Morgunblaðið - 08.09.1998, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
-
FRÉTTIR
Forsætis-
ráðherra á
heimssýn-
ingunni
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
heimsótti heimssýninguna í Lissa-
bon í Portúgal síðastliðinn laugar-
dag ásamt konu sinni, Ástríði
Thorarensen. Ráðherrann
heimsótti íslenska sýningarsvæðið
og kynnti sér líka sjávarútvegs-
deild sýningarinnar. Davíð ræddi í
Portúgalsheimsókn sinni við for-
sætisráðherra landsins, Antonio
Guterres, í bústað hans i Lissabon.
Ræddu þeir meðal annars ástand-
ið í Rússlandi, stækkun NATO og
samskipti íslands og Portúgals.
Reutei*s
Þrír brunar í sama
húsi við Vatnsstíg
Grunur um
íkveikju
LÖGREGLAN í Reykjavík
rannsakar nú hugsanlegar or-
sakir bruna á Vatnsstíg 11 en
um liðna helgi kviknaði þrisvar í
húsinu. Bruninn er nú rann-
sakaður sem íkveikjumál.
Tvisvar kviknaði í húsinu
aðfaranótt laugardags. Upp úr
miðnætti á sunnudag kviknaði í
húsinu þriðja sinni og þá í
rúmdýnu í risherbergi. I öll
skiptin urðu íbúar að yfirgefa
húsið. Beinist rannsókn málsins
einkum að því að kanna hvort
um íkveikju hafí verið að ræða
og þá hugsanlega í öll skiptin.
r
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
VINKONURNAR eftir ævintýrið í íjallinu með Gesti Ólafssyni, fóður
Guðrúnar. Talið frá vinstri: Halla Oddný Magnúsdóttir, Gunnur
Eriksdóttir, Arngunnur Árnadóttir, Gunnhildur Vala Hannesdóttir
og Guðrún Sóley Gestsdóttir.
„Petta var
svolítið rosalegt“
Málefni Háskólans rædd á nýrri Háskólahátíð
Samningur milli Háskóla
og ríkis um aukið fé
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
EINAR Stefánsson, prófessor og deildarforseti læknadeildar Háskól-
ans, Þórir Helgason heiðursdoktor, Ólafur Ólafsson heiðursdoktor og
Páll Skúlasou háskólarektor.
TVEIMUR ellefu ára gömlum
stúlkum var bjargað heilu og
höldnu úr sjálfheldu á Meðalfelli,
ofan við Meðalfellsvatn, á
sunnudag. Neyðarlínunni barst
tilkynning um stúlkurnar rétt fyrir
klukkan fjögur og skömmu síðar
komu á vettvang lögreglan í
Reykjavík, neyðarsveit
slökkviliðsins í Reykjavík,
Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði og
Björgunarsveitin Ingólfur í
Reykjavík. Neyðarsveitin kom sér
fyrir á klettabrún fyrir ofan
stúlkurnar og lét þær síga niður í
línum.
Guðrún Sóley Gestsdóttir, önnur
stúlknanna, segir að hún hafi verið
í fjallgöngu ásamt foreldrum
si'num, Guðbjörgu Garðarsdóttur
og Gesti Ólafssyni, og fjórum
öðruin stúlkum.
„Við fórum leið sem okkur
sýndist að væri mjög góð, en síðan
þegar við vorum komnar miðja leið,
tókum við eftir því að hún var bara
alveg lóðrétt," segir Guðrún, sem
varð eftir í fjallinu ásamt móður
sinni og vinkonu, Gunnhildi Völu.
Guðrún segir að Gunnhildur hafi
verið mjög lofthrædd. Móðir
hennar hafi komist niður til að
sækja aðstoð. Skömmu síðar hafi
faðir hennar klifrað upp til þeirra
og þau hafi öll hrópað á hjálp. Þá
hefði maður heyrt til þeirra og sótt
aðstoð. Eftir það komu
björgunarmennirnir og hjálpuðu
þeim að síga niður.
Þegar Guðrún er spurð að því
hvort þær hafi verið hræddar, segir
hún að þær hafi verið að „deyja úr
hræðslu" og bætir við: „Þegar ég
kom niður áttaði ég mig ekkert á
því hvað hefði gerst. En síðan eftir
allt saman, eftir að búið var að tala
við okkur, þá brotnaði ég saman og
fór að hágráta. Þá áttaði ég mig á
því hvað hafði gerst. Þannig að
þetta var svolítið rosalegt."
HÁSKÓLAHÁTÍÐ með nýju sniði
var haldin síðastliðinn laugardag í
Háskólabíói, en sú stefna hefur ver-
ið tekin upp að halda Háskólahátíð
5. september ár hvert. Háskólahátíð
hefur verið haldin þrisvar á ári, í
október, febrúar og júní, þar sem
fram fer brautskráning kandídata
og málefni Háskólans eru rædd.
Hugmynd rektors er sú að beina
meira sjónum að brautskráningunni
sjálfri við þær athafnir, en finna
málefnum Háskólans sjálfs annan
farveg.
I ræðu Páls Skúlasonar háskóla-
rektors um málefni Háskólans kom
meðal annars fram að þróun
Háskólans frá stofnun hans hefði
kallað á ný vinnubrögð við stjórnun
og rekstur hans. „Ef litið er yfir
þróun Háskólans má segja að hann
hafi í áranna rás breyst úr tiltölu-
lega einfaldri ríkisstofnun með
skýrt hlutverk í margbrotið fyrir-
tæki eða fyrirtælyasamsteypu sem
lætur til sín taka á æ fleiri sviðum
og í sífellt fleiri greinum," sagði
rektor. Fram kom að námsgi-einum
hefði fjölgað og margar rannsókna-
og þjónustustofnanir hefðu sprottið
upp, sem hefðu hver um sig sitt
verksvið og markmið. Þróunin hafi
verið mjög ör og umfangsmikil á ís-
lenskan mælikvarða og fræðastarfið
að sama skapi orðið blómlegra og
öflugra. Nefndi rektor í þessi tilliti
tvö mikilvæg atriði sem tengjast
rekstri Háskólans.
