Morgunblaðið - 06.09.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 11
„Það þarf að tryggja eðlilega
arðsemi hlutafjárins og við
stefnum að frekar örum vexti
heildareigna. Við teljum að með
því að verða almennings-
hlutafélag muni markaðsstaða
okkar styrkjast mjög. Það ætti
að geta leitt til hraðari vaxtar
og að við snúum þróuninni við
hvað það varðar.
fremur á að þegar menn mætu
verðmæti fyrirtækja í rekstri væri
fyrst og fremst litið til afkomu og
afkomuhorfa, frekar en að fram
færi heildstætt eignamat eða mat á
upplausnatTÍrði.
„Eins skiptir máli hversu mikla
trú fjárfestar hafa á því að bankinn
nái rekstrarmarkmiðum sínum,“
sagði Halldór. „Þar vísum við til
þeirra upplýsinga sem eru í út-
boðslýsingunni. Þar er meðal ann-
ars gerð grein fyrir rekstrarmark-
miðum okkar bæði til skemmri og
lengri tíma. Við gerum grein fyrir
afkomu félagsins á liðnum árum og
fyrstu sex mánuðum þessa árs.
Einnig reynum við að gera grein
fyrir stöðu Landsbankans í breyttu
umhverfí, bæði því sem getur
styrkt og veikt stöðu hans. Þannig
gefum við fjárfestum eins rétta og
nákvæma mynd af rekstrinum og
við getum. Svo eftirlátum við
markaðinum að framkvæma sitt
virðismat.
Það era margir óvissuþættir í
rekstri fjármálastofnana hér á
landi. Bæði innri og ytri aðstæður
hafa mikil áhrif á þróun verðlags.
Við teljum að það séu hagræðing-
armöguleikar bæði innan Lands-
bankans og í bankakerfínu. Það
hefur sennilega einnig áhrif á verð-
mat einstakra hluthafa.“ Halldór
sagði að það kæmi í ljós á næstu
tveimur árum hvemig til tækist og
aðstæður þróast.
Skráning á Verðbréfaþingi '
Samhliða hlutafjárátboðinu sæk-
ir Landsbankinn um skráningu á
Verðbréfaþingi Islands. Halldór
telur að skráningin sé afar mikil-
vægt og sögulegt skref fyrir bank-
ann. „Banki í ríkiseigu verður nú
almenningshlutafélag, fer að lúta
aðhaldi markaðarins og því sem
felst í markaðsskráningu. Það mun
veita okkur í yfirstjórn bankans
mikið aðhald varðandi reksturinn.
Allar ákvarðanir hér eftir verða að
tryggja sem besta heildarafkomu
hluthafanna," sagði Halldór. Hann
sagði það best gert með því að
draga úr kostnaði, auka þjónustu
og almenn umsvif.
Halldór segir að Landsbanka-
menn telji æskilegt að þetta gerist
skipulega og að bankinn fái tíma til
að laga sig að því að vera skráð al-
menningshlutafélag á verðbréfa-
markaði. Því fylgi mikil breyting á
rekstri og almennum viðhorfum til
bankans.
Hlutur ríkisins
seldur síðar
Alþingi hefur veitt heimild til að
auka hlutafé í Landsbankanum og
Búnaðarbankanum um allt að 35%.
Nú var þessi heimild nýtt í Lands-
banka til 15% hlutafjáraukningar.
Aðspurður sagðist Halldór ekki
gera ráð fyrir því að Landsbankinn
gerði tillögu um að hlutafé yrði
aukið frekar á næstunni. Ef ekki
kæmi til verulegra fjárfestinga þá
ætti þessi eiginfjáraukning að
nægja í nánustu framtíð. Hann tel-
ur að frekari eignabreyting á
Landsbanka verði ekki fyrr en rík-
isstjórnin sækir viðbótarheimild til
Alþingis um að hefja sölu á sínum
eignarhluta.
Sem kunnugt er voru hafnar við-
ræður við Svenska Enskilda-bank-
ann í Svíþjóð um að hann keypti
hlut í Landsbankanum og yrði
ráðandi hluthafi. Sendinefnd frá
SE-bankanum kom m.a. hingað til
lands og kynnti sér starfsemi
Landsbankans, en ríkisstjórnin
batt enda á frekari þreifingar þeg-
ar ákveðið var að slá söluhugmynd-
um ríkisbankanna á frest. Halldór
segist hafa talið það ótímabært að
selja hlut í Landsbankanum til er-
lends aðila á þessu stigi og er sam-
mála niðurstöðu ríkisstjóraarinnar.
Hann segir þó að það hafi verið
gagnlegt að fara yfir málefni
Landsbankans og stöðu með full-
tráum SE-bankans og margar
áhugaverðar hugmyndir um sam-
starf við erlend fyrirtæki kviknað.
Þær muni nýtast í framhaldinu.
Hann sagðist þó vera þeirrar skoð-
unar að dreifð eignaraðild væri
mjög mikilvæg, meðal annars til að
treysta sjálfstæði bankans.
„Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
frá því í lok ágúst segir að það
verði ekki sótt um frekari sölu-
heimildir á næsta löggjafarþingi.
Það verður því í fyrsta lagi haustið
1999 að íTkisstjóra leggur til að slík
heimild verði veitt, og þá væntan-
lega til að undirbúa frekari sölu á
eignarhlut sínum í Landsbankan-
um árið 2000. Ef þetta gengur eftir
þá fær Landsbankinn 18-24 mán-
uði til að vinna að hagræðingu áður
en kemur til frekari sölu.“
Það er skilyrði fyrir skráningu á
Verðbréfaþingi Islands að að
minnsta kosti 25% af hlutafénu sé í
dreifðri eign.
„I útboðslýsingunni liggur íyrir
skýi- yfii-lýsing, bæði viðskiptaráð-
herra og bankaráðs, um að meira
en 25% af hlutafé í Landsbankan-
um verði í dreifðri eign fyrir 1. júní
árið 2000. Það gefur því vísbend-
ingu um að næsta sala hlutafjár
verði vorið 2000 og að minnsta
kosti verði selt nóg til að þetta
markmið náist,“ sagði Halldór.
„Það er ekkert því til fyrirstöðu að
sala á hlut ríkisins geti hafist til-
tölulega hratt þar á eftir. Ef við
nefnum til dæmis að slík sala fai'i
ft-am í þremur áfóngum, þá ætti
ekki að vera neinn vandi - á vax-
andi hlutabréfamarkaði hér á landi
- að sjá fyrir sér áframhaldandi
dreifða sölu á árunum 2000-2002.
Þá hefði einkavæðingarferli Lands-
bankans farið fram á nokkurn veg-
inn fjórum til fímm árum, eins og
um var talað.“ Ferlið hófst í sept-
ember 1997, þegar hlutafélagið
Landsbanld Islands var stofnað og
yfirtók félagið rekstur ríkisbank-
ans í ársbyrjun 1998.
Tími til hagræðingar
Hvemig mun bankinn nýta þann
tíma sem gefst áður en meira
hlutafé verður selt?
„Við höfum sett okkur skýr
rekstrarmarkmið sem koma fram í
útboðslýsingunni,“ segir Halldór.
„Það þarf að tryggja eðlilega arð-
semi hlutafjárins og við stefnum að
frekar öram vexti heildareigna. Við
teljum að með því að verða al-
menningshlutáfélag muni mark-
aðsstaða okkar styrkjast mjög. Það
ætti að geta leitt til hraðari vaxtar
og að við snúum þróuninni við hvað
það varðar. Það verður meginverk-
efni að auka heildartekjur bankans
og umsvif, með öflugri markaðs-
sókn, nýjum vörum og bættri þjón-
ustu á alla lund.
