Morgunblaðið - 08.09.1998, Side 54
f 54 ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Tommi og Jenni
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Láglaunastefnan,
berklar nútimans
Frá Sigrúnu Porsteinsdóttur:
A ALLRI vegferð mannsins hefur
aldrei átt sér stað nein framför,
öðruvísi en að baki henni hafí legið
uppreisn gegn ríkjandi aðstæðum.
Ein veigamesta uppreisnin sem átt
hefur sér stað hér á landi var gegn
berklunum. Þeir létu nánast enga
fjölskyldu ósnortna. Fólk lifði í
stöðugum ótta við að verða næsta
fórnarlamb. Ýmiss konar hjátrú
tengdist þessum sjúkdómi, eins og
sú að þetta væri refsing frá guði og
að það fólk sem veiktist ætti ekki
betra skilið. I uppreisninni gegn
berklunum tóku nánast allir lands-
menn þátt og með samstilltu átaki,
fræðslu og aðgerða tókst að ráða
niðurlögum þeirra.
Nú á tímum búum við við þjóðfé-
lagsvanda engu síður alvarlegan og
eyðileggjandi en berklarnir voru á
sínum tíma, það er láglaunastefn-
an. Heilu þjóðfélagshóparnir sjá
aldrei út úr erfiðleikum sínum
þrátt fyrir aðhald í fjármálum og
fullan vinnudag. Margt þetta fólk
er á stöðugum hrakhólum varðandi
húsnæði og ef einhver fjölskyldu-
meðlimur veikist er fjárhagnum
stefnt í voða vegna stöðugt aukinna
greiðslna fyrir heilbrigðisþjónustu.
Uppreisn
Það er vissulega þörf fyrir upp-
reisn gegn láglaunastefnunni, hún
er siðlaus, heilsuspillandi, en líka
heimskuleg og alls ekki þjóðfélags-
lega hagkvæm þegar til lengri tíma
er litið. Hún er siðlaus vegna þess
að það er siðlaust af þeim sem
semja um lægstu launin að ætla
fólki að lifa af þeim, en vera sjálfír
á allt að helmingi hærri launum
eða þaðan af meira. Hún er heilsu-
spillandi vegna þess að eins og
þýskar rannsóknir sýna er fólki á
lægstu laununum hættast við sjúk-
dómum svo sem hjartaáföllum og
fleiri, en ekki forstjórum og
þotuflugmönnum eins og haldið
hefur verið fram, sem réttlætingu
fyrir þeiira háu launum. Og hún er
heimskuleg vegna þess að hag-
fræðilega séð er hún kreppuvald-
andi.
tírræðaleysi
valdhafa
í að minnsta kosti þrjátíu og
fimm ár eða frá því að undirrituð
var um tvítugt hefur verið talað um
það í kosningabaráttum að hækka
þurfi lægstu launin, samt dragast
lægstu launin stöðug aftur úr. Eg
held að allir flokkar hafi sungið
þennan sama söng, samt hallar
stöðugt á verri hliðina. Það virðist
vera að hvorki stjórnmálaflokkam-
ir né verkalýðsfélögin geti snúið
þessu til betri vegar. En hvað er þá
til ráða?
Fjöldaþátttaka
úrlausnin
Það er þörf fyrir uppreisn gegn
láglaunastefnunni, friðsama upp-
reisn líka þeimi sem gerð var gegn
berklunum á sínum tíma. Það er
þörf á breytingu á gildismati,
þannig að vinnan sé lögð til jafns
við fjármagnið. Fólk verður að
læra að meta vinnu sína til jafns
við fjármagnið, sem þýðir að allir í
fyrirtækinu taka þátt í ákvarðana-
töku. Líka ákvarðanatöku um það
hvernig hagnaðinum skuli varið.
Fyi'irtækið væri lítils virði ef eng-
inn kæmi nálægt því nema fjárfest-
arnir, ef enginn ynni störfin, ef
enginn skapaði verðmætin. Sú hjá-
trá ríkir nú að það séu peningarnir
sem skapi verðmætin, en það er
vinna fólksins sem gerir það. Sem
stendur eru það iyrst og fremst
fjárfestarnir sem hirða gróðann af
fyrirtækjum, hlutdeild starfsfólks í
hagnaði fyrirtækja og þátttaka í
ákvarðanatöku er það sem verður
að koma. I Húmanistahreyfingunni
vinnum við að persónulegum- og
þjóðfélagslegum breytingum. Við
styrkjum okkar bestu eiginleika
svo að við getum notað þá til að
rísa upp gegn þrágandi aðstæðun-
um sem við lifum við. Þeir sem
hafa skilning á eyðileggingu lág-
launastefnunar verða að vinna
gegn henni, það er þjóðþrifamál
númer eitt.
Uppreisnin er það sem gerir
okkur að mönnum. Með uppreisn
sinni hefur maðurinn unnið gegn
sársauka og þjáningu á vegferð
sinni frá ómuna tíð. Lesandi minn,
það skiptir ekki máli hvort við er-
um á háum eða lágum launum, ef
við látum okkur það ekki neinu
skipta að laun einhvers duga ekki
fyi-ir framfærslu getur það eins
orðið mitt bam eða þitt sem lendir
í þeirri niðurlægjandi stöðu.
Húmanistaflokkurinn mun bjóða
fram í kosningnum í vor. Við þurf-
um á þinni hjálp að halda til að rísa
upp gegn láglaunastefnunni og
fleiru sem að er í þjóðfélaginu.
SIGRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR,
félagi í Húmanistaflokknum.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Glæsilegur fatnaður í miklu úrvali í haust- og vetrarlistanum.
Frábært verð. Mikið úrval af litlum og stórum stærðum.
Listinn fæst í öllum helstu bókaverslunum
Sími 565 3900
'_______ Fax 565 201 5