Morgunblaðið - 08.09.1998, Blaðsíða 53
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 53 *
Morgunblaðið/Golli
EIGANDI verslunarinnar ásamt Svönu Ingvaldsdóttur.
Bitte Kari Rand á íslandi
VERSLUNIN Bitte Kari Rand
var opnuð 15. ágúst sl. að Skóla-
vörðustíg 38 í húsinu Bjargi við
hliðina á Eggerti feldskera.
Bitte Kai Rand er danskur
hönnuður. Hún stofnaði fyrirtæk-
ið 1982 og notar eingöngu há-
gæða efni í sínar vörur. Vörur
sínar selur hún víðsvegar í Evr-
ópu og Skandinavíu.
f versluninni fæst dömufatnað-
ur, dragtir, kápur, prjónavörur
úr 100% Merino ull, sjöl, slæður,
belti, hanskar og veski.
Eigandi verslunarinnar er Sol-
vag Vágadal.
Fjölbreytt
námskeið
í leiklist
HLJÓÐSETNING ehf. sem á und-
anfórnum áram hefur talsett fjölda
teiknimynda og staðið í fremstu röð
í vinnslu auglýsinga býður nú í lok
september upp á fjölbreytt nám-
skeið í leiklist.
A hverju námskeiði verður m.a.
boðið upp á leiktúlkun, spuna, tal-
setningu teiknimynda, kynningu á
förðun og myndbandagerð, upp-
töku í hljóðveri og leik í tónlistar-
myndbandi. Námskeiðin eru ætluð
öllum 8 ára og eldri og verður
þátttakendum skipt í hópa með til-
liti til aldurs, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Þá fá þátttakendur að njóta leið-
sagnar nokkurra listamanna. Má
þar nefna leikarana Örn Árnason,
Sigurð Sigurjónsson, Jóhann Sig-
urðsson, Jaköb Þór Einarsson og
Guðfmnu Rúnarsdóttur, fórðunar-
meistarana Sigríði Rósu Bjarna-
dóttur og Önnu Maríu Einarsdótt-
ur, kvikmyndagerðarmanninn Ósk-
ar Jónasson og leikarann og tónlist-
aiTnanninn Valgeir Skagfjörð.
Skráning á námskeiðin fer fram
7.-11. september kl. 13-18.
Kennsla hefst 21. september en
hvert námskeið stendur í 8 vikur og
lýkur síðan með skólaslitum þar
sem þátttakendur fá afhent viður-
kenningarskjöl ásamt myndbands-
spólum með talsettri teiknimynd og
tónlistarmyndbandi þar sem þeir
eru þátttakendur.
Námskeið
í líföndun
GUÐRÚN Arnalds verður með
námskeið í lífóndun helgina 12. og
13. september. Námskeiðið verður í
Sjálfefli, Nýbýlavegi 30.
Líföndun er leið til að tengjast
tilfmningum og finna fyrir andar-
takinu sem er að líða. Með því að
anda á ákveðinn hátt og losa um
spennu og höft í líkamanum fáum
við aukna orku og fínnum meiri lífs-
gleði, segir í fréttailkynningu.
Bókanir og allar nánari upplýs-
ingar veitir Guðrún Arnalds,
hómópati.
Járnsuðunám-
skeið í Garðyrkju-
skólanum
JÁRNSUÐUNÁMSKEIÐ verður
haldið í Garðyrkjuskóla ríkisins í
Reykjum í Ölfusi 15. og 16. septem-
ber frá kl. 10-16 báða dagana.
Námskeiðið er ætlað áhugafólki um
blómaskreytingar ásamt fagfólki í
greininni.
Leiðbeinendur verða Uffe Bals-
lev blómaskreytingameistari og
Hilmii' Hinriksson, járnsmiður og
starfsmaður á smíðaverkstæði skól-
ans. Þátttakendur læra m.a. að
sjóða og útbúa fætur undir skálar
eða vasa, kertaskreytingar og vegg-
mynd til að flétta í blöð og greinar.
Skráning og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Garðyrkjuskólans
alla virka daga frá kl. 8-16.
Rabbfundur hjá
Foreldrafélagi
misþroska barna
RABBFUNDUR félaga verður hjá
Foreldrafélagi misþroska barna
miðvikudaginn 9. september kl.
