Morgunblaðið - 06.09.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 35
SKOÐUN
og jöklum. Skíðamennska er sú
grein fjallamennskunnar sem nýtur
mestrar útbreiðslu hérlendis. Segja
má að þetta sé eina greinin sem er
stunduð utan hjálparsveitanna og
íslenska Alpaklúbbsins að ein-
hverju ráði. Skíðamennsku er hægt
að stunda stóran hluta ársins, vin-
sælast er þó að stunda hana þegar
sól er lengi á lofti en nægur snjór
ennþá í fjöllum, þ.e.a.s. frá seinni
hluta vetrar til fyrri hluta sumars.
Einkum er erfitt að stunda skíða-
mennsku á haustin og hluta vetrar.
Vinsælir staðir til brattlendisferða
eru til dæmis Snæfellsjökull, Eyja-
fjallajökull, Hekla og Öræfajökull.
Ymsir staðir eru vinsælir til lengri
gönguskíðaferða enda eru margir
sem stunda þær. Erfitt er að benda
á einhverja öðrum fremi vinsælli
staði, kannski mætti helst benda á
Kjöl, Langjökul og Vatnajökul.
Það er eins með fjallamennskuna
og svo margt annað, ýmsar tísku-
sveiflur koma og fara. Þetta má
glögglega sjá í brattlendisskíða-
mennskunni um þessar mundir.
Pyrir nokkrum árum þótti nauð-
synlegt að eiga fjallaskíði en nú er
enginn maður með mönnum nema
að hann eigi og kunni á Þelamerk-
urskíði (Telemark-skíði). Fjalla-
skíði líkjast helst hefðbundnum
svigskíðum og þegar skíðað er á
þeim er svigskíðatækni notuð. Þela-
merkurskíði eru einskonar blanda
af svigskíðum og gönguskíðum og
til að skíða á þeim í brattlendi er
sérstök Þelamerkursveifla brúkuð.
Sárafáir, ef einhverjir, æfa reglu-
lega þessa grein fjallamennskunn-
ar. Það er helst að menn æfi reglu-
lega í einhvern tíma áður en þeir
leggja í langar ferðir. Algengt er að
skíðin séu tekin upp nokkru fyrir
páska og notuð fram eftir vori,
fram á sumar. Síðan eru þeim kom-
ið haganlega fyrir í geymslunni þar
sem þau bíða næstu páska.
Fjallamennska er fyrir alla
Þótt staða fjallamennskugeirans
sé öflug og að nokkrir einstaklingar
innan hans séu orðnir fjallamenn á
heimsvísu, þá er breiddin í fjalla-
mennsku á Islandi ekki mikil. Eins
og fyiT sagði eru flestir í geiranum
félagar í hjálparsveitum og Is-
lenska Alpaklúbbnum. Allnokkrir
innan þessa hóps stunda fjalla-
mennsku af fullum huga og leggja
metnað sinn í að fara langar og erf-
iðar ferðir eða sigra hrikalegar klif-
urleiðir. Þessi hópur sækist fyrst
og fremst eftir fjallamennsku upp-
lifuninni en nýtur í kaupbæti fal-
legi'ar náttúru Islands. Um þetta er
gott eitt að segja. Á hinum endan-
um eru þeir fjölmörgu sem stunda
almenna útivist. Þessi hópur velur
léttar fjallgöngur á fógrum svæð-
um. Fólkið nýtur náttúrunnar, spá-
ir í blómaflóruna, skoðar fuglalífið
og rifjar gjarnan upp sögu landsins.
Það er ekkert að flýta sér enda
engin ástæða til í fallegri náttúr-
unni. Þetta er einnig af hinu góða.
Það sem er miður er að ekki skuli
fleiri fara bil beggja. Á Islandi er
að finna fjöldann allan af mjög
glæsilegum en auðveldum leiðum
sem krefjast lágmarks fjalla-
mennskukunnáttu. Til dæmis eru í
næsta nágrenni Reykjavíkur, í Esj-
unni, Botnssúlum og Skarðsheiði,
fjölmargar skemmtilegar leiðir sem
einungis krefjast kunnáttu í notkun
einnar ísaxar, lágmarks trygginga-
kunnáttu og mati á snjóflóðahættu.
Þetta eru snjógiljaleiðir sem fá
allra lægstu erfiðleikagi-áðuna, fal-
legar leiðir í skemmtilegu umhverfi
sem þó aðeins örfáir klífa. Fjalla-
menn klífa þær ekki vegna þess að
þær eru of auðveldar og útivistar-
fólk ekki vegna þess að það hefur
ekki þekkingu til þess. Fjölmörg
önnur svæði og aðrar tegundir Ieiða
mætti nefna í þessu sambandi,
þetta er einungis nefnt sem dæmi.
Vonandi verður breyting hér á, eft-
ir því sem framboð á námskeiðum í
fjallamennsku eykst.
Önnur hugsanleg ástæða fyrir
lítilli breidd í fjallamennskunni er
sú að erfitt er fyrir áhugasama að
nálgast fróðleik um leiðarval. Eins
og fyrr sagði hefur Alpaklúbburinn
gefið út leiðai-vísa um nokkur
helstu klifursvæði landsins. Þessir
leiðarvisar eru fyrst og fremst ætl-
aðir fjallamönnum. I þeim eru ein-
ungis leiðir sem krefjast fjalla-
mennskukunnáttu og því gagnast
þeir áhugasömu útivistarfólki tak-
markað.
Öryggi í fjallamennsku
Það er ekki óalgengt að heyra
sagt að fjallamennska sé stór-
hættulegt sport sem einungis
brjálæðingar stunda. Þetta er
fjarri sanni, fjallamennska er
sport sem vel flestir geta stundað.
