Morgunblaðið - 08.09.1998, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLAND-FRAKKLAND
Viðbrögð Roger Lemerre, landsliðsþjálfara Frakka og franskra dagblaða
' L...
s- % L' V< ■
; j
í' '\
mmsmm
Morgunblaðið/Einar Falur
ROGER Lemerre á fundi með fréttamönnum eftir leikinn í Laugardal.
Meistararnir brot-
lervtu í Reykjavík
FRÖNSK blöð fjalla nokkuð um
landsleik íslands og Frakkiands
í undankeppni Evrópumótsins sem
fór fram á Laugardalsvelli sl. laug-
ardag og endaði með jafntefli, 1:1.
Eru blöðin á sammála um að úrslit-
in séu vonbrigði en um leið þörf
áminning til liðsmanna um að tími
sé til kominn að þeir komi niður á
jörðina og horfi til framtíðar í stað
þess sem liðið er. Eitt stærsta dag-
blað Frakklands, France-Soir, tek-
ur m.a. svo djúpt í árinni að segja að
heimsmeistararnir hafi með naum-
indum bjargað sér frá niðurlægingu
með því að jafna eftir að ísland hafi
komist yfir.
„Það er nokkuð til sem heitir
heimskautaknattspyi-na og franska
liðið hefur öðlaðst bitra reynslu af
henni,“ segir dagblaðið Le Quoti-
dien í gær. „Þeir bláu rákust á ís-
vegg,“ bætir blaðið við en landslið
Frakka gengur undir því nafni í
heimalandi sínu og breytir engu
þótt það hafi leikið í hvítum búning-
um í Reykjavík. „Franska landsliðið
verður að líta á lífið af meiri alvöru
en það hefur gert, framundan er
erfiður leikur við Rússa í Moskvu
10. næsta mánaðar." *
Le Monde
„Heimsmeistararnir brotlentu í
Reykjavík," sagði í fyrirsögn Le
Monde. „Aðeins 55 dögum eftir sig-
urinn á heimsmeistaramótinu komu
heimsmeistararnir niður af stalli
sínum. Fyrsta hindrunin á leiðinni í
lokakeppni Evrópumóts landsliða,
sem álitin var auðveld, var það
ekki.“ Þjálfari Frakka, Roger Lem-
erre, viðurkennir að í Reykjavík
hafi þrjú örugg stig skyndilega
breyst í eitt.
Blaðamaður Le Monde spyr Fa-
bien Barthez markvörð um tildrög
marksins og vill markvörðurínn
ekki viðurkenna að hafa gert mistök
heldur hafi Eyjólfur Sverrisson
leikmaður íslands hindrað sig í út-
hlaupinu. „Leikmaður númer átta
[Eyjólfur] hindrar mig við að
hlaupa út og grípa boltann eins og
ég hef gert þúsund sinnum á ferli
mínum. Sökum þess reynist leik-
manni númer ellefu [Ríkharði Daða-
syni] auðvelt að skora.“ Blaðamaður
Le Monde er ekki jafn sannfærður
og Barthez um að markvörðurinn
hafi ekki gert nein mistök og lætur
þess getið að samherjar hans hafi
ekki verið tilbúnir að taka skýring-
una gilda en hafi ekki viljað tjá sig
um hana opinberlega.
Blaðið segir ennfremur að leik-
menn hafí vaknað af værum blundi
á þessu eldvirka landi og ættu að
láta sér það að kenningu verða.
Le Parisien
Blaðið hefur ekki uppi há-
stemmdar yfirlýsingar um leikinn
en segir m.a. að verði framganga
heimsmeistaranna í næstu leikjum í
líkingu við þá sem þeir buðu upp á í
Reykjavík sé ekki von á góðu og
þeir verði þá örugglega ekki með í
lokakeppni Evrópumótsins eftir
tæp tvö ár.
Þá eyðir Le Parisicn miklu púðri
í að fylgjast með hegðun markvarð-
arins Barthez að leik loknum en það
álítur hann hafa gert hroðaleg mis-
tök þegar íslendingar skoruðu
mark sitt. Segir blaðið hann hafa
farið undan í flæmingi fyrst eftir að
leikmenn franska liðsins komu út úr
búningsklefa sínum til að ræða við
fjölmiðlamenn. Hann hafi aðallega
leitað sér að athvarfi undir stúku
Laugardalsvallar til þess að reykja
og hringja í föður sinn.
Þá rifjar Le Parisien upp varnað-
arorð landsliðsmannsins Lilians
Thurams fyiir leikinn þar sem hann
hvatti til þess að félagar sínir
gleymdu því að þeir væru heims-
meistarar; sá titill myndi ekki
hjálpa gegn Islendingum.
