Morgunblaðið - 08.09.1998, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rússneskir starfsmenn Teknopromexport við Búrfellslínu 3A
Óskað eftir að atvinnu-
leyfí verði afturkölluð
Hækkun á þjónustu
upplýsinganúmera
Gera ekki
athugasemd
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur
ákveðið að gera ekki athugasemd við
hækkun á gjöldum hjá Landssíma
Islands hf. fyrir símtöl í upplýsinga-
númerin 114 fyrir erlend númer og
118 fyrir innlend númer. Meðal-
hækkunin var 15% og 24%.
Þegar Landssími Islands tilkynnti
umrædda hækkun í síðasta mánuði
óskaði Póst- og fjarskiptastofnun
eftir upplýsingum um tekjur og út-
gjöld af þessari þjónustu. Einnig
hefur stofnunin safnað upplýsingum
um gjöld fyrir samsvarandi þjónustu
í nokkrum nágrannalöndum til að
bera saman við íslensku gjaldskrána.
Póst- og fjarskiptastofnun getur
samkvæmt lagaákvæði sett þak á
gjaldskrá fyrir upplýsingaþjónustu
sé hún ekki í samræmi við gjaldskrá
nágrannalandanna. Upplýsingamar
að utan sýna að ekki er þörf fyrir
slíkar aðgerðir.
----------------
Söfnun fyrir
drenginn
Eskifirði. Morgunblaðiö.
HAFIN er á Eskifírði söfnun fyrir
drenginn sem slasaðist í bruna í lok
ágúst. Drengurinn, Sindri Einars-
son, liggur enn þungt haldinn á gjör-
gæsludeild Landspítalans.
Að sögn Rafns Ragnarssonar, yfír-
læknis á lýtalækningadeild, voru
gerðar á honum aðgerðir á föstudag
og laugardag, þar sem brennd húð
var fjarlægð og ný grædd á. Hann er
enn í öndunarvél og er haldið sofandi.
Aðstandendur söfnunarinnar hafa
stofnað reikning á nafni Sindra í
Landsbanka íslands á Eskifirði og
getur fólk komið framlögum sínum
þangað. Númer reiknings er 61560.
Gjöld fyrir þjónustu
upplýsinganúmera
í nokkrum löndum
Ef gert er ráð fyrir því að hvert
símtal í upplýsingaþjónustuna
til þess að fá uppgefið eitt
s ímanúmer taki 30 sekúndur
þá verður kostnaðurinn þessi
í islenskum krónum:
Land Innlend númer Erlend númer
Bretland 41,93 95,79
Danmörk 75,12 75,12
írland 34,73 34,73
ísland 29,88 22,41
Noregur 44,48 53,55
Svíþjóð 76,55 124,25
Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun
FÉLAG jámiðnaðarmanna og Raf-
iðnaðarsamband Islands hafa farið
fram á að félagsmálaráðuneytið
afturkalli atvinnuleyfi rússneskra
starfsmanna Teknopromexport,
verktaka Landsvirkjunar við bygg-
ingu Búrfellslínu 3A, þar sem í ljós
hafi komið að þeir hafi gengið í
önnur störf en leyfið var gefið út
fyrir.
Yfír því hefur verið kvartað að
rússneskir starfsmenn, sem fengu
atvinnuleyfi til þess að vinna sér-
fræðistörf, hafi sinnt akstri. For-
svarsmenn fyrirtækisins hafa heit-
ið því að leita eftir því hjá Svæðis-
vinnumiðlun Suðurlands að fundnir
verði nýir starfsmenn til þess að
annast akstur fyrir fyrirtækið, að
sögn Gissurar Péturssonar, for-
stjóra Vinnumálastofnunar félags-
málaráðuneytisins.
Að sögn Guðmundar Gunnars-
sonar, formanns Rafiðnaðarsam-
bands Islands, hefur réttur Rúss-
anna 50 sem starfa fyrir fyrirtækið
hér á landi verið brotinn og aðbún-
aður þeima verið mjög lélegur.
Hann segir greinilegt að félags-
málaráðuneytið ætli sér ekkert að
aðhafast í málefnum starfsmanna
Teknopromexport. Islenskii'
starfsmenn fyrirtækisins lögðu
niður vinnu í gær. Þeir samþykktu
á fundi sínum í gær að skora á alla
íslenska launþega sem vinna við
byggingu línunnar að leggja þegai’
niður alla vinnu sem á einhvern
hátt snertir byggingu línunnar og
flutning aðfanga. í ályktun segir að
Technopromexport hafi þrátt fyrir
margítrekuð andmæli og aðvaranir
þverbrotið íslensk lög, reglugerðir
og kjarasamninga um útgáfu at-
vinnuleyfa, aðbúnað og öryggismál
á vinnustað, laun og vinnutíma.
„Fyrirtækið mun héðan í frá
gefa út sérstakar starfsáætlanir en-
yfir því hefur verið kvartað að
vinnutímaskipulagið sé óljóst. Fyr-
irtækið mun í vikunni gefa Vinnu-
málastofnuninni greinargóðar upp-
lýsingar um þau laun sem fyrir-
tækið borgar, bæði íslenskum og
níssneskum starfsmönnum, og
sýna fram á að þau séu í samræmi
við íslensk lög og kjarasamninga.
Við munum síðan í lok vikunnar
gefa ráðuneytinu okkar skýi-slu og
ráðuneytið getur þá tekið endan-
lega ákvörðun um hvað það gerir,“
segir Gissur.
