Morgunblaðið - 08.09.1998, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Um
Keikó
„Sagan um Keikó minnir vissulega
nokkuð á gömlu söguna um bóndasoninn
sem heldur utan til að freista gœfunnar,
ungur og óreyndur, vinnurþar marga
óvænta sigra og kemst áður varir til
mikilla metorða en þegar hann hefur
unnið hylli kóngs og drottningar ákveður
hann að snúa aftur heim í heiðardalinn. “
Leggja rafmagn,
vatn og síma út í
kvína,“ sagði í einni
fyrirsögn dagblað-
anna fyrir skömmu.
Jú, auðvitað þarf Keikó að
vera í sambandi, hugsaði ég í
fyrstu eins og sjálfsagt margir
aðrir, enda herma síðustu
fréttir að kykvendið atarna
kunni mannamál. Samkvæmt
blaðaskrifum er skepnan
reyndar ljóngáfuð og kæmi því
ekki á óvart þótt hún hefði
orðaforða á
VIÐHORF við þingmann.
Eftir Þröst þegar
Heigason frettin er lesin
kemur í ljós
að hvorki síminn né rafmagnið
og vatnið eru ætluð Keikó
heldur gæslumönnum hans.
Hvað sem því líður er allt að
verða tilbúið fyrir komu þessa
stærsta, þyngsta, frægasta og
sennilega mikilvægasta Vest-
ur-íslendings allra tíma. Hall-
ur Keikóbróðir hefur fullvissað
ráðamenn sem aðra um að
dýrið sé mikill fengur, hrein-
asti gullkálfur. Það sé því ekki
aðeins siðferðilega rangt að
synja ósk þessa góða íslend-
ings um að koma heim heldur
gangi það einnig þvert á öll
efnahagsleg rök: Fyrst hægt
er að græða á skepnunni er
vitanlega engin skynsemi í að
hafna henni. Eða hvað? Höfum
við kannski gleymt einhverju?
Höfum við kannski gleymt í
allri gróðafíkninni að spyrja
okkur hvað sé dýrinu sjálfu
fyrir bestu? Eða er bara
óþarfa tilfinningasemi að vera
að hugsa um slíkt?
Hér erum við komin á slóð
erfíðra spurninga sem ekki
hafa verið ræddar mikið hér á
landi en þegar þessi atburður
er skoðaður í víðara samhengi
koma í ljós ýmsar hliðar á hon-
um sem skemmtilegt er að
velta fyrir sér.
Sagan um Keikó minnir
vissulega nokkuð á gömlu sög-
una um bóndasoninn sem
heldur utan til að freista gæf-
unnar, ungur og óreyndur,
vinnur þar marga óvænta
sigra og kemst áður varir til
mikilla metorða en þegar hann
hefur unnið hylli kóngs og
drottningar ákveður hann öll-
um að óvörum að snúa aftur
heim í heiðardalinn. Heima-
haginn kallar.
Keikó var dreginn af sundi
hér norður í ballarhafi, ótínd
þorskæta, en fluttur suður um
haf í siðmenninguna þar sem
hann sló í gegn með hverjum
leiksigrinum á fætur öðrum,
vann hug og hjörtu bæði hárra
sem lágra en ákveður svo að
snúa heim orðinn heimsfræg
Hollývúddstjama.
Eins og bóndasonurinn
vaski hyggst Keikó sennilega
setjast hér á friðarstól eftir
langa og stranga útivist en,
eins og tíðum gerist í slíkum
sögum, kann babb að koma í
bátinn. Það er ekki víst að illa
siðaðir Frónbúarnir kunni að
umgangast slíka stórfiska.
Keikó hefur reyndar þegar
fengið líflátshótun en að ráði
umboðsmannsins Halls hefur
hann ekki látið hana trufla
áætlanir um glæsilega heim-
komu á fimmtudaginn kemur.
Eftir 22 milljóna króna lúxus-
flug úr Vesturheimi lendir
hann í fylgd bandaríska flug-
hersins á sparibúnum Eyjun-
um. Móttökunefndin verður
vafalaust þéttskipuð lands-
höfðingjum og fjölmiðlamönn-
um, og svo auðvitað Halli og
Ai’na Johnsen. I bakgrunni
standa lukkulegir eyjabúar og
hylla þjóðhetjuna.
Sagan um Keikó er sem sé
sagan um það hve erftt er að
slíta hinar íslensku rætur.
Keikó ætlar að koma heim,
segjum við í sæluvímu. Gunnar
Gunnarsson, Halldór Laxness,
Kári og Keikó: Allir komu þeir
aftur. Og hugarfarið er samt
við sig því í framhaldi upp-
hefst hefðbundin barátta um
þjóðhetjuna. Hver á hana?
Þetta er spuming um eignar-
hald.