„Þetta var eins og að leika gegn
vegg,“ stundi markaskorarinn
Christophe Dugarry vonsvikinn við
blaðamann Le Parisien. Fyrirliðinn
Didier Deschamps segir leikaðferð
íslenska liðsins ekki hafa komið á
óvart en segir jafnframt að franska
liðið hafi ekki búið sig nægilega vel
undir hana. Segir blaðið að franska
unglingalandsliðið hafi mætt sömu
leikaðferð fyrr um daginn en fundið
ráð og skorað tvö mörk.
Liberation
„Frakkar komust að því að Islend-
ingar borða ekki bara kartöflusúpu í
litlum fiskimannakofum. Þessa helgi,
á þessu gróðursnauða landi spruttu
þar upp kappsamir knattspymu-
menn. í látlausum kappleik létu
drengirnir hans Rogers Lemerre
undan og glötuðu tveimur stigum."
L’Humanité
„Nýr heimur blasir við heims-
meisturunum,“ segir blað franski'a
kommúnista og bætir við að menn
fari ekki með sigur af hólmi með því
að halda aftur af sér. Ber blaðið
saman mikla baráttu og góðan sigur
á Brasilíu í úrslitum HM 12. júlí og
slaka frammistöðu gegn íslending-
um átta vikum seinna. Segir
L’Humanité lítið samhengi í getu
liðsins í þessum tveimur leikjum.
Baráttan er á
milli fjogurra
liða, ekki þriggja
„Ég er ánægður með það
hvernig menn mínir léku að
þessu sinni, þeir gerðu eins
og fyrir þá var lagt, vanda-
málið var bara íslenska
vörnin sem var sterk við
komumst ekki í gegnum,"
sagði Roger Lemerre,
landsliðsþjálfari Frakka,
sem stjórna liði sínu í fyrsta
skipti í opinberu móti eftir
að hann tók við í kjölfar
sigurs Frakka á heims-
meistaramótinu í jiíh' sl.
„Leikmenn komu rétt
stemmdir til leiks og undir-
búningurinn var eins og
hann verður bestur. Engu í
undirbúningnum er um að
kenna þeirri staðreynd sem
við stöndum nú frami fyrir,
að hafa aðeins fengið eitt
stig úr þessum leik í stað
þriggja eins og stefnt var
að. Eg ítreka að leikmenn
gerðu eins og fyrir þá var
lagt, það nægði bara ekki.“
Leinerre sagði ennfrem-
ur að vel hefði verið hægt
að tapa leiknum úr því sem
komið var, íslenska liðið
liefði skorað á undan og
hugsanlega geta haldið
hreinn út leikinn eins og
það lék vörnina. „Þótt það
hefði verið gegu öllum lög-
málum hefðum við getað
tapað leiknum, það er
ljóst." Hann sagði ennfrem-
ur að leikmenn sínir liefðu
gert allt sem í þeirra valdi
stóð til að vinna, en allt
kom fyrir ekki vegna
sterkrar varnar íslenska
liðsins. „íslendingar hugs-
uðu bara um að verjast og
sýndu lítinn vilja til sóknar,
einkum eftir að þeir gerðu
markið. Það sýnir sig best í
því að þeir áttu örfá mark-
skot og enga hornspymu í
leiknum. Þar sem knatt-
spyman er alþjóðleg iþrótt
leika knattspyrnumenn ís-
lenska liðsins með félagslið-
um í Evrópu og eru af þeim
sökum sterkir. Vörnin er
vel uppsett og skynsamlega
leikin. Fastlega má búast
við því að önnur lið í riðli
okkar lendi í sömu vand-
ræðum með Islcndinga og
við lentum í að þessu sinni.“
Lemerre sagðist enn-
fremur reikna ineð því að
fá fjögur stig úr viðureign-
unum tveimur við íslend-
inga. „Eigi að síður tel ég
eftir þennan leik að fjögur
lið verði í baráttunni, en
ekki þijú eins og talið var í
upphafi. ísland verður með
í baráttunni um efstu sætin
ásamt okkur, Rússum og
Ukraínu.
Ég er ekki ósáttur við
leikaðferð íslenska iiðsins
að þessu sinni, þeir leika
eins og þeir geta best og
við megum eiga von á að
mæta fleiri þjóðum á næstu
misserum sem nota sömu
leikaðferð, við því er ekk-
ert að segja. Það leikur
hver eins og hann getur
best.“