Morgunblaðið - 12.09.1998, Page 2
2 LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AÐSTÆÐUR fyrir þyrluna til að athafna sig við Sturlu voru erfiðar, en vel gekk samt að hífa.
Gæsluþyrlan í tvær
sj úkraflugfer ðir
Heilbrigðisráðherra á málþingi
Landssamtaka hj artasj úklinga
Fleiri útvíkkan-
ir og þræðingar
Vefur um
Lewinsky-málið
SETTUR hefur verið upp sérstak-
ur vefur um svonefnt Lewinsky-
mál í tengslum við Fréttavef Morg-
unblaðsins á Netinu.
Þar er að finna á frummálinu
skýrslu Kenneths Starrs um sam-
band Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta og Monicu Lewinsky, greinar-
gerð lögfræðinga Clintons auk
frétta og fréttaskýringa sem birst
hafa í Morgunblaðinu og á Frétta-
vefnum um málið.
Slóðin á Fréttavef Morgunblaðs-
ins er www.mbl.is. A forsíðu hans
vinstra megin er hnappur með yfir-
skriftinni Skýrslan um Clinton, og
ef smellt er á hann kemur vefurinn
upp.
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
gerir ráð fyrir að þær upplýsingar
sem fari í miðlægan gagnagrunn á
heilbrigðissviði séu aðallega flokk-
aðar og kóðaðar upplýsingar, sem
koma megi í tölulegt form. Ráðu-
neytið er að láta vinna úttekt á
kostnaði við að búa til slíkan gagna-
grunn.
Þessar upplýsingar koma fram í
bréfi sem ráðuneytið hefur sent
Læknafélagi íslands, en félagið
óskaði eftir svörum við nokkrum
spumingum um drög að frumvarpi
um miðlægan gagnagrunn. Félagið
taldi að svör við spurningunum
væm forsenda þess að það gæti
fjallað frekar um frumvarpið.
I bréfi ráðuneytisins segir að
samþykki heilbrigðisstofnana og
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
fór í tvö sjúkraflug í gær. Fyrst
sótti þyrlan slasaðan sjómann til
Grindavíkur. Skipverji á Danska
Pétri frá Vestmannaeyjum hafði
slasast illa þegar önnur hönd
hans lenti í togvír og í blökkinni
þar sem skipið var statt stutt
undan Grindavík. Fór þyrlan frá
Reykjavík laust eftir klukkan 8
og var komin með sjúklinginn á
Sjúkrahús Reykjavíkur í Foss-
vogi upp úr klukkan 9.
Sjúkraflug norður fyrir Horn
Þyrlan var síðan kölluð í
sjúkraflug rúmri klukkustund
sjálfstætt starfandi heilbrigðis-
starfsmanna þurfi fyrir flutningi
upplýsinga í gagnagrunninn. Gert
sé ráð fyrir því að rekstrarleyfishafi
gagnagmnnsins þurfi að semja við
heilbrigðisstofnanir og sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfsmenn um
ílutninginn.
Læknar á stofnunum geta ekki
neitað að afhenda upplýsingar
Þar verði settar þær takmarkan-
ir sem heilbrigðisstofnanir, heil-
brigðisstarfsmenn, tölvunefnd og
nefnd um starfrækslu gagna-
grunns telja rétt að setja. Gert sé
ráð fyrir að inn í grunninn fari að-
allega flokkaðar og kóðaðar upp-
lýsingar, sem koma má í tölulegt
form.
síðar. Sótti hún veikan skipveija
um borð í togbátinn Sturlu GK-
12 sem var staddur 25 til 30 sjó-
mílur norður af Homi. Sóttist
ferðin norður eftir nokkuð seint í
allhvössum mótvindi og dimm-
viðri og varð þyrlan að fara yfír
Holtavörðuheiði og út yfír
Húnaflóann. Þegar þyrlan kom
að Sturlu vom 8 vindstig af
norðnorðaustri og 6-8 metra
ölduhæð. Ekki reyndist unnt að
senda sigmann niður í skipið.
Áhöfnin tók á móti sjúkrabörum
og bjó manninn til flutnings.
Þyrlan var komin til Reykjavíkur
á ný laust eftir kl. 14.
Heilbrigðisráðuneytið telur að
persónuvemd sé það vel tryggð í
frumvarpinu að réttlætanlegt sé að
leita ekki eftir upplýstu samþykki
sjúklinga fyrir flutningi upplýsinga
í gagnagranninn. Tekið er fram að
upplýsingar um sjúklinga sem
hafna því að setja upplýsingar um
sig í gagnagrunninn verði ekki flutt-
ar í gagnagrunninn að öðru leyti en
því sem lýtur að tölfræðilegri
skráningu á vegum heilbrigðisyfir-
valda. Eðlilegt sé að landlæknir
leggi mat á hvaða upplýsingar séu
nauðsynlegar í þessum tilgangi.
Ráðuneytið segir að foreldrar og
forráðamenn bama skuli taka
ákvörðun um flutning upplýsinga
um þau í gagnagrunninn. Gert sé
ráð fyrir að með upplýsingar um
VERÐI hjartaþræðingar og
kransæðaútvíkkunaraðgerðir jafn-
margar á síðari hluta þessa árs og
hinum fyrri verða þær fleiri á þessu
ári en nokkru sinni fyrr og þjónusta
við hjartasjúklinga því aldrei betri
en einmitt nú. Þetta kom fram í
máli Ingibjargar Pálmadóttur heil-
brigðis- og ti-yggingaráðheraa á
málþingi Landssamtaka hjartasjúk-
linga við upphaf fímmta þings sam-
takanna í gær.
Á síðastliðnum fimm árum hefur
kransæðaútvíkkunaraðgerðum
fjölgað mjög og þar af leiðandi held-
ur dregið úr opnum hjartaaðgerð-
um. Samkvæmt upplýsingum frá
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu voru á síðastliðnu ári gerð-
ar 166 kransæðaútvíkkanir á Ríkis-
spítölum fyrir almenn sumarleyfi
starfsfólks en á sama tíma í ár
höfðu verið gerðar 216 slíkar að-
gerðir, það er 50 fleiri en á fyrri
hluta síðasta árs. í október í fyrra
voru 75 manns á biðlista eftir
ki-ansæðaútvíkkun en nú í septem-
berbyrjun bíða 47 eftir slíkri að-
gerð. Á fyrri hluta síðasta árs voru
ennfremur gerðar 242 hjartaþræð-
ingar en á sama tíma á þessu ári
voru þær 279, eða 37 fleiri.
Ekki spurt um greiðslugetu
Ráðheraann gerði að umtalsefni
niðurskurð í heilbrigðisþjónustunni
og ræddi um þá mynd sem margir
virðast hafa af heilbrigðiskerfinu að
það sé að sligast af spamaði, upp-
lausn og jafnvel vandræðagangi.
Hún kvaðst ætla að leyfa sér að full-
yrða að íslenska heilbrigðiskerfið
látið fólk verði farið með sama hætti
og upplýsingar um fólk sem ekki
hefur hafnað því að upplýsingar um
það fari í gagnagrunninn.
Læknafélagið spurði um rétt
lækna til að neita að láta af hendi
upplýsingar í gagnagrunninn. I
svari ráðuneytisins segir að sjálf-
stætt starfandi læknir geti ákveðið
hvort hann lætur af hendi upplýs-
ingar í gagnagrunninn. Hvað varðar
heilbrigðisstofnanir sé gert ráð fyr-
ir að samþykki þurfi frá þeim sem
bærir eru til að taka ákvörðun fyrir
hönd þeirra. Gengið sé út frá því að
slíkar ákvarðanir séu ekki teknar
nema í samráði við lækna. Fram-
varpið tryggi hins vegar ekki ein-
stökum læknum á stofnunum rétt til
að neita að afhenda upplýsingar.
væri það besta í heiminum. „Hjarta-
sjúklingar geta hvergi á byggðu bóli
fengið betri þjónustu en hér.
Hjartalæknar og annað heilbrigðis-
starfsfólk hér á landi er í fremstu
röð. Hér eru líka gefin bestu lyfin
og þar er ekki verið að spara.
Hvergi í heiminum þar sem heil-
brigðiskerfi er uppbyggt á sama
hátt og hér gera menn jafnmargar
hjartaþræðingar og hér, hvergi í
heiminum eru menn blásnir og
boraðir á sama hátt og hér og
hvergi fá menn betri þjónustu eftir
opnar aðgerðir en einmitt hér. Og
hér á Islandi era menn jafnir, hér
er ekki spurt um greiðslugetu,"
sagði Ingibjörg.
Nafn pilts-
ins sem
lést
PILTURINN sem lést í fyrra-
dag af völdum áverka sem
hann hlaut er hann varð fyrir
bíl á Dalvegi í Kópavogi á mið-
vikudagskvöld hét Oli Geir
Höskuldsson, til heimilis að
Hlíðarhjalla 68 í Kópavogi.
Hann var fæddur 18. septem-
ber 1978.
Hannes Hlífar
kominn í 2.
umferð
SEINNI skákin var tefld í gær í 1.
umferð á svæðamóti Norðurlanda í
skák, sem nú stendur yfir í Munke-
bo á Fjóni í Danmörku. Hannes
Hlífar Stefánsson tryggði sér sæti í
2. umferð með því að vinna skák
sína við Helga Áss Grétarsson.
Margeir Pétursson vann Þröst Þór-
hallsson, en Helgi Ólafsson tapaði
fyrir John Rodgaard frá Færeyj-
um.
Margeir og Þröstur og Helgi og
Rödgaard þurfa að tefla til þrautar í
dag um sæti í annarri umferð, sem
hefst á morgun, sunnudag.
Heilbrigðisráðuneytið svarar læknum um hvað eigi að fara í gagnagrunninn
Aðallega flokkaðar upp-
lýsingar í tölulegu formi
Sérblöð í dag
m uiÐun
Á LAUGARDÖGUM
Eissfei in®8til3«
www.iabl.is