20.30. Fundurinn verður haldinn í
safnaðarheimili Háteigskirkju og
er gengið inn frá bílastæðinu bak
viðkii'kjuna.
Á dagskrá verða umræður um
stöðuna hjá misþroska börnum í
upphafi skólaárs í bæði grunn- og
framhaldsskólum og hvaða leiðir
eru færar til að vinna að úrbótum
fyrir þennan hóp barna sem oft
verður olnbogabarn í fjái-vana
skólakerfi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Einnig verður rætt um starfsemi
vetrarins hjá félaginu og áherslur í
því. Stjórn FFMB hvetur alla
áhugasama foreldra til að mæta.
Listdansskóli íslands
Inntökupróf
fyrir stráka
INNTÖKUPRÓF fyrir stráka
verður í Listdansskóla Islands,
Engjateigi 1, kl. 17.30 í dag, en sér-
stakt þjálfunarkerfi í dansi fyrir
stráka byi'jar nú á haustönn.
Ramona Loewinski kennari við
Sænska ballettskólann í Stokk-
hólmi mun stjórna inntökupróflnu
og kenna fyrstu tímana, en síðan
mun hún þjálfa kennara Listdans-
skólans til að taka við af sér.
Nánari upplýsingar veitir Örn
Guðmundsson skólastjóri Listdans-
skóla íslands.
Fyrsti nýi flokkur
astmalyfja í 25 ár
FYRSTI nýi flokkur astmalyfja í 25
ár er kominn á markað hér á landi.
Þessi flokkur nefnist leukotríenvið-
tækjablokkar að því er segir í
fréttatilkynningu frá Farmasía ehf.
Singulair tilheyrir þessum flokki
FRÉTTIR
Fjölmennt iið við gæslu
á Laugardalsvelli
DAGBÓK lögreglunnar
4. til 7. september.
Óhætt er að fullyrða að vel á 13.
þúsund hafi sótt Laugardalinn heim
þegar landsleikm- stóð yfir í knatt-
spyrnu á laugardag. Lögreglan
hafði fjölmennt lið til öryggis og við
umferðarstjórn. Umferð til og firá
vellinum gekk með ágætum og gott
að vita að flestir borgarbúa hafa
þolinmæði með í för þegar svo fjöl-
mennir atburðii- eiga sér stað. Stað-
reyndin er sú að þrátt fyrir umferð-
arstjórn lögreglu tekur vissan tíma
að koma svo mörgum gestum til og
frá dalnum. Ástand gesta var með
ágætum og aðeins reyndist nauð-
synlegt að fjarlægja einn einstak-
ling vegna ölvunar og ónæðis. Flest-
ir virtu hins vegar bann við neyslu
áfengis meðan á kappieiknum stóð.
Lestun og Iosun á vörum
á Laugaveginum
Lögreglan mun frá 14. september
nk. framfylgja ft-ekar en gert hefur
verið reglum um vörulosun á
Laugaveginum. I þeim reglum er
tiltekið að einungis sé heimilt að
stunda vörulosun fyrir hádegi.
Þessar reglur eru settar til hagræð-
is fyrir þá sem sækja þá þjónustu
sem boðin er á Laugaveginum og
því mikilvæg fyrir verslun á staðn-
um. Lögreglan hefur að undanfórnu
komið þeim ábendingum til versl-
ana og dreifmgaraðila að virða þess-
ar reglur til að hindra óþarfa tafir á
umferð og koma í veg fyrir óþæg-
indi fyrir gangandi vegfarendur.
Umferðarmálin
Lögreglan hefur aukið verulega
eftirlit sitt við gi'unnskóla umdæm-
isins og mun það halda áfram nú
hina fyrstu skóladaga. Mikilvægt er
að foreldrar og aðrir vegfai'andur
sýni gott fordæmi og virði í hví-
vetna gildandi hraðamörk og önnur
ákvæði umferðarlaga. Um helgina
voru 62 ökumenn stöðvaðh- vegna
hraðaksturs og auk þess voru 14
ökumenn sviptir ökui'éttindum
vegna ölvunar við akstur, tólf höfðu
ekki ökuskírteini meðferðis og 8
notuðu ekki öryggisbelti. Þá voru
tilkynntir 43 árekstrar í borginni á
tímabilinu. Loka varð Hvalfjarðar-
göngum í um 15 mínútur á sunnu-
dagsmorgun meðan ki'ani var dreg-
inn upp sem hafði bilað í göngunum.
