Morgunblaðið - 08.09.1998, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.09.1998, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 ÞROUNARSAMVINNA MORGUNBLAÐIÐ Islenzk aðstoð við mikilvægnstu út- flutningsgreinina RANNSÓKNASKIPIÐ Fengur siglir út á Maputoflóa. ísland aðstoðar Mósambík við hafrannsóknir og að uppfylla kröfur Evrópusambandsins um gæðaeftirlit með físki, en sjávar- útvegur er mikilvægasta útflutningsgrein landsins. Þá styður -----------------------y--------------------------------- Þróunarsamvinnustofnun Islands við bakið á æskulýðsstarfsemi í einu af fátækrahverfum höfuðborgarinnar Maputo, skrifar Olafur Þ. Stephensen í annarri grein sinni um þróunarsamvinnu Islands við lönd í sunnanverðri Afríku. JÓHANN Þorsteinsson og Ágústa Gísladóttir, starfsmenn Þróunar- samvinnustofnunar í Mósambík. ÓSAMBÍK er nýjasta samstarfsríki Islands í suðurhluta Afríku, Þróun- arsamvinnustofnun Islands (ÞSSI) hóf störf þar fyrir tveimur árum. Efnahagur landsins er rétt að byrja að rétta úr kútnum eftir borgarastyrjöld, sem stóð í nærri tvo áratugi, og ýmis tækifæri geta verið þar fyrir íslenzka fjárfesta, einkum í sjávarútvegi. Til þessa hefur aðstoð Islands við Mósambík einkum beinzt að sjávarútvegsgeir- anum en einnig er stutt við bakið á æskulýðsstarfí í höfuðborginni Maputo og ætlunin er að hefja á næstunni ný verkefni í heilbrigðis- og menntamálum. Mósambík er eitt fátækasta ríki heims. Nærri tveggja áratuga harð- stjóm og marxískur áætlanabú- skapur sjálfstæðishreyfingarinnar Frelimo hefði út af íyrir sig nægt til að leggja efnahagslífið í rúst. Borg- arastyijöldin, sem hófst fljótlega eftir að landið fékk sjálfstæði frá Portú- gal árið 1975, olli síðan enn hörmulegri eyðilegg- ingu í samfélaginu öllu. Skólar, verksmiðjur, brýr og sjúki-ahús vora sprengd og eyðilögð. Landsframleiðsla á mann er nú ekki nema um 80 Bandaríkjadalir, eða um 5.700 krónur. Menntunarstig er afar lágt og aðeins 37% þjóð- arinnar kunna að lesa. Erlendar skuldir nema þjóðarframleiðslu þriggja ára og greiðslu- byrðin er mun meiri en tekjumar af útflutningi. Landið þarf því nauðsyn- lega á auknum útflutn- ingstekjum að halda. Yfir 40% útflutnings- tekna frá sjávarútvegi Eftir að friður komst á árið 1992 sneri Frelimo við blaðinu og varpaði einsflokkskei-fi og marx- isma fyrir róða. Fyrstu fjölflokkakosningamar vora haldnar 1994 og þrátt fyrir að Frelimo héldi þingmeirihluta sín- um hefur nú verið tekinn upp markaðsbúskapur í landinu. Mósambík á miklar auðlindir og efna- hagslífið er að byrja að rétta úr kútnum; hagvöxtur var 7,9% á síðasta ári. Athygli erlendra fjárfesta hefur tekið að beinast að Mósambík á nýjan leik. Sjávarútvegur er mikilvæg at- vinnugrein í Mósambík, enda gjöf- ul fiskimið úti fyrir ströndinni. Mikilvægi greinarinnar jókst frek- ar en hitt á tíma borgarastríðsins vegna þess hversu mjög dró úr landbúnaðarframleiðslu; aðeins um 10% ræktarlands vora í notkun er stríðinu lauk. Rækjur eru mikil- vægasta útflutningsvara Mósam- bík og skila nú yfir 40% útflutn- ingstekna landsins. ÞSSI tekur nú þátt í rannsóknaverkefni, ásamt Norræna þróunarsjóðnum og Haf- rannsóknastofnun Mósambík, sem miðar að því að safna frekari líf- fræðilegum upplýsingum um rækjustofnana og hversu mikið megi veiða úr þeim. Stökk fram á við með tilkomu rannsóknaskipsins Meginframlag íslands til verk- efnisins er að leggja til rannsókna- skipið Feng, sem áður var við haf- rannsóknir á Grænhöfðaeyjum, og útgerðarstjóra íyi-ir skipið, sem er Kári Jóhannesson. Danskt fyrir- tæki sér um reksturinn á skipinu og skipstjórinn er danskur en fyrsti vélstjórinn, Jóhann Pálsson, er íslenzkur og hefur starfað lengi á Feng. Verið er að þjálfa mósam- bíska yfirmenn til að taka við skip- inu í fyllingu tímans. Hætt er við að það taki lengri tíma en áformað var, eins og reyndar margt annað í starfi alþjóðlegra þróunarstofnana í Mósambík. Það er ekki sízt ótrú- lega flókið og seinvirkt skrifræði, sem tefur f'yrir flestum fram- kvæmdum í landinu. Manuel Mazibe, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar Mósambík, segir að stofnunin hafi ekki áður haft sjálf skip til umráða og rann- sóknirnar hafi því tekið stökk fram á við með tilkomu Fengs. „Það er óhætt að segja að þátttaka Þróun- arsamvinnustofnunar Islands í haf- rannsóknum hér var mjög jákvætt skref,“ segir Mazibe. Hann segir að strandlengja Mó- sambík sé löng, lögsagan stór og margt sé ekki vitað um fiskistofn- ana og miðin. „Rannsóknaskipið gefur okkur loksins tækifæri til að kanna lögsöguna af einhverju viti,“ segir hann. „Við eram nú byrjaðir að vinna úr þeim gögnum, sem skipið hefur safnað undanfarin tvö ár, og vonumst til að einhverjar niðurstöður liggi íýrir fljótlega.“ Aðstoð við að uppfylla kröfur ESB Auk rannsóknaverkefnisins starfar ÞSSI að tveimur verkefn- um í Mósambík, sem snúa að gæðaeftirliti í sjávarútvegi. Meiri- hlutinn af sjávarafurðum, sem fluttar eru út frá Mósambík, fer á markað í Evrópusambandinu. Evrópusambandið gerir kröfu um að fiskur, sem fluttur er þangað inn, sé meðhöndlaður samkvæmt reglum, sem sambandið setur sjálft og sæti heilbrigðiseftirliti, sem ESB viðurkennir. Sem stend- ur hafa sjávarútvegsfyrirtæki í Mósambík undanþágu frá reglum ESB en þau verða að uppfylla þær í byrjun næsta árs. Agústa Gísla- dóttir, sem stýrir gæðaeftirlits- verkefnunum, segir Islendinga ágætlega í stakk búna til að að- stoða Mósambík í þessu efni vegna þess að stutt er síðan laga þurfti allar íslenzkar reglur um heilbrigðis- og gæðaeftirlit með fiski að reglum ESB vegna aðildar Islands að Evrópska efnahags- svæðinu. „Þessi aðlögun varð ekki á ein- um degi á Islandi og þó byrjaði eftirlit með fiski á Islandi í kring- um 1920 en hér var ekkert gæða- eftirlit til fyrir tuttugu árum,“ segir Ágústa. „Fyrsta reglugerðin um eftirlit með vinnslu sjávaraf- urða hér var gefin út í júní síðast- liðnum og hafði verið fimm ár í smíðum. Það lýsir vel muninum á því, hvernig hlutirnir gerast á Is- landi og í skrifræðinu í Mósambík, að okkar reglugerð er fjórar síður fyrir utan viðauka, en mósambíska reglugerðin er á milli fímmtíu og sextíu síður fyrir utan viðaukana. Hér finnst mönnum mjög mikil- vægt að hafa nógu mikið af eyðu- blöðum. Svo er eftir að koma öllu í framkvæmd; það er ekki nóg að hafa gæðakerfi á pappírunum, heldur verða fyrirtæki að geta sýnt fram á að þau vinni eftir því.“ I samvinnu við Breta og Dani vinnur ÞSSI nú að því að reisa nýj- ar rannsóknastofur til að sinna heilbrigðiseftirliti með fiski í þrem- ur helztu hafnarborgum Mósam- bík. „Við vonum að fyrst áformað er að byggja nýjar rannsóknastof- ur og sérfræðingar eru að vinna með Mósambíkmönnum að því að koma þeim málum í gott horf, sætti Evrópu- sambandið sig við þær bráðabirgðalausnir, sem nú era í gangi,“ segir Ágústa. Stefnt er að því að nýju rannsóknastofumar geti sótt um viðurkenn- ingu ESB. Tækifæri fyrir einka- fyrirtæki frá íslandi í opinberri heimsókn sinni til Mósambík í síð- asta mánuði ræddi Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra við þarlenda ráða- menn og greindi þeim meðal annars frá áformum Islendinga um að auka tví- hliða þróunaraðstoð við Afríkuríkin, þar sem ÞSSI hefur starfað. Leonardo Simao, utanríkisráðherra Mósambík, segist taka því fagnandi að Islendingar hafi nú tekið þennan nýja pól í hæðina og lætur í ljós ánægju með það samstarf, sem á sér stað nú þegar. „Til lengri tíma litið mun aðstoð Islendinga í sjávar- útvegsgeiranum auðvelda okkur að nýta fiskveiði- auðlindina með kerfis- bundnum hætti,“ segir Simao. Hann segist vona að það verði ekki einvörð- ungu íslenzka ríkið, sem leggi sitt af mörkum til uppbygg- ingar sjávarútvegs í Mósambík, heldur einnig einkaaðilar. „Tví- hliða samningar ríkisstjórna eru mikilvægir en það er ekki síður mikilvægt að við hvetjum fyrir- tæki í löndunum til að vinna sam- an. Þar gæti verið um samstarfs- verkefni sjávarútvegsfyrirtækja að ræða eða að íslendingar fjár- festi beint í mósambískum sjávar- útvegi," segir Simao. Morgunblaðið/Ólafur P. Stcphensen FISKIMENN gera ldárt fyrir túrinn í fiskihöfninni í Maputo.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.