Morgunblaðið - 08.09.1998, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kári Stefánsson, forstjóri
Islenskrar erfðagreiningar
Ætlum ekki að
gera lyfjatilraunir
í KYNNINGARBÆKLINGI de-
Code genetics inc., móðurfyrirtækis
Islenskrar erfðagreiningar, til er-
lendra fyrirtækja kemur fram að það
geti boðið samstarfsfyrirtækjum
„aðgang" að Islendingum vegna
lyfjatilrauna. Kári Stefánsson, for-
stjóri íslenskrar erfðagreiningar,
segir að fyrirtækið hyggist ekki gera
neinar slíkar tilraunir sjálft, en not-
ast við upplýsingar úr tilraunum sem
aðrir gera og skoða þær í samhengi
við upplýsingar úr fyrirhuguðum
gagnagrunni heilbrigðismála.
„Það eru tilraunir í þá átt í lyfja-
iðnaðinum að minnka sem mest bein-
ar lyfjatilraunir og reyna að komast
að sömu niðurstöðu með módelsmíði.
I stað þess að þurfa að gefa sjúkling-
um lyf og nota niðurstöðurnar til að
ákveða hvernig meðhöndla á sjúk-
linga er reynt að safna sem mestum
upplýsingum þannig að hægt sé að
nota afleiðsluröksemdafærslu til að
ákveða hvernig eigi að meðhöndla
fólk. Þetta held ég að sé meginhugs-
unin á bak við það sem stendur í
þessum bæklingi."
Aðspurður segir Kári að deCode
stefni hvorki að því að verða frum-
kvöðull né milliliður í lyfjatilraunum.
„Ég held að það sé ólíklegt að við
værum í þeirri aðstöðu þótt við vild-
um verða milliliðir, því þessi
[lyfjajfyrirtæki hafa sína fulltrúa á
íslandi. Til dæmis held ég að Giaxo-
Wellcome sé með tólf manna fyrir-
tæki á íslandi sem vinnur að því að
koma á fót, stjórna og túlka lyfjatil-
raunir sem fyrirtækið gerir hér.“
Tryggingafyrirtæki meðal
notenda gagnagrunnsins
í bæklingi deCode inc. kemur
einnig fram að meðal mögulegra
samstarfsfyrirtækja þess séu trygg-
ingafyrirtæki.
„Tryggingafyrirtæki reka banda-
ríska heilbrigðiskerfið,“ segir Kári.
„Þau, eins og öll önnur fyrirtæki
sem koma að heilbrigðiskerfinu, eru
að leita að aðferðum til að gera
læknisfræðina ódýrari, skilvirkari
og betri. Ég reikna til dæmis með
því að þegar kemur að því að byggja
upp fyrirbyggjandi læknisfræði, það
er að segja læknisfræði þar sem er
lögð áhersla á að viðhalda heilsu
frekar en að takast á við sjúkdóma
þegar þeir eru orðnir sem þyngstir
fyrir sjúklinga, þá komi trygginga-
fyrirtækin til með að vísa veginn.
Heilsufarstryggingar í Bandaríkj-
unum eru gjarnan þannig að borguð
er á ári hverju ákveðin upphæð fyr-
ir hvern einstakling sem er tryggð-
ur.“
Kári segist gera ráð fyrir að stór
tryggingafyrirtæki muni mjög leita
eftir því að nota gagnagrunninn,
verði hann til. „Þau munu meðal
annars nota hann til að hjálpa til við
að setja saman áætlanir um fyrir-
byggjandi læknisfræði og auka
skilning á því hvernig kostnaður
verður til í heilbrigðisþjónustunni.“
Morgunblaðið/Kristinn
HÓPURINN saman kominn og tilbúinn að halda vestur um haf á
sunnudag. F.v. Bryndís Bogadóttir, Anna S. Kristjánsdóttir, Hálfdan
Helgi Helgason, Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir, Ríkharður Orn Atla-
son og Páll Marvin Jónsson.