Sjúkrahús Sogn og Fjordane auglýsir
eftir íslenskum hjúkrunarfræðingum
Byrjunarlaun um
162.000 á mánuði
SJUKRAHUS Sogn og Fjordane í
Forde í Suður-Noregi auglýsti um
helgina eftir íslenskum hjúknmar-
fræðingum á lyflækningadeildir
sjúkrahússins, en að sögn Ragnhild
Svoen yfirhjúkrunarfræðings vant-
ar ellefu hjúknmarfræðinga á
deildirnar. Sjúkrahúsið hefur ekki
auglýst eftir íslenskum hjúknmar-
fræðingum áður, en hefur hins veg-
ar auglýst eftir hjúkrunarfræðing-
um á hinum Norðurlöndunum.
I auglýsingunni, sem birtist í
Morgunblaðinu á sunnudag, var
auglýst eftir hjúkrunarfræðingum í
fastar stöður, en einnig eftir hjúkr-
unarfræðingum í forfallastöður í
eitt ár eða til tímabundinna starfa í
allt að tvo mánuði. Tekið var fram
að umsækjendur myndu hafa foi’-
gang við úthlutun leikskólaplássa
og að sjúkrahúsið gæti aðstoðað
við að finna húsnæði. Þá var þess
getið að hægt væri að fá styrk
vegna flutningskostnaðar. Ragn-
hild segir ennfremur í samtali við
Morgunblaðið að grunnlaun ís-
lensku hjúkrunarfræðinganna á
lyflækningadeildum sjúkrahússins
yrðu um 162 þúsund á mánuði.
Góð reynsla
Ragnhild sagði aðspurð að
ákveðið hefði verið að auglýsa eft-
ir íslenskum hjúkrunarfræðingum
vegna þess að komið hefði fram í
norskum fjölmiðli fyrr á árinu að
íslenskir hjúkrunarfræðingar
gætu vel hugsað sér að vinna er-
lendis. Þá kvaðst hún hafa góða
reynslu af þeim íslensku hjúkrun-
arfræðingum sem starfað hefðu á
sjúkrahúsinu, en nú væri þar
starfandi einn íslenskur hjúkrun-
arfræðingur, en annar hefði starf-
að þar i sumar.
Jafntefli
hefur jákvæð
áhrif
EGGERT Magnússon, formaður
Knattspyrnusambands Islands, seg-
ir að jafntefli knattspyi-nulandsliðs
Islendinga við heimsmeistara
Frakka, hafi jákvæð áhrif á starf
KSÍ og Iandsliðsins. Hann segir að
fjölmargir hafi lýst ánægju sinni
með umgjörð leiksins og hversu vel
hann hafi komið út í sjónvarpi.
Næsti heimaleikur landsliðsins er
gegn Rússum hinn 14. október en
fiórum dögum áður leikur ísland
við Armeníu ytra. Eggert segir að
miðasala geti hafist í næstu viku en
aðeins verði um 7.000 sæti í boði
því bráðabirgðastúkurnar tvær
sem lokuðu hringnum við Laugar-
dalsvöllinn á laugardag verði ekki
leigðar aftur vegna þess leiks.
„Nú þarf fyrst og fremst að
myndast pólitísk samstaða um að
Ijúka framkvæmdum við byggingu
stúkunnar þannig að við eigum
varanlega og sambærilega aðstöðu
við þá sem boðið var upp á í leikn-
um gegn Frökkum," sagði Eggert
Magnússon.
■ Heimsmeistarar/10,11
■ Frábær/Bl-7
Andlát
ÓLAFUR Þ.
ÞÓRÐARSON
ÓLAFUR Þ. Þórðarson,
fyrrverandi alþingis-
maður, lést á sunnu-
dagskvöld, á fimmtug-
asta og áttunda ald-
ursári. Hann fæddist 8.
desember 1940 á Stað í
Súgandafirði. Foreldrar
hans voru Jófríður Pét-
ursdóttir húsmóðir og
Þórður Halldór Ágúst
Ólafsson bóndi.
Ólafur lauk búfræði-
prófi frá Bændaskólan-
um á Hvanneyri árið
1960 og kennaraprófi
frá Kennaraskóla Is-
lands 1970. Hann var skólastjóri
Barnaskólans á Suðureyri 1970-1978
og skólastjóri Héraðsskólans í Reyk-
holti frá 1978 en í leyfi frá því starfi
frá 1980 vegna þingsetu. Arið 1979
var hann kjörinn á Alþingi íyrir
Framsóknarflokkinn í Vestfjarða-
kjördæmi og sat á þingi þar til hann
varð að láta af störfum vegna veik-
inda 1994. Hann sat þó nokkrum
sinnum á þingi eftir
það sem varamaður en
það hafði hann einnig
gert um hríð á árunum
1972 og 1975-1978. Þá
var Ólafur annai’ vara-
forseti sameinaðs þings
1983-1987.
Auk þess sem að
framan er talið var
Ólafur oddviti Suðui’-
eyi-arhrepps 1974-1978
og formaður Fjórð-
ungssambands Vest-
ftrðinga á sama tíma-
bili. Hann var í stjórn
Þróunarsamvinnu-
stofnunar íslands frá 1981, í stjórn
Framkvæmdastofnunar ríkisins, síð-
ar Byggðastofnunar, 1983-1994.
Hann sat á allsherjai'þingi Samein-
uðu þjóðanna 1982.
Eftirlifandi eiginkona Ólafs er
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttii' hús-
móðir en fyrri kona hans var Þórey
Eiríksdóttir kennari. Hann lætui’ eft-
ir sig fjögur börn og einn fósturson.
A ÞRIÐJUDÖGUM
Heímili
Frækileg framganga lands-
liðsins gegn Frökkum/ B2
Birkir: Gaman að spila fyrir
aftan svona lið/ B4