Morgunblaðið - 06.09.1998, Síða 40
40 SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar og afi,
HAUKUR SIGURÐSSON,
verður jarðsettur frá Fossvogskapellu mánu-
daginn 7. september kl. 13.30.
Brynhildur Olgeirsdóttir,
Ástríður Hauksdóttir, Georg Tryggvason,
Gylfi Hauksson, Olga Stefánsdóttir,
Hjörtur Hauksson,
Trausti Hauksson, Alda Björk Marinósdóttir,
Kjartan Hauksson, Ásgerður Jónsdóttir,
ísak Sverrir Hauksson, Guðrún Bryndís Karlsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HELGI H. HARALDSSON,
Rauðumýri 15,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju á morg-
un, mánudaginn 7. september, kl. 13.30.
Rósa Dóra Helgadóttir, Pétur Jósefsson,
Hrafnhildur Helgadóttir,
Halldóra Helgadóttir, Reynir Adólfsson,
Kjartan Helgason, Elín Hallgrímsdóttir,
Haraldur Helgason, Hulda Stefánsdóttir,
Sólrún Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
STEFÁN JÓN BJÖRNSSON
fyrrv. skrifstofustjóri,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
29. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu þriðjudaginn 8. september
kl. 15.00.
Hrafnhildur Elín Stefánsdóttir Cummings, Kenneth Cummings,
Björn Stefánsson, Hrefna Jónsdóttir,
Páll Magnús Stefánsson, Hildur Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Kveðjuathöfn um bróður minn og frændi,
HALLDÓR GUNNAR JÓNSSON,
til heimilis í Seljahlíð,
Hjallaseli 55,
fer fram frá Seljakirkju mánudaginn
7. september kl. 15.00.
Þorbjörg V. Jónsdóttir,
Vilhelm R. Guðmundsson.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir oag amma,
ÁSLAUG GÍSLADÓTTIR,
Hæðargarði 35,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudag-
inn 8. september kl. 15.00.
Árný Valgerður Ingólfsdóttir, Kolbeinn Guðmundsson,
Sigríður Ingólfsdóttir, Pétur Stefánsson,
Ólaffa Ingibjörg Ingólfsdóttir. Sigurður Óli Gunnarsson,
Áslaug Pálsdóttir,
Ingólfur Kolbeinsson,
Helga Kolbeinsdóttir,
Ólafur Kolbeinsson,
Elsa Kristin Sigurðardóttir,
Jóhannes Ingi Sigurðsson.
MINNINGAR
HAUKUR
SIGURÐSSON
+ Haukur Sigurðs-
son var fæddur í
Reykjavík 21. sept-
ember 1918. Hann
lést á Elliheimilinu
Grund hinn 30. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru hjónin
Sigurður Kjartans-
son, kaupmaður, f.
8.4. 1889 að Melshús-
um, Álftanesi, d.
1967, og Ástríður
Jónsdóttir, f.18.4.
1893 á Þóroddsstöð-
um í Ölfusi, d. 1979.
Systkini Hauks eru 1)
Guðfinna, f. 19.8. 1917, d. 1974,
Sigríður, f. 1.7. 1921, d. 1988, Atli,
f. 26.3. 1925, og Guðrún, f. 18.5.
1937, d. 1994.
Haukur giftist 25.1. 1946 Bryn-
hildi Olgeirsdóttur frá Bolungar-
vík, f. 19.1 1921. Þau bjuggu á
Grettisgötunni lengst af en fluttu
síðar í Hátún 17. Börn þeirra eru:
1) Ástríður, meinatæknir, f. 14.10.
1945, maki Georg Tryggvason.
Þeirra börn eru Brynhildur,
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090
”---—............................
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 553 1099
Opið öll kvöld
til ki. 22 - einnig um helgar.
Skreytinear fyrir öll tile
Hildigunnur, Harpa
°g Tryggvi. 2) Gylfi,
kerfisfneðingur, f.
13.8.1949, maki Olga
Stefánsdóttir. Börn
þeirra eru Dagný og
Stefán. 3) Hjörtur,
skrúðgarðyrkju-
meistari, f. 8.8. 1951.
Barn hans er
Heiðrún Hlín. 4)
Trausti, efnaverk-
fræðingur, f. 11.12.
1952, maki Alda
Björk Marinósdóttir.
Börn þeirra eru
Signý, Sindri og
Ástrós. 5) Kjartan, rafmagns-
tæknifræðingur, f. 6.7. 1955, maki
Ásgerður Jónsdóttir. Börn þeirra
eru Selma, Bjarki og Amar. 6)
Isak Sverrir, doktor í eðlisfræði, f.
25.10. 1963, maki Guðrún Bryndís
Karlsdóttir. Þeirra böm em Teit-
ur Áki og Freyja Sóllilja.
Útfor Hauks fer fram frá Foss-
vogskapellu á morgun, mánudag-
inn 7. september, og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Hinn 30. ágúst síðastliðinn and-
aðist bróðir minn, Haukur Sigurðs-
son, en hann hefði orðið áttræður í
þessum mánuði.
Haukur stundaði nám við Gagn-
fræðaskólann í Reykjavík og átti
stærðfræði hug hans allan. Hann
hugði að frekara námi við Verzlun-
arskóla Islands, en af því varð ekki.
Hann ákvað því á þrítugsaldri að
halda til Kaupmannahafnar og
nema gluggaútstillingar. Þar
dvaldist hann við nám og störf í á
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
annað ár. Það var mikið atvinnu-
leysi í Kaupmannahöfn á þessum
árum og sneri hann því aftur heim.
