Morgunblaðið - 08.09.1998, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
ERLENT
MORGUNB L AÐIÐ
Skuggi Monicu
fylgir Clinton
Bill Clinton sneri um helgina heim úr vel
heppnaðri ferð til Norður-írlands og Ir-
lands. A meðan írar hylltu Bandaríkjafor-
seta var hins vegar annað hljóð í strokkn-
um í Washington. Steingrímur Sigurgeirs-
son hefur fylgst með umræðunum í Banda-
ríkjunum og segir ljóst að Clinton stendur
frammi fyrir gífurlegum vanda.
Reuters
BILL Clinton Bandaríkjaforseti var þreytulegur á fundi með Borís
Jeltsín Rússlandsforseta í Moskvu í vikunni enda skyggði samband
Clintons við Monicu Lewinsky á allt annað í Rússlandsheimsókninni.
RJÁR vikur eru liðnar frá
því Bill Clinton Bandaríkja-
forseti sneri blaðinu við og
viðurkenndi að hafa átt í
sambandi við Monicu Lewinsky,
unga starfsstúlku í Hvíta húsinu.
Játning forsetans og afsökunar-
beiðni hans í síðustu viku virðist hins
vegar ekki ætla að styrkja stöðu
hans. Óánægja innan Demókrata-
flokksins magnast stöðugt og ljóst
þykir að leit verði að áhrifamiklum
demókrötum sem munu standa upp
og verja forsetann er skýrsla Starrs
sér dagsins ljós á næstu vikum eða
jafnvel dögum. Fáir þingmenn eru
sagðir sækjast eftir því að forsetinn
aðstoði þá í kosningabaráttunni í
haust og á dögunum afboðaði Parris
Glendening, ríkisstjóri Maryland,
kosningafund með forsetanum.
Sagði George Stephanopoulos, fyrr-
um aðstoðarmaður Clintons, um
helgina að Demókrataflokkurinn
væri „á hlaupum frá forsetanum“.
Clinton og aðstoðarmenn hans
höfðu vonast til að Evrópuförin yrði
til að beina kastljósinu frá Lewin-
sky-málinu. Sú varð hins vegar ekki
raunin. Það fylgdi forsetanum líkt og
skuggi. Á blaðamannafundi með
Borís Jeltsín Rússlandsforseta gafst
bandarískum blaðamönnum fyrsta
tækifærið til að spyrja forsetann
spjörunum úr frá því að hann viður-
kenndi í sjónvarpsávarpi rúmum
tveimur vikum áður að hafa átt í
sambandi við Lewinsky. Þeir notuðu
tækifærið óspart og var forsetinn
spurður fleiri spuminga um Lewin-
sky en fundi sína með rússneska for-
setanum. Öll umræða í kringum
fundinn snerist jafnframt um að þar
hefðu hist tveir forsetar eru ættu við
alvarleg vandamál að stríða og gætu
því ekki tekið erfiðar ákvarðanir.
Þegar upp var staðið skilaði fundur-
inn jafnframt litlum árangri og engin
skref voru stigin til að draga úr
kreppunni í Rússlandi. Forsetinn
þótti heldur ekki í sínu besta formi.
Dagblaðið Boston Globe segir ræðu
hans í Moskvuháskóla hafa verið
máttlausa, einkennst af endurtekn-
ingum og varla vakið nein viðbrögð
meðal áhorfenda. Þá hafí forsetinn
yfírgefið boð er Rússlandsforseti
hélt honum til heiðurs sama kvöld
klukkutíma á undan áætlun.
Unimæli
Liebermans áfall
Frá Rúss landi hélt Clinton til
Norður-írlands og Irlands þar sem
hann var margsinnis hylltur opinber-
lega fyrir framlag sitt til friðar. ír-
landsheimsóknin hefði að öllu jöfnu
átt að vera hátindurinn á framlagi
Clintons til alþjóðamála á síðara
kjörtímabili hans í Hvíta húsinu.
Móttökurnar sem forsetinn fékk í
Omagh, Armagh og Limerick vöktu
hins vegar mun minni athygli í
Bandaríkjunum heldur en ræða er
öldungadeildarþingmaðurinn Joseph
Liebennan flutti á Bandaríkjaþingi á
fímmtudag. Lieberman, sem er einn
virtasti öldungadeildarþingmaður
Demóki’ataflokksins, sagði athæfí
forsetans ekkert einkamál. Það væri
„siðlaust" og honum til skammar.
Tóku aðrir áhrifamenn úr röðum
demókrata í sama streng.
Haft hefur verið eftir aðstoðar-
mönnum Clintons að forsetinn hafi
verið „eyðilagður" og „örvinglaður"
er hann frétti af ræðu Liebermans.
Undanfarna mánuði hefur Hvíta
húsið lagt áherslu á að sambandið
við Lewinsky væri einkamál forset-
ans og að fárið í kringum málið að
undirlagi pólitískra andstæðinga
hans. Ræða Liebermans gengur
þvert á þær fullyrðingar.
Clinton var greinilega miður sín er
hann svaraði spumingum um málið á
blaðamannafundi með Bertie Ahern,
forsætisráðherra írlands, á fóstudag
en þar baðst forsetinn í fyrsta skipti
afsökunar á framferði sínu.
Afsökunarbeiðni Clintons varð
hins vegar ekki til að lægja öldurnar
og stöðugt fjölgar þeim demókrötum
sem taka afstöðu gegn forsetanum
og umræðan um það hvort þingið
eigi að samþykkja vítur á forsetann
eða höfða mál til embættismissis á
hendur honum hefur blossað upp af
fullum krafti. Sögðu bandarísku
stórblöðin í gær að vaxandi líkur
væru á að hið síðarnefnda yrði raun-
in og um fátt annað var rætt í
fréttaþáttum bandarísku sjónvarps-
stöðvanna um helgina.
Um fátt annað rætt
Jim Moran, áhrifamikill þingmaður í
fulltrúadeildinni er stutt hefur Clint-
on um árabil, sagði í þættinum Fox
News Sunday að Clinton væri
„heppinn" ef þingið ákvæði að ávíta
hann með þingsályktun. „Sjálfur
held ég að það sé ekki valkostur. Ég
held að við verðum að fara í gegnum
málshöfðunarferlið. Ég fæ ekki séð
hvernig hann getur náð sér á strik á
ný,“ sagði Moran. Lieberman sagði
hins vegar um helgina í þættinum
Meet the Press á sjónvarpsstöðinni
NBC að hann teldi að ekki væri rétt
að ganga lengra en að samþykkja
vítur. Afsökunarbeiðni forsetans
væri skref í rétta átt. í sama þætti
sagði Trent Lott, formaður
dómsmálanefndar öldungadeildar-
innar, aftur á móti að það þjónaði
engum tilgangi að samþykkja vítur á
forsetann. Þá sagði Patrick Moynih-
an, öldungadeildarþingmaður
demókrata frá New York,í þættinum
This Week á AJSC-sjónvarpsstöðinni
að vítur væru ekki rétta leiðin. Þing-
inu bæri að taka afstöðu til máls-
höfðunar á grundvelli skýrslu
Starrs. Hann sagðist ekki viss um
hvemig hann myndi sjálfur greiða
atkvæði í slíkri atkvæðagreiðslu en
bætti við að ef niðurstaðan yrði
Clinton í vil myndi hann geta setið
áfram í embætti með óskert völd.
Moynihan sagði jafnframt að
repúblikanarnir tveir, sem hafa
munu forystu um það að ákveða
hvort þingið greiði atkvæði um máls-
höfðun á hendur forsetanum, væru
„fyrsta flokks menn“, hafðir yfir alla
gagnrýni. Eru þessi ummæli talin
eiga eftir að gera Hvíta húsinu erfið-
ara fyrir að saka þingið um
flokkspólitík verði niðurstaðan Clint>
on í óhag.
Hliðarspor í umræðunni er jafn-
framt að sögur af kvennamálum ann-
arra stjórnmálamanna eru farnar að
líta dagsins ljós og í síðustu viku
greindi repúblikaninn Dan Burton
frá því að hann hefði eignast barn ut-
an hjónabands og að hann og eigin-
kona hans hefðu þrívegis skilið að
borði og sæng í 38 ára hjónabandi
þeirra. Sagðist hann gi’eina frá þessu
þar sem hann taldi sig hafa vitneskju
fyrii’ því að tímarit hygðist greina
frá málinu. Vísaði Charles B. Rang-
el, fulltrúadeildarþingmaður
demókrata frá New York, til máls
Burtons í umræðum í þættinum
Late Edition í sjónvarpsstöðinni
CNN á sunnudag og sagði að þing-
menn ættu að hafa hugfast, þegar
kæmi að framhjáhaldi, að sá sem
syndlaus væri ætti að kasta fyrsta
steininum. Þingmenn hefðu verið til
að setja lög en ekki til að starfa sem
hjónabandsráðgjafar.
Óttast sumir að umræðan kunni
að snúast upp í allsherjar skítkast á
báða bóga og í grein í Wall Street
Journal í síðustu viku gagnrýndi
einn af leiðarahöfundum blaðsins,
Dorothy Rabinowitz, harðlega Roger
Clinton, bróðir forsetans, fyrir að
segja í sjónvarpsviðtali í þætti Larry
King í þar síðustu viku að þeir sem
væru í glerhúsi ættu að fara „mjög,
mjög varlega". Rabinowits segir að
hótunum af þessu tagi hafi hingað til
verið komið á framfæri með óopin-
berum hætti af hálfu Hvíta húss-
ins.
Mestu mistökin
Embættismenn segja það hafa
verið hrikaleg mistök hjá forsetan-
um og lögfræðingi hans David
Kendall að halda fast við það í yfir-
heyrslu Kenneths Starrs 17. ágúst
sl. að hann hefði ekki átt „kynferðis-
leg samskipti" við Lewinsky og að
fullyrða í sjónvarpsávarpi sama
kvöld að framburður hans í yfii’-
heyrslu lögfræðinga Paulu Jones í
janúar sl. hefði verið „lagalega rétt-
ur“, en þar neitaði Clinton öllu sam-
bandi við Lewinsky og sagðist ekki
muna eftir að hafa verið einn með
henni í herbergi. Studdist forsetinn
við ákveðna skilgreiningu á því hvað
fælist í „kynferðislegum samskipt-
um“ er hann setti þessa fullyrðingu
fram.
Til að hnekkja þessum fullyrðing-
um forsetans verður Starr að út-
skýra mjög nákvæmlega og í smáat-
riðum hvaða athafnir áttu sér stað á
einkafundum þeirra Clintons og
Lewinsky. Heimildir herma að þær
lýsingar sem koma muni fram í
skýrslunni verði á þann veg að jafn-
vel hörðustu stuðningsmenn forset-
ans geti varið hann. Það yrði hrein-
lega of vandræðalegt. Þá hefui’
Newsweek eftir heimildarmönnum
að mörgum eigi eftir að verða
„bumbult" er þeir lesi skýrsluna.
Yfirhylmingin verri
en „glæpurinn"
Blöð hafa haft eftir embættis-
mönnum að andrúmsloftið í Hvíta
húsinu sé þungt og allt að því ör-
Nú bjóðast þessar
] mögnuðu amerísku
, ^ glæsibifreiðir á
óviðjafnanlegu verði.
Gríptu tækifærið og láttu
ameríska drauminn rætast.
Ath! Takmarkað magn af
bílum á þessu lága verði.
IÖFUR * NYBYLAVEGI 2 * KÓPAVOGI