Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 30/8 - 5/9 ►RISASTÓR kanadískur loftbelgur raskaði flugum- ferð á Atlantshafi í vikunni, meðal annars í fslenska flugstjórn- arsvæð- inu. Belgnum var skotið á loft í Kanada til vísinda- rannsókna en sveif hærra en ætlað var. Hann féll loks til jarðar í Finnlandi. ►UM 33 þúsund laxar höfðu veiðst á stöng í ís- lenskum ám í lok ágúst og er útlit fyrir að 25-30% meiri veiði verði á þessari vertíð heldur en á síðasta sumri. Mesta veiðin hefur verið í Eystri Rangá, þar sem landað hefur verið 2.300 löxum. ►UMHVERFISRÁÐHERRA felldi úr gildi úrskurð skipulagsstjóra um leyfi til 140 MW virkjunar við Vatnsfell. Ráðherrann vildi nýtt umhverfismat vegna virkjunarinnar þar sem tek- ið væri fram að ekki væri gert ráð fyrir Norðlinga- ölduveitu. ►ÓLAFUR Bragi Braga- son, sem grunaður er um aðild að stórfelldu fíkni- efnasmygli til Túnis, var sleppt úr fangelsi í Þýska- landi á mánudag. Yfirvöld- um í Túnis hafði ekki tekist að útvega nauðsynleg gögn til framsals hans. Æfingalending á Vest- mannaeyjaflugvelli FLUTNINGAVÉL af gerðinni C-17 frá bandaríska flughemum, sem flytja á hvalinn Keikó frá Bandaríkjunum til íslands, æfði lendingu á Vestmanna- eyjaflugvelli á miðvikudaginn. Sprunga kom í flugvöllinn en að öðru leyti gekk bæði flugtak og lending vel. Hæsta seiðavísitala þorsks SEIÐAVÍSITALA þorsks samkvæmt mælingum í árlegum seiðarannsókna- leiðangri Hafrannsóknastofnunar reynd- ist sú hæsta síðan mælingar hófúst árið 1970. Seiðavísitala ýsu var sú þriðja hæsta síðan mælingai- hófust en vísitala loðnuseiða var nokkuð undir meðallagi, en seiðin voru vel á sig komin. 2,76% lækkun úrvalsvísitölu ÚRVALSVÍSITALA Aðallista á Verð- bréfaþingi íslands lækkaði um 2,76% á þriðjudaginn og er það mesta lækkun milli daga frá árinu 1993. Stefán Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Verðbréfa- þings íslands, sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem menn greindu erlend áhrif á verðmyndun hlutabréfa á VÞÍ. Hlutafjárútboð Lands- banka til almennings VIÐSKIPTARÁÐHERRA og banka- stjóri Landsbankans tilkynntu á fímmtudaginn að nýtt hlutafé í bankan- um að nafnvirði 1.000 milljónir kr. yrði boðið út. Hlutaféð verður selt til starfs- fólks bankans, fjárfesta og almennings með áskriftar- og tilboðsfyrirkomulagi og er áætlað söluandvirði bréfanna um 1.700 milljónir króna. Clinton í Moskvu BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, heimsótti Moskvu í vikunni. Hann ít- rekaði á fundum með Borís Jeltsín, for- seta Rússlands, og leiðtogum stjómar- andstöðunnar að Rússar þyrftu að halda áfram umbóta- veginn, ekki aðeins til að tryggja sér áframhaldandi stuðning vesturveld- anna, heldur einnig einfaldlega af því að það væri rétta leiðin fram á við fyrir Rússland. Fundur forsetanna þótti litl- um árangri skila enda eiga báðir undir högg að sækja, Clinton vegna Lewin- sky-málsins umtalaða og í Rússlandi hafa kröfur um afsögn Jeltsíns gerst afar háværar. Dúman, neðri deild rúss- neska þingsins, hafnaði tilnefningu Viktors Tsjemomyrdín í embætti for- sætisráðherra á mánudag í fyrstu at- kvæðagreiðslu sinni en annarri at- kvæðagreiðslu var frestað á fostudag fram yfir helgi og þótti það vísbending um að stjómarandstaðan væri öllu til- leiðanlegri til að semja við Jeltsín. 