Með því að afla sér góðrar kunn-
áttu og reyna ekki við erfiðari leið-
ir en reynsla og geta leyfa, er
hættunni á slysum haldið í algjöru
lágmarki. Það sýnir sig að miðað
við fjölda þeirra sem stunda fjalla-
mennsku hérlendis hafa slys verið
fátíð. Hluti slysanna sem hafa orð-
ið, varð vegna þess að viðkomandi
fjallamenn tóku viljandi fullmikla
áhættu í of erfiðum leiðum.
Ánægjulegasta upplifunin í fjalla-
mennsku næst þegar leiðir eru
valdar eftir þekkingu og getu
þannig að reynsla og hæfni aukast
jafnt og þétt. Reyndir fjallamenn
snúa frekar við heldur en að taka
heimskulega áhættu.
Þótt slys séu fátíð geta þau
alltaf hent, sama hversu góðir
fjallamennirnir eru. Því er gott að
vita að öflugar hjálparsveitir eru
starfræktar hérlendis. Þegar slys
verða er fjöldi hjálparsveitar-
manna boðinn og búinn að leggja
sjálfa sig í hættu við björgunar-
störf auk þess sem þeir gefa mikið
af tíma sínum til þessa. Það er
einnig mikilvægt að muna að þrátt
fyrir að allt starf innan hjálpar-
sveitanna sé unnið í sjálfboðavinnu
þá eru engin björgunarlaun inn-
heimt eftir björgun. Svona er þetta
síður en svo alls staðar. Víða er-
lendis geta fjallamenn átt gjald-
þrot-á hættu ef þeir lenda í björg-
unaraðgerðum án þess að hafa
keypt björgunartryggingu. Nauð-
synlegt er að styðja vel við bakið á
hjálparsveitunum til að tryggja að
þær geti haldið starfsemi áfram á
sama hátt og verið hefur.
Höfundur er í stjórn íslenska Alpa-
klúbbsins.
Konur-konur
Leikfimi í Melaskóla
. .. - .__________________
Áhersla lögð ó góða og fjöruga upphifun. Styrkjandi æfingar
fyrir maga, rass og læri. I lokin teygjur og slökun.
Upplýsingar í síma 557 3312 alla daga eftir kl. 19.00.
Ingibjörg Jónsdóttir, íþróttakennari.
kvdldMóli n
KOPAVOGSU-
NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 1998
Góð lýsing
er stórmál!
Efagerhult
Fagerhult hefur verið brautryðjandi í hönnun og
framleiðslu vandaðs lýsingarbúnaðar í meira en 50 ár.
Sænsk gæðaframleiðsla. Löng og góð reynsla á
íslandi. Kynntu þér úrvalið. Hjá okkurfærðu
faglega ráðgjöf um allt sem varðar góða lýsingu.
Allur búnaður frá Fagerhult er f samræmi við Evrópustaðal EN 60598
og samþykktur af SEMKO. Fagerhult uppfyllir að sjálfsögðu
gæðastaðal ISO 9001.
TUNGUMÁL
Kennt er í byrjenda-,
framhalds- og
talæfmgaflokkum
ENSKA
DANSKA
NORSKA
SÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
SPÆNSKA
ÞÝSKA
KATALÓNSKA
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
BÓKBAND
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
GLERLIST
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
KÖRFUGERÐ
1 viku námskeið
12 kennslustundir
LEIRMÓTUN
6 vikna námskeið
25 kennslustundir
SKRAUTRITUN I
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
SKRAUTRITUN II
5 vikna námskeið
10 kennslustundir
LJÓSMYNDUNI
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
LJÓSMYNDUN II
7 vikna námskeið
24 kennslustundir
SILFURSMÍÐI
(skartgripagerð)
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
TRÉSMÍÐI
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
TRÖLLADEIG
4 vikna námskeið
16 kennslustundir
TRÖLLADEIG
jólafóndur
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
ÚTSKURÐUR
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
VATNSLITAMÁLUN
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
VIDEOTAKA
1 viku námskeið
14 kennslustundir
BÚTASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÚTASAUMSTEPPI
4 vikna námskeið
18 kennslustundir
BARNAFATASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
FATASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
KÁNTRÝ-FÖNDUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÓKHALD
smærri fyrirtækja
4 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÓKHALD
smærri fyrirtækja frh.
3 vikna námskeið
18 kennslustundir
VÉLRITUN
7 vikna námskeið
21 kennslustund
Tölvunámskeið:
WORD og WINDOWS
fyrir byrjendur
4 vikna námskeið
20 kennslustundir
WORD II og kynning á
POWER POINT
3 vikna námskeið
20 kennslustundir
EXCEL
fyrir byrjendur
3 vikna námskeið
20 kennslustundir
INTERNETIÐ
kynning á Internetinu
og tölvupósti
1 viku námskeið
8 kennslustundir
GÓMSÆTIR
bauna-, pasta- og
grænmetisréttir
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
FITUSNAUTT FÆÐI
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
ÍTÖLSK MATARGERÐ
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
KONFEKTGERÐ
1 viku námskeið
5 kennslustundir
EIGIN ATVINNUREKSTUR
2 vikna námskeið
20 kennslustundir
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4
105 Reykjavík
Sími: 520 3000
www.sminor.is
Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarfélaga styrkja félagsntenn sína til nánts í Kvöldskóla
Kópavogs, t.d. HSRB, HHMR, Dagsbrún og Framsókn, VR ogStarfsmannal'élag Kópavogs.
Kennsla hefst 21. september
Innritun og upplýsingar urn námskeiðin 7.- 17.september kl. 17 - 21
í símum 564 1507 564 1527 og 554 4391 og á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla