Morgunblaðið - 12.09.1998, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÁUYRNINGURINN Keikó syndir um í kvínni ásamt
Peter Noah þjálfara. í baksýn er Ystiklettur og efst í
honum sést lítill kofi, sem lundaveiðimenn nota.
HÁHYRNINGURINN Keikó hefur feng-
ið aukna matarlyst og þjálfarar hans
eru ánægðir með það hvernig honum
gengur að laga sig að nýju umhverfi.
Hvalurinn virðist
borða vel, en hefur
ekki kallast á við
fleiri sjávar-
spendýr en hnís-
una síðdegis á
fimmtudag.
Keikó synti rösk-
lega um laugina þegar blaðamaður og
Ijósmyndari Morgunblaðsins komu
þangað síðdegis í gær. Með honum í
kvínni var Peter Noah þjálfari og virtist
hann ekki láta kalt vatnið á sig fá. Noah
synti um kvína í blautbúningi, en var
með berar hendur og fór nokkrum sinn-
um í kaf. Hann nuddaði skráp hvalsins
og voru fingur hans ataðir áburðinum,
sem notaður var til að halda honum rök-
um meðan á flutningnum frá Newpoi-t í
Oregon stóð.
Nokkur vindur var, en lygnara í
kvínni heldur en þegar út fyrir hana var
komið. Oldugangur var lítill nema þegar
feijan Heijólfur kom til hafnar frá Þor-
lákshöfn. Þá gekk kvíin til í öldunum,
sem mynduðust í lq'ölf-
ar feijunnar, en hvaln-
um virtust líka lætin
vel.
Keikó
lagar sig
að nýju
umhverfi
Háhyrningurinn Keikó
hefur byi'jað nýtt líf
í kvínni í Klettsvík. Karl
Blöndal, Helgi Þorsteins-
son og Asdís Asgeirs-
dóttir fylgdust með nýbú-
anum í Eyjum.
Morgunblaðiö/Asdis
PETER Noah, þjálfari Keikós, nuddar á honum sporðinn eftir að háhyrn-
ingurinn hafði velt sér á bakið í kvínni í Klettsvík í gær.
ferðum innan hennar.
„Þetta liefur allt gengið vel,“ sagði
Foster. „Síðan bætist við að hann
kallaðist á við annað sjávarspendýr.
Við tókum upp þegar dýrin kölluðust á
og við erum mjög spennt yfir því.
Þetta er ekki slæmt á fyrsta degi.“
Foster fylgdi hvalnum frá Newport í
Oregon þar sem hann hefur verið á
sædýrasafni frá því hann var fluttur
frá Mexíkóborg fyrir tveimur árum.
Hann skipulagði einnig fiutninginn
þaðan en Nolan Harvey, sem einnig er
þjálfari háhyrningsins, skipulagði að-
gerðir í Eyjum. Þegar Keikó var sleppt
í kvína í fyrradag var Foster með þeim
fyrstu sem stungu sér út í kaldan
sjóinn í Klettsvíkinni til að synda með
hvalnum.
„Það var gott að komast í sjóinn,“
sagði Foster. „Það er hvasst, en lygn-
ara í víkinni.“
Foster sagði að flutningurinn hefði
ekki getað gengið betur en það væri
aldrei hægt að segja fyrir um flutning
á villtu dýri. En Keikó hefði hins vegar
ráðið við hverja þraut, sem lögð hefði
verið fyrir hann, hvort sem um væri að
ræða að veiða lifandi fisk eða takast á
við nýjar æfingar.
Skammturinn
aukinn
„Þetta þarf ekki að ganga hratt fyrir
sig,“ sagði hann. „Okkur liggur ekkert
á.“
Forvitinn um umhverfið
Fyrsta nótt Keikós í Klettsvík reynd-
ist tíðindalítil. Að sögn Jeffs Fosters,
þjálfara Keikós, voru sex manns í kvíimi
yfir nóttina auk öryggisvarðar. Hann
sagði að háhyrningurinn hefði verið for-
vitinn um umhverfi sitt, fylgst vel með
öllum bátsferðum við kvína og manna-
Að sögn þjálfarans
át Keikó 30 kfló af sfld
og loðnu fyrsta dag-
inn. Sagði hann að
fara þyrfti rólega af
stað vegna þess að
hann hefði ekkert étið
meðan á flutningnum
stóð. Síðan yrði
skammturinn aukinn
smátt og smátt.
Hann sagðist vera
ánægður með ástand
hvalsins, hann virtist
fullur af orku og
hefði synt vel. Hann
væri tilbúinn að
takast á við næsta
verkefni.