Tvö sveitarfélög hófu slag-
inn og er raunar ekki ennþá
séð fyrir endann á þeirri
viðureign ef eitthvað er að
marka fyiTnefndar líflátshót-
anir gagnvart Keikó. Fjölmiðl-
arnir eru hins vegar í raun
eiginlegir sigurvegarar. Keikó
hefur orðið þeim drjúgur efni-
viður í óþolandi gúrkunni í
sumar. Fjölmiðlar eru sem
stendur eiginlegir eigendur
Keikós og þeir munu bræða af
honum lýsið meðan aðrir feit-
ari bitar gefast ekki. Fárið er
raunar ótrúlegt og ekki alveg
ljóst hvað er orsök og hvað af-
leiðing: Er heimkoma Keikós
virkilega svona merkilegur og
fréttnæmur viðburður eða er-
um við að upplifa sköpunar-
mátt fjölmiðla? Er sagan um
Keikó kannski bara skáldskap-
ur? Er hún skáldskapur lítillar
þjóðar um stóran hval?
Við fáum kannski svarið við
þessari spurningu þegar kvik-
indið verður komið í kvína
sína. Endir þessarar sögu
skiptir annars litlu máli. Það
er önnur saga sem er að verða
til á bak við tjöldin sem skiptir
meira máli. Það er sagan um
afdrif þess samfélags sem
Keikó var upphaflega fangað-
ur af, samfélags veiðimann-
anna. Hugsanlega boðar skáld-
skapurinn um gullkálfinn
Keikó endalok þess. Eða
hverju ætlar umboðsmaður
hvala að svara þegar sígjamm-
andi Grænfriðungar fara að
saka okkur um að vera tvö-
faldir í roðinu.
MARGRÉT Theodórsdóttir og María Sólveig Héðinsdóttir skólastjórar spjaila við nemendur í bekk.
Ný kennslustefna
Tjarnarskóla
í Tjarnarskóla hefur
stöðugt í þrettán ár
verið unnlð þróun
skólastarfsins með til-
liti til þarfa nemEnda
og tilhögunar kennslu
og gerð kennsluefnis.
HÉR verður í stuttu máli sagt frá ný
samþykktri kennslustefnu í Tjarna-
skóla.
• Breytingar - af hverju?
„Nemandi sem vinnur vel frá 8-4
hefur skilað fullu dagsverki. Sam-
verustundir með fjölskyldunni eru
afar mikilvægar og við horfumst í
augu við að fæstar fjölskyldur taka
frá sérstakan tíma til þess að sinna
heimanámi unglingsins síns,“ segir
í kennslustefnunni.
skólar/námskeið
skjalasljórnun
Skjalastjórnun 2:
Skjöl í gæðaumhverfi
Námskeið haldið 28. og 29. sept. (mánud.
og þriðjud.). Gjald kr. 15.000.
Námskeiðsgögn o.fl. innifalið.
Skráning hjá Skipulagi og skjölum
í síma 564 4688, fax 564 4689.
Inngangur að skjalastjórnun
Námskeið haldið 21. og 22. sept. (mánud.
og þriðjud.). Gjald kr. 15.000.
Bókin, „Skjalastjómun" innifalin.
Skráníng hjá Skipulagi og skjölum
í síma 564 4688, fax 564 4689.
ýmislegt
Frá Heimspekiskólanum
Skólinn er fluttur í JL-húsið, 2. hæð.
Fjölbreytt námskeið í boði fyrir 6 til 14 ára
böm. Nýir kennarar.
Upplýsingar í síma 588 1038 kl. 10—12
og í síma 562 8283 kl. 17—19.
Tölvupóstur: hskoli@islandia.is
_____________tónlist
■ Píanónám
Píanó, tónfræði, tónheym og samspil fyrir
böm og unglinga.
Innritun í síma 568 3655 eftir kl. 17.00.
_________myndmennt_______________
■ MYND-MÁL myndlistarskóli
Málun, teiknun. Undirstöðuatriði og
tækni. Byijendur og framhaldsfólk í
fámennum hópum.
Upplýsingar og innritun kl. 14—21 alla
daga. Símar 561 1525 og 898 3536.
Rúna Gísladóttir, listmálari.
• Vetrinum skipt í fjórar annir
Styttri námslotur með tíðara
námsmati gera nemendum, kenn-
urum og foreldrum betur kleift að
fylgjast með námsframvindu nem-
andans.
• Meira námsöryggi og
betri árangur
Nemendur þurfa sífellt að hoifast í
augu við eigin getu og hæfileika.
Betri árangur hvers og eins byggir
á þessari staðreynd ásamt mikilli
reynslu kennara í skólanum und-
anfarin ár.
9 Engin hefðbundin heimavinna
„Unglingar færast mikið í fang. Því
stefnum við að enn betri nýtingu
kennslustunda í skólanum. Áhuga-
samir nemendur halda auðvitað
áfram að vinna sína aukavinnu
heima og auðvitað mætir enginn
ólesinn í próf,“ segir í stefunni.