„Á undanförnum árum hefur ver-
ið beitt líkani að erlendri fyrirmynd
til að reikna út kostnað við kennslu
og rannsóknir,“ sagði hann. „Á
grundvelli þessa reiknilíkans hefur
verið unnið að þjónustusamningi við
ríkisvaldið um kennslu, sem felur í
sér að fjárveitingar til skólans muni
smám saman aukast þar til þær
verða í fullu samræmi við starfsemi
skólans og þarfir samkvæmt um-
ræddu líkani. I kjölfarið verðui- svo
gerður sambærilegur samningur
um rannsóknir. Við fjárveitingu
tveggja síðustu ára hafa verið stigin
fyrstu skrefm í þessa átt og mark-
inu verður væntanlega náð árið
2001 á sviði kennslu, en lengri tími
mun líða þar til fjárveitingar vegna
rannsókna verða sambærilegar við
það sem gerist í nágrannalöndum
okkar. Samningurinn felur jafn-
framt í sér ýmsar kröfur til Háskól-
ans og háskólakennara. Ég nefni
nokkur atriði: Nýtingu nýrrar
tækni í kennslustarfí, breytingu á
kennsluháttum til samræmis við
norræna háskóla, kerfisbundið mat
á hæfni kennara við nýi-áðningu,
þjálfun og endurmenntun kennara á
starfstíma þeirra, gæðakerfi til að
tryggja skilvirkni í stjórnsýslu og
reglulegar úttektir á starfi deilda."
Tveir vísindamenn voni sæmdir
heiðursdoktorsnafnbót, þeir Ólafur
Ólafsson landæknir fyrir drjúgan
þátt í stefnumörkun íslenskrar heil-
brigðisþjónustu og Þórir Helgason,
yfiriæknir göngudeildar Land-
spítalans fyrir sykursjúka, sem lét
af störfum fyrr á þessu ári. Var
hann sæmdur nafnbótinni fyrir
framlag sitt til þekkingar og fram-
fara á sviði sykursýki.
Forseti fslands kynnir hugmynd um rannsóknir
Getur eflt vísindasam-
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, kynnti hugmynd um
stofnun sérstaks vettvangs norður-
rannsókna I ræðu sem hann hélt í
gær í Rovaniemi í Finnlandi í tilefni
tuttugu ára afmælis Háskólans í
Lapplandi. í dag mun forsetinn
meðal annars eiga viðræður við
Martti Ahtisaari, forseta Finnlands,
og þiggja kvöldverðarboð hans.
Forsetinn rakti í ræðu sinni við
afmæli háskólans hvernig marg-
háttaðar breytingar hefðu fært ríkj-
um Norður-Evrópu aukna ábyrgð.
Væri því brýn þörf á nýjum viðhorf-
um og áherslum í rannsóknum á
mörgum fræðasviðum. Hann sagði
markmið vettvangs um norður-
FORSETI Islands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, flutti hátíðarræðu
við 20 ára afmælishátið Háskóla
Lapplands í Rovaniemi í gær.
Evrópu
rannsóknir að efla samstarf og
fræðilegan árangur vísindamanna
frá löndum Norður-Evrópu og
auðvelda samvinnu við sérfræðinga
frá öðrum heimshlutum, t.d. Band-
aríkjunum og Rússlandi.
Ólafur Ragnar Grímsson tekur í
dag þátt í ráðstefnu Háskóla Lapp-
lands um rannsóknir og menntun á
Norðurslóðum en í gær heimsótti
hann víkingasýningu og Heimskauta-
miðstöðina í Rovaniemi. I dag heldur
hann einnig til Helsinki og hittir for-
seta Finnlands, Martti Ahtisaari, og
á morgun heimsækir hann Norræna
fjárfestingarbankann og ræðir við
stjómendur hans í boði Jóns Sig-
urðssonar bankastjóra.
TÓNLISTARKONAN
Ingibjörg Kristín Sig-
urðardóttir (Minna),
Bjálmholti í Holta- og
Landsveit, Rangár-
vallasýslu, lést í
Sjúkrahúsi Suður-
lands fimmtudaginn 3.
september tæplega
níræð að aldri.
Hún fæddist 6.
janúar 1909 og var
ung að ánim þegar
eðlislægir og
meðfæddir tónlistar-
hæfileikar hennar
komu í ljós. Ingibjörg
barst þó ekki mikið á í tónlistinni
og fór nokkuð hljótt með þessa
óvenjulegu hæfileika sína. Fyrir
framgöngu sveitunga
hennar og vina kom þó
á síðastliðnu ári út
geisladiskurinn
„Heyrði ég í hamrin-
um“ með úrvali af lög-
um hennar í flutningi
einsöngvara, kóra og
sönghópa. Sama dag
kom út nótnahefti með
hátt í hundrað lögum
eftir Ingibjörgu.
Ingibjörg var ein-
hleyp og bjó alla tíð í
Bjálmholti, með for-
eldrum, systkinum og
síðast systkinabörn-
unum Borghildi og Sigurði Karls-
börnum sem bæði lifa frænku
sína.
starf í Norður-
Andlát
INGIBJORG KRISTIN
SIGURÐARDÓTTIR