Morgunblaðið - 08.09.1998, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Rússneska millistéttin
hrynur með rúblunni
Moskvu. The Daily Telegraph.
Hugsanlegt að allt að 100.000
manns í fjármálalífi Moskvu-
borgar missi vinnuna
EFNAHAGSONGÞVEITIÐ
Rússlandi bitnar á iandsmönnum
öllum en líklega hefur engin ein
stétt orðið jafn hart úti og milli-
stéttin. Hefur hún farið mjög vax-
andi á síðustu árum en nú horfíst
hún í augu við fjöldauppsagnir og
bankahrun, sem gerir sparifé
hennar að engu.
Bankamenn, kaupsýslumenn,
verðbréfasalar, sölumenn og þeir,
sem eitthvað hafa komið nálægt
innflutningi, hafa verið að missa
vinnuna tugþúsundum saman.
Þetta er fólkið, sem hélt það væri
að taka þátt í að skapa nýtt Rúss-
land, hafði góð laun á rússneskan
mælikvarða og átti nokkurt spari-
fé en nú er það allt horfíð. Meiri-
hluti landsmanna, sem hefur ekki
fengið launin sín greidd nema með
höppum og glöppum, átti ekkert í
handraðanum og rússnesku auð-
kýfingarnir voru fyrir löngu búnir
að koma sínu fyrir í erlendum
bönkum. Efnahagshrunið í Rúss-
landi er því ekki síst hrun hinnar
nýju millistéttar.
Millistéttin rússneska er að
sjálfsögðu fjölmennust í helstu
borgunum og aðallega í Moskvu.
Til skamms tíma var þetta fólk til-
tölulega öruggt um atvinnu sína,
það var lykilfólk í mótun hins nýja
Rússlands, en nú telja margir, að
allt að 100.000 manns í fjármálalífí
borgarinnar verði sagt upp. Hver
starfsmaður hefur svo kannski
fjórar eða fimm manneskjur á sínu
framfæri.
Ótti við vöruskort
Ástandið í Moskvu er farið að
minna á tímana eins og þeir voru
verstir á Sovéttímanum, langar
biðraðir eftir brýnustu nauðsynj-
um, og starfsmenn fjámálastofn-
ana leggja nótt við dag við að
reyna að bjarga því, sem bjargað
verður.
Meðal þeirra í Írína Níkonova,
22 ára gömul og með fyrstu ágæt-
iseinkunn frá viðskiptaháskólan-
um í Moskvu. Hún hefur unnið hjá
bankanum Rossískí Kredit en nú á
dögunum voru henni gerðir tveir
kostir. Annaðhvort segði hún upp
strax án nokkurs réttar til bið-
launa eða ynni út tveggja mánaða
uppsagnarfrest. Ef hún tæki síðari
kostinn mætti hún búast við, að
hver einasta tylliástæða yrði notuð
til að segja henni upp, jafnvei það
að koma einni mínútu of seint til
vinnu.
Hjá vinnumiðlununum í Moskvu
er nóg að gera og á einni þeirra
var Sergei Solomentsev að fylla út
umsóknareyðublað. Hann sagðist
hafa tapað 850.000 ísl. kr. í rúblu-
hruninu. „Munurinn á ástandinu
1917 og nú er sá, að aðallinn hafði
erft sín auðæfi og gat flúið land.
Rússneska millistéttin nú hófst
hins vegar af sjálfri sér og getur
ekkert farið,“ sagði Solomentsev.
Millistéttin sem pólitiskt afl
Hugsast getur, að kreppan verði
til að virkja millistéttina sem póii-
tískt afl. Solomentsev segir, að
hún sé nú að súpa seyðið af eigin
barnaskap. Hún hefði tekið þá af-
stöðu, að stjómmálin væru sori,
sem best væri að láta öðrum eftir,
í stað þess að átta sig á, að hún
væri sjálf best fallin til að breyta
því, sem breyta þyrfti.
Uppreisn-
armenn í
Kongó til
viðræðna
UPPREISNARMENN í Lýð-
veldinu Kongó telja vopnahlé í
átökunum við stjórnarherinn
óhugsandi án þess að pólitískt
samkomulag náist á milli
deilenda fyrst og erlendri
hernaðaríhlutun verði hætt.
Sendinefnd uppreisnarmanna
mætti til fundar leiðtoga í
sunnanverðri Afríku um
Kongó-deiluna við Viktoríu-
fossa í Zimbabve í gær.
„Við erum tilbúnir til við-
ræðna og mætum hér til þess
að hlýða á leiðtogana," sagði
Arthur Z’Ahidi Ngoma, sem
fer fyrir nefndinni. „Við mun-
um þó ekki ljá máls á vopna-
hléi fyrr en pólitískt samkomu-
lag er í höfn.“ A myndinni sést
hvar sendinefnd uppreisnar-
manna kemur til fundarins í
gær. Fremstir fara Arthur
Z’Ahidi Ngoma, t.v., og Bizima
Karaha, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Kongó, t.h.
Kim kjörinn
leiðtogi
N-Kóreu
Pyongyang. Reuters.
NORÐUR-kóreska þingið kom
saman í fyrsta skipti í fjögur ár
um helgina og kaus Kim Jong-il
leiðtoga landsins. Forsetaemb-
ætti landsins var hins vegar
lagt niður og faðir Kims, Kim
II-sung, sem lést árið 1994, lýst-
ur „forseti að eilífu“. Það er
talið benda til þess að Kim sé
ekki treyst til að takast á við
þann gífurlega efnaliagsvanda
sem blasir við Norður-Kóreu.
Kim Jong-il, sem var endur-
kjörinn forseti Þjóðvarnarráðs-
ins, var hylltur sem „hinn eilífí
leiðtogi“ og embætti forseta
Þjóðvarnarráðsins kallað æðsta
embætti ríkisins.
„Svo virðist sem Kim Jong-il
forðist að axla þá ábyrgð sem
fylgir stjórnun efnahags- og ut-
anríkismála, þótt hann sé valda-
mesti maður í Norður-Kóreu,“
sagði Park Hun-ok, sérfræðing-
ur í málefnum Norður-Kóreu.
„Þessi niðurstaða sýnir að Kim
gerir sér grein fyrir því hversu
djúpstæður vandi Norður-
Kóreu er og að hann verður
ekki leystur samkvæmt venju-
bundnum leiðum,“ segir Park
enn fremur. „En hann nýtur
ekki fulls trausts og kýs því að
halda sig á bak við tjöldin, svo
að minningin um föður hans,
Kim Il-sung, lifí.“
Lockerbie-hryðjuverkið
Gaddafi hafnar
réttarhöldum
London. The Daily Telegraph.
SVO virðist sem Gaddafi, leiðtogi Lí-
býu, hafí hafnað tillögu Breta og
Bandaríkjamanna um að réttarhöld
yfii' mönnunum tveimur, sem grun-
aðir eru um að bera ábyrgð á hryðju-
verkinu yfir Lockerbie, verði haldin í
Haag í Hollandi.
í ræðu, sem Gaddafi flutti til að
minnast þess, að 29 ár eru síðan
hann rændi völdum í Líbýu, kvaðst
hann reiðubúinn að senda mennina
til Haag ef þeir yrðu ekki framseldir
þaðan. Sagði hann, að þeir Abdel
Basset al-Megi-ahi og Al-Amin
Khalifah Fhimah yrðu ekki sendir úr
landi nema Bretar og Bandaríkja-
menn ábyrgðust, að Haag væri ekki
bara áfangi á leið þeirra til Bret-
lands. Lengra en til Hollands færu
þeir ekki hvort sem þeir yrðu sýkn-
aðir eða fundnir sekir.
259 manns fórust með Pan Am-
þotu er sprenging varð í henni yfir
Lockerbie í Skotlandi 21. desember
1988 og 11 á jörðu niðri. Hafa Líbýu-
mennirnii' tveir verið ákærðir fyrir
morð á 270 manns.
Átti sjálfur
hugmyndina
Bretar og Bandaríkjamenn kröfð-
ust þess upphaflega, að réttai'höid
yfir mönnum færu fram í Skotlandi
eða Bandaríkjunum og Sameinuðu
þjóðimar ákváðu að beita Líbýu-
stjórn refsiaðgerðum þar til menn-
irnir yrðu framseldir. I síðasta mán-
uði féllust hins vegar Bretar og
Bandaríkjamenn á, að skoskir dóm-
arar réttuðu yfir mönnunum í
Hollandi og yrðu þeir fundnir sekir,
skyldu þeir afplána dóma sína í
Skotlandi. Á þetta vill nú Gaddafi
ekki fallast þótt hann hafi raunar
sjálfur átt hugmyndina um réttar-
höld í Hollandi.
Ríkisstjórnarskipti á Möltu
Umsókn um ESB-
aðild endurnýjuð
Valletta. Reuters.
EDDIE Fenech
Adami, leiðtogi
Þjóðernissinna-
flokksins á Möltu,
sór á sunnudag
embættiseið sem
forsætisráðherra
eyjarinnar, eftir
að Alfred Sant, ieiðtogi Verkamanna-
flokksins, viðurkenndi ósigur í þing-
kosningum sem fram fóru á laugar-
dag og sagði af sér. Fenech Adami
lýsti því þegai’ yfir, að ný stjórn hans
myndi endurnýja umsókn um aðild
að Evrópusambandinu (ESB), sem
Sant lagði á hilluna þegar hann
komst til valda fyrir tveimur árum.
Kosningarnar voru haldnar þrem-
ur árum áður en kjörtímabilinu lauk,
þar sem stjórn Sants hafði misst eins
atkvæðis þingmeirihluta sinn í at-
kvæðagreiðslu um vantraust.
Þjóðernissinnaflokkurinn vann
hreinan meirihiuta í kosningunum og
getur stjóx’nað
með fimm sæta
meii'ihluta á þjóð-
þinginu.
Flokkurinn vill
að teknar verði
tafai'laust upp
viðræður við ESB
en í marz sl. voru hafnar aðildarvið-
ræður við Kýpur og fimm ríki í Mið-
og Austur-Evrópu. Telur Fenech
Adami að Möltubúar ættu ekki að
eiga í neinum ei'fiðleikum með að
vinna það upp, sem gerzt hefur í
þessum viðræðum á því hálfa ári sem
iiðið er.
Talsmaður framkvæmdastjórnar
ESB sagði í Brussel í gær að áður en
hægt væi-i að segja til um hvenær
aðildarviðræður gætu hafízt við
Möltu yrði að endurnýja formlegt
mat ESB á efnahagslegri og póli-
tískri aðildarhæfni landsins. Malta
stóðst slíkt mat árið 1993.
EVRÓPA^
Reuters
Veikindaleyfi Bondevik framlengt
Hagen krefst
greinargerðar
VEIKINDALEYFI Kjell Magne
Bondevik, forsætisráðherra Noregs,
hefur verið framlengt um viku. Við-
bi'ögðin í Noregi voru í gær blendin
við tilkynningunni frá forsætisráðu-
neytinu þar sem sagði að heilsa
Bondevik væri „töluvert beti’i" en
fyrir viku en að hann þyrfti engu að
síður á lengra leyfi að halda. Flestir
stjórnmálamenn hafa kosið að tjá sig
ekki um framlenginguna, að undan-
skildum Carl I. Hagen, fonnanni
Framfai-aflokksins, sem hefur kraf-
ist þess að stjórnvöld geri grein fyrir
veikindum Bondevik.
Anne Enger Lahnstein, menning-
armálai'áðhei'ra og starfandi forsæt-
isi'áðherra, sagði í gær að framleng-
ing veikindaleyfisins myndi ekki
hafa mikil áhrif. Til stóð að Bondevik
væri á ferð i Mið-Austurlöndum
þessa vikuna og dagskráin heimafyr-
ir nær tóm.
Framlenging veikindaleyfisins
kemur ekki á óvart en það gerir
krafa Hagens um greinargerð hins
vegar. Lét einn stjórnmálaleiðtogi
þau orð falla um hana í gær að hún
væri „ósmekkieg“.
Thorbjorn Jagland, formaður
Vei'kamannaflokksins, vildi í gær
ekki tjá sig um málið en í Aftenpost-
en á sunnudag var sagt frá því að
Jagland útilokaði ekki myndun nýi'r-
ar ríkisstjórnar, meirihlutastjórnar
Verkamannaflokksins, Miðflokksins
og Sósíalíska vinsti'iflokksins, auk
þess sem aðild Kristilega þjóðar-
flokksins, flokks Bondevik, kæmi til
gi'eina.
Ingve Hágensen, leiðtogi norska
alþýðusambandsins, LO, lagði á
laugai-dag til að slík i'íkisstjórn yrði
mynduð. Jon Lilletun, kirkju- og
menntamálai’áðhei'ra úr Kristilega
þjóðarflokknum, brást hins vegar
ókvæða við tillögunni, sem hann
sagði tilraun til að reka fleyg inn í
stjói'narsamstarf miðflokkanna.
Jaregárd
látinn
ERNST-Hugo Jaregárd,
sænski leikarinn sem varð
meðai annars kunnur fyrir
hlutverk sitt
sem yfir-
læknirinn
Stig Helmer
í hinum vin-
sælu sjón-
varpsþáttum
„Lansanum“
(Riget) eftir
Jaregárd Lars von
Ti'ier, lézt á heimili sínu á
sunnudag. Hann var 69 ára.