• Ný heimaverkefni með áherslu
á sköpun og frumkvæði
„Nú gefast nemendum aukin tæki-
færi á að vinna heimavinnu sem
laðar fram frumkvæði og sköpun.
Fátt er eins lærdómsríkt og eigin
öflun þekkingar. Gangur himin-
tunglanna, tónlist, fyrirtæki stór
og smá, pöddur - allt kemur til
greina og öllu skilað með glæsi-
brag með tilliti til frágangs!" segir
í stefnunni.
9 Aukin ábyrgð á eigin námi
- námsáætlun
Mikilvægt er að nemendur geri sér
í næstu viku hefjast nokkur nám-
skeið á vegum Miðstöðvar símennt-
unar á Suðumesjum. Mánudaginn
14. september hefst 2ja kvölda nám-
skeið í listinni að segja skrýtlur og
skemmtisögur. Kennari er Örn
Árnason leikari. Sama dag hefst
námskeið fyrir hundaeigendur í
samstarfi við Hundaræktaifélag ís-
lands. Þriðjudaginn 15. september
hefst námskeið í ensku fyrir byrj-
9 Helga Sigurjónsdóttir hefur
samið kennslubækur í stærðfræði
fyrir 1. til 3. bekk. Fjórða heftið er
væntanlegt í nóvember og það
fimmta með vorinu.
Bækur Helgu voru kenndar í um
það bil 40 skólum sl. vetur, ýmist
sem aðalbækur eða viðbót við ann-
að kennsluefni. Reynslan af þeim
var góð enda eru bækurnar afar að-
gengilegar fyi'ir notendur, nemend-
ur, kennara og foreldra.
Helga hefur mikla reynslu af
kennslu ungra barna. Hún kenndi í
barnaskóla í 15 ár en kennir nú ís-
iensk fræði við Menntaskólann í
Kópavogi. Auk stærðfræðibókanna
grein fyrir að þeir bera ábyrgð á
eigin námi og að námsvinna sé
fyrst og fremst í þeirra eigin þágu.
Abyrgð og sjálfsmat eru síðan lyk-
illinn að gerð námsáætlana fyrir
hvern og einn; sumir setja merkið
mjög hátt, aðrir fara sér hægar -
allt eftir getu.
9 XJpplýsingamiðlun,
heimilið og skólinn
I lok hven-ar annar fá nemendur
og foreldrar/foiTáðamenn náms-
mat; í tölum og umsögnum. Það
námsmat felur í sér upplýsingar
um námsframvindu unglingsins
(próf og skyndipróf) en ekki síður
upplýsingar um hvernig nemand-
inn hagar sinni vinnu, hvernig hon-
um vegnar í samskiptum við aðra
nemendur og starfsfólk skólans,
um framkomu, ástundun, mæting-
ar og fleira. „í kjölfarið er svo ætl-
unin að hitta unglinginn ásamt for-
eldrum/forráðamönnum og ræða
stöðuna hverju sinni,“ segir í
stefnuskránni.
9 Heilbrigð hugsun,
sálin og líkaminn ...
„Við styrkjum unglingana okkar
með ráðum og dáð til þess að þeir
verði færir um að taka góðar
ákvarðanir í lífsins ólgusjó," segir í
kennslustefnunni. Ymsar kennslu-
greinar í skólanum eru beinlínis
skipulagðar í þessu ljósi; kyn-
fræðsla, mannrækt, fíkniefnaum-
ræða, námstækni, gestatímar o.fl.
endur. Kennari er Sara Vilbergs-
dóttir, enskukennari við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Sama dag hefst
námskeið í íslensku fyrir útlend-
inga. Kennari er Steinunn Njáls-
dóttir.
Innritun og nánari upplýsingar
veitir Miðstöð símenntunar á Suð-
urnesjum í síma 421-7500. Þær má
einnig finna á heimasíðu Miðstöðv-
arinnar www.mss.is
hefur Helga skrifað nokkrar
kennslubækur í fræðum sínum og
vinnur nú að nýstárlegri kennslu-
bók í ritun. Loks hefur hún skrifað
sérstakt námsefni fyrir lesblinda.
Fjölmiðlum, foreldrum, kennur-
um og öðrum áhugamönnum um
góða kennslu er hér með boðið á
kynningarfund þar sem stærðfræði-
bækur Helgu verða kynntar, svo og
aðrar kennslubækur hennar. Fund-
urinn verður haldinn í kaffistofu
Gerðarsafns í Kópavogi miðviku-
daginn 9. september 1998 kl. 16.30.
Bækurnar fóst í Skólavörubúð-
inni, Laugavegi 166, og hjá höf-
undi.
Námskeið hjá
Miðstöð símenntunar
Nýjar kennslubækur