Morgunblaðið - 08.09.1998, Blaðsíða 68
ttgmittbKfrUt
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1
ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998
VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Rey kj avíkurflugvöllur
Hugsan-
lega
O
lokað að
næturlagi
FLUGMÁLASTJÓRN hefur óskað
umsagnar aðila í flugrekstri sem
nota Reykjavíkurflugvöll á því
hvernig kæmi við þá ef vellinum
yrði lokað fyrir allri umferð að
næturlagi. Asgeir Pálsson, fram-
kvæmdastjóri flugumferðarþjón-
ustu hjá Flugmálastjóm, segir
hugmynd um lokun setta fram ann-
ars vegar í sparnaðarskyni og hins
^vegar til að draga úr hávaða frá
' flugumferð um völlinn að nætur-
lagi.
Reykjavíkurflugvöllur hefur ver-
ið lokaður fyrir brottflug á tímabil-
inu 23.30 til 7 að morgni en lend-
ingar eru heimilar á þeim tíma.
Hugmyndin er að loka vellinum al-
veg frá miðnætti til 7 nema fyrir
neyðarflug, t.d. sjúkraflug Land-
heigisgæslunnar og annarra. Öðr-
um flugvélum sem hugsanlega
vildu lenda í Reykjavík að nætur-
lagi yrði þá til dæmis beint til
" Keflavíkurflugvallar. Þá yrði engin
vakt í flugturni en neyðarumferð
sinnt með flugupplýsingaþjónustu
eins og gert er á flugvöllum víða
um land. Þetta myndi einnig draga
úr þörf fyrir vaktir slökkviliðs að
næturlagi.
Beðið umsagna frá
flugrekstraraðilum
Asgeir Pálsson segir að beðið sé
nú umsagna frá flugrekstraraðilum.
Hann segir markmiðið með þessum
aðgerðum ekki að ná fram tiltekinni
fjárupphæð í sparnað heldur að
kanna hvort unnt er að þjóna flug-
umferð með eitthvað minni þjón-
ustu en nú er og þá bæði í sparnað-
■*#arskyni og til að draga úr hávaða.
Verði þessi hugmynd að veruleika á
hún að komast í framkvæmd um
næstu áramót. •
N áttúru-
hamfarir í
Kaldalóni
IS og grjót var enn að velta fram
undan Drangajökli í Kaldalóni um
helgina, en hlaup kom undan jökl-
inum um miðja síðustu viku. Gíf-
urlegt magn af grjóti og möl
ruddist fram í hlaupinu og fyrir
framan jökuljaðarinn er allt að 10
metra hár kambur sem myndast
hefur í hlaupinu.
Talsvert mikill ís er enn í ánni
og nokkrir stórir jakar hafa
strandað á áreyrunum. Engar
sagnir eru kunnar um að hlaup
hafi áður komið undan Dranga-
jökli og eru jarðvísindamenn ekki
vissir um hvernig beri að skýra
orsakir þessa hlaups.
■ Hlaupið kom eins og/6
Fjölmargar athugasemdir við gagnagrunnsfrumvarpið
Tölvunefnd vill að leit-
að verði samþykkis
TÖLVUNEFND gerir alvarlegar
athugasemdir við nær allar helstu
greinar gagnagrunnsfrumvarpsins,
sem nú hefur verið lagt fram í end-
urskoðaðri mynd, og telur að nefnd-
in sé mjög vanbúin til að takast á
við eftirlit með framkvæmd laganna
eins og aðbúnaður hennar er nú.
Meðal þeirra breytinga sem tölvu-
nefnd leggur til að gerðar verði á
gagnagrunnsfrumvarpinu er að leita
þurfl eftir samþykki allra sjúklinga
fyrir notkun á upplýsingum, fremur
en að þeir þurfi sjálfir að hafa frum-
kvæði að því að koma í veg fyrir
notkun upplýsinganna, eins og
frumvarpið gerir nú ráð fyrir.
Hátt í 20 umsagnir
Tölvunefnd telur að stofnun og
eftirlit með gagnagrunni á heil-
brigðissviði sé „stærsta og viða-
mesta verkefni á þessu réttarsviði
sem nokkru sinni hefur verið ráðist
í hér á landi og þótt víðar væri leit-
að“.
Hátt i tuttugu aðilai- höfðu í gær
sent heilbrigðisráðuneytinu álits-
Morgunblaðið/RAX
Þrefalt meiri kaupmáttaraukning hérlendis en í viðskiptalöndunum
Spáð 8,3% kaupmáttar-
aukningu hérlendis
ÞJOÐHAGSSTOFNUN spáir því
að kaupmáttur ráðstöfunartekna
aukist á þessu ári um 8,3% hér á
landi og um 3% í helstu viðskipta-
löndum íslands. Á síðasta ári jókst
kaupmáttur ráðstöfunartekna á ís-
landi um 6,9% en um 2,4% að með-
altali í viðskiptalöndunum.
Þetta kemur fram í sameiginlegri
yfirlýsingu Alþýðusambands Is-
lands og Vinnuveitendasambands
íslands um samningsmarkmið gild-
andi kjarasamninga og heimildir
'‘■■samkvæmt honum til viðbragða.
