Morgunblaðið - 08.09.1998, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ
f 56 PRIÐ.JUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Dómkirkjan -
Vetrarstarf -
Fermingar
PAÐ sem hefur verið kallað vetr-
arstarf kirkna færist nú æ lengra
fram á haustið. Mestu ræður í því
efni upphaf skólastarfs og vísar
það til samhengis kirkju og skóla.
Hvort tveggja starfið er mikil-
vægt fræðslustarf í samfélagi okk-
ar. í kirkjunni er verið að fylgja
eftir skírnarboðinu um að gera all-
> ar þjóðir að lærisveinum, skíra og
kenna börnum og fullorðnum að
halda það oem Drottinn hefur boð-
ið. Þannig ber að skilja barna-,
fermingar- og unglingastarf kirkj-
unnar, einnig fullorðinsfræðsluna.
Dómkirkjan kynnir nú vetrarstarf
sitt sem er í stærstum dráttum
svolátandi: Innritun fermingar-
barna verður í Dómkirkjunni mið-
vikudaginn 9. september kl. 16 og
hefst fermingarfræðslan laugar-
daginn 12. sept og verður annan
hvern laugardagsmorgun.
Bamasamvera fyrir 6-9 ára
böm verður á þriðjudögum kl.
10:30 og 16 og 10-12 ára miðviku-
daga kl. 16:30 í Safnaðarheimilinu
og hefst hvorttveggja í næstu
viku.
Samvera foreldra lítilla barna
verður á miðvikudögum kl. 14 í
Safnaðarheimilinu.
Opið hús fyrir alla aldursflokka
er í Safnaðarheimilinu fimmtu-
daga kl. 14-16.
Safnaðarfélagið mun halda
fundi sína eftir messu fyrsta
sunnudag í hverjum mánuði.
Kirkjunefnd kvenna fundar á
' mánudagskvöldum. Æðraleysis-
messur, guðsþjónustu fyrir þau
sem feta sig leiðina til bata eftir
tólfsporakerfinu, verða jafnaðar-
lega síðasta sunnudagskvöld í
mánuði. Hádegisbænir eru í Dóm-
kirkjunni alla miðvikudaga kl.
12:10 og léttur hádegisverður á
kirkjuloftinu á eftir. Hámessur
okkar eru alla sunnudaga kl. 11 og
guðsþjónustur af ýmsu tilefni kl.
14.
Hjálparsjóður Dómkirkjunnar
miðlar hjálp frá gjafmildu fólki til
þeirra í sókninni sem eru í efna-
legri neyð vegna áfalla í lífinu.
Viðtalstímar dómkirkjuprestanna:
Sr. Hjalti Guðmundsson má,- fi.
kl. 11:30 - 12:30 og sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson þri. - fö. kl.
11:30 -12:30 og sími þeirra í Safn-
aðarheimilinu er 562 2755.
Jakob Agúst
Hjálmarsson.
L andakot skirkj a
TRÚFRÆÐSLUNÁMSKEIÐ
fyrir þá sem vilja kynna sér trá
kaþólsku kirkjunnar hefst með
kynningarfundi annað kvöld kl.
20.30 í safnaðarheimili Landakots-
kirkju, Hávallagötu 16. Allir vel-
komnir.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 10-14. Léttur hádegis-
verður. Samverustund foreldra
ungra barna kl. 14-16.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu
eftir stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Laugarneskirkja. „Þriðjudagur
með Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörðar-
og bænastund.
Neskirkja. Mömmumorgunn á
morgun miðvikudag kl. 10-12, en
ekki þriðjudag eins og auglýst var
í sunnudagsblaði.
Selfjarnarneskirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur
presta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigur-
jóns Á. Jónssonar.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara í Kirkjuhvoli milli kl.
13-16 alla þriðjudaga í sumar.
u\lanay,
09
s°
O'P'LdaO
\o^Hl/l5l
Mörkinni 6, sími 588 5518
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir
í DAG
VELVAKANÐI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til fóstudags
Eru nagladekk
nauðsynleg?
ERU eftirfarandi rök ekki
nógu góð til að bannað
verði að nota nagladekk?
1. Nagladekkin menga
andrúmsloftið með tjör-
unni sem þau spæna upp
úr malbikinu.
2. Þau kosta skattborg-
arana himinháar upphæðir
í viðgerðum gatnanna ár-
lega.
3. Þau óhreinka bíla
u.þ.b. um leið og maður er
búinn að þvo þá.
Eru nagladekkin nauð-
synleg í raun? Aðrir kostir
eru til. Nýjar gerðir af
dekkjum eru komnar á
markaðinn, eins og t.d.
kvarts-dekk, og síðan má
setja sandpoka í skottið ef
hált er. Með tilkomu t.d.
þessara nýju dekkja og
fjórhjóladrifnu bílanna má
spyrja hvort ekki megi
banna notkun á nagla-
dekkjum.
Lesandi.
