Morgunblaðið - 08.09.1998, Page 12

Morgunblaðið - 08.09.1998, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hátt í tuttugu umsagnir um gagnagrunnsfrumvarpið berast heilbrigðisráðuneytinu T' i < IÖLVUNEFND leggui- til fjölmarg- *ar breytingar á drögum að gagna- grunnsfrumvarpi í áliti, sem hún sendi frá sér í gær, meðal annars þá að leitað verði eftir samþykki allra sjúk- linga fyrir notkun á upplýsingum, fremur en að þeir þurfí sjálfíi’ að hafa frumkvæði að því að koma í veg fyrir notkun þeirra. Félag ís- lenskra hjúknmarfræðinga lagði einnig fram álit í gær og leggur til að einstaklingar merki við í skattaskýrslu hvort þeir samþykki að upplýsingar um sig séu færðar í gagna- grunninn. Samkeppnisstofnun hefur gagnagrunns- frumvarpið til umsagnar þessa dagana og mun skila áliti á næstu dögum. Asgeir Ein- arsson, yfírlögfræðingur stofnunarinnar, segii' að þeim ákvæðum sem gagnrýnd hafí verið í fyrri útgáfu frumvarpsins hafi lítið verið breytt. A föstudaginn rann út frestur til að skila áliti um nýju frumvarpsdrögin, en sum álit- in voru að berast í pósti í gær. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu höfðu í gær borist álit frá sextán aðilum; Geðhjálp, Hjartavernd, Vísindafélagi ís- lendinga, Héraðslækninum í Reykjavík, Ríkiskaupum, Stjórn Sjúkrahúss Reykja- víkur, Slysavarnafélagi Islands, Vísinda- siðanefnd, Blóðbankanum, Stjórnarnefnd Ríkisspítala, Slysavarnaráði, Læknafélagi Reykjavíkur, Héraðslækni Vesturlands, Erfðafræðinefnd Háskóla Islands, Tann- læknadeild Háskóla Islands og stjórn Læknaráðs Landspítalans. Einnig var væntanlegt álit frá Læknafélagi Islands. Þá eru áður talin álit frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Tölvunefnd. Stærsta verkefni á þessu sviði hér á landi Tölvunefnd telur að stofnun og eftirlit með gagnagrunni á heilbrigðissviði sé „stærsta og viðamesta verkefni á þessu réttarsviði sem nokkru sinni hefur verið ráðist í hér á landi og þótt víðar væri leitað“. í áliti nefndarinn- ar til heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að málafjöldi fyrir nefndinni hafi vaxið úr 141 árið 1991 í 439 árið 1997. Nefndin hafi aðeins á að skipa einum starfsmanni í hlutastai-fi og því þurfi að efla hana til að hún sé fær um að rækja hlutverk sitt varðandi gagnagrunninn og önnur verkefni. Tölvunefnd telur að þrjú atriði horfi eink: um til bóta í nýju frumvarpsdrögunum. I fyrsta lagi það að gert sé ráð fyrir að ein- staklingar hafi forræði á því hvort upplýsing- ar fari inn í gagnagrunninn, í öðru lagi að skráning og úrvinnsla heilsufarsupplýsinga verði framkvæmd eða henni stjórnað af fólki með starfsréttindi á sviði heilbrigðisþjónustu og í þriðja lagi að óháðum aðila, það er að segja Tölvunefnd, verði falið að hafa eftirlit með framkvæmd laganna. Villandi að upplýsingar séu sagðar ópersónutengdar Tölvunefnd gagnrýnir að ekki sé tiltekið í frumvarpinu hvort upplýsingar um einstaka menn í gagnagrunninum eigi að vera dulkóð- aðar eða aftengdar persónuauðkennum. Þó virðist sem fremur sé tekin fyrri stefnan. Þegar persónuupplýsingar séu dulkóðaðar fái einstaklingur nýtt og tilbúið skráningar- eða persónuauðkenni, en til sé greiningarlyk- ill sem geri kleift að persónugreina einstak- lingana. Þegar upplýsingarnar eru aftengdar persónuauðkennum sé hins vegar ekki til neinn greiningarlykill. Það sé einungis í síð- ara tilvikinu sem hægt sé að segja að upplýs- ingarnar séu ópersónutengdar. Tölvunefnd telur af þessum sökum villandi sem komi fram í 1. grein fmmvarpsins, að í grunninnum verði ópersónu- tengdar heilsufarsupplýsingar. Bent er á að dulkóðunarkerfi ____________ geti aldrei tryggt fullkomið ör- yggi