„Samkvæmt þessum spám mun
þróunin á iyrstu tveimur árum
samningstímans, þ.e. á árunum 1997
og 1998 vera á þann veg að kaup-
máttur ráðstöfunartekna á Islandi
vaxi um 15,8% en um 5,5% í við-
skiptalöndunum," segir í yfírlýsing-
■^mni. Þar segir ennfremur að gangi
þessar spár eftir verði kaupmáttar-
aukningin umtalsvert meiri en búast
mátti við og næsta víst sé að ekki
reyni á heimildir samtakanna til við-
bragða á grundvelli ákvæða kjara-
samningsins frá 24. mars 1997.
„Hafa markmið samninganna hvað
kaupmáttarþróun varðar náðst á
fyrri hluta samningstímans, og gott
betm- en það, og reynir því ekki á
heimildir samtakanna til viðbragða
við þróuninni," segir í yfiriýsingunni.
Að minnsta kosti þessi aukning
„Það er ekki ástæða til að ætla
annað en að kaupmáttaraukningin
verði að minnsta kosti þessi,“ sagði
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VSÍ, í samtali
við Morgunblaðið í gær. Ástæðurn-
ar væru margþættar. „Það er ekki
hægt að tína eitthvað eitt til, það
leggst allt á sömu sveif. Það er ekki
bara það að launahækkanir séu
Breyting
kaupmáttar
ráðstöfunartekna
árið 1997
ísland þi5
Finnland
Bretland
Danmörk
Noregur
Spánn
Bandaríkin
Portúgal
Holland
miklu meiri hér á landi en annars
staðar á þessu tímabili heldur er at:
vinna að vaxa hér mjög mikið. í
þriðja lagi eru breytingar í skatta-
málum og í fjórða lagi má segja að
verðbólgan sé miklu minni en allir
bjuggust við miðað við þær launa-
hækkanir sem hafa orðið.“
Hannes sagði að svo virtist sem
það samband milli verðlags og
launa, sem var til staðar á verð-
bólguárunum, sé ekki lengur til
staðar. Nú fari kostnaðarhækkanir
ekki út í verðlag með sama sjálf-
virka hætti og áður.
Hannes sagði að þetta mikil
kaupmáttaraukning hefði aldrei
orðið með varanlegum hætti á Is-
landi hér áður, svo miklar sveiflur
hefðu alltaf gengið til baka á mjög
skömmum tíma. „Við höfum meiri
trú á því að þessu sinni að þetta geti
haldist," sagði hann.
gerðir um ný drög að gagnagrunns-
frumvarpi.
Samkeppnisstofnun telur að litlar
breytingar hafi orðið á þeim ákvæð-
um frumvarpsins sem hún gagn-
rýndi áður.
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga skilaði einnig umsögn um frum-
varpið í gær. Félagið vill að einstak-
lingar merki við í skattaskýrslu
hvort þeir samþykki að upplýsingar
um sig séu færðar í gagnagrunninn.
■ Leitað verði eftir/12
Kínverjar
vilja fá
Krislján
aftur
RÁÐAMENN menningarmála
í Kína sýna áhuga á því að fá
Kristján Jóhannsson tenór-
söngvara aftur til landsins á
næsta ári eða árið 2000 en sem
kunnugt er syngur hann í um-
fangsmikilli uppfærslu á
Turandot eftir Puceini í For-
boðnu borginni I Peking þessa
dagana. Átti Kristján fund með
þessum mönnum I gær.
„Hugmyndin er sú að ég fari í
tónleikaferð um Kína, til þriggja
eða fjögurra borga, með annað-
hvort ítalskri eða kínverskri sin-
fóníuhljómsveit,“ segir Kristján.
„Eg hef vitað af þessum áhuga
Kínverja um tíma en ætli sýn-
ingin í Forboðnu borginni hafi
ekki riðið baggamuninn. Þetta
er auðvitað stórmál og getur
orðið alveg ofsalega gaman!“
Verði af þessu hefur, að sögn
Kristjáns, hefur komið til tals
að fá undanþágu til að halda
stóra tónleika undir berum
himni í Forboðnu borginni í
Peking en á öðrum stað en sýn-
ingin á Turandot fer fram.
■ Einn af hápunktum/28
Fleiri erlendir
ferðamenn
FJÖLGUN erlendra ferðamanna er
um 22.000 fyrstu 8 mánuði ársins mið-
að við sama tíma i fyrra eða um 14%
í ágústmánuði sl. komu alls 37.350
erlendir ferðamenn til landsins en í
sama mánuði í fyrra komu 31.585.
Aukningin í ágúst miðað við síðasta
ár er 18,3%. Flestii- hinna erlendu
gesta komu frá Þýskalandi, eða 7.503,
frá Bandaríkjunum komu 4.976, frá
Bretlandi 3.372 og 2.802 frá Ítalíu.
■♦♦♦
Rotaðist við
stangarstökk
STÚLKA, sem var að æfa stangar-
stökk, slasaðist á Valbjarnarvelli um
klukkan átta í gærkvöld.
Að sögn lögreglu féll hún og rotað-
ist. Hún var flutt á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur með sjúkra-
bifreið. Samkvæmt upplýsingum frá
slysadeild fékk stúlkan að fai-a heim
að lokinni skoðun.