Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 51 I DAG BRIDS Dnisjón (1110111111111111' Púll Arnarson í LEIK Breta og ítala á EB-mótinu fyrr á árinu, kom þetta spil upp: Austur gefur; enginn á hættu. Norður A ÁG6 V 97 _ ♦ KDG * ÁD1043 Vestur ♦ D873 VÁG653 ♦ 1043 *6 Austur * K109542 V K ♦ 2 * 98752 Suður *- ¥ D10842 ♦ Á98765 * KG Sex tíglar voru spilaðir á báðum borðum, en þar sem bresku Hackettbræð- urnir, Justin og Jason, voru í vörninni fór slemm- an strax niður á hjarta- stungu. Á hinu borðinu voru Hackett eldri og Tony Forrester í NS: Vestur Norður Austur Suður Rinaldi Hackett Pulga Forrester - - Pass 1 hjarta Pass 2 lauf 2 spaóar 3 tíglar 3spaðar Pass Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar Dobl Redobl Pass 5 lauf Pass 5 tíglar Pass 5 spaðar Pass 6 tíglar Allir pass Eftir þessar sagnir hefði vestur getað fundið hjartaásinn út, en hann bar of mikla virðingu fyr- ir andstæðingum sínum og kom út með tromp. Prá bæjardyrum Foit- esters var útlitið bjart, því hann hugðist taka trompin og henda svo fjórum hjörtum niður í lauf og spaðaás. Hann tók fyrst tromp þrisvar og spilaði svo laufkóng og gosa, sem hann ætlaði að yfirtaka. En þá henti vestur spaða! Þá varð Forrester að grípa til annarra ráða. Það var orðið mjög líklegt að hjartaliturinn skiptist 5-1. Forrester setti því lítið lauf úr borði og spil aði smáu hjarta. Vestur svaf á verðinum og lét lít ið hjarta í slaginn, svo austur varð að taka á kónginn blankan og spila blindum inn. Auðvitað átti vestur að beita krókódílabragðinu gleypa kóng makkers með ás og spila sér út á hjartagosa. Hann hefði þá fengið síðasta slaginn á hjartasexuna! Árnað heilla Q/\ÁRA afmæli. Áttræð OvFverður þriðjudaginn 8. september, Halldóra Thorlacius, Suðurgötu 17- 21, Sandgerði. Hún tekur á móti gestum á heimili sínu á afmælisdaginn eftir kl. 19. /?/\ÁRA afmæli. Á morg- ÖUun, mánudaginn 7. september, verður sextug Lind Ebbadóttir, Holtsbúð 103, Garðabæ. Eiginmaður hennar er Jdn Ólafsson. Þau hjónin taka á móti gestum í dag, sunnudaginn 6. septem- ber, í sal tannlæknafélags- ins, Síðumúla 35, frá kl. 17. /?/\ÁRA afmæli. Á morg- Ov/un, mánudaginn 7. september, verður sextugur Guðmundur T. Magnússon, Þrúðvangi 5, Hafnarfirði. Eiginkona hans er Petrína R. Ágústsddttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum í Oddfellow-húsinu, Staðai'- bergi 2-4, kl. 20 í dag, sunnudaginn 6. september. Með morgunkaffinu HVERSU lengi hefurðu fundið fyrir þessu ofsóknaræði? HÆTTU nú Sigurður. Póstberinn getur ekkert að þessu gert? HÖGNI HREKKVÍSI ORÐABÓKIN SIÐAST var bent á beygingu so. að heyja í merkingunni að fram- kvæma eða gera e-ð, heyja þing, orustu eða baráttu. Nú skal minnzt á so. að æja í merking- unni að nema staðar, hvíla (hesta). Kenni- myndir hennar eru að æja, áði og áð. Ég verð að æja hestunum, ég áði (þeim) á leiðinni og ég hafði áð nokkrum sinn- um. Nh. æja verður svo á fyrir áhrif frá þt. áði og lh. áð. Þá er sagt: ég ætla að á eða við ætlum að á hérna. Aftur á móti Að œja á samkv. beygingu so. að taka svo til orða: ég ætla að æja (hestunum) hér eða ég æi hestunum hér. Á sama hátt: þú æir, hann æir hestunum (alls ekki áir). í ft. ber svo að segja: við æjum hestunum, þið æið hest- unum, þeir æja hestun- um. Þannig má hugsa sér eftirfarandi máls- grein: Við æjum hestum okkar ekki fyrr en við komum í sæluhúsið, en þið æið þeim einu sinni á leiðinni, en ungu mennirir æja þeim oft- ar, ef þeim sýnist svo. Beyging so. er þá á þessa leið í nt. et.: Ég æi (hestunum) við ána, þú æir þeim og hann (eða hún) æir þeim. I nt. ft. verður þetta: Við æj- um, þið æið eða þeir æja hestunum við ána. Hitt þekkist í talmáli, þótt ekki sé rétt, að segja: ég ætla að á hestunum við ána, við ætlum að á þeim við ána o.s.frv. Þannig hliðra menn sér hjá hinni réttu beygingu so. að æja eftir kyni og tölu. - J.A.J. STJÖRNUSPA eftir Prances llrake MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú kannt að sýnast reikull í ráði í annarra augum en veist í raun vel hvaðþú ert að gera. Hrútur — (21. mars -19. aprfl) Gættu þess að gleyma þér ekki í vangaveltum og dagdraumum. Hristu af þér slenið og vertu vinnusamur og jákvæður. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú ert skyndilega orðinn allra uppáhald og það er allt í iagi að njóta slíkrar vel- gengni ef menn hafa það bak við eyrað hversu fallvölt gæfan getur verið. Tvíburar t ^ (21. maí - 20. júní) Þér er nauðsynlegt að brydda upp á einhverju nýju til þess að gefa lífinu lit. Leitaðu samt ekki langt yfir skammt því tækifærin eru við hendina. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þér finnst of þröngt um þig svo þú skalt breiða út væng- ina og fijúga á vit nýrra æv- intýra þar sem gleðin ræður ríkjum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú hefur haldið þér um of inni við sem er óhollt svo hristu af þér drungann og drífðu þig út í sólskin lífsins. Meyja (23. ágúst - 22. september) <DSL Þú þarft að einbeita þér að þeim verkefnum sem fyrir liggja. Settu þér ákveðin takmörk til að keppa að bæði í leik og starfi. (23. sept. - 22. október) 4U Gættu þess hvað þú segir og við hvern. Það getur komið í bakið á þér ef þú ert ekki vandlátur í vah trúnaðar- Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti. Og mundu að oft er í holti heyrandi nær. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) ISA Þú þarft að hafa betri skip- an á því hvar þú lætur hlut- ina því það getur valdið erf- iðleikum að þurfa aftur og aftui' að leita að því sama. Steingeit (22. des. -19. janúar) Gættu þess að vinna heima- vinnuna þína svo að aðrir komi ekki að tómum kofan- um hjá þér þegar að sam- starfi verður. Vatnsberi . (20. janúar -18. febrúar) CSnl Það er ekki allt gull sem glóir svo að þú skalt fara þér hægt í fjárfestingum og setja öryggið ofar öllu öðru. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Það getur verið úr vöndu að velja svo þú skalt kynna þér alla málavexti gaumgæfi- lega áður en þú afræður með hverjum hætti þú leysir vanda þinn. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum givnni vísindalegra staðreynda. Bandaríkin - 55.000 áritanir 55.000 innflytjendaáritanir eru í boði í Ríkishappdrættinu U.S. Govemment lottery. Gagnfræðanám eða 2ja ára starfsreynsla nauðsynleg. Umsóknareyðublöð og uppl.bæklingur. Sendið nafn, heimilisfang og upplýsingar um þjóðerni með faxi eða i pósti innan 15 daga eða veljið 310 575 5099 á faxvél, hlustiö á stutt skilaboð og ýtið á „Start/Reiceive" til að fá útprentun. Immigration USA Sími: 001 818 760 4864 Application Request/Dept. MBD/B Fax: 001 818 760 4323 11390 Ventura Rd., Suite 1 Faxútprentun: 001 310 575 5099 N. Hollywood, Califomia 91604 USA www.immigrationusa1.com I llUÖUk ►; ◄ ElNSTÖK STEMNING - LIFANDI TÓNLIST Kaffihlaðborð frá 14-17 og matarhlaðborð frá 18:30 Hlaðborðin á sunnudögum henta sérstaklega vel fyrir fjölskylduna f sunnudagsbíltúr eða sem áfangastaður á ferðalagi. Vandað handbragð, fáguð framsetning og fjöibreytni í réttum. Úlafur B. Úlafsson leikur ó píanó og harmónikku fyrir gesti. Skíöaskálinn Hveradölum Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935 Hueradölum, 110 Reykjaffíjk, horðapantanir 567-2020 I SJÁLFSTÆÐISMENN I í Reykjavík! Munum sumarhátiðina í I HEIÐMÖRK I (Hjalladal) í dag frá kl 14 - 17. E Vörður - Fulltrúaráó sjálfstæóisfélaganna í Reykjavík SRIDSSKOUNN Námskeið á haustönn hefjast 15. og 17. september Byrjendur: Hefst 15. sept. og stendur yfir í 10 þriðjudagskvöld frá kl. 20-23. Framhald: Hefst 17. sept. og stendur yfir í 10 fimmtudagskvöld frá kl. 20-23. Á byrjendanámskeiðinu eru sagnir helsta viðfangsefnið, enda sjálf spilamennskan mest þjálfun fyrst í stað. Þegar upp er staðið kunna nemendur grundvallarreglurnar í Standard-sagnkerfinu og eru orðnir vel spilahæfir. Á framhaldsnámskeiðinu er jafnframt lögð mikil áhersla á vamarsamstarfið og spilamennsku sagnhafa. Það hentar fólki sem hefur nokkra spilareynslu, en vill taka stórstígum framförum. Kennslugögn fylgja báðum námskeiðum og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. 44^4 Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. Vandaðar þýskar sýningarvélar FÖÍO vaL Verö frá 12.880 kr. Skipholti 50b sími 553-9200, fax 562-3935 Myndavélaviðgeröir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.