Morgunblaðið - 08.09.1998, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Af avöxtun-
um skuluð
þér þekkja þá
LEIKLIST
yraiimasiniðjaii í
s a m v i n n ii v i ð
Furðuleikhúsið
ÁVAXTAKARFAN
Höfundur: Kristlaug María Sigurðar-
dóttir. Höfundur tönlistar: Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson. Leikstjóri: Gunn-
ar Gunnsteinsson. Leikmynda- og
búningahönnuður: María Olafsdóttir.
Ljósahönnuður: Alfreð Sturla
Böðvarsson. Danshöfundur: Jóhann
Freyr Björgvinsson. Leikarar: Andr-
ea Gylfadóttir, Guðmundur I. Þor-
valdsson, Gunnar Hansson, Iiinrik
Ólafsson, Kjartan Guðjónsson, Linda
Ásgeirsdóttir, Margrót Kr. Péturs-
dóttir, Ólöf Sverrisdóttir, Sjöfn
Evertsdóttir og Valgerður Guðna-
dóttir. Sunnudagur 6. september.
Á SAMA hátt og George Orwell
lék húsdýrin og Torbjörn Egner
umbreytti dýrum merkurinnar hef-
ur Kristlaug María Sigurðardóttir
gert ávexti, ber og grænmeti að
málpípum mannréttindasjónar-
miða frönsku stjórnarbyltingarinn-
ar. Fyrirfram hljómar hugmyndin
hjákátlega en þegar betur er að
gáð eru hinir mismunandi ávextir
jarðarinnar vel til persónugerðar
fallnir. Mismunandi litir, vaxtarlag,
uppruni og eiginleikar verða
kveikjan að endalausum vangavelt-
um um vald og svo í beinu fram-
haldi frelsi, jafnrétti og bræðralag.
Þessum boðskap er komið á
framfæri í leiktextanum í formi
einfaldrar sögu um einelti og kúg-
un sem er viðhaldið með vanafestu
og hótunum þeirra sem ráða og
hvernig aðstæðum er svo breytt
með samtökum sem byggjast á
hugmyndum um sanngimi og rétt-
læti. Leiktextinn er einfaldur og
blátt áfram og dæmin sem tekin
eru auðskiljanleg jafnt börnum
sem fullorðnum. Sögusviðið og per-
sónumar verða svo tilefni smell-
inna orðaleikja sem halda áhorf-
endum við efnið.
Söngtextarnir era umfram allt
auðsyngjanlegir og auðskildir en
rím og ljóðstafír frekar undantekn-
ing en regla. Við þessa einfóldu
texta hefur Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson samið mjög grípandi tón-
list, sem er líkleg til vinsælda. Lög-
in em stór hluti af þvi hve sýningin
er vel heppnuð sem heild.
Annar mjög stór þáttur er bún-
ingamir sem era stórkostlegir.
Þeir bera hugmyndaauðgi, vand-
virkni og útsjónarsemi búninga-
hönnuðarins fagurt vitni og um-
fram allt ákaflega þroskuðu form-
og litaskyni og frjórri sköpunar-
gáfu. Búningarnir sem þessir
hljóta að auðvelda leikuranum per-
sónusköpun sína. Leikmynd og
Morgunblaðið/Þorkell
LEIKUR Hinriks Ólafssonar og Margrétar Kr. Péturs-
dóttur var kröftugur og skemmtilegur.
SJÖFN Evertsdóttur tókst frábærlega upp í
þakklátu hlutverki Evu appelsínu.
leikmunir eru aftur á móti með ein-
faldasta móti, en með augljósum
tilvísunum í leikskóla og gæsluvelli
sem hvert barn þekkir. Ekki má
gleyma hugmyndaríkri og styrkri
leikstjóm þar sem leikurunum er
gefið ríkt svigi-úm til að nýta eigin
sköpunarmátt án þess að leikstjór-
inn missi sjónar af heildarmynd-
inni, dansarnir krydda sýninguna
en lítið meira en það.
Valgerður Guðnadóttir kom
skemmtilega á óvart sem Stóra
graskerið. Það geislar af henni
glæsileikinn í hlutverki dívunnar í
Viö hjóöum upp í
DWSSKOLI
Jóns Péturs ogKöru
Systkinaafsláttur / fjölskylduafsláttur
Stutt námskeið fyrir sérhópa.