og er það af þremui' ástæðum. í fyrsta lagi vegna þess að fá dulkóðunarkerfi séu svo fullkomin að ekki sé’ hægt að brjóta þau upp ef til þess er vilji, fjármunir og tími. í öðru lagi sé ekkert kerfi fullkomnara en þeir einstaklingar sem við það starfa og þeim mun verðmætari sem gagnagrunnurinn er, þeim mun meiri sé ásóknin í hann og því veikara sem eftirlitið sé því meiri möguleik- ar séu á því að upplýsingarnar verði misnot- aðar. í þriðja lagi bendir Tölvunefnd á það að vegna smæðar íslenska samfélagsins sé auð- veldara en ella að þekkja úr einstaklinga þó að upplýsingar séu dulkóðaðar og ef einstak- lingar hafi verið gi’eindir megi einnig greina fjölskyldur þeirra. Leitað verði eftir samþykki sjúklinga Hátt í tuttugu aðilar höfðu í gær sent heilbrigðis- ráðuneytinu álitsgerðir um ný drög að gagnagrunns- frumvarpi. Tölvunefnd gerir alvarlegar athugasemdir við nær allar helstu greinar frumvarpsins og telur einnig að nefndin sé mjög vanbúin til að takast á við eftirlit með framkvæmd laganna eins og aðbún- aður hennar er nú. Samkeppnisstofnun telur að litlar breytingar hafí orðið á þeim ákvæðum frumvarpsins sem hún gagnrýndi áður. Persónuupplýs- ingar ekki skil- greindar skv. lögum né Evr- ópureglum Ekki skilgreint hvaða hliðarupplýsingum megi safna Tölvunefnd telur að ekki sé nægilega vel skilgi-eint hvaða upplýsingum tengdum heilsufai’supplýsingum megi safna. Til dæm- is girði frumvarpið ekki fyrir að þær séu tengdar upplýsingum um félagsleg vandamál manna, skólagöngu þeiri-a, starfsferil, brota- feril o.s.frv. Nefndin bendir á í þessu sam- bandi að það sé og hafi verið „eitt helsta markmið vestrænnar persónuverndarlög- gjafai' að takmarka slíka samtengingu við- kvæmra persónuupplýsinga.“ Nefndin telur að skilgi'eining framvarps- ins á því hvað séu persónuupplýsingar sé hvorki í samræmi við íslensk lög og Evrópu- reglur né vinnuferli Tölvunefndar, þó því sé haldið fram í frumvarpinu sjálfu. í lögum frá 1989, tilskipun Evrópusambandsins frá 1995 og í starfi Tölvunefndar sé miðað við það að dulkóðaðar upplýsingar teljist jafnan per- sónuupplýsingai', þó að greiningarlykill sé ekki í höndum þess sem upplýsingarnar not- ar. Skilgreiningar gagnagrunnsframvarpsins séu til þess fallnar að valda vafa um það hvort dulkóðuðu upplýsingarnar falli undii' valdsvið Tölvunefndar, einkum eftir að þær era komnar í gagnagrunninn. Tölvunefndin telur að samræma þurfi lög- gjöf um persónuupplýsingar hér á landi inn- byrðis og jafnframt samræma hana áður- nefndri tilskipun Evrópusambandsins. Ekki hægt að tryggja staðsetningu grunnsins Tölvunefnd tekur undir það sem fram kemur í framvarpinu, að gagngrunnurinn eigi að vera staðsettur á Islandi, en bendir á að nútíma tækni við sjálfvirka vinnslu upp- lýsinga geri það að verkum að auðvelt sé að brjóta þessa reglu og nánast útilokað sé að hafa eftirlit með því að henni sé fylgt. Gagnrýnt er í áliti Tölvunefndar að í fram- varpinu sé ekki tekið fram með hvaða hætti eigi að miðla upplýsingum úr gagngrannin- um, heldur sé ráðherra falið að til- taka það í starfsleyfi. Einnig er gagnrýnt að hvorki skuli tiltekið hver eigi að vera vörslumaður sérstaks afrits af gagnagranninum, sem samkvæmt lögunum á að geyma í bankahólfi eða með öðrum tryggum hætti, né heldur hvernig eignarhaldi að gagnagrunnin- um verði háttað þegar leyfistíma lýkur. í framvarpinu er tiltekið að nefnd um gerð og starfrækslu gagnagrunnsins skuli sam- stundis gera ráðherra viðvarf ef hún telur misfellur vera á starfrækslu hans, en Tölvu- nefnd telur að tiltaka skuli einnig í lögunum að henni skuli vera gert viðvart. I álitinu er bent á að það skorti í frum- varpið