Einnig höfum við sett skýr
markmið um að lækka kostnað.
Hagræðingaraðgerðir munu taka
til allra þátta í rekstri bankans.
Eins og kemur fram í útboðslýs-
ingunni era veralegar eignir
bundnar í rekstrinum, óþarflega
mikið af fasteignum og öðrum
eignum. Það þarf einnig að hag-
ræða í útibúakerfinu og það mun
eflaust taka breytingum á næstu 5-
10 áram, meðal annars vegna
tækniþróunar. Það er einnig hægt
að lækka kostnað með aukinni
sjálfvfrkni og bættri upplýsinga-
vinnslu. Það verður meginverkefni
allra starfsmanna Landsbankans
að ná hér árangri."
Að efla sparnað
Landsbankinn hefur ákveðið að
stofna nýjan lánaflokk til að hjálpa
almenningi að kaupa hlutafé í ríkis-
fyrirtækjum sem verða einkavædd.
„Þetta eru almenn skuldabréfa-
lán sem era sérstaklega þróuð af
okkar hálfu til að auðvelda almenn-
ingi þátttöku í þeirri einkavæðingu
sem reiknað er með að verði á
næstu 5-6 áram. Vonandi verður
þetta einnig til að beina fjármunum
fólks í spamað fremur en í neyslu,"
sagði Halldór. „Vegna þeirra hag-
ræðingarmöguleika sem era við
slíka sölu treystum við okkur til að
vera með hærra lánshlutfall en ef
verið væri að kaupa hlutabréf á al-
mennum markaði. Landsbankinn
vill stuðla að sem dreifðastri eign
hlutabréfa og þetta er okkar fram-
lag í að tryggja það, en um leið að
auka og dýpka viðskipti með hluta-
bréf.“
Halldór telur að hlutabréfa-
markaður sé „grynnri" hér á landi
en í nágrannalöndum. Velta sem
hlutfall af markaðsvirði sé miklu
minni hér en á öðrum Norðurlönd-
um, sem bendi til þess að hérlendir
sitji á bréfunum. Fjöldi skráðra fé-
laga hefur aukist. Halldór segir
það brýnt að efla þennan mai'kað.
Heildarmarkaðsvirði muni aukast
um nær fjórðung eftir að ríkis-
bankarnir verða skráðir, aukist úr
um 155 milljörðum í allt að 190
milljarða.
„Einkavæðingarferlið getur ver-
ið sjálfstætt tæki til að auka spara-
að í þjóðfélaginu, alveg óháð
skattaafslætti,“ sagði Halldór.
„Hvort sem Landssíminn eða orku-
veitufyrirtæki yrðu einkavædd í
framtíðinni þá væri verið að selja
eignir og skrá nýja tegund fyrir-
tækja á markaðnum sem getur
vakið sérstakan áhuga almennings.
Þetta íyrsta skref með að skrá
bankana er tæki til að auka þjóð-
hagslegan sparnað í landinu. Þetta
era þekkt fyrirtæki með stóran
hóp viðskiptavina. Þau era í náinni
snertingu við flest heimili og fyrir-
tæki í landinu, era hluti af daglegu
lífi fólksins. Þar af leiðandi er sala
á fyrirtækjum sem veita almenn-
ingi þjónustu áhugaverður kostur
fyrir einstaklinga.“
Markmið innan
lands og utan
Framtíðarmarkmið Landsbank-
ans era tíunduð í útboðslýsingunni.
Þar er meðal annars fjallað um
aukið samstarf bankans við trygg-
ingarfélögin VIS og LIFIS, sem
bankinn á hlut í.
Halldór segir að áhugi sé á því af
hálfu bankans að efla samstarfið
við VÍS og ekki síst LÍFÍS um þró-
un og áframhaldandi sölu líftrygg-
inga og söfnunartrygginga og nýta
sér auknar lagalegar heimildir sem
komnar era og eins sem búist er
við að komi, til að laða fram spam-
að einstaldinga í lífeyrismálum.