Eftir heimkomuna stundaði hann
ýmis verslunarstörf og gluggaút-
stillingar og var hann talinn mikill
smekkmaður í þeirri grein.
Haukur var mjög sjálfstæður
maður sem vildi vinna sjálfstætt og
þróuðust málin síðar þannig. Hann
fékk áhuga á húsgagnasmíði og
bólstrun og opnaði vinnustofu á
Grettisgötu 69 en þar bjó hann
einnig með fjölskyldu sinni í mörg
ár. Handbragð hans bar vott um
mikla smekkvísi og hann smíðaði
mörg afburða falleg húsgögn. Allt
gekk út á smíðina hjá Hauki enda
þurfti að metta og mennta stóra
fjölskyldu. Brynhildur var alla tíð
stoð hans og stytta. Hún er sterk
kona sem hefur alla tíð hugsað um
fjölskyldu sína af mikilli alúð. Hún
stundaði eigin verslunarrekstur í
mörg ár og var dugnaðar kaup-
sýslukona.
Um tíma aðstoðaði ég Hauk við
smíði á „skruggunum" eins og við
kölluðum dívana sem hann fram-
leiddi og voru mjög vinsælir. I þá
voru negldir gormar og tréull sett
þar yfir ásamt striga og að lokum
kom áklæðið. Fætur voru settir á
og bæsaðir og þar með var dívanin
tilbúinn.
Haukur stundaði smíði á meðan
heilsa hans leyfði en síðustu árin
dvaldist hann á Ási í Hveragerði og
naut þar góðrar umönnunar.
Að lokum vil ég votta fjölskyldu
hans mína innilegustu samúð. Far-
inn er góður drengur og megi Guð
blessa minningu hans.
Atli Sigurðsson.
AUÐUR
MA GNÚSDÓTTIR
+ Auður Magnúsdóttir fæddist
á Hvalskeri í Rauðasands-
hreppi í Patreksfirði. Hún lést á
öldrunardeild Landspítalans 22.
ágúst siðastliðinn og fór útfor
hennar fram frá Bústaðakirkju
31. ágúst.
Amma er farin!
Eg var spurð að því hvort ég
vildi fá að sjá ömmu í síðasta sinn
þegar ég kom heim frá Hollandi til
að vera við jarðarförina. En það
fyrsta sem kom í huga minn var:
Nei! Því að það sem ég myndi sjá
væri ekki amma. Hún amma er far-
in! Það er of seint að kveðja hana
eða sjá hana. Hún er farin á þann
stað þar sem aldrei þarf að kveðj-
ast aftur. Þar er gleði, fógnuður,
friður, dans, söngur og veislur um
alla eilífð. Einmitt það sem henni
er svo kært. Ég held í þá trú og
von að þar munum við hittast á ný
vegna frelsara okkar Jesú Krists
sem hún játaði og kannaðist við.
Þess vegna segi ég, amma mín:
„Ég sakna þín, ég elska þig, takk
fyrir allt. Sjáumst seinna.
Þín,
Þorgerður Ásmundsdóttir
Hanssen.
v/Nýbýlaveg
SÖLSTEINAR 564 456|
Legsteinar
Lundi
www.mb l.is
© ÚTFARARÞJÓNUSTAN
EHF.
Stofnað 1990
Persónuleg þjónusta
Sími: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@itn.is
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri útfararstjóri
í mínum huga var amma mín
ekki bara amma heldur vinkona
eins og vinkonur gerast bestar.
Hún var íslensk valkyrja, skapmik-
il og viljasterk. Höfðingleg var
gjafmildi hennar. Hún var tilfinn-
ingarík og blíð og síðast en ekki
síst listamaður sem gat endalaust
töfrað fram fallega hluti sem hún
gaf í auðmýkt sinni til okkar allra.
Hjá henni var öruggt skjól og frá
henni fór enginn hungraður.
Hún var skemmtileg kona og
eins og allt skemmtilegt fólk engi’i
lík.
Að lokum kveð ég hana með
þessum orðum: „Amma mín góða,
mig setur nú hljóða. Engin orð
túlka hugsanir mínar, samt takk
fyrir gjafir þínar.
Hjá þér var allt gott, hjá þér var
svo fallegt, hjá þér var friður og
gleði. Mín huggun er sú, að ást þín
og trú fái líf í börnunum þínum.
Ég sé, þú ert nú á himnum að
halda með englum Guðs veislur og
dansa.“
Astarkveðja, þín vinkona.
Stígrún Ása
Ásmundsdóttir.
Elsku amma mín. Ég kveð þig
með miklum söknuði. Það var alltaf
svo gott að koma til þín þegar ég
var barn. Við áttum marga góða
daga hjá þér og afa t.d. um jól þeg-
ar stórfjölskyldan kom saman.
Samt naut ég enn betur stundanna
þegar ég kom ein gangandi til þín
og við töluðum saman og spiluðum
á spil. Það var alltaf svo fínt hjá
þér og fallegt og garðurinn falleg-
ur. Þú gafst þér alltaf tíma fyrir
mig. Eftir að ég gifti mig fengum
við Sighvatur og Asi að búa í risí-
búðinni hjá ykkur afa eins og svo
margir aðrir í fjölskyldunni í gegn-
um árin. Það var mjög góður tími
og emm við þakklát fyrir það. Síð-
an fluttum við út á land en við
reyndum að hittast sem oftast og
héldum áfram að eiga góðar stund-
ir saman og þeirra á ég eftir að
sakna. Ég mun minnast kærleika
þíns og hlýju þinnar í minn garð
allt mitt líf. Ég bið Guð að launa
þér.
Þín vinkona,
Auður Björk
Ásmundsdóttir.