Morgunblaðið - 08.09.1998, Blaðsíða 40
v40 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
KFUM og KFUK
• - Fjölbreytt æsku-
lýðsstarf í vetur
AÐ LOKNU góðu
sumri fara börn og
fullorðnir að undirbúa
sig fyrir veturinn.
Skólinn er byrjaður,
íþróttaæfingar, tóm-
stundastarf, tónlistar-
skólar, kórar, nám-
skeið ýrniskonar sem
og önnur dagskrá
vetrarins að fara í
gang. Spennandi! Allt
þarfnast skipulagning-
ar ef það á að koma
öllu fyrir á stundatöfl-
unni ásamt námi og
aukatímum. Tilboðin
eru mörg, bæði spenn-
andi og mannbætandi
og erfítt að velja og hafna þótt svo
verði að vera, því ekki er auðvelt að
koma öllu við sem hugurinn girnist
í þessum efnum í vetur.
Síung og fersk
Á næsta ári verða 100 ár frá
stofnun æskulýðsfélaganna síungu
og fersku KFUM og KFUK. Fé-
Engin félagsgjöld
fylgja vetrarstarfi
KFUM og KFUK.
Sigurbjörn Þorkelsson
segir að um 1.500 börn
o g unglingar hafi tekið
/ þátt í starfi félaganna
á Reykjavíkursvæðinu
í fyrra.
lögin hafa staðið fyrir margbreyti-
legu starfí á meðal barna og ung-
linga alla öldina og eru þeir ófáir
sem tekið hafa þátt í starfinu um
lengri eða skemmri tíma.
I vetur munu félögin verða með
starfsemi í u.þ.b. fjörutíu deildum á
Reykjavíkursvæðinu fyrir börn og
unglinga. Boðið er upp á vandaða
dagskrá þjálfaðra sjálfboðaliða fé-
laganna. Farið er í leiki, leikrit
æfð, staðið er fyrir íþróttakeppn-
^ um bæði fyrir hópa og einstaklinga
þar sem mest er lagt upp úr því að
vera með og leikgleðin látin ráða.
Mikið er sungið, kenndar eru bæn-
ir, viðhöfð er Biblíufræðsla við hæfi
og orð Guðs í Biblíunni skoðað,
rætt og hugleitt í stutta stund.
Sl. vetur sóttu um 1.500 böm og
unglingar fundi og það
starf sem KFUM og
KFUK á Reykjavíkur-
svæðinu bjóða upp á.
Þess má þó geta að yf-
ir 6.000 börn og ung-
lingar taka árlega þátt
í því starfí sem félögin
bjóða upp á á lands-
vísu bæði yfír sumar
og vetur.
Yfirskipulagning
æskulýðsstaifs
KFUM og KFUK er í
höndum þaulreyndra
og frábærra æskulýðs-
fulltrúa félaganna,
þeirra Helga Gíslason-
ar kennara og Gyðu
Karlsdóttur heimspekings sem
jafnframt er framkvæmdastjóri
Landssambands KFUK og M.
Ekkert félagsgjald
í vetrarstarfí KFUM og KFUK
eru ekki innheimt nein félagsgjöld
og vek ég sérstaka athygli á því.
Allir eru velkomnir til þátttöku og
án fyrirvara.
Ég leyfi mér að hvetja börn og
foreldra til þess að kynna sér
æskulýðsstarf KFUM og KFUK á
Reykjavíkursvæðinu. E.t.v. bjóða
félögin upp á eitthvað sem hentar
þínu barni. Að ég minnist nú ekki á
það dýrmæta nesti til lífsins sem
börnin fá á fundum og í starfí fé-
laganna og tugir þúsunda lands-
manna hafa fengið að kynnast að
meira eða minna leyti sl. 100 ár.
Ég vona því að flestir sem
kynnst hafa starfi KFUM og
KFUK geti tekið undir að þar fari
félög til farsældar. Síung og fersk
æskulýðsfélög með heilbrigð lífs-
gildi að leiðarljósi byggð á kær-
leika Guðs sem birtist okkur svo
einfaldlega, en sterkt í frelsaranum
Jesú Kristi sem vill veita okkur líf
og eilífa sáluhjálp.
Nánari upplýsingar um starf-
semi KFUM og KFUK í einstök-
um deildum á Reykjavíkursvæðinu
ei*u veittar í aðalstöðvum félaganna
við Holtaveg, gegnt Langholts-
skóla í jaðri Laugardalsins. Sími
588 8899.
Með Guðs blessun og von um að
sjá sem flest börn og unglinga taka
þátt í starfsemi KFUM og KFUK
á vetrinum sem haldið verður upp
á 100 ára afmæli félaganna.
Höfundur er framkvæmdastjóri
KFVMogKFUK.
Sigurbjörn
Þorkelsson
Frábær fyrirtæki
1. Framleiðslufyrirtæki sem steypir verksmiðjuhluti úrtrefjaplasti.
Vaxandi fyrirtæki. Reynsla og áralöng þekking. Kennsla fylgir.
Stór verkefni gætu verið framundan.
2. Bílasala til sölu. Nú er vaxandi sala á notuðum bílum. Vel stað-
sett. Innisalur. Allt tölvuvætt. Laus strax.
3. Heildverslun með gjafavörur og blómavörur. Lítil og nett heild-
verslun með mörg sambönd og góð umboð. Laus strax fyrir
haustvertíðina.
4. Fiskbúð til sölu i eigin húsnæði sem einnig er til sölu. Selur
í mötuneyti og skóla. Góð sambönd fylgja með.
5. Glæsileg snyrtivöruverslun á besta stað til sölu. Selur flest
helstu og bestu snyrtivörumerkin á markaðnum. Glæsilegar
innréttingar. Laus strax.
6. Heilsustúdíó á góðum stað með Eurowafe og Ultrasound tækj-
um ásamt standsóllampa til sölu. Ný tæki og mikil vinna fyrir
duglegt fólk.
7. Þekkf verslun í húsbyggingageiranum til sölu. Áratugalöng
reynsla og þekking til staðar. Verslun sem allir þekkja. Sann-
gjarnt verð.
8. Frábær söluturn með tveimur sölulúgum til sölu. Góð aðkeyrsla.
Velta um 3,5 millj. á mánuði. Gott verð.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASAlAN
SUÐURVE R I
Sl’MAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Grænlendingar bregðast
STOFNAR villtra
laxa í Norður-Atlants-
hafí eru í bráðri hættu.
Veiðitölur eru ljósasti
votturinn: Árið 1975
veiddust 4 milljónir
físka, áratug síðar nam
veiðin 2,6 milljónum
fiska, og síðastliðið ár,
1997, veiddust einung-
is 800 þúsund fiskar.
Það segir þó ekki alla
sögu, því af þeim er nú
allstór hluti hafbeitar-
fiskur sem sleppt hef-
ur verið í útkulnaðar
ár og aðrar.
NASF (verndarsjóð-
ur villta laxastofnsins í
Norður-Atlantshafi) var stofnað í
þeim tilgangi að verja laxastofninn
fyrir veiðum í úthöfum, því vita-
skuld er biýnt að spyrna þar við
fótum, því stofninn á sér ekki við-
reisnar von nema fiskurinn gangi í
straumvötn víðs vegar við Atlants-
hafið og hrygni.
Undanfarin átta ár hefur NASF
keypt nær alla laxakvóta í Atlants-
hafi með fjármagni sem er að
mestu komið frá einstaklingum eða
samtökum þeirra, fyrirtækjum eða
stofnunum. Enginn lax er nú
veiddur í net eða á línu við Island
og Færeyjar í atvinnu-
skyni og miklar vonir
voru við það bundnar,
að slíkt netaveiðibann
tæki einnig til Græn-
landsmiða, því þar er
mikilvægasti stofninn
á fæðuslóð. Alls hefur
nú verið varið 420
milljónum króna til
þess að kaupa veiði-
kvóta og styrkja og
efla atvinnulíf þar sem
veiðibann á laxi hefur
komið við efnahag sjó-
manna.
Nú eru blikur á
lofti. Samvinna við
gi-ænlenska fískimenn
hefur verið mjög erfið, en Haf-
rannsóknastofnun Grænlendinga
hefur eindregið lagst á sveif með
verndarsinnum og hvatt til þess að
laxveiðar í sjó verði bannaðar.
Grænlendingar og Islendingar
hafa nýlega undirritað samstarfs-
samning um sjávarútvegsmál og
hefur sjávarútvegsráðuneytið til-
kynnt grænlenskum yfirvöldum
óskir þess efnis, að umræður um
laxveiðar verði þegar teknar á
dagskrá. Laxverndarstofnanir á
Norðurlöndum, í Evrópu og N-
Ameríku taka í sama streng, og
Stofnar villtra laxa í
N-Atlantshafi eru í
bráðri hættu. Orri Vig-
fússon harmar afstöðu
grænlensku lands-
stjórnarinnar, sem
hann segir lýsa ótrú-
legri skammsýni.
Kanadamenn hafa nú bannað allar
laxveiðar í sjó.
Grænlendingar eru því einir á
báti þegar stjómvöld þeirra hafa
heimilað atvinnuveiðar á laxi úr
sjó. Þetta er þeim mun hörmulegra
sem vísindamenn víða um lönd
hafa eindregið og ítrekað varað við
þessum veiðum undanfarin þrjú ár,
meðal annars Alþjóða hafrann-
sóknastofnunin, því stóri hrygning-
arlaxinn dvelur á haustin við
Grænlandsstrendur og einmitt
hann er mikilvægasti hlekkurinn í
viðhaldi og uppbyggingu stofnsins.
Það væri óbætanlegur skaði fyrir
lífríkið við Norður-Atlantshaf ef
svo kröftugum og sérstökum fiski
væri útrýmt. Tjón bænda og veiði-
réttareigenda í fjölda landa væri
lítið miðað við slíkt ógnarslys, og
eru þó tekjur miklar af laxveiði í
ám og vötnum, bæði fyrir einstak-
linga og þjóðarbúið í heild.