Foster sagði að á
næstu dögum yrði Keikó leyft að venj-
ast kvínni og fylgst yrði með honum,
hljóðunum sem hann gæfi frá sér og
hversu oft hann blési. Niðurstöður
þess eftirlits yrðu síðan bornar saman
við niðurstöður eftirlits með háhyrn-
ingnum í lauginni í Newport til að sjá
hvort hegðun hans breyttist við það að
koma í nýtt umhverfi. Þetta væri hins
vegar mikil nákvæmnisvinna og senni-
lega yrði ekki hægt að segja neitt fyrr
en eftir mánuð.
Nýr heimur í kvínni
Dave Phillips,
sljórnandi Keikó-
stofnunarinnar, var
staddur í kvínni og
sagði að það hlyti að
vera eins og nýr heim-
ur opnaðist fyrir
háhyrningnum við það
að komast úr lokaðri
laug í víðáttu
Klettsvíkur.
Noah ræddi við
blaðamann þar sem
hann flaut í kvínni og
sagði að erfitt verk-
efni yæri fyrir hönd-
um, en hingað til hefði
allt gengið sérdeilis
vel. Hann sagði að hvalurinn æti vel, en
enn væri ekki farið að gefa honum lif-
andi fisk að nýju.
Þegar Keikó var í sædýrasafninu í
Newport át hann stundum eingöngu lif-
andi fisk, hraðsyndan eldislax, en nú
myndu sennilega líða nokkrar vikur áður
en Free Willy Keikó-stofnunin hefði
komið sér upp kvíum með eldisfiski til að
geta gefið hvalnum lifandi bráð. Kvaðst
hann hins vegar ekki eiga von á því að
það myndi saka þótt allt að mánuður liði.
NÍU sérfræðingar bandaríska flughersins og tveir verkfræðingar frá Boeing-verksmiðjun-
um könnuðu í gær skemmdir á hjólabúnaði C-17-vélarinnar.
Morgunblaðið/Ásdís
HERMENN með alvæpni gættu C-17-vélarinnar í gær og gættu þess að engir óviðkomandi
kæmust nær henni en 100 metra.
Sérfræðingar flug-
hersins og Boeing
kanna skemmdirnar
ÞYRLA frá Keflavíkurflugvelli fór tvær ferðir
til Vestmannaeyja í gær með níu sérfræðinga
flughersins og tvo starfsmenn Boeing-flugvéla-
verksmiðjanna sem komnir eru frá Bandaríkj-
unum til að kanna þær skemmdir sem urðu á
C-17 herflutningavélinni sem flutti Keikó til
Vestmannaeyja á miðvikudaginn. Unnið var að
viðgerðum á vélinni í gær.
Jóhann H. Jónsson, framkvæmdastjóri flug-
valladeildar hjá Flugmálastjórn, segist hafa
sagt fulltrúum bandariska flughersins að þeir
yrðu að færa vélina hið fyrsta, en hún er nú
skammt frá mótum flugbrautanna tveggja
þannig að á hvorugri þeirra má lenda.
„Það þarf að færa vélina í vestur þannig að
hún verði hið minnsta 200 metra vestan við
miðlínu flugbrautarinnar,“ segir Jóhann.
„Bandaríkjamennimir segjast vinna hörðum
höndum að því.“
Tvær flugvélar komust á loft
Flugvél frá Leiguflugi hf. sem hafði verið
fóst á vellinum frá þvi á miðvikudagsmorgun
tókst að komast á loft frá flugvellinum um
klukkan hálftvö í gær og hálftíma síðar fór
Domier-vél íslandsflugs einnig af stað til
Reykjavíkur. Unnið var að því með jarðýtu all-
an morguninn að búa til veg fyrir flugvélamar
framhjá C-17 vélinni sem lokaði annarri braut-
inni þannig að flugvélarnir gætu komist frá
flugstöðinni og tekið á loft frá hinni brautinni.
Hermenn vopnaðir vélbyssum gættu þess
fram eftir degi að enginn fjölmiðlamaður
kæmist nær C-17 vélinni en í hundrað metra
fjarlægð. Nokkuð var þó slakað á öryggiskröf-
um þegar leið á daginn.
Upplýsingaskrifstofa varnarliðsins sendi í
gær frá sér fréttatilkynningu, þar sem segir að
„vegna villandi fréttaflutnings nokkurra
fjölmiðla af lendingu C-17 flugvélarinnar í
Vestmannaeyjum" hafi flugherinn falið henni
að koma eftirfarandi skýringu á framfæri:
„C-17 flugvél bandaríska flughersins lenti í
gær á austur/vestur flugbraut Vestmannaeyja-
flugvallar í 19 hnúta hliðarvindi. Þetta er langt
innan viðmiðunarmarka fyrir þessa flugvélarteg-
und sem era 30 hnútar. Er flugvélin hafði rannið
u.þ.b. 300 metra efdr brautinni varð bilun í hjóla-
