Morgunblaðið - 06.09.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 21
Kristinn segir að verkefni sín í Svíþjóð liggi mjög nærri því
sem verið er að fást við hjá Islenskri erfðagreiningu svo „ég
þurfti aðeins að skipta um dal.“ Akvörðunin um að fiytja heim
hafi aftur á móti verið flóknari, ekki síst vegna Bvu, sem er
sænsk.
Snýst ekki bara um gáfur og einkunnir
Stefán Einar Stefánsson hafði ekki drepið fæti á íslenska
grund í fimm ár þegar hann réð sig til vinnu hjá íslenskri erfða-
greiningu vorið 1997. Um sama leyti tók líf hans aðra og óvænta
stefnu, hann kynntist kærust-
unni sinni, sem er frá Gvæana í
Suður-Ameríku. Hún býr í
Kanada og er Stefán nýkominn
úr sumarleyfi vestra þegar
gestinn ber að garði í Lyng-
hálsi. Hvemig stendur þá á því
að hann kom heim? „Römm er
sú taug er rekka dregur föður-
túna til,“ segir Stefán og brosh'
sínu breiðasta.
Stefán bjó í átta ár í Toronto
í Kanada og stundaði þar dokt-
orsnám í sameindalíffræði.
Doktorsnám er ekki alltaf tekið út með sældinni. „Doktors-
nám snýst aðallega um að gefast ekki upp. Petta snýst ekki bara
um gáfur eða góðar einkunnir,“ segir hann.
Doktorsverkefni Stefáns fjallaði um genastjórnun á frystiþoli
í steinbít. „Steinbítur hefur prótein sem kemur í veg fyrir að
frostkristallar myndist í blóðinu. Þetta hefur hagkvæma og
mikla þýðingu. Kanadamenn eru t.d. byrjaðir að splæsa geninu
sem geymir upplýsingarnar fyrir þetta prótein í laxa.“ Það þýð-
ir að laxarnir geta lifað í mun kaldari sjó en ella væri.
Áður en Stefán hélt utan starfaði hann meðal annai-s á Keld-
um. „Það var á þeim tíma sem menn komust að því að visnuveir-
an var skyld alnæmisveirunni. Það var skemmtilegur tími.“
Stefán er nú verkefnisstjóri slitgigtarhópsins en slitgigt er
einn algengasti erfðasjúkdómur í mönnum. Hann segist hafa
farið að telja ættgenga sjúk-
dóma í nánustu fjölskyldu sinni
eftir að hann tók til starfa á ís-
lenskri erfðagreiningu og að
það hafi komið sér á óvart
hversu margir þeir eru. „Ég
hugsa að flestir kæmust að
svipaðri niðurstöðu a.m.k. ef
þeh’ þekktu hvaða sjúkdómar
eru arfgengir," segir Stefán.
Aðeins of snemma
á ferðinní
Sólveig Grétarsdótth' lauk
doktorsprófi frá háskólanum í Lundi árið 1992. „Á þeim tíma
var ekki mikið um vinnu hér heima fyrir sameindalíffræðinga.
Eg var svo heppin að um það leyti sem ég var að Ijúka námi
Kristinn
U Maður getur
unnið að vísindaverkefn-
um svo mánuðum skiptir,
dag og nótt, án þess að
þær skili nokkrum ár-
angri og það eru ekki all-
ir sem halda það út.
Þorgeir:
__________Það má segja
að ég hafi komið heim til
að fá að taka þátt í einu
mest spennandi verkefni
í lífvísindum sem verið er
að fást við í heiminum -
og það í heimalandi mínu.
Ostur = gott nesti
Ostur ergóðurfyrir einbeitinguna, hann hjálpar til við að halda
jafnri og óskertri orku yfir daginn og er eitt það besta sem þú
getur fengið þér milli mála.
Margir tannlæknar mæla líka með
osti í lok máltíðar til að vinna gegn
sýrum sem skemma tennumar.
Auk þess er ostur einn besti
kalkgjafi sem til er en kalk er
lífsnauðsynlegt byggingarefni
beina og tanna. Það hefur mikið
að segja alla ævi að neysla kalks
hafi verið nægileg fyrstu árin.
Ostur er ómissandi þáttur
í heilnæmu mataræði.
Þess vegna er gott að
borða ost í skólanum.
.
Sýrustig munnsins
pH
O Ákjósanlegt sýrustig í munni
O Eðlilegt sýrustig í munni
Línuritið sýnir jákvæð áhrif ostneyslu
í lok máltíðar á sýrustig í munni.
ÍSLENSKIR
Ostar, - v
1938 -tWn
www.ostur.is
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA