Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÚR Landmannalaugum. Ljósmynd úr bók Roni Horn „To Place: Pooling Water“, sem ijallar um laugar á Islandi. „ÞETTA EKKERT SEM ER “ eftir Roni Horn Greinarhöf- undur er í hópi virt- ustu sam- tímalista- manna Bandaríkj- anna og hefur komið á hverju ári til Islands allt frá ár- inu 1975. Meðal verka hennar eru átta bækur með ljós- myndum, teikningum og textum sem tengjast íslenskri náttúru. S G OLST upp innan um tré. Eg tel þau með mikilvægustu hlutum í lífi mínu. Samt er það svo furðulegt að þegar ég kem til íslands og trjálauss landslags þess þá sakna ég þeirra aldrei. Á ferðalögum hér í gegnum árin hefur vítt, ótakmark- að útsýni eyjunnar líka orðið mér mjög mikils virði. Þetta útsýni er tré Islands. Því einn mikilvægasti eiginleiki trjáa er hvemig þau tengja hlutina saman: jörð- ina himninum, ljósið myrkrinu, vindinn í laufi þess kyrrðinni sem umlykur það, hið smáa rými innan trésins stóra rým- inu sem það byggir. Hér á Islandi þjón- ar rýmið þessu hlutverki og felur um leið í sér skynjun á tilverunni sem er al- gjörlega einstök. Veðrið á stóran þátt í þessari skynjun á staðnum og útsýni hér er aldrei án þess. Það veitir leiftursýn inn í liðna tíð og stundum inn í það sem koma skal. I útsýninu er hið nálæga og hið fjarlæga oft álíka skýrt. Það breiðir út lögun hnattarins í víðáttu og tærleika sem ekki finnst á mörgum öðrum stöð- um. Það fangar mann í einveru sem ger- ir mann að meiri manni. Utsýnið tengir mann veröldinni sem á Islandi er fyrst og fremst af náttúrulegum toga, steinar og gróður og vatn: allt eru þetta flóknir og margþættir hlutir sem eru jafnframt merkilega ungir. Ég ólst upp í fyrstu úthverfum New York borgar. Fyrsta ferð mín til útlanda þegar ég var 19 ára, leiddi mig til ís- lands árið 1975. Síðan þá hef ég komið hingað einu sinni og stundum tvisvar á ári, ár hvert. í eitt skiptið, árið 1979, var mér unnt að dveljast í fimm mánuði. Mestan hluta þess tíma dvaldi ég úti í landslaginu í tjaldi og ferðaðist um á mótorhjóli. Undir lok dvalar minnar, höfðu þessi ferðalög leitt mig um gjör- vallt landið, en þó fyrst og fremst um hálendið. Víðfeðmi landsins hafði óskap- lega mótandi áhrif á mig; það er nógu stórt til að villast á, en þó nógu smátt til að maður finni sjálfan sig. Síðan þá hafa vegirnir, sem voru sér- staklega ógreiðfærir (en höfðu þó lag á að koma ferðalanginum í náið samband við landið, bæði líkamlega og andlega) verið lagaðir að hraðari og þægilegri ferðamáta. Með malbikuðum vegum og meiri ferðahraða fann ég samt sem áður hvernig mitt samband við landið varð fjarlægara, jafnvel óhlutbundnara. Að viðhalda tengslum við landið krafðist virkari þátttöku, meiri ábyrgðar af hendi ferðalangsins. Þetta virtist þó smávægi- leg fórn miðað við þá aukningu lífsgæða sem slík framþróun hafði í fór með sér. Meðal margra forréttinda sem ísland nýtur (þó íslendingar komi ekki auga á það, að ég held) er einstök staða sögu- lega séð miðað við aðrar menningar- heildir nútímans. Það er að segja, að vegna þess hve efnahagslegar framfarir drógust á langinn á íslandi, er landið fyrir tilviljun úr takti við aðra nútíma menningarheima. Þið eruð úr takti vegna þess að umhverfi ykkar, ólíkt því sem gerist í öðrum nútíma samfélögum, er enn óskaddað. Þetta setur landið nú, í lok annars árþúsunds, í aðstöðu til að horfa gagnrýnum augum upp á þá eyði- leggingu sem önnur samfélög hafa steypt sínu umhverfi í með óvandaðri og hömlulausri uppbyggingu og misnotkun á náttúrulegum auðæfum. ísland er í aðstöðu til að bera vitni um vafasaman afrakstur þessa athæfis. Og það verður að nota þá þekkingu til að setja spurningarmerki við víðfeðmi og eðli þein-ar uppbyggingar sem það hef- ur hug á að sækjast eftir. Olíkt öðrum þeim menningarheimum sem framþróun á enn eftir að setja mark sitt á, liður ís- land ekki fyrir víðtækt ólæsi eða fáfræði vegna ritskoðunar fjölmiðla. Þið líðið ekki fyrir afskræmandi fátækt, óheyii- lega mannfjölgun eða síendurteknar náttúruhamfarir á borð við þurrka, flóð eða óhefta útbreiðslu sjúkdóma. Þar til nýverið virðist sem nýting á nátt- úrulegum auðæfum hafi verið takmörk- uð af smæð efnahagslífsins. En nú þeg- ar efnahagslífið er farið að eflast, er þjóðfélagið fremur reiðubúið til að íhuga enn afdrifaríkari leiðir til þenslu, til að mæta síauknum kröfum um meiri allsnægtir. Og með þessum nýju mögu- leikum er markvisst ýtt undir frekari tæknilega afkastagetu og viljann til að umbreyta náttúrunni, eins og það sé nauðsyn. Sem útlendingur hef ég fylgst með og dáðst að staðfastri höfnun Islendinga á erlendum áhrifum sem stofnað gætu tungumáli ykkar í voða. Ég hef dáðst að þeim stórfenglegu bókmenntaverkum sem þið hafið skapað og eru svo djúp- stæður þáttur í sjálfsvitund ykkar. Einnig dáðist ég að elstu húsagerðarlist ykkar og upprunalegum byggingum sem margar hverjar voru einstæðar fyr- ir ykkar menningu. Og svo eru hinar fjölmörgu hliðar á félagslegri menningu sem bera vott um upplýsingu: ein hin at- hyglisverðasta - raunsætt umburðar- lyndi gagnvart nánum kynnum og sú ábyrgð sem tekin er á ávöxtum þeirra. En nú þegar ég heimsæki eyj- una velti ég því fyrir mér hvort þið takið eftir þeim hröðu breytingum sem ís- lenskt samfélag hefur orðið fyi-ir, sér- staklega á síðustu fimmtán árum, og hvemig þær eru nú að byrja að hafa áhrif á hina viðkvæmu vistfræði sem umlykur ykkur. Náttúran umhverfis ykkur er einstaklega viðkvæm og ein- staklega dýrðleg vegna þess að hún er óvenjulega ung. Og nú sömuleiðis, vegna þess að geta ykkar til að breyta náttúrunni og eyðileggja hana er mun meiri en nokkru sinni fyrr. Nútíma þjóðfélag hefur upplifað það sem virðist vera óseðjandi þörf fyrir neyslu - sem oft er langt umfram þarfir einstaklingsins. Afleiðing þessa er ofnýt- ing náttúrulegra auðæfa sem hefur eyði-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.