Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.09.1998, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐ leitum stundum langt yfir skammt þegar við erum að leita að afreksfólki í íþróttum. Tökum eftir sumum íþrótta- greinum, ekki öðrum. Tökum eftir sumu fólki, ekki öðni. Samt er mér óskiljanlegt hvem- ig hægt er að taka ekki eftir Eddu Lúvísu Blöndal, Islandsmeistara kvenna í karate þrjú ár í röð - bæði í kúmíte og í kata, en venjan er að fólk sérhæfi sig í annarri hvorri greininni. Edda tók þátt í opnu dönsku meistaramóti í lok febrúar, Liven cup, þar sem hún vann 1. verðlaun í kumite og 2. verðlaun í kata, sem hún segir að hafi verið mjög skemmtilegt, vegna þess að hún hefur áhuga á að keppa í báð- um greinum og það hafi verið ómetanlegt að vera í einu af efstu sætunum í báðum greinum. Edda tók svart belti í mars síð- astliðnum. Fram til þessa hafa fjórar íslenskar konur tekið svart belti; þær eru allar hættar að keppa, nema Edda. „Því miður er það oft þannig hjá karateiðkendum, að þegar þeir taka svart belti, þá er eins og þeir haldi að þeir hafi náð lokatak- marki,“ segir Edda. „Þetta er mikil synd, því þá er maður einmitt að komast á það stig að geta þroskað sitt eigið karate með þeim áherslu- punktum sem maður velur sjálfur. Sjóndeildarhringurinn innan kara- te er orðinn það víður að maður er dálítið farinn að velja sína eigin leið. Svarta beltið er ný vítamín- sprauta og maður öðlast ákveðið frelsi með því.“ I prófunum í vor tók ég eftir því að þú hafðir ekki hugmynd um að þú ættir að fara í svarta beltið. Hvemig stóð á því? „Það eru óskráðar reglur í kara- te að maður spyr ekki þjálfarann sinn hvenær maður á að taka svarta beltið. Reglan er sú að þú hafir síðasta brúna beltið í sex mánuði. En flestir eru með brúna beltið lengur og það er litið á þenn- an tíma sem undirbúningstíma fyr- ir svarta beltið. Þá fylgist þjálfar- inn með þinni þróun og hvort þú sért að taka á þínum vanköntum. Maður bíður eftir að þjálfarinn til- kynni: Nú átt þú að taka svarta beltið. Við fyrsta tækifæri eftir það, þegar sensei kemur í heim- sókn, má maður búast við því að vera sendur í próf. Mér bauðst að æfa í Noregi, hjá seinsei Poh Lim, sem var búsettur á íslandi um nokkurra ára skeið. Ég æfði hjá honum í febrúar og mars og í mínum huga var það undirbúningur fyrir svart belti, án þess að ég vissi hvenær að prófinu kæmi. Ég vissi að vísu að ef vel tækist, ætti ég möguleika á að taka það í æfingabúðum í Noregi í júní. Þannig að þegar mér var tilkynnt í mars á Islandi að ég ætti að þreyta prófið, þegar sensei var hjá okkur í heimsókn, kom það mér heilmikið á óvart. En ef sensei segir „próf‘, þá fer maður í próf.“ Losnaði við unglingaveikina Árangurinn sem Edda hefur náð, er með ólíkindum þegar tekið er tillit til þess að hún var orðin sextán ára þegar hún byrjaði að æfa karate. En hvers vegna byrj- aði hún ekki fyrr? „Því er erfitt að svara. Ætli ég hafi ekki bara verið upptekin af því að vera unglingur. Æfingarnar vógu svo upp á móti unglingaveik- inni. Ég þori ekki alveg að segja hvort kom fyrst, en það hefur ör- ugglega komið út skrýtin blanda þarna á milli.“ Hvernig datt þér í hug að fara í karate? „Þetta var liður í minni enda- lausu þrá eftir einhverju öðruvísi en þessu venjulega íþróttalífi á ís- landi; handbolta, fótbolta, körfu- bolta. Ég hef alltaf verið mjög íþróttalega sinnuð en sjaldan enst lengi í neinni grein. Ég barðist við bróður minn, sem er sjö árum eldri en ég á öllum sviðum - andlegum Karateíþróttin er smám saman að ryðja sér til rúms hér á landi. Þessi göfuga íþrótt sem ekki þjálfar hugann síður en líkamann, hefur þó átt undir högg að sækja og verið kölluð slagsmálaíþrótt. Súsanna Svavarsdóttir ræddi við þrefald- an Islandsmeistara kvenna í karate, Eddu Lúvísu Blöndal, um feril hennar og gildi þess að geta varið sig. sem líkamlegum. Hann er fjölhæf- ur íþróttamaður og frábær körfu- boltamaður, en ég gat yfirleitt ekki hitt í körfuna. Því varð ég að snúa mér að einhverju sem hann var ekki mjög góður í. Hann stríddi mér mikið, við slógumst eins og hundur og köttur - en slagsmálin voru aldrei alvarleg og við höfum alltaf verið góðir vinir. Annars var ég örugglega alger plága sem litla systir; fór með honum á körfu- boltaæfingar og lá á skráargatinu þegar vinir hans voru í heimsókn. Ég lærði fljótt að nýta mér langa og sterka fótleggi og þá kosti sem fylgdu því að vera minni og léttari en hann og því oft fljótari og lipr- ari. Ég lærði á þessum árum að gefast aldrei upp. Þetta hef ég svo getað nýtt mér vel í karate.