að tiltaka hverjir séu til þess bærir fyrir hönd heilbrigðisstofnana að samþykkja flutning á upplýsingum úr sjúkraskrám og öðrum heilsufarsupplýsingum í gagnagrunn- inn. Tölvunefnd telur að ákvæði frumvarpsins um leyfi til samtengingar upplýsinga úr sjúki-askrám einstaklinga og úr niðurstöðum vísindarannsókna á sömu einstaklingum sé vafasamt. „Telur Tölvunefnd það engan veg- inn sjálfgefið, að rekstrarleyfishafa verði veitt svo umfangsmikil og víðtæk samteng- ingarheimild sem hér um ræðir. Þá telur Tölvunefnd rétt að hafa í huga í þessu sam- bandi, að niðurstöður vísindarannsókna eiga samkvæmt skilmálum sem nefndin hefur sett, jafnan að vera ópersónulegar, nema nefndin hafi veitt heimild til annars. Er því vandséð, hvemig unnt á að vera að beita ákvæði þessu í framkvæmd.“ Leitað verði eftir samþykki sjúklinga Tölvunefnd fagnar því að í nýju framvarps- drögunum komi fram að sjúklingar geti óskað eftir því að upplýsingar um þá verði ekki fluttar í gagngranninn, en telur að í stað þess að þeir þui-fi að hafa framkvæði í þessum efn- um skuli leitað eftir samþykki þem’a. Astæð- urnar sem Tölvunefnd tiltekur era þær að upplýsingarnar varði viðkvæm einkamál, að stefnt sé að notkun upplýsinganna í öðrum tilgangi heldur en þeim sem þeim vai' upp- ranalega safnað til, að ei-fitt sé fyrir sjúklinga að henda reiður á því hvenær á lífsleiðinni þeir hafi leitað til heilbrigðiskerfisins og að ekki sé óframkvæmanlegt að afla slíks sam- þykkis. Tölvunefnd bendir einnig á að gert sé ráð fyrir slíku samþykki í tOskipun Evrópu- sambandsins um gagnagranna og einnig í ís- lenskum lögum hvað varðar samþykki sjúk- linga fyrir þátttöku í vísindarannsóknum. Tölvunefnd bendir sérstaklega á það að engan veginn sé sjálfgefið að upplýsingar um látna menn verði skilmálalaust færðar inn í gagngranninn, en í frumvarpsdrögin vanti að til þess sé tekin afstaða. Miðlægur gagnagrunnur ekki nauðsynlegur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur undir mörg helstu gagnrýnisatriði Tölvu- nefndar í áliti sínu, en fagnar einnig því að breytingar hafi orðið til úrbóta á framvarpinu. Félagið lýsir þó efa- semdum um nauðsyn miðlægs gagnagrunns, því hægt sé að ná sömu markmiðum með „eðlilegri upplýsingavæðingu heilbrigðis- kerfisins". _^___ í framvarpsdrögunum kemur fram að lögin eigi ekki að taka til gagna- grunna sem þegar eru til í heilbrigðiskerfinu, svo sem sjúkraskráarkerfa einstaki'a heil- brigðis- og rannsóknarstofnana, gagnasafna vegna vísindai-annsókna á einstökum sjúk- dómum eða sjúkdómaflokkum eða skrá sem stjórnvöld á sviði heilbrigðis- og tryggingar- mála halda um notendur heilbrigðisþjónustu og rekstur heilbrigðiskerfisins. Félag ís- lenskra hjúki'unarfræðinga telur að taka þurfi skýrt fram að þessi skilgreining nái einnig til gagnagi'unna af þessu tagi sem byggðir verði upp í framtíðinni, ekki aðeins til þeirra sem nú era til. Félagið telur að takmarka þurfi aðgang að upplýsingunum umfram það sem tiltekið er í frumvarpsdrögunum. Þar kemur fram að skráning og vinnsla heilsufarsupplýsinga skuli „framkvæmd eða henni stjórnað af fólki með starfsréttindi á sviði heilbrigðisþjón- ustu“. Félagið telur að eðlilegra væri að tak- marka þetta við þær heilbrigðisstéttir sem í dag hafa daglegan aðgang að sjúkraskrám, s.s. lækna, hjúkiunarfræðinga og læknarit- ara. Heilbrigðisyfírvöld lúti sömu reglum og aðrir I frumvarpsdrögunum er tekið fram að heilbrigðisyfirvöld skuli ætíð hafa óheftan aðgang að upplýsingum úr gagnagiunninum, en félagið telur að eðlilegast væri að þau lytu sömu reglum um aðgang og aðrir. Varðandi skipan nefndar um gerð og starf- rækslu gagnagrannsins telur félagið eðlOeg- ast að einn af nefndarmönnum verði skipaðm' af ráðherra, en ekki allir þrír eins og tiltekið er í framvarpsdrögunum. Hinir tveh' verði til- nefndir af „viðurkenndum opinberum aðilum á sviði tölvunarfræði, faraldsfræði og siðfræði vísindarannsókna . . .