Morgunblaðið - 08.09.1998, Blaðsíða 46
*Í6 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Systir mín,
GUÐNÝ GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Efri Engidal,
ísafirði,
lést fimmtudaginn 29. ágúst 1998.
Útför hennar hefur farið fram.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Magdalena Jónsdóttir.
Móðir okkar,
ÓLÖF KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
frá Bakkafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Seli, Akureyri, fimmtudaginn 3. september.
Kveðjuathöfn verður í Höfðakapellu, Akureyri, miðvikudaginn
9. september kl. 16.00.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda hinnar látnu,
Sigurlaug Jónasdóttir.
ODDGEIR
SVEINSSON
+ Oddgeir Sveins-
son fæddist í
Látravík í Eyrar-
sveit á Snæfellsnesi
25. júlí 1910. Hann
andaðist á Droplaug-
arstöðum 29. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru hjónin
Sveinn Jóhannesson,
trésnúðameistari,
Brúarenda í Reykja-
vik, fæddur á
Breiðabólsstöðum á
Álftanesi 14.11.
1888, d. 12.8. 1950,
og Kristnin Jóns-
dóttir, fædd 6.8. 1887 í Efri-Lág í
Eyrarsveit, Snæf., d. 11.12. 1942.
Systkini Oddgeirs eru: 1) Jón
Kristinn Sveinsson, f. 11.11.1911,
rafvirkjameistari í Reykjavík. 2)
Guðmundur Kristinn Sveinsson,
f. 31.8. 1916, rafvirkjameistari í
Keflavík, d. 3.8. 1977. 3) Guðlaug
Björg Sveinsdóttir, f. 16.2. 1920,
hárgreiðslumeistari í Reykjavík.
4) Sigurvin Sveinsson, f. 9.6.
1925, rafvirkjameist-
ari í Keflavík. 5) Krist-
ín Björg Sveinsdóttir,
f. 10.9. 1926, húsfreyja
í Reykjavík. 6) Marta
Sveinsdóttir, f. 25.10.
1927, húsfreyja í
Hafnarfirði. 7) Sigurð-
ur Valgeir Sveinsson,
f. 10.2. 1929, rafvirki
og vélsyóri í Vest-
mannaeyjum. 8) Aima
Hulda Sveinsdóttir, f.
23.8. 1931, starfar hjá
Toilstjóranum í
Reykjavík.
Fym kona Odd-
geirs var Hildur Tómasdóttir, f.
27.12. 1910 í Nesi í Neskaupstað,
d. 15.1. 1968. Foreldrar hennar
voru Tómas Árni Sigurðsson, skip-
sljóri í Neskaupstað, og Ingibjörg
Sveinsdóttir. Þeirra börn eru: 1)
Signín Oddgeirsdóttir, f. 18.5.
1937, var gift Birni B. Kristjáns-
syni, f. 25.3. 1933. Börn þeirra:
Oddgeir, f. 27.1. 1957, maki Rósa
I. Jónsdóttir. Matthías, f. 26.2.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför bróður okkar
og frænda,
GÍSLA ÞORKELSSONAR,
Torfufelli 36.
Systkini og aðrir ættingjar.
+
Móðir okkar, amma og langamma,
JÓHANNA MAGNEA HELGADÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 4. september.
Þóra Kristjánsdóttir,
Þórdís Kristjánsdóttir,
Helgi Kristjánsson Straumfjörð,
Gunnlaugur Kristjánsson,
Þórólfur Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞURÍÐAR HALLDÓRSDÓTTUR
frá Eyrarbakka.
Alda Jensdóttir,
Halldór Á. Jensson, María Valdimarsdóttir,
Kristinn Þ. Jensson,
Sævar Þorkell Jensson, Julie Price,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSLAUG GÍSLADÓTTIR,
Hæðargarði 35,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag,
þriðjudaginn 8. september kl. 15.00.
Árný Valgerður Ingólfsdóttir, Kolbeinn Guðmundsson,
Sigríður Ingólfsdóttir, Pétur Stefánsson,
Ólafía Ingibjörg Ingólfsdóttir, Sigurður Óli Gunnarsson,
Áslaug Pálsdóttir,
Ingólfur Kolbeinsson,
Helga Kolbeinsdóttir,
Ólafur Kolbeinsson,
Elsa Kristín Sigurðardóttir,
Jóhannes Ingi Sigurðsson.
Alltaf kemur dauðinn aftan að
manni, afi minn er genginn yfir móð-
una miklu, saddur lífdaga.
Margar eru minningarnar um dvöl
hjá afa og ömmu. Sitjandi í baði niðri
í kjallara á Brú með vatnið upp að
eyrum, horfandi upp í loft þannig að
hægt væri að borða appelsínur sem
var ómissandi þáttur hverrar bað-
ferðar sem og Mullers-æfingarnar.
Oteljandi ferðir í „Sæluna" við
Álftavatn þar sem hver dagur hófst á
því að „marsera“ með íslenska fán-
ann einstigið út að stöng til að
flagga, þar miðlaði afi ríkulega af
virðingu sinni fyrir landinu, þjóðemi
og sjálfstæði manna.
Afi lifði mikla tíma í sögu okkar og
var hann ótæmandi brunnur frá-
sagna af atburðum liðinna tíma sem
heilluðu jafnt mig sem og gesti okk-
ar þegar hann veitti mér húsaskjól á
erfiðum tímum.
Alltaf var hann til staðar ef eitt-
hvað bjátaði á og þótti verst að geta
ekki gert meir. Hjálpsemi hans og
óbilandi baráttuþrek voru með
endemum, fordæmi okkur öllum.
Minningin um samveruna með afa
og ömmu á Brú er vegarnesti, mann-
kærleikur sem ég naut svo ríkulega.
Það er með þakklæti sem ég kveð
þig, afi minn.
Matthías.
Á kveðjustundum kristallast þau
minningarbrot sem best skína og
mestu máli skipta.
Það er ekki ætlun mín að draga
saman langan æviveg Oddgeh-s, það
gera aðrir. Aðeins nokkur orð og
hugsanir sem mig langar að deila
með þeim sem nú staldra við og
kveðja Ogga eins og hann var jafnan
kallaður. Oddgeir vai' mikill og góð-
ur vinur vina sinna og hann bjó yfir
sérstakri lyndiseinkunn sem ein-
kenndi öll samskipti við hann. Hann
var tilgerðarlaus, hreinskiptinn og
glaðbeittur. Börn eru sérlega næm
fyrir umhverfi sínu og viðmóti full-
orðinna. Oggi var einmitt þessi per-
sóna sem börn löðuðust að. Það situr
djúpt í minningunni hvað mér fannst
alltaf gott að koma til Ogga. Glað-
værð hans og hæfileikinn til að
hlusta á litla manneslqu og gefa sér
góðan tíma til að svara braut niður
alla aldursmúra. Hlýjai' og kankvísar
tilfmningar streymdu frá honum og
höfðu þroskavænleg áhrif á ungviðið
í kringum hann. Það voru há-
stemmdar sælustundir að fá að sitja
hjá Ogga og taka fyrir hvert um-
ræðuefnið af öðru um leið og hann
sveiflaði málningarpenslinum af
ótrúlegiá snilld og umbreytti göml-
um stól í konungssæti eða lúnu her-
bergi í hátíðarsal. Fyrir þá sem á
horfðu var þetta eins og að horfa á
töframann sveifla töfrasprota sínum.
Það má segja að það hefði hentað
Ogga mun betur að fæðast svo sem
fimmtíu árum síðar en hann gerði.
Dálæti hans á íþróttum, mataræði og
útivist er eitthvað sem ekki þarf að
útskýra fyrir nútíma Islendingi. En á
+
Móðir okkar og tengdamóðir,
INGIBJÖRG MARGRÉT JÓNSDÓTTIR
fyrrverandi bókavörður,
Keldulandi 11,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðarkirkju miðviku-
daginn 9. september kl. 15.00.
Grettir Gunnlaugsson, Þuríður Ingimundardóttir,
Jón Steinar Gunnlaugsson, Kristín Pálsdóttir,
Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir, Sveinn Björnsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
móður okkar og tengdamóður,
GUÐRÚNAR ELIMUNDARDÓTTUR.
Starfsfólki hjúkrunarheimilisins Seljahlíðar í
Reykjavík eru færðar kærar þakkir fyrir hlýju
og umönnun við hina látnu.
Þorgrímur Guðmundsson,
Sigurður E. Guðmundsson, Aldís P. Benediktsdóttir,
Kristinn R. Guðmundsson, Anna G. Ólafsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir, Guðjón Albertsson.
1960, maki Anna Elínborg Gunn-
arsdóttir. Birna Rún, f. 29.5.
1966. Hildur Rún, f. 27.10. 1969,
maki Hallur Hilmarsson. Krist-
ján, f. 5.5. 1972. 2) Tómas Sveinn
Oddgeirsson, f. 19.7. 1944. Fyrri
kona hans var Salvör Þormóðs-
dóttir, f. 5.4.1946, barn þeirra er
Lára Hildur, f. 6.9. 1963. Barns-
móðir: Sigrún Anna Einarsdótt-
ir, f. 18.7. 1949, börn þeirra: Ein-
ar Páll, f. 18.10. 1968, maki Sig-
rún Valdimarsdóttir. Bára, f.
16.3.1970, maki Oskar Kristjáns-
son. Seinni kona hans er Berg-
þóra Karen Pálsdóttir, f. 27.3.
1954. Seinni kona Oddgeirs var
Ágústa Sumarliðadóttir, f. 12.10.
1920. Þau skildu. Foreldrar
hennar voim Sumarliði Einars-
son og Guðrún Randalín Sigurð-
ardóttir. Barnabarnabörnin eru
tíu.
Oddgeir ólst upp í Vesturbæn-
um í Reykjavík og bjó síðar á Brú
við Suðurgötu. Hann lauk námi
frá Iðnskólanum í Reykjavík árið
1936 og fékk meistarabréf í mál-
araiðn árið 1941. Oddgeir keppti
í hlaupum undir merkjum KR-
inga í nær sjötíu ár.
Útför Oddgeirs fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin kl. 15.
ái-unum fyrir og eftir hemám íslands
var takmai’kaður skilningur á slíkum
heilsufarsþáttum. Allt fram á síðustu
ár var Oggi vel á sig kominn, hélt
kjörþyngd og var eldharður hlaupari.
Á sínum yngri árum iðkaði hann sjó-
sund. Þá vann hann sér það til frægð-
ar að fá viðurkenningu frá breska
hernum. Hana fékk Oggi fyrir að
koma heilli herdeild til að stunda
sundið með sér. Þetta óvenjulega
uppátæki varð til þess að þessi til-
tekna herdeild mældist sú hraustasta
á Islandi og var Oddgeh'i þakkað það.
Fátækleg orð mega sín lítils í litlu
kveðjubréfi en minningarlandið hlýn-
ar allt upp bara við tilhugsunina um
Ogga minn. Mér er sem ég sjái hann
nú kominn í léttari búninginn hlaup-
andi glaðan um leitandi að einhverj-
um til að rétta sína hlýju hjálpar-
hönd. Vegna sérstöðu sinnar í hátt-
um og lífsstíl var Oddgeir ógleyman-
leg fyrirmynd. Hann gaf með því að
vera eins og hann var og kenndi okk-
ur að bera virðingu fyrir lífinu í
kringum okkur og meðbræðrum.
Guðrún Þórsdóttir.
Oddgeir Sveinsson fæddist á Snæ-
fellsnesi en flutti ungur með foreldr-
um sínum og systkinum til Reykja-
víkur og bjó þá fjölskyldan á Fram-
nesvegi. Eftir það leit hann á sig sem
Vesturbæing og gerðist mikill KR-
ingur. Hann fór fljótt að æfa fijálsar
íþróttir og keppti í þeim. En fyrst og
síðast er nafn hans tengt hlaupum,
Álafosshlaupi og Víðavangshlaupi,
sem hann vann eipu sinni. Hefur
hann trúlega oftast íslendinga hlaup-
ið það hlaup, sem hann hljóp með
stæl í marga áratugi. Lífsstíll hans
tengdist hlaupum og ætla má að hann
hafi verið á meðal allra fyrstu skokk-
ara landsins. Síðasta hlaup sem hann
tók þátt í var Reykjavíkurmaraþon
árið 1993. Þá var hann kominn yfir
áttrætt og gekk við staf, en lét það
ekki aftra sér. Oddgeir hafði mikla
seiglu og vai' sú saga kunn á gamla
Melavellinum við Suðurgötuna, en
þangað kom hann oft til æfinga, að
þegar verið var eitt sinn að sprauta
vatni á völlinn til að gera skautasvell
fór hann að metast við annan
íþróttagarp um hvor þeiira gæti verið
lengur úti í vatninu. Oddgeir var svo
lengi í vatninu að hann fraus fastur
og vann þai' með veðmálið.
Þótt hlaup hafi verið hans aðal-
grein var hann á sínum yngri árum
virkur í störfum félagsins. Hann var
í hópi þeirra KR-inga sem byggðu
skíðaskálann í Skálafelli, og í þá
daga þurfti að bera allt efni í skálann
frá Þingvallavegi.
Síðustu árin dvaldi Oddgeir á
Droplaugarstöðum. Þar gerði hann
sínai' æfingar og heilsaði öllum og
kvaddi með orðunum „Áfram KR“.
Nú er lífshlaupi hans lokið og hon-
um færðai' þakkir fyrir góðan stuðn-
ing við KR.
Aðstandendum sendir félagið inni-
legar samúðarkveðjur.
Kristinn Jónsson, formaður KR.