Morgunblaðið - 05.09.1998, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 65
FÓLK í FRÉTTUM
Ekki
sársauka-
laust
► PRINS sársaukans á
Kamikaze-furðusýningunni
setti nýverið nýtt heimsmet
þótt líklega hafí það ekki verið
honum alveg að sársaukalausu.
Metið fólst nefnilega í því að
hann lét Iyfta líkama sínum
með krókum sem var krækt í
bak og kálfa. Kamikaze-sýning-
in var ein af vinsælustu upp-
ákomum Edinborgar-hátíðar-
innar í siðasta
Elton
John klífur
upp fyrir
Billy Joel
► ELTON John er orðinn annar
söluhæsti sólótónlistarmaður
allra tíma í Bandaríkjunum. Plöt-
ur hans hafa selst í 60,6 milljón-
um eintaka og er hann kominn
upp fyrir Billy Joel sem er f
þriðja sæti með 60 milljónir ein-
taka. Hann á þó ennþá langt í
land með að ná Garth Brooks
sem trónir í efsta sætinu með 81
milljón seldra platna. Barbra
Streisand er í fjórða sæti með
57,3 milljónir og Elvis Presley í
því fimmta með 50,1 niilljón.
MYNDBÖND
Satt og
logið
Logið í Ameríku
(Telling Lies in Ameríca)_
D r a in a
★ 2
Framleiðsla: Ben Myron og Frank
Rubel Kuzui. Leikstjórn: Guy Fer-
land. Aðalhlutverk: Kevin Bacon,
Brad Renfro og Calista Flickliart. 98
mín. Bandarísk. Myndform, ágúst
1998. Leyfð öllum aldurshópum.
KARCHY Jonas (Renfro) er ung-
lingur sem flúið hefur til Bandaríkj-
anna frá Rúmeníu ásamt föður sín-
um. Feðgarnir bíða þess að hljóta
þegnrétt, en
framtíð þeirra er
stefnt í voða þeg-
ar Karchy flæk-
ist inn í
glæpamál.
Þetta er til-
tölulega alvarleg
unglingamynd
um vanda fólks
sem verður að
tileinka sér nýja menningu í nýju
landi. Jafnframt fjallar hún um al-
mennari vandamál eins og heiðar-
leika, vináttu, tryggð og ást. Heið-
arleiki er afstætt hugtak sem
Karchy verðm- að skilgreina fyrir
sig sjálfur. Það veldur honum vanda
að Iygin er viðurkennt vopn í lífs-
baráttunni í Ameríku, en þegar
kemur að samskiptum við ástvini á
hún hvergi heima. Leikur, leik-
stjórn og tæknivinna er með ágæt-
um.
. Joksins a Islandí
OPNUM í DAG
GLÆSILEGA
MORGAN KVENFATAVERSLUN
Fatnaður fyrir konur
á öllum aldri
Morgan er frönsk verslunarkeðja
og eru starfræktar yfir 350 verslanir i
París — New York — London og Tokyo
og nú loksins í Reykjavik...
Wl-O-R^G^A-N
Kringlunni 4 — 6, sími 533 1720
IJ
Guðmundur Ásgeirsson