Landsbankinn hefur í auknum
mæli verið að hasla sér völl utan
landsteinanna. „I sumar höfum við
komið inn í nokkur erlend verkefni
með stórum íslenskum fyrirtækj-
um, “ segir Halldór. „Það gefur
mjög áhugaverð tækifæri og hefur
vakið áhuga innan bankans. Við
munum þó byrja á að auka fram-
boð á alþjóðlegri þjónustu okkar og
þá sérstaklega vegna starfsemi ís-
lenskra fyrirtækja erlendis. Þetta
er stuðningur við viðskiptavini
okkar bæði hvað varðar fjárfest-
ingar og verslunai-viðskipti.“ Hall-
dór segir verkefni af þessu tagi
orðin allmörg og að bankinn hafi
átt átt beina aðild að lánveitingum
erlendis. Þetta verði mikilvægur
þáttur í starfseminni.
Landsbankinn mun á næstunni
bjóða svonefnda aflandsþjónustu
(offshore) og hefur fengið leyfi til
reksturs fjármálafyrirtækis,
Landsbanki Capital Interaational
Ltd, á eynni Guernsey í Ei-ma-
sundi.
Nýjungar á döfinni
Hugað er að fleiri nýjungum í
þjónustu Landsbankans. Til dæmis
nefnir Halldór nýjar útfærslur lána
vegna húsnæðiskaupa einstaklinga.
„Ég hef rætt það að samþætting
húsnæðislána til einstaklinga og
söfnunar- og líftrygginga sé vel
þekkt erlendis og fjármálaþjónusta
sem vafalaust á eftir að verða vin-
sæl hér á landi. Við ætlum okkur
hlut í þeim vexti. Vöxtur banka-
kerfisins í heild, vegna lánveitinga
til íbúðarkaupa og íbúðarbygginga
einstaklinga ræðst af því hvaða
hlutverk ríkið ætlar sér áfram á
þeim markaði. Það má ætla að rík-
ið dragi sig út úr þeirri fjármála-
þjónustu í áföngum á einhverjum
tíma, með sama hætti og þróunin
hefur verið á fjármálamarkaði í
öðrum löndum þar sem einkaaðilar
og einkastofnanir hafa treyst sér
til að veita þá þjónustu. Við vitum
að í löndum í kringum okkur er
þetta að mestu komið í hendurnar
á sérhæfðum fjármálafyrirtækjum
eða í bankakerfinu sjálfu.
Bankakerfið er sérstaklega vel í
stakk búið til að annast þessa miðl-
un, því það á í daglegum samskipt-
um við heimilin. Veðdeild Lands-
bankans, sem þjónustuaðili íbúða-
lánakerfisins til margra ára, er í
sérstakri stöðu hvað varðar um-
sýslu með eignum Húsnæðisstofn-
unar og hefur langa og góða
reynslu í því. A því getum við vafa-
laust byggt í áframhaldinu."
Morgunblaðið/Kristinn
FUNDUR yfirmanna í Landsbanka. F.v. Gunnar Andersen, framkvæmdastjóri alþjóða- og fjármálasviðs, Jakob Bjarnason, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs, Halldór J. Kristjánsson, aðalbankastjóri, Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri fyrirtækja- og stofnanasviðs, og
Björn Líndal, framkvæmdastjóri einstaklings- og markaðssviðs.
„Banki í ríkiseigu verður nú al-
menningshlutafélag, fer að lúta
aðhaldi markaðarins og því sem
felst í markaðsskráningu. Það
mun veita okkur í yfirstjórn
bankans mikið aðhald varðandi
reksturinn. Allar ákvarðanir hér
eftir verða að tryggja sem besta
heildarafkomu hluthafanna.“