Tapað/fundið
Jakki týndist
DÖKKBLÁR Nike jakki
með gulum röndum týnd-
ist á leiðinni frá Tunguvegi
að Bústaðakii’kju, eða frá
skiptistöð SVR í Lækjar-
götu að Menntaskólanum í
Reykjavík, sl. miðvikudag.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 565 3026.
Fundarlaun.
Gleraugu týndust í
Mývatnssveit
GLERAUGU með bleik-
um sólhlífum frá Paul
Smith týndust um verslun-
armannahelgina í Mý-
vatnssveit. Finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 587 5871.
Herraarmband
týndist
ARMBAND, herra, týnd-
ist á Skólavörðustíg eða
þar í grennd fyrir viku.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 552 1640 eða
568 7944.
Læðu
vantar heimili
AF SÉRSTÖKUM ástæð-
um vantar hálfstálpaða síð-
hærða læðu gott heimili.
Upplýsingar í síma
898 9310.
Morgunblaðið/Golli.
Að leik í Tjarnarborg.
Víkverji skrifar...
AD STEFNIR í harða baráttu
um 1. sæti á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi í prófkjöri, sem ákveðið
hefur verið að fari fram. Nú þegar
hafa a.m.k. tveir frambjóðendur til-
kynnt, að þeir gefi kost á sér í
þetta sæti. Það eru þeir Árni
Mathiesen, alþm., og Gunnar Birg-
isson, formaður bæjarráðs Kópa-
vogs.
Að sumu leyti má segja, að þetta
geti orðið átök á milli Hafnarfjarð-
ar og Kópavogs. Frá því að Matthí-
as Á. Mathiesen tók við forystu
Sjálfstæðismanna í Reykjaneskjör-
dæmi af Ólafi Thors hafa Hafnfirð-
ingar haft þar lykilstöðu, þótt
fyrsta sæti listans hafi að vísu farið
til Garðabæjar í tvö kjörtímabil
eftir að Ólafur G. Einarsson tók við
því í þingkosningunum 1991. Hins
vegar hefur Sjálfstæðismönnum í
Kópavogi gengið illa að tryggja sér
þingmann utan þess tímabils, sem
Axel heitinn Jónsson sat á þingi.
Nú takast hins vegar á um fyrsta
sætið Árni Mathiesen, sem setið
hefur á þingi fyrir kjördæmið í 8 ár
og getið sér gott orð og hefur Sjálf-
stæðisflokkinn í Hafnarfírði að
baki sér auk vel þjálfaðrar kosn-
ingavélar þess fjölskylduveldis,
sem á bak við hann stendur, og
Gunnar Birgisson, sem var nánast
óþekktur á vettvangi stjórnmál-
anna, þegar hann barðist til valda í
bæjarmálum Kópavogs fyrir níu
áram. Á þessu tímabili hefur verið
slíkur uppgangur í Kópavogi, að
einungis verður jafnað til uppbygg-
ingarinnar í bæjarfélaginu á fyrstu
áram þess á fimmta og sjötta ára-
tugnum.
Það má því búast við spennandi
og skemmtilegri kosningabaráttu
um fyrsta sætið á D-listanum í
Reykjaneskjördæmi. Þar er líka til
mikils að vinna. Nánast má telja
víst, að fyrsta sætinu fylgi ráð-
herraembætti í ríkisstjórn að lokn-
um næstu þingkosningum.
xxx
LÍTIÐ er vitað um aðrar breyt-
ingar í frambjóðendaliði Sjálf-
stæðisflokksins enn sem komið er.
Þó er Ijóst að sæti Friðriks Soph-
ussonar á lista Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík losnar. Ekki er vitað til
að breytingar verði á efstu sætum
D-listans í Vesturlands- og Vest-
fjarðakjördæmi og ekki heldur í
Norðurlandskjördæmunum tveim-
ur. Vel virðist fara á með tveimur
efstu mönnum D-listans í Norður-
landskjördæmi eystra, því að í sex-
tugsafmæli Halldórs Blöndals, sem
skipar efsta sæti listans, færði
Tómas Ingi Olrich, sem skipar 2.
sæti listans, honum að gjöf fram-
saminn vals, sem Tómas hafði
samið og flutti í afmælinu.
Vera má, að meiri vangaveltur
séu um skipan listanna í Austur-
landskjördæmi og Suðurlandskjör-
dæmi.
xxx
EINUM viðmælanda Víkverja
varð svo mikið um þegar
Morgunblaðið birti í síðustu viku
leiðara, þar sem fagnað var opnun
matvöraverzlunar á vegum KEA á
höfuðborgarsvæðinu að honum
varð á orði:
Verið kát og segið SÍS,
sjá má betri tíðir
þegar KEA-röðull rís
í Reykjavík um síðir.
Gamlir íhaldskurfar kjá,
kveinka sér og rogga
er lof um KEA lesa má
í leiðara hjá Mogga!