U mferðaróhöpp
Umferðarslys varð á föstudag
er tvö ökutæki skullu saman á
Langholtsvegi. Annar ökumanna
fór á slysadeild vegna hálsmeiðsla.
Bifreið var ekið á þósastaur á
Bæjarhálsi eftir miðnætti á laugar-
dag. Ökumaður hljóp af vettvangi en
fannst skömmu síðar og er grunaður
um ölvun við akstur. Ókumaður er
einnig grunaður um að hafa rangt
skráningarnúmer á bifreiðinni.
Þrír 17 ára piltar voru handteknir
eftii' að hafa lent í árekstri á stolinni
bifireið að morgni laugardags. Engin
slys urðu á mönnum en piltarnir
voru vistaðir í fangahúsi lögreglu
eftir viðkomu á slysadeild þar sem
tekin voru blóð- og þvagsýni vegna
ástands þeirra.
14 ára bam tók bifreið bróður síns
ófrjálsri hendi eftir miðnætti á
sunnudag. Bamið missti síðan stjóm
á ökutækinu skömmu síðar, endaði á
steinvegg og velti bílnum. Farþegi í
framsæti fékk heilahristing og
brákaði rifbein og var fluttur á slysa-
deild. Tveir farþega hlupu brott en
fundust skömmu síðar og vom
einnig fluttir á slysadeild til skoðun-
ar. Sá sem ók bifreiðinni vai' fluttui' á
lögreglustöð og rætt við hann í við-
urvist barnavemdaryfirvalda.
Ökumaður sem virðist hafa sofnað
undir stýi'i bifreiðar sinnar ók út af
Suðurlandsvegi eftir miðnætti á
mánudag. Ökumaður slasaðist ekki
en bifreiðin er óökufær.
Bifreið var ekið á hross á Hval-
fjarðarvegi í Kjós eftir miðnætti á
mánudag. Svo virðist sem hrossið
hafi sloppið úr girðingu á svæði.
Bifreiðin valt og lenti utan vegar.
Ökumaður hlaut minniháttai' áverka
sem gert var að á staðnum af sjúkra-
liði. Lögreglan aflífaði hestinn.
Hraðakstur
Ökumaður var stöðvaður á Rima-
flöt við Strandveg eftir að hafa
mælst aka á 97 km hraða þar sem
leyfður hámarkshraði er 50 km.
Hann var fluttur á lögreglustöð og
sviptur ökuréttindum. Ökumaður
var stöðvaður á Kringlumýrarbraut
við Háaleitisbraut um miðnætti á
sunnudag eftir að hafa mælst aka
bifreið sinni á 114 km hraða. Hann
var fluttur á lögreglustöð þar sem
hann var sviptur ökuréttindum.
Ökumaður var stöðvaður á
sunnudagskvöld eftir að hafa mælst
aka bifreið sinni á 102 km hraða á
Rimaflöt við Strandveg en þar er
50 km hámarkshraði. Hann var
fluttur á lögreglustöð og sviptur
ökuréttindum.
Líkamsmeiðingar
Til átaka kom milli ungi-a pilta
utan við íbúðarhús í Breiðholti eftir
miðnætti á laugardag. Reyndist
nauðsynlegt að flytja þrjá þeirra á
slysadeild til aðhlynningar með
minniháttar áverka. Karlmaður var
handtekinn eftir að hafa gengið
berserksgang á veitingastað í mið-
bænum eftir miðnætti á sunnudag.
Eftir að hafa brotið stóla og glös
var hann fluttur í fangahús lög-
reglu. Afskipti voru höfð af tveimur
17 ára stúlkum í miðbænum eftir
miðnætti á sunnudag. Hafði komið
til átaka milli þeirra og önnur þá
dregið upp hníf. Hafði önnur hlotið
áverka á kálfa í átökunum.
Innbrot - þjófnaðir
Brotist var inn í veitingahús á
sunnudag og þaðan stolið víni. Mál-
ið er í rannsókn lögreglu. Brotist
var inn í húsnæði á Seltjarnarnesi
og þaðan stolið hljómflutningstækj-
um og ýmsum öðrum húsbúnaði.
