Morgunblaðið - 08.09.1998, Síða 8

Morgunblaðið - 08.09.1998, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR i r Morgunblaðið/ívar Pálsson TIMBURHÚSIÐ á Eyri í Skötuflrði brann til grunna aðfaranótt sunnudags. Hús brann til grunna í Skötufírði Grunur um íkveikju TIMBURHÚS brann til grunna á Eyri í Skötufirði í ísafjarðardjúpi aðfaranótt mánudags. Lögreglunni á Isafirði var tilkynnt um eldinn skömmu eftir miðnætti og hafði þá logað í húsinu í talsverðan tíma. Ekki tókst að koma í veg fyrir að það brynni til grunna. Enginn var í húsinu þegar slökkvi- lið kom á vettvang, svo vitað sé. Hús- ið er eyðibýli en hefur verið notað sem sumarhús. Ekkert rafmagn er í húsinu og að sögn lögreglu hefur enginn verið í því í mörg ár. Telur lögreglan að kveikt hafi verið í húsinu og óskar hún eftir upplýsing- um um grunsamlegar mannaferðir við eyðibýlið frá hádegi á sunnudag. Nýkomið Lycraefni með jacquardmynstri í dragtir og fleira. Margir fallegir litir. Mynstrað og einlitt velour með lycra í miklu litaúrvali. Köflótt fyrir eldhúsið. Tilbúnir kappar, efni og önnur vara. Frísklegir litir. Tilboð: Rúmfatasett úr damaski á 1.570 kr. íslensk framleiðsla. Tískuliturinn í vetur er grátt. -búðirnar Djasshátíð Reykjavíkur Skemmtileg djassstemmning í miðbænum Djasshatið Reykjavíkur verð- ur haldin dagana 9.-13. september næst- komandi. Það eru djass- deild Félags íslenskra hljómlistarmanna og Reykjavíkurborg sem að henni standa. Ólafur Þórð- arson er framkvæmda- stjóri Djasshátíðar Reykjavíkur. „Það má segja að upp- haf árlegra djassdaga í Reykjavík megi rekja til Norrænna útvarpsdjass- daga árið 1990 sem Ríkis- útvarpið stóð þá fyrir. Ari síðar fengu þeir nafnið Rúrek og fram að þessu hafa þeir árlega verið haldnir undir því nafni. Nú bregður hins vegar svo við að Ríkisútvarpið er ekki lengur með í samstarfinu og einungis Reykjavíkurborg og FIH sem standa að djassdögunum. Þess vegna hefur nafn þeirra breyst í Djasshátíð Reykjavíkur.“ - Hvernig er dagskráin að þessu sinni? „Einn frægasti gestur hátíðar- innar er kontrabassaleikarinn Ray Brown. Hann er einna þekktastur fyrir að hafa leikið með Oscar Peterson. Þá var hann giftur Ellu Fitzgerald á timabili og lék til dæmis undir hjá Frank Sinatra í flestum hljóðritunum. Ray Brown mun leika í Islensku óperunni sunnu- daginn 13. september en þá eru lok hátíðarinnar." - Hverjir leika á setningarhá- tíðinni? „Stórsveit Reykjavíkur mun þar leika og annar af aðalgestum hátíðarinnar sem er Putte Wick- man sænskur klarinettuleikari kemur þar einnig fram. Hann þykir einn sá færasti í heimi á sínu sviði. Með honum leika Pét- ur Östlund trommuleikari, Claes Crona píanóleikari og á kontra- bassa verður Hans Backenroth. Auk þess sem þeir koma fram á setningarhátíðinni halda þeir stóra tónleika á Hótel Sögu sama kvöld.“ - Hvað verður svo fleira um að vera? „Fimmtudaginn 10. september verða haldnir útgáfutónleikar. Egill B. Hreinsson, píanóleikari og verkfræðingur, er að gefa út hljómplötu þar sem hann tekur íslensk þjóðlög og sönglög og setur í djassbúning. Hann mun leika af plötunni ásamt sínum mönnum á Sólon íslandus og Tómas R. Einarsson mun í kjöl- farið leika með sínu tríói en hann er að gefa út nýja plötu í október næstkomandi. Þá eru tónleikar í Kaffileik- húsinu á fimmtudagskvöld þar sem trompetleikarinn Cristián Cuturrufo frá Chile leikur í sérstöku boði Granda. Hann mun spila með ís- lenskum tónlistar- mönnum og mein- ingin er að skapa þarna suður- ameríska stemmningu, bjóða gestum upp á þarlenda matar- gerð og veigar.“ Ólafur segir að föstudagskvöld- ið 11. september verði ókeypis djassveisla í Reykjavík. „Þá verða tónleikar á nokkrum stöðum í miðbænum og fólk getur gengið milli staða og hlustað fram eftir nóttu. Tónleikamir verða á Fó- Ólafur Þórðarson ►Ólafur Þórðarson er fæddur í Glerárþorpi á Akureyri árið 1949. Hann stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla Is- lands og síðan í Tónlistarskóla Reykjavíkur þaðan sem hann útskrifaðist sem tónmennta- kennari árið 1974. Ólafur kenndi um árabil og starfaði síðan á tónlistardeild Ríkisútvarpsins í áratug. Þar setti hann m.a. á stofn Stórsveit ríkisútvapsins og skipulagði fyrstu djasshátíðina þegar nor- rænir útvarpsdjassdagar voru haldnir árið 1990. Hann starfaði á Aðalstöðinni um skeið og gerðist svo blaða- maður og ljósmyndari á Viku- blaðinu uns hann stofnaði eigið fyrirtæki, Þúsund þjalir, sem er umboðsskrifstofa tónlistar- Stefnt er að stórri alþjóðlegri djass- hátíð árið 2000 getanum, í Kaffileikhúsinu, á Gauki á Stöng, Sóloni Islandusi, Astro og á Kringlukránni. A fostudag og laugardag verð- ur leikin tónlist sem höfðai- til ungs fólks og nefnist Brums og bass. Fjórir einstaklingar frá Svíþjóð sem kalla sig Yoga leika á Gauki á Stöng. „Á laugardaginn eru svo tón- leikar í Súlnasal Hótel Sögu. Þar leikur Stórsveit Reykjavíkur og henni stjórnar Svíinn Daníel Nolgárd. Hann hefur verið að út- setja verk eftir Sigurð Flosason sem þarna verða leikin og Sig- urður Flosason verður aðalsólisti á tónleikunum. Þeir munu einnig leika verk eftir Thad Jones.“ Ólafur segir að á sunnudegi verði lok hátíðarinnar. Þá verður boðið upp á Pönnukökudjass á Sólon íslandus. Tríó Ólafs Steph- ensen leikur og gestum gefst færi á að gæða sér á fimm tegundum af pönnukökum með kaffinu." - Hvernig gengur miðasalan ? „Hún gengur vel en hægt er að fá miða í Japis og Islensku óper- unni svo og við inngang þar sem uppákomur verða.“ - Hvers vegna eru flestar uppá- komur á hátíðinni í miðbænum? „Við erum að skapa skemmtilega í miðbænum reyna að djassstemmningu til að glæða hann lífi. Það hefur tekist með aðstoð ýmissa fyrir- tækja. Án stuðnings þeirra hefði þetta verið ómögulegt því það kostar mikla fjármuni^ að halda hátíð sem þessa. Árið 2.000 stefnum við svo að því að hafa hér stóra alþjóðlega djass- hátíð.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.