229 fórust í flugslysi ENGINN komst lífs af þegai- far- þegaþota í eigu svissneska flugfélags- ins Swissair hrapaði í sjó skammt undan Nova Scotia í Kanada aðfara- nótt fimmtudags. 229 fórust með flug- vélinni og er þetta sautjánda mann- skæðasta flugslys sögunnar en flestir farþegar vélarinnar vom Bandaríkja- menn. Orsaka slyssins var leitað fyrir helgi en ekkert var talið benda til að um hermdarverk hefði verið að ræða. Eldur mun hafa komið upp í farþega- rýminu og beindi flugstjóri vélarinnar henni þá í átt að flugvellinum í Halifax en auðnaðist ekki að ná alla leið held- ur skall í sjóinn undan Nova Scotia. Flugvélin hafði lagt upp frá New York og var ferðinni heitið til Genfar í Sviss. ►LEIÐTOGAR _ Sinn Féin, stjórnmálaarms írska Iýðveld- ishersins (IRA), lýstu því yfir í vikunni að ofbeldi yrði að „heyra til liðinni tíð, vera lok- ið fyrir fullt og allt“. Til- nefndu þeir einnig Martin McGuinness til viðræðna við nefnd um afvopnun öfgahópa. Var tiðindum þessum fagnað mjög, m.a. af Bill Clinton, Bandarikjaforseta; sem heim- sótti N-írland og Irland að af- loknum leiðtogafundinum í Moskvu. ►TILKYNNT var á mánudag að Kjell Magne Bondevik, for- sætisráðherra Noregs, hygð- ist taka sér viku veik- indaleyfi vegna þunglyndis sem stafaði af of miklu vinnuálagi. Hefur mál- ið vakið nokkra at- hygli í Nor- egi og víðar en margir efast reyndar um að Bondevik snúi strax aftur í embættið. ►WILLY Claes, fyrrvcrandi framkvæmdastjóri Atlants- hafsbandalagsins (NATO), var einn tólf sakborninga sem komu fyrir hæstarétt Belgíu á miðvikudag vegna ákæru um spillingu í tengslum við samn- inga um kaup belgíska ríkis- ins á hergögnum seint á ní- unda áratugnum. Hefur málið verið kallað „réttarhald aldar- innar“. ►UM eitt hundrað manns var á miðvikudag handtekið í tólf löndum, m.a. Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, í stærstu sam- ræmdu alþjöðlcgu lögregluað- gerð sem gerð hefur verið gegn starfsemi barnaníðinga sem dreifa barnaklámi á net- inu. FRETTIR Skortur á starfsmönnum hjá leikskólum borgarinnar Dæmi um að deildum hafi verið lokað ERFIÐLEGA hefur gengið að manna stöður leikskólakennara á leikskólum Reykjavíkurborgar að undanfórnu og að sögn Bergs Felix- sonar, framkvæmdastjóra Dagvistar barna, hafa viðbrögð við atvinnuaug- lýsingum Dagvistar barna verið lítfi. Skortur á leikskólakennurum eða ófaglærðu starfsfólki í þeirra störf hefur valdið erfiðleikum hjá nokkrum leikskólum borgarinnar og eru dæmi um að loka hafi þurft ein- stökum deildum hluta úr degi og for- eldrar hafi verið beðnir um að sækja börn sín fyrr. Sem dæmi má nefna að á Ægis- borg hefur orðið að grípa til þess ráðs að loka deildum eftir hádegi. Sigrún Kr. Guðmundsdóttir leik- skólastjóri segir að deildum leikskól- ans, sem eru fjórar, sé lokað til skiptis til að það komi sem jafnast niður á foreldrum. Hefur orðið að grípa til þessara lokana jafnvel þótt tekist hafi í nokkrum tilvikum að fá starfsmenn, sem vinna hálfan daginn, til að vinna allan daginn um tíma. Hún segir starfsmenn leikskólans gjarnan húsmæður með böm sem vilji helst vinna íyrir hádegi og enn meiri krafa sé um það nú þegar skól- ar eru mikið til einsetnir. A Ægisborg vanti nú í fimm stöður síðdegis. Sigrún segir ekki síst leikskóla- kennarana sækjast eftir að vinna fyrir hádegi og því sé hlutfall ófag- lærðra hærra eftir hádegi. Hún segir þennan vanda leikskólanna koma niður á gæðum starfsins. Að sögn Bergs Felixsonar eru