Lögreglu var tilkynnt um þjófn-
að á vindlingapakkningum úr sölu-
turni að morgni mánudags.
Fíkniefnamái
Karlmaður var handtekinn að
morgni laugardags í miðborginni
og fundust á honum ætluð fíkniefni.
Hann var fluttur á lögreglustöð og
hald lagt á efnin.
Handtekinn fastur í glugga
Eftir miðnætti á fóstudag var
karlmaður handtekinn er hann sat
fastur í glugga á kvennadeild Land-
spítala. Ekki liggur ljóst fyrir hvert
erindi maðurinn átti á deildina en
hann var fluttur í fangahús lögi’eglu
þar sem konur hafa aldrei verið í
meirihluta.
Bifreið var stöðvuð á Selásbraut á
laugardagskvöld eftir að tilkynnt
hafði verið um hugsanlega sölu öku-
manns á landa. I bifreiðinni fannst
landi og var honum hellt niður. Lög-
reglu bai'st tilkynning á sunnudag
um að fólk væri í sjálfheldu í kletta-
belti við Meðalfellsvatn. Ásamt lög-
reglu fór neyðarsveit slökkviliðs á
staðinn og björgunarsveitir. Kom í
ljós að tvær stúlkur voi-u í vanda og
var þeim hjálpað niður óslösuðum.
Lögreglu bai'st tilkynning á laug-
ai’dag um að ung stúlka hefði á
föstudag orðið fyrir kúlu úr loftriffli.
Stúlkan var flutt á slysadeild til að-
hlynningar og síðan á Landspítala
til aðgerðar. Láðst hafði að tilkynna
lögreglu um málið og því hófst rann-
sókn þess ekki fyrr en á laugardag.
Þá hefur komið fram að skotið vai'
með sams konar riffli á margar rúð-
ur í Breiðholtsskóla um helgina.
og var skráð hér á landi 1. septem-
ber. Virka efnið heitir montelúkast.
Singulair er mjög þægilegt í notk-
un þar sem það er í töfluformi og
er skammturinn 1 tafla fyrir svefn.
Singulair þolist mjög vel og er tíðni
aukaverkana sú sama og við gjöf
sýndarlyfs. Singulair er ætlað full-
orðnum en einnig 6-14 ára börn-
um.
Dansráðstefna
öðru sinni
ÖNNUR dansráðstefna Dansráðs
íslands var haldin laugardaginn 29.
ágúst. 22 danskennarar sóttu ráð-
stefnuna, ségir í fréttatilkynningu
frá ráðinu.
Ráðstefnugestum var boðið upp
á kennslu í ýmsum dönsum, svo
sem samkvæmisdönsum, tísku-
dönsum, jazzballet og „break“-
dansi. Einnig vare rætt um
dansana. Segir í fréttatilkynning-
unni að ráðstefna á borð við þessa
sé kjörinn vettvangur fyrir þá að
þekkingu og efla fagmennsku.
LEIÐRÉTT
Franski spítalinn
í MYNDATEXTA í grein um
Franska spítalann á Fáskrúðsfirði
sem birtist í Sunnudagsblaðinu, er
getið um Georg Georgsson lækni og
yfirhjúkrunarkonuna frönsku, en
þriðja manneskjan á myndinni er
Ástríður Torfadóttir hjúkrunarkona.
„Hvað varð um skýrsluna"
ÞANN 30. ágúst birtist í Bréfl til
blaðsins frá undirrituðum bréf, sem
bar yfirskriftina „Hvað varð um
skýrsluna“? Fyrsta setningin byi'j-
ar þannig: Fyrir 25 árum birtist í
Morgunblaðinu frétt... o.s.frv.
Þarna urðu mér á meinleg mistök.
Setningin átti að vera svona: Fyrir
35 árum birtist í Morgunblaðinu
frétt... o.s.frv. Þetta voru algjörlega
mín mistök og biðst ég afsökunar,
en fréttin birtist í Morunblaðinu 11.
október 1963.
Borgþór H. Jónsson,
veðurfræðingur,
Háteigsvegi 38, Reykjavík.
Innritun og
attar uppkjsingar
ísíma 562 0091