Eftir átta ára vinnu hafa Is-
lendidngar, Norður-Skotar og Irar
séð mikinn bata eftir verndarað-
gerðir sínar í sumar. Því harma
þeir ákvörðun grænlensku land-
stjórnarinnar sem gegn betri vit-
und hafnaði boði NASF um fimm-
falt markaðsverð fyrir laxakvótann
auk mikilvægrar aðstoðar við þró-
unarverkefni. Veiðarnar nú á
hrygningarlaxi lýsa ótrúlegri
skammsýni og virðingarleysi við
stofn í bráðri hættu.
Höfundur er formaður NASF -
verndarsjóðs villta laxastofnsins í
N-Atlantshafi.
Heildarveiði á laxi í Atlantshafi
4,0 milljónir fiska
I I Heildarveiði á öllum laxi þ.m.t. eldis- og hafbeitarlax. Hi Áætluð veiði á villtum laxi
Orri
Vigfússon
Gleymdust viðskiptavinirnir í
hlutafjárútboði Landsbankans?
i
í MORGUNBLAÐINU í dag,
sunnudaginn 6. september 1998, er
viðtal við aðalbanka-
stjóra Landsbanka ís-
lands hf. Halldór J.
Kristjánsson. Þar
greinir hann frá hluta-
fjárútboði Landsbanka
Islands hf., þar sem
starfsfólki bankans
eru boðin hlutabréf á
ívilnandi gengi, 1,285,
allt að kr. 250.000 að
nafnverði. Almenningi
er aftur á móti boðið
að kaupa á genginu
1,9. Viðskiptamönnum
bankans, sem átt hafa
innstæður í bankanum
óhreyfðar árum sam-
an, með vöxtum frá
0,70% til 5,35% er aft-
ur á móti ekki boðið upp á nein
ívilnandi kjör. Hér skýtur skökku
við. Allt frá stofnun Landsbankans
1885 (tók til starfa 1886) hafa
landsmenn sýnt Landsbanka Is-
lands mikla tryggð og beint við-
skiptum sínum til bankans af göml-
um vana, þrátt fyrir að Lands-
bankinn greiddi lægri vexti en aðr-
ir bankar af innstæðum. Þó er
þetta ekki einhlítt, sbr. Morgun-
www.mbl.is
blaðið 4. september sl., því þar eru
vísitölubundnir reikningar til 60
mánaða með hæstu vöxtum hjá
Landsbankanum eða 5,35%. Vextir
af innlendum gjaldeyr-
isreikningum í DM eru
þó aðeins 1% í Lands-
bankanum, en 1,80% í
Sparisjóðunum.
II
Nú er það tillaga
mín til bankastjómar
Landsbanka Islands
hf. að innstæðueigend-
um sem lengi hafa átt
verulegar innstæður,
en ekki skuldað lengi,
verði boðið upp á milli-
verð á hinum nýju
hlutabréfum, t.d. 1,6
(1,5925 nákvæmt) fyr-
ir allt að kr. 250.000 að
nafnverði. Ástæðan fyrir tryggð
viðskiptavina Landsbankans við
bankann var að nokkra leyti sú
staðreynd, að þetta var ríkisbanki,
og óhugsandi var að tapa fé á
bankanum, nema ríkissjóður yrði
þá gjaldþrota líka. Nú era þessi
viðhorf þreytt, bankinn orðinn að
hlutafélagi, þar sem meirihluti get-
ur lent hvar sem er. Munu því
margir hugsa sér til hreyfings,
flytja sig yfir í aðrar lánastofnanir,
sem þá byðu betri vaxtakjör.
III
Ég var einn af stofnendum
Verzlunarsparisjóðsins á sínum
tíma, sem síðar breyttist í Verzlun-
Það er tillaga mín, seg-
ir Leifur Sveinsson, að
þeim, sem hafa átt
verulegar innistæður
en ekki skuldað lengi,
verði boðið upp á milli-
verð á hinum nýju
hlutabréfum.
arbanka Islands hf. og enn síðar
sameinaðist í íslandsbanka hf.
Þrátt fyrir það að ég eigi nú all-
myndarlegan hlut í Islandsbanka
hf. þá eru viðskipti mín í dag svo til
eingöngu við Landsbanka Islands
hf. Sýni bankastjórn Landsbank-
ans engan lit á því að bæta okkur
viðskiptamönnum bankans upp
lakari vaxtakjör en við hefðum not-
ið annars staðar, þá spái ég því, að
flótti bresti í viðskiptaliðið.
IV
Sjálfstæði Islands og Lands-
banki Islands hafa löngum verið
svo samofin, að þau hafa gjarnan
verið nefnd í sama orðinu. Því fór
hrollur um okkur viðskiptamenn
Landsbankans þegar fréttist að
verið væri að bjóða SE-bankanum í
Svíþjóð ráðandi hlut í Landsbank-
anum. Við teljum slíka menn land-
sölumenn. Megi þeir aldrei þrífast.
Höfundur er lögfrædingur.
Leifur
Sveinsson