yf- irleitt miklai- breytingar á starfs- mannahaldi hjá leikskólunum á haustin, til dæmis vegna þess að starfsmenn eru að fara í nám, og því sé það nær árviss viðburður að_ á þeim tíma vanti starfsmenn. „Eg reikna með því að yfii'leitt hafi þurft að ráða um 200 manns á haustin og er það töluverður fjöldi,“ segir hann. Einkafyrirtæki yfirbjóða Bergur segir að það gangi mis- jafnlega að ráða nýja starfsmenn á haustin en bætir því við að í fyrra hafi það gengið þokkalega. Þess vegna hafi þau hjá Dagvist barna verið bjartsýn á horfurnar í haust. „Þegar þensluástand er í þjóðfé- laginu verður samkeppnin um starfs- menn meiri. Einkafyrirtæki yfir- bjóða til dæmis ef þau eru í vand- ræðum og þá líðum við, þessir opin- beru aðilar, fyrir það,“ segir hann og treystir því að í haust takist að manna lausar stöður hjá leikskólum borgarinnar. Lokið við að leggja bundið slitlag kringum Mývatn MÝVETNINGAR fógnuðu því á föstudag að lokið er við að leggja bundið slitlag á veginn kringum Mývatn. Sigbjörn Gunnarsson sveitarstjóri sagði að langþráður draumur væri nú orðinn að veru- leika og þessi framkvæmd bætti mjög samgöngur innan sveitar. Vegurinn kringum vatnið er um 37 km langur og í vikunni var lokið við að leggja bundið slitlag á siðustu 7 km, frá Vagnbrekku og að vegamótum Kísilvegar norðan vatns. Sveitarsljóm Skútustaða- hrepps hélt upp á þessi tímamót og bauð Halldóri Blöndal sam- gönguráðherra, vegagerðar- mönnum og öðrum sem komu að verkinu og fleiri gestum til veislu á Hótel Reynihlíð. Áður var stutt athöfn við Nes- landaafleggjara en á myndinni er Halldór Blöndal að fiytja þar ávarp. ---------------- IKEA 16% verðlækkun á 800 vörum VERSLUNIN IKEA mun lækka verð á 800 vörum um 16% að meðal- tali í nýjum vörulista, sem hafist verður handa við að dreifa á morg- un. Flestar aðrar vörur í nýja list- anum verða á óbreyttu verði, að því er segir í fréttatilkynningu, en nokkrir liðir hækka lítillega. AIls eru rúmlega 1600 vörur í listanum. Morgunblaðið/Halla GUÐBJÖRG Erla Ríkharðsdóttir og Ríkharður Atlason fra Vest mannaeyjum halda í dag ásamt Önnu S. Krisljánsdóttur og Hálfdani Helgasyni frá Eskifirði áleiðis til Bandaríkjanna til að heimsækja Keiko áður en hann verður fluttur til Eyja. Heimsækja Keiko í Bandaríkjunum TVEIMUR börnum frá Vest- mannaeyjum og tveimur frá Eskifirði hefur verið boðið að heimsækja Keiko í Bandaríkjun- um áður en hann verður fluttur þaðan til Eyja. Halda þau áleiðis þangað í dag. Vestmannaeyingamir heita Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir, nemandi í Hamraskóla, og Rík- harður Atlason sem er í Barna- skóla Vestmannaeyja og em þau bæði ellefu ára. Eskfirðingamir era þau Anna S. Kristjánsdóttir og Hálfdán Helgason, jafnaldrar þeirra, og em í grunnskólanum á Eskifirði. Rannsóknasetrið í Vestmanna- eyjum býður börnunum í ferðina en Free Willy Keiko-stofnunin uppihaldið í Oregon. Með böm- unum í för verða Bryndís Boga- dóttir kennari og Páll Marvin Jónsson, forstöðumaður Rann- sóknasetursins í Vestmannaeyj- um. Bömunum gefst tækifæri ti að fylgjast með Keiko í Oregon þar til hann verður fluttur í fiug- vélina sem fer með hann til Is- lands. Eftir það munu börmn heimsækja skóla og koma a sam- bandi við böm í Oregon Coast og hugmyndin er síðan að fy*SJa e ir sambandinu með heimasi u. Ferðalangamir koma heim að viku liðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.