry McMillans, fjallar um mið-
aldra konu og tvítugan mann sem
eiga í ástarsambandi. í aðalhlut-
verkum eru Angela Bassett og ný-
liðinn Taye Diggs. Þessi rómantíska
mynd hitti í mark hjá svörtum kon-
um, samkvæmt útgöngukönnunum.
Um 80% af þeim sem fóru á mynd-
ina voru svartir, og þar af voni kon-
ur 70%. Þá voru 70% bíógesta 25
ára og eldri.
Kvikmyndin „Það er eitthvað við
Mary“ hélt áfram sigurgöngu sinni
og féll aðeins um 6% í aðsókn. Ca-
meron Diaz er í aðalhlutverki í
myndinni og er því spáð að hún nái
inn rúmlega 130 milljónum dollara.
Annars á aðsóknin líklega eftir að
minnka næstu vikurnar þegar skól-
arnir byrja á ný og sumarfríinu lýk-
ur hjá nemendum í Bandaríkjunum.
Barna-
dans
Foster og
Channing
► LEIKKONURN AR
Stockard Channing og Jodie
Foster stilltu sér saman upp
á forsýningu myndarinnar
„The Baby Dance“ í Los
Angeles fyrr í vikunni. Fost-
er er framleiðandi myndar-
innar í gegnuin framíeiðslu-
fyrirtæki sitt Egg Pictures
Production. Það er liins veg-
ar Stockard Channing, sem
flestir þekkja úr inyndinni
„Grease", sem leikur konu
sem hefur um árabil reynt
að eignast barn án árangurs.
Myndin fjallar um tvær gjör-
élíkar Qölskyldur sem lenda
í (ilfinningabaráttu hvor við
aðra og lífið sjálft. Eins og
kunnugt er eignaðist Foster
sitt fyrsta barn 20. júlí síð-
astliðinn og er efni myndar-
innar henni því vafalaust
hugleikið.
a
Einhleyp
►LEIKKONAN Mira Sorvino
er orðin einhleyp á ný eftir að
sambandi hennar og salsa-
stjörnunnar Marc Ant-
honys lauk nú á dögunum.
Þau byrjuðu að draga sig
saman fyrr í sum-
ar eða skömmu eft-
ir að upp úr slitnaði
hjá Sorvino og leik-
stjóranum Quentin
Tarantino. Að sögn
dagblaðsins Daily News
eru sambandsslit
Sorvino og Ant-
honys á vinalegu
nótunum.
Þess má geta
að þegar leiðir
Sorvino og Tar-
antinos skildi
voru ýmis safa-
rík ummæli
höfð eftir
þeim í fjöl-
miðlum sem
nú hafa ver-
ið leiðrétt.
Tarantino
átti að hafa
sagt að Sor-
vino væri þurftafrek og
svo háð honum að
hann hefði fengið
nóg. Sorvino átti
hins vegar að hafa
sagt að Tarantino
væri yndislegur
maður og snill-
ingur en gæti
hins vegar ekki
haldið buxunum
upp um sig.
Fyrir skömmu
sendu kynn-
ingarfulltrúar
stjarnanna
frá sér til-
kynningu
þar sem
fullyrt er
að hvorki
Sorvino né
Tarantino
hafi látið
þessi ummæli falla. Þau
beri mikla virðingu
hvort fyrir öðru.