Morgunblaðið - 08.09.1998, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Skátafélagið á Akranesi
Mikil uppbygging útivist-
arsvæðis í Skorradal
Borgarnesi - Þeir tóku sig vel út í
skátaskyrtu með hálsklút og í stutt-
buxum þeir Jón Þ. Leifsson fjár-
málastjóri og Sigurður Guðjónsson,
félagsforingi Skátafélags Akraness,
þegar þeir tóku glaðbeittir á móti
fjölda gesta sem heimsóttu Skátafell
við Skorradalsvatn á dögunum.
Enda var veðrið eins gott og það get-
ur best orðið hérlendis og verið að
kynna náttúru- og útilífsmiðstöð sem
skátamir á Akranesi hafa komið sér
upp í landi Stóru Drageyrar í
Skorradal í Borgarfírði.
Margir hafa lagt hönd á plóginn
frá því að skátafélagið á Aki-anesi
fékk landið á leigu um 1970 en þá
voru þeir Páll Gíslason læknir og
Bragi Þórðarson bókaútgefandi á
Akranesi i forsvari fyrir skátafélag-
inu. Byrjað var á uppbyggingunni að
Skátafelli af eldmóði og stórhug.
Fljótlega reis þar um 240 fermetra
hús en síðan kom nokkur afturkipp-
ur í starfsemina um tíma.
En þótt margir hafí verið virkir í
skátastarfinu og duglegir við upp-
bygginguna á Skátafelli í Skorradal í
gegnum tíðina hefur mest mætt á
Jóni Þ. Leifssyni á síðustu ámm.
Hann gekk til liðs við skátahreyfing-
una um fermingu og hefur starfað
nær óslitið hjá félaginu síðan. Frá
1987 hefur Jón verið fjármálastjóri
og aðaldriffjöður starfseminnar að
Skátafelli. Jón er lærður vélvirki en
starfar sem lögreglumaður á Akra-
nesi. Hann hefur varið flestum sín-
um frístundum í sjálfboðavinnu fyrir
skátafélagið á Akranesi, jafnt sum-
arleyfum sem vaktafríum. Mestur
tíminn hefur farið í uppbygginguna
að Skátafelli í Skorradal og hefur sá
staður verið hans annað heimili á síð-
ustu árum. I þjóðfélagi þar sem allir
era að vinna fyrir peningum og
reyna að hafa sem hæst laun er það
æ sjaldgæfara að rekast á sjálfboða-
liða og hugsjónamenn eins og Jón Þ.
Leifsson.
Bragi Þórðarson, sem fym er get-
ið, var að Skátafelli þennan dag,
klæddur í skátajakkann sinn og
prýddur orðum og einkennum. Að-
spurður um starf Jóns Þ. Leifssonar
sagði Bragi að það besta við Jón
væri hversu gott hann ætti með að fá
fólk til að starfa fyrir skátahreyfing-
una og svo gæti hann gengið í öll
verk sjálfur, hvort sem það væri að
gera við vélar og tæki, leggja hita-
veiturör eða standa í samningum og
stjórnarstörfum fyrir félagið.
Sjálfur vildi Jón ekki gera mikið
úr sínum þætti. „Ég stend alls ekki í
þessu einn, það eru margir sem hafa
komið að þessari uppbyggingu hér í
gegnum árin,“ sagði hann. „En mér
væri þetta alls ekki mögulegt sem
ég er að gera nema vegna þess að
konan mín og fjölskyldan öll stendur
með mér í þessu.“ Sagði Jón að það
hefði komið nokkur lægð í félags-
starfið um tíma. „En upp úr 1980
hófst skátastarfið af fullum krafti
aftur. Við héldum tívolí í íþróttahús-
inu á Akranesi nokkur ár í röð og
var það mjög góð fjáröflun. Upp úr
því hófst fullnaðarfrágangur á
Skátafelli og aðstöðunni þar. Við
fengum rafmagn hingað 1988 sem
var auðvitað mjög til bóta. Þá er bú-
ið að laga veginn hingað til okkar og
við erum orðnir veghaldarar í góðri
samvinnu við Vegagerðina í Borgar-
nesi.
Jón var að leggja af stað með hóp í
skoðunarferð um svæðið sem skát>
amir hafa til umráða. Svæðið er um
700 metra langt og liggur í skógi vax-
inni hlíðinni meðfram Skorradals-
vatninu að sunnanverðu og nær síðan
frá vatninu og upp undir hlíðar Drag-
fells fyrir ofan. Gengið var eftir mjúk-
um göngustígum sem skátamir hafa
lagt um skóginn, en heildarlengd stíg-
anna er tæpir tveir kílómeti'ar. Kurl
hefur verið borið í stígana sem gerir
þá einstaklega mjúka undir fæti.
Sagði Jón að auk þess að kurlið væri
umhverfisvænt væri mjög auðvelt að
koma því út í stígana því það væri svo
létt og meðfærilegt.
Jón sýndi okkur stoltur hversu
stór trén væru orðin sem að skátarn-
ir hefðu verið að gróðursetja á und-
anfornum áram. Tók hann fram að
öll gróðursetning væri unnin í góðri
samvinnu við Ágúst Árnason, skóg-
arvörð hjá Skógrækt ríkisins í
Hvammi í Skorradal. Gert hefði ver-
ið deiliskipulag af svæðinu árið 1991
og síðan hefði verið unnið samkvæmt
því skipulagi. Búin hafi verið til stór
varðeldalaut niðri við vatnið þar sem
væri mjög skjólsælt og til stæði að
smíða lítið hús sem notað yrði sem
smiðja og þar yrði unnið úr þeim viði
sem til félli við grisjun á skóginum.
Áætlað væri að ljúka framkvæmdum
árið 2001.
Þegar komið er aftur að Skátafelli
úr gönguferðinni vekur stórt fiskikar
athygli en í ki'ingum karið voru
nokkrir áhugasamir ylfingar að
skoða eitthvað. Jón sagði að hitaveit-
Frábær tölvuskóli fyrir
stelpur og stráka
• Skemmtllegt þemanám
• Jákvætt námsmat
> Skapandi námsumhverfi
■ Samþætting námsgreina
• Persónuleg aðstoð
• Raunhæf verkefni
Framtíðarbörn er tölvuskóli fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-14 ára
þar sem áhersla er lögð á skemmtilegt þemanám. Allir fá tækifæri til að
njóta sín í fámennum hópum, sem gerir kennaranum kleift að fylgjast
með og aðstoða hvern og einn.
Vetrarstarfið okkar er að hefjast. í vetur gerast nemendur okkar
Könnuðir Framtíðarbarna sem kanna mörg ólík efni. Má þar nefna
tækni, vísindi, íþróttir ofl. Námsefni vetrarins spannar öll helstu
tæknisvið tölvu- og upplýsingatækninnar á afar fjölbreyttan hátt.
tf Landsbanki
Mk íslands
JBBLm e • • - •
Sífcl
FRAMTÍÐARBÖRN
Innrltun er hafin - hringdu núna
Reykjavík 553 3322
Akureyri 461 3328
Isafjörður 456 5470
Vestmannaeyjar 481 1938
Selfoss 482 3937
Akranes 431 3350
Kennsla hefst 14. september.
Allir klúJbbfélagar í klúbJbum Landibanka Íílands fá 20-40% afslátt.
JÓN Þ. Leifsson á leið út í trilluna Ver Ak-97 á Skorradalsvatni.
an væri nýkomin á staðinn og þetta
væri heiti potturinn þeirra. Þá gall í
einum ylfingnum: „Já, en nú er
heitavatnið kalt.“ Það kom til af því
að í karinu voru nokkrar lifandi
bleikjur úr Skorradalsvatninu til
sýnis. Talið barst að Skorradalsvatni
og sagði Jón að skátarnir hefðu
fengið trilluna Ver AK-97, sem sé 5
tonna og úrelt, fyrii' tveimur árum
og hún væri höfð á vatninu og notuð
til skemmtiferða og kennslu. Þá væri
félagið búið að fjárfesta í tveimur
litlum árabátum og til stæði að
byggja bryggju og bátaskýli til að
auðvelda notkunina.
Sagði Jón bæjaryfirvöld á Akra-
nesi hafa stutt mjög vel við starfsem-
ina og styrkt hana rausnarlega með
framlögum. Það sýndi lofsverðan
skilning á þeirri ómetanlegu aðstöðu
sem bæjarbúar á Akranesi og aðrir
hefðu tækifæri til að njóta í Skorra-
dalnum í framtíðinni. Þá sagði Jón að
skátarnir fengju stuðning úr ýmsum
áttum og til dæmis hefði Landsbank-
inn á Akranesi veitt félaginu góða
fyrh-greiðslu og veitingarnar á þess-
ari hátíð væru í boði bankans.
En hvað rekur Jón áfram og held-
ur honum gangandi? „Það er enginn
staður jafn fallegur og hérna við
vatnið að mínu mati og svo hef ég
mjög gaman af öllu þessu starfi,“
segir Jón og heldur áfram að tala um
hvað sé framundan. „Það var algjör
bylting þegar við fengum hitaveituna
hingað í vor og hún gefur okkur
mikla möguleika 1 framtíðinni.
Hérna verður útilífsmiðstöð, ekki
bara fyrir skáta, heldur eru áætlanh-
um að hingað komi grunnskólanem-
ar í vor- og haustferðir og síðan að
hér dvelji íþróttafólk þegar við erum
búnir að byggja hér upp baðhús og
tilheyrandi“, segir Jón Þ. Leifsson
að lokum og hoi-fir dreyminn á svip
yfir útivistarsvæðið.
Morgunblaðið/Theodór
ALLIR höfðu gaman af að
skoða bleikjurnar í kalda „heita
pottinum".
JÓN Þ. Leifsson á göngubrú við Skátafell, ásamt ungum og upprenn-
andi ylfingi.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
NEMENDARAÐ F.Su. Myndin var tekin þegar nemendaráð bauð nýnem-
um í árlega vöffluveislu. Á myndina vantar Sigrúnu Ósk, yfirmaddömu.
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Nemendafjöldi
aldrei verið meiri
Selfossi - Aldrei hafa fleiri dag-
skólanemendur verið innritaðir í
Fjölbrautaskóla Suðurlands en nú
á haustönn 1998 eða alls 713
nemendur. Þar skiptir kannski
mestu máli að nýnemar úr grunn-
skóla hafa aldrei áður verið jafn
margir eða 190. í hcildiua eru ný-
ir nemendur við skólann 226.
Fyrir utan dagskólanemendur
eru um 75 nemendur skráðir í
kvöldskóla og á Litla-Ilrauni eru
innritaðir 28 nemendur. Að sögn
Örlygs Karlssonar aðstoðarskóla-
meistara er erfitt að finna skýr-
ingu á þessari miklu aðsókn að
skólanum í haust. Hann nefnir þó
að góðærið gæti verið ein skýr-
inganna. Nemendur hafa nægi-
Iegt fé til þess að stunda námið
og eiga ef til vill auðveldara með
að fá vinnu með náminu en áður.