Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 201. TBL. 86. ÁRG. SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS : Reuter íranir hafa í hótunum við Talebana í Afganistan Auka herumsvif við landamærin Tcheran, Islamabad. Reuters. Schröder segir Kohl í sömu stöðu og Jeltsín Bonn. Reuters. GERHARD Schröder, kanslaraefni Jafn- aðarmanna í Þýskalandi fyrir komandi þingkosningar, sagði í gær að pólitísk staða Helmuts Kohls kanslara væri jafn erfið og staða Boris Jeltsúis Rússlands- forseta, en kröfur um afsögn Jeltsíns hafa gerst háværar á síðustu vikum, og sagði Schröder að Kohl myndi tapa kosningun- um vegna þess að jafnvel stuðningsmenn hans liefðu misst trúna á kanslarann. í viðtali sem sunnudagsblaðið Bild am Sonntag birtir í dag segir Schröder að kanslaratíð Kohls sé orðin alltof löng og að Kohl sé ekki lengur það tákn stöðug- leika sem hann var vegna þeirrar van- trúar sem nú gæti á kanslarann heima- fyrir. „Kohl er í nákvæmlega sömu erf- iðu stöðunni og Jeitsín," sagði hann um leið og hann blés á fullyrðingar þess efn- is að þýskir kjósendur myndu veita Kohl stuðning sinn vegna reynslu hans af því að takast á við erfiðleika. „Ég hef alltaf þakkað Helmut fyrir hans framlag en Helmut, þinn tími er liðinn.“ Hjólið of dýrt fyrir svartan mann? GÍNEUBÚI, sem búsettur er í Osló, seg- ist hættur að nota reiðhjólið sitt eftir að norska lögreglan stöðvaði hann í sautj- ánda skipti á þremur vikum vegna gruns um þjófnað. „Þetta eru kynþáttafordóm- ar. Svartur maður hefur greinilega ekki rétt á að eiga dýrt reiðhjól í Osló,“ sagði Mouctar Doumbouya, sem er 26 ára, á föstudag. „Ég á fullt af norskum vinum og enginn þeirra er nokkurn tímann stöðvaður." Segist Doumbouya hafa keypt sér nýtískulegt reiðhjól í júlí sem kostaði hann næstum tuttugu þúsund norskar krónur, tæplega tvö hundruð þúsund íslenskar krónur, en síðan þá hafí lögreglan ítrekað stöðvað hann. Lögreglan neitaði á föstudag að tjá sig um málið en Doumbouya hefur ákveðið að komast hér eftir leiðar sinnar með sporvagninum. Eggin á þrotum í Taívan ALGER skortur er nú á eggjum í Taívan vegna þess að þarlendir hafa fyllst dá- læti á eggjabökum og borða þær nú í tíma og ótíma. Stjórnarerindrekar hvöttu almenning á föstudag til að sýna skynsemi því eggjaframleiðendur hafa ekki við og hefur verð á eggjum rokið upp. Eggjabökurnar, sem ættaðar eru frá Portúgal, eru lófastórar kökur með sætri og ijómakenndri eggjafyllingu. Hafa sérverslanir sem selja bökurnar sprottið upp sem gorkúlur í höfuðborg- inni Taipei að undanförnu. IRANIR sögðust í gær áskilja sér rétt til að grípa til allra tiltækra ráða gegn Talebönum, sem fara með stjórn í Afganistan, en Iranir saka þá um að halda írönskum diplómötum í gíslingu. Sagði ríkisútvarpið í íran að stjórn- völd í Teheran hefðu gert öryggisráði Sa- meinuðu þjóðanna grein fyrir stöðu mála og að nú hefðu íranir, í samræmi við sáttmála SÞ, rétt til að grípa til allra tiltækra ráða í því skyni að verja sig og þegna sína. Greint var frá því í gær að Talebanar hefðu gripið til þess að vopna almenna borgara landamærahéraðsins Nimroz vegna mögu- legrar árásar en íranir hafa mjög aukið hern- aðarviðbúnað nærri landamærunum að Afganistan. Afghan Islamic Press greindi frá þvi að stjórnvöld í Teheran hefðu sent um 70.000 her- menn, flugvélar og skriðdreka til landamær- anna. Hefur The Washington Post eftir banda- rískum leyniþjónustumönnum að íranir búist nú til að ráðast inn í Afganistan um leið og samskipti ríkjanna komist á suðupunkt. I stað beinna aðgerða gegn Talebönum er hins vegar talið liklegra að íranir veiti einfaldlega Shíta- múslimum, sem eru í útlegð í íran, ómælt lið í þeirri viðleitni að veikja tök Talebana, sem eru Súnní-múslimar, á völdum í Afganistan. Harmur á slysstað NÆR þijú hundruð manns, ættingjar þeirra 229 sem fórust með MD-ll-far- þegaþotunni við strönd Nova Scotia í Kanada aðfaranótt fimmtudags, komu til Peggy’s Cove í gærmorgun. Reyndist mörgum það erfið stund að líta út yfir úf- inn sjóinn þar sem flugvélin kom niður og reyndu björgunarmenn og annað hjálpar- fólk að veita aðstandendum stuðning. Þykk þoka var í gær við Peggy’s Cove og jók það frekar á dapurlegt andrúmsloftið. Leitarmenn hafa nú gefið upp von um að finna nokkurn enn á lífi. -------------- Clinton heldur heim á leið Fórnarlömbum Omagh-tilræð- isins fjölgar BILL Clinton Banda- ríkjaforseti lauk í gær heimsókn sinni til Irlands og hélt heim á leið þar sem búast má við að mikl- ir erfiðleikar bíði for- setans. Sagði frétta- maður Sky í gær að ef marka mætti orðróm um innihald væntanlegrar skýrslu Kenneths Starrs, sér- legs saksóknara, sem gefur til kynna að í skýrslunni verði að finna ofgnótt nýrra upplýs- inga um vafasamt framferði forsetans, muni Clinton vart eiga sér viðreisnar von. Þrátt fyrir yfirvofandi orrahríð lék Clinton á als oddi þegar hann ávarpaði íbúa Limerick í gær og þykir ferð hans til Irlands hafa tekist afar vel. Fjölmiðlar vestra hafa hins vegar lítið gefið henni gaum. Tala látinna vegna sprengjutilræðisins í Omagh á N-írlandi 15. ágúst síðastliðinn hækkaði um einn í gær þegar tilkynnt var að rúmlega sextugur karlmaður hefði látist af sárum sínum. Tala látinna er því komin í tutt- ugu og níu og enn eru nokkrir þungt haldnir vegna áverka sinna. Er tilræðið í Omagh það mannskæðasta í þrjátíu ára sögu óeirða og ódæðisverka á N-Irlandi. -----♦-♦“♦---- Kirkjuþak gaf sig Sao Paulo. Reuters. TUTTUGU og tveir fórust og að minnsta kosti 477 særðust þegar þak á kirkju nærri Sao Paulo í Brasilíu gaf sig í gær og féll á um 1500 kirkjugesti. Atburðurinn átti sér stað í Osasco, sem er eitt úthverfa Sao Paulo, og að sögn lækna gæti tala látinna átt eftir að hækka því 13 hinna særðu eru taldir í lífs- hættu. Landsbankinn og lögmál markaðarins io Heimur líftækninnar aldrei jafn spennandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.