“ Er það í samræmi við þá skoðun félagsins að draga eigi úr valdi stjórnmálamanna yfir gagnagrunninum mið- að við stefnu frumvarpsdraganna. Líkt og Tölvunefnd telur félagið að leita eigi efth' samþykki sjúklinga áður en upplýs- ingar um þá era færðar í gagnagrunninn og leggur það til að það verði gert með merk- ingu í skattaskýrslu sem síðan yi'ði færð í þjóðskrá. Félagið telur einnig að ekki eigi að færa neinar upplýsingar um einstakling í gagnagrunninn, sé hann því mótfallinn. I framvarpsdrögunum segir að upplýsingar um alla einstaklinga verði færðar í gagna- grunninn fyrh' heilbrigðisskýrslugerð og vegna annarrar tölfræðOegrar skráningar heilbrigðisyfirvalda. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga telur að taka þurfi af allan vafa í lögum um eignar- rétt sjúkraskráa og nýtingarrétt þeirra. Gagnrýni Samkeppnisstofnunar hafði lítil áhrif Samkeppnisstofnun hefur fengið nýja út- gáfu gagnagrannsfrumvarpsins til umsagn- ar. Ásgeir Einarsson, yfirlögfræðingur stofn- unarinnar, segir að líklega muni heilbrigðis- ráðuneytinu verða svarað á næstu dögum. Ásgeir segir að þær greinar frumvarpsins sem Samkeppnistofnun hafi áður gert at- hugasemdir við hafi lítið breyst frá fyná út- gáfu þess. „Hvort sem það var vegna okkar umsagnar eða einhvers annars hafa þeir fellt út það skilyrði sem er í gamla framvarpinu, um að fyrirtækið yrði að vera íslenskur lög- aðili. Að öðra leyti sýnist mér [þau ákvæði sem Samkeppnisstofnun gerði athugasemdir við] nokkuð svipuð og þau voru.“ Það var í apríl síðastliðnum sem heilbrigð- isráðuneytið óskaði eftir áliti Samkeppnis- stofnunar um fyiTÍ útgáfu gagnagranns- framvarpsins. Svar stofnunarinnai' barst í lok júní og komu þar fram athugasemdir við 3. og 5. grein frumvarpsins. í fyrsta lagi komu fram efasemdir um það að sérleyfið væri nauðsynlegt, því hagsmunir leyfishafans væra tryggðir á annan hátt, bæði með samkeppnislögum og með tilskip- un Evrópuþingsins og Evrópuráðsins frá ár- inu 1996 um lögverndun gagnagrunna. Til- skipunin hefur að vísu ekki tekið gildi hér á landi ennþá, en fram kemur í áliti Sam- keppnisstofnunai' að ráðgert sé að lögfesta hana á haustþingi. I öðru lagi gerði Samkeppnisstofnun at- hugasemd við þá forsendu að kostnaður vegna gerðar gagnagrannsins gerði veitingu sérleyfis nauðsynlega. Stofnunin benti á að heilbrigðisráðuneytið byggi ekki yfir neinum gögnum til að meta kostnaðinn. Tvær kostnaðaráætlanir liggja fyrir, áætlun upp á 12 milljarða króna ____^_ frá íslenskri erfðagi'einingu og áætlun Ríkisspítalanna um 1-4 milljarða króna kostnað. „Varhugavert er út frá almannahagsmunum að byggja um of á upplýsingum frá fyrirtækjum sem sjálf sækj- ast eftir sérleyfum," segii- í álitinu. „Fyrir- tæki reyna vitaskuld að hámarka hagnað sinn og út frá sjónarhóli þeii'ra geta sérleyfi verið æskileg. Þau geta m.a. veitt vernd frá samkeppni. Almannahagsmunir felast hins vegar m.a. í því að virk samkeppni ríki á sem flestum sviðum. í ljósi þessa beinir Sam- keppnisstofnun þeim tilmælum til ráðuneyt- isins að gerð verði nánari úttekt á þörfinni fyrir veitingu sérleyfis á þessu sviði.“ í þriðja lagi benti Samkeppnisstofnun á að hætta væri á því að veiting sérleyfisins gæti brotið í bága við ákveðin ákvæði EES-samn- ingsins um samkeppnismál. Notkun upp- lýsinga í öðrum tilgangi en þeim var safnað til

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.