“ Forsenda þess að geta verið sjálfstæður einstaklingur Og víst er hún lipur og leggja- löng; reyndar hávaxin, grönn, ljós- hærð, tignarleg; hrein fegurðardís - og þeim mun undarlegra að hún skyldi ekki velja hefðbundna, kven- lega leið, t.d. tískusýningar, orðin sextán ára og allt það. „Allt sem ég veit að ég get ekki fer alveg svakalega í taugamar á mér. Þegar ég var sextán ára og fór að fara niður í miðbæ, þar sem stundum var ofbeldi, sá ég að það var vonlaust að ætla sér að fara þangað án þess að geta varið sig. Það að geta varið sig er forsenda þess að geta verið sjálfstæður ein- staklingur í nútímasamfélagi. Það hefur reyndar alltaf verið þannig, en er áþreifanlegra núna, hvort sem um er að ræða kvenmenn eða karlmenn. Karate breytir hins veg- ar stöðunni fyrir okkur á öllum víg- stöðvum. Það er alveg ótrúlegt að sjá ungar stúlkur koma inn í karate og sjá að staða þeirra, hvort sem er í bekknum, skólanum, heimilinu, samfélaginu, getur breyst við þá staðreynd að þær geti varið sig.“ Nú hafa ekki verið margar stelp- ur í karate þegar þú byrjaðir. „Nei, en ég held að þeim hafi fjölgað á seinustu árum. Þær hafa alltaf verið áberandi færri en strákamir en mér sýnist á bama- flokkunum að stelpunum fjölgi jafnt og þétt og þær haldast lengur í þessu en áður. Þegar ég byrjaöi var Jónína Olesen ennþá að keppa. Hún er fmmkvöðull kvenna í kara- te á íslandi - stórkostleg íþrótta- kona. Þótt hún sé hætt að æfa og keppa í dag, er hún hinn eiginlegi Islandsmeistari kvenna og verður það alltaf í mínum huga.“ Að halda fast í kosti þess að vera kona Hvað fannst foreldrum þínum? „Þau hafa alltaf stutt mig í öllu sem ég tek mér fyrir hendur. Mamma hefur að vísu stundum haft áhyggjur þegar ég er að keppa. En áhrifin sem þetta hafði á líf mitt í heild, eyddu öllum þeirra efa, hafi hann verið einhver. Pabbi er svo fróðleiksfús að hann er bú- inn að kynna sér allar reglurnar þrisvar og kann þetta nánast betur en ég. Hann mætir á flest mót sem hann kemst á. Mamma hafði svolitlar áhyggjur af því að ég missti allt sem væri kvenlegt - einkum vegna þess að ég hef alltaf verið dálítil brassa og strákastelpa. Fyrst hló ég að þessu og fannst allt í lagi að vera stráksleg en eftir því sem ég verð eldri, skil ég að það að vera sterkur kvenmaður er ekki að reyna að líkjast karlmönnum og taka upp siði þeirra. Kona þarf ekkert að karlgera sig til að vera sterk. Ég hló að þessu fyrst en er orðin sammála móður minni um að af- rekskonur á hvaða sviði sem er eigi að halda fast í sitt kvenlega eðli, jafnvel þótt þær þurfi að keppa á skilmálum karlmanna." Edda verður seint sökuð um að vera ókvenleg, en er þetta ekki íþrótt þar sem stelpur keppa á móti strákum? „Bara í unglingaflokkum, ekki þegar komið er upp í fullorðins- flokka. Hins vegar æfi ég með strákunum. Mín eiginlega keppni fer fram þar - að minnsta kosti um sinn - vegna þess að það er skortur á að konur mæti í keppni, sem er mikil synd. Þetta hefur verið um- deilt vegna þess að fyrr á áram var sett mikil pressa á fólk sem æfði að mæta til keppni. Það mætti því með blendnar tilfinningar vegna þess að það langaði ekki til að keppa. A seinustu áram hefur myndast sú stefna að það megi ekki pressa neinn til að keppa. Því fylgja bæði kostir og gallar. Það að keppa kennir manni aðallega að gera sitt langbesta, þótt álagið sé mikið. Þetta skilar sér alls staðar. Hvort þú hafnar í 2. sæti eða 5. á innanfélagsmóti, skiptir litlu máli, en kannski lærir þú þennan dag að gera þitt besta undir pressu - og kannski getur það komið þér að notum tíu áram síðar. Auðvitað á einstaklingurinn rétt á að segja nei. En með því að gera það enda- laust kemstu hjá því að læra og öðlast þennan mikilvæga eiginleika - að geta komið þínu besta frá þér þegar mikið liggur við. Þetta vona ég að konur í karate fari að bæta og þær mæti á mótin í framtíð- inni.“ Dvaldi stundum í ruslatunnum Þú segist hafa verið mikil strákastelpa. Hvernig gengu þá samskipti þín við stelpumar sem vora með þér í skóla? „Staðreyndin var sú að þegar í gaggó var komið, hafði ég alltaf átt miklu meira af strákum en stelpum sem vini - og þá aðallega í gegnum íþróttimar. Þetta fór í taugamar á klíkuleiðtogum stelpnanna, sem gerði það að verkum að ég dvaldi þó nokkram stundum í raslatunn-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.