Farin á fund Keikós
FJÓRMENNINGARNIR Anna S.
Krisljánsdóttir og Hálfdan Helgi
Helgason frá Eskifirði og Guð-
björg Erla Ríkharðsdóttir og Rík-
harður Örn Atlason frá Vest-
mannaeyjum héldu af stað til
Bandaríkjanna á sunnudag, til
þess að heimsækja háhyrninginn
Keikó í Newport í Oregon áður en
hann leggur upp í langferðina til
Islands.
Börnunum, sem öll eru ellefu
ára gömul, mun gefast tækifæri til
að fylgjast með Keikó siðustu daga
hans í Öregon, eða þar til hann
verður fluttur í flugvélina sem
flýgur með hann hingað til lands.
Með fjórmenningunum í för verða
þau Bryndís Bogadóttir kennari
og Páll Marvin Jónsson, forstöðu-
maður Rannsóknasetursins í Vest-
mannaeyjum.
Samraðsfundur Kvennalistans
*
Akveður að undirbúa sameigin-
legt framboð í kjördæmunum
SAMRAÐSFUNDUR Kvennalist-
ans ákvað á fundi sínum á sunnudag
að taka þátt í undirbúningi sameigin-
legs framboðs félagshyggjuflokk-
anna úti í kjördæmunum. Eins konar
sameiginlegt kjördæmisráð verður
því myndað í hverju kjördæmi fyrir
sig með þremur kvennalistakonum
auk þriggja fulltrúa frá hvorum A-
flokkanna. Endanleg ákvörðun um
það hvort Kvennalistinn taki þátt í
sameiginlegu framboði flokkanna
verður hins vegar ekki tekin fyrr en
á landsfundi Kvennalistans, sem
haldinn verður eigi síðar en 1. nóv-
ember nk., að sögn Guðnýjar Guð-
björnsdóttur, fulltrúa Kvennalistans
í viðræðum um sameiginlegt fram-
boð félagshyggjuflokkanna.
Samstarfssamningi Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og Kvennalista,
þar sem tekið er á öllum öðrum mál-
um en sjálfum málefnasamningnum,
er enn ekki lokið, en að sögn Guðnýj-
ar má búast við því að svokallaðri
ritstýringarvinnu málefnasamnings-
ins ljúki eftir hálfan mánuð eða svo.
Hún segir það mikilvægt fyrir
kvennalistakonur að málefnasamn-
ingurinn verði nógu sterkt litaður af
kvenfrelsisáherslum þeirra og að
þær fái tækifæri til að fylgja þeim
áherslum eftir í sameiginlegu fram-
boði.
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hf. hefur selt frystitogarann Sól-
bak EA til fyrirtækisins Over-sea,
sem er dótturfyrirtæki NASCO í
Reykjavík. Sólbakur er minnsti
frystitogari félagsins og hann
verður afhentur nýjum eigendum
á næstunni.
Sólbakur var smíðaður í Japan
1972 en endurbyggður í Þýska-
landi 1986. Skipið er 765 brúttó-
tonn að stærð, tæpir 54 metrar að
lengd og 9,5 metrar að breidd.
Sólbakur hefur síðustu mánuði
verið í leigu hjá Básafelli á Isa-
firði en UA tók skipið úr rekstri í
mars í fyrra og hafði skipið að
mestu legið við bryggju fram að
því að Básafell tók skipið á leigu í
vor.
Eftir söluna á Sólbak á UA fimm
togara, frystitogarana Svalbak og
Sléttbak og ísfisktogarana Harð-
bak, Kaldbak og Árbak.
Vörður
Oþarfa af-
skipti af
Ibúða-
lánasjóði
VÖRÐUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna telur Fram-
sóknarflokkinn hafa verið
með óþarfa afskiptasemi af
Ibúðalánasjóði að því er fram
kemur í ályktun frá stjórn fé-
lagsins.
Þar segir að undirbúnings-
nefnd um stofnun sjóðsins
eigi að annast ráðningu fram-
kvæmdastjóra og ráðningar-
tíma en ekki Framsóknar-
flokkurinn. Það hljóti að vera
hagur sjóðsins að fram-
kvæmdastjórinn taki sem
fyrst til starfa, en bíði ekki til
loka þinghalds næsta vor eins
og flokkurinn hafi ákveðið.
:
Morgunblaðið/Kristján
Endurnar fá brauðbita
Brotajárn unnið
í S-Þingeyjarsýslu
6-700
tonn unn-
in fyrir
austan
YFIR 300 tonn af brotajárni voru
unnin í Mývatnssveit og á milli 3-
400 tonn á Húsavík í síðustu viku og
er þetta í fyrsta sinn sem menn á
vegum Hringrásar fara á þessa
staði með færanlega endurvinnslu-
stöð og vinna brotajárn.
Sveinn Asgeirsson hjá Hringrás
sagði að umræddu brotajárni hefði
verið safnað saman á síðustu árum á
þessum stöðum en sífellt væru að
bætast inn nýir staðir sem óskuðu
eftir þjónustu af þessu tagi. Áður
hefði járnið verið urðað, en mikil
vakning væri hjá forsvarsmönnum
sveitarfélaga víða um land um gildi
endurvinnslu. „Útflutningsstöðum
er alltaf að fjölga og þessi mál eru á
réttri leið,“ sagði Sveinn.
Hringrásarmenn hafa verið á ferð
með endurvinnslustöðina og er
þetta þriðja árið sem farið er vítt og
breitt um landið í því skyni að vinna
brotajárn. Næsti viðkomustaður
þeirra er Akureyri og gerði Sveinn
ráð fyrir því að brotajárn yi-ði unnið
þar næstu tvo mánuði.
ENDURNAR á Leirutjörninni
eru svo sannarlega í góðum
höndum þegar frændsystkinin
Hilma Ýr og Hörður Vilberg
heimsækja þær með fullan poka
af brauði, sem þau brytja ofan í
hópinn. Þau voru niður við tjörn
í gærdag og ekki annað að sjá
en endurnar séu himinlifandi
með heimsóknina. Og vona
væntanlega að þau komi sem
oftast.
Mikill áhugi fyrir minningar-
tónleikum Kristjáns Jóhannssonar
Aðeins um 300
miðar óseldir
MIKILL áhugi er fyrir tón-
leikum stórsöngvarans Krist-
jáns Jóhannssonar sem fram
fara í íþróttahöllinni á Akur-
eyri laugardaginn 10. októ-
ber nk. Að sögn Jóns Ellerts
Lárussonar í Bókvali, þar
sem forsala fer fram, eru að-
eins um 300 miðar eftir af
þeim 1.400 sem í boði voru.
Jón Ellert sagðist gera ráð
fyrir að miðar á tónleikana
seldust upp á næstu tveimur
dögum. Um er að ræða minn-
ingartónleika um föður Krist-
jáns, Jóhann Konráðsson. Jó-
hann hefði orðið áttræður
síðastliðið haust en hann lést
árið 1982.
Með Kristjáni koma fram
Sigrún Hjálmtýsdóttir óp-
erusöngkona og ung frænka
Kristjáns, Jóna Fanney
Svavarsdóttir. Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands leik-
ur á tónleikunum ásamt
hljóðfæraleikurum úr Sin-
fóníuhljómsveit íslands.
Hljómsveitarstjóri er hinn
þekkti ítalski Giovanni
Andreoli.
Minningartónleikarnir eru
jafnframt góðgerðartónleik-
ar, þar sem hugsanlegur
ágóði rennur til áframhald-
andi uppbyggingarstarfs og
reksturs Sinfóníuhljómsveit-
ar Norðurlands.