Hefjum kennslu í Grafarvogi,
Akranesi og Hveragerði.
Innritun og upplýsingar í símum
553 6645 og 568 5045 alla daga kl. 12-19.
Opið hús sunnudaginn 6. september
kl. 14-16 að Bolholti 6, Reykjavík.
lokalaginu, persónu sem er mjög
frábragðin þeim sem hún hefur
leikið hingað til. Sjöfn Evertsdótt-
ur tókst frábærlega upp í þakklátu
hlutverki Evu appelsínu. Margrét
Kr. Pétursdóttir söng vel og lék
mjög skemmtilega Mæju jarðar-
ber, andófsberið litla og rauða.
Gunnar Hansson og Linda Ás-
geirsdóttir iðuðu af krafti og
kátínu sem peruparið og uppskára
ríkulegan hlátur áhorfenda. Guð-
mundur I. Þorvaldsson dró upp
mjög skýra og skörulega mynd af
lífvarðarforingjanum Guffa banana
sem kúgar hinn óþroskaða Græna
banana sem Kjartan Guðjónsson
lifði sig skemmtilega inn í og kitl-
uðu þeir félagar hláturtaugarnar
óspart. Hinrik Ólafsson lék Imma
ananas af kímni og krafti og sýndi
vel að það var sjálfsdýrkun hans
frekar en illyrmisskapur sem or-
sakaði valdafíknina.
Andrea Gylfadóttir hlaut samúð
áhorfenda og stóð sig vel í hlut-
verki Geddu gulrótar, grænmetis-
ins sem stingur svo í stúf við glæsi-
leika ávaxtanna. Á frumsýningu
háði framsögnin henni töluvert og
á þessu bar enn meira hjá Ólöfu
Sverrisdóttur í hlutverki Önnu
eplis þar sem hún renndi sér af list
um sviðið. Skýr framsögn er því
mikilvægari sem áhorfendur era
yngri og róstusamari. Á stundum
lét hið talaða orð líka í minni pok-
ann fyrir tónlistinni. Nokkuð bar á
ómarkvissum ljósum þar sem
snerpu og skýrra lína var þörf.
Öll ofantalin atriði runnu saman
í mjög sannfærandi heild þar sem
afar mikilvægum boðskap er komið
á framfæri með skemmtilegri og
vel skipulagðri sögu, sannfærandi
leik, fallegum söng og grípandi
tónlist þar sem flytjendur voru
íklæddir frábærum geivum. Einu
sinni var lítill drengur sem gekk út
af sýningu á Dýrunum í Hálsaskógi
sem lævís og grimmur refur. Á
sunnudaginn tiplaði út úr Óperanni
lítil stúlka sem þráir að verða eins
mikil tildurrófa og Eva appelsína.
Svona eru draumar smíðaðir.
Sveinn Haraldsson
Fyrirlestur
námskeið í MHÍ
RIA van Eyk myndlistarmaður frá
Hollandi heldur fyrirlestur í
Barmahlíð, fyrirlestrarsal Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands, mið-
vikudaginn 19. september kl. 12.30.
Ria er þekkt sem málari og
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Otunru
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
textíllistamaður og hefur að undan-
fórnu unnið við að hanna 30 x 13 m
stórt teppi í Drottningarhöllinni Pa-
leis op de Dam í Amsterdam.
Um þessar mundir er Rija gesta-
kennari við textíldeild MHI.
Grafík
Ríkharður Valtingojer myndlist-
armaður kennir á framhaldsnám-
skeiði í grafík og er ndirstöðuþekk-
ing nauðsynleg. Kennt verður á
verkstæði Grafíkdeildar MHÍ, Skip-
holti 1, og hefst námskeiðið 12. sept-
ember.
Teikning
Helgi Þorgils Friðjónsson mynd-
listarmaður kennir teikningu sem
hreyfiafl hugsunar, aðferð til að
þróa og þroska hugmynd. Kennt
verður í húsnæði MHI í Laugarnesi
fimmtudaginn 17. september og
helgina 19.-20. september.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fastejgnaleit
vS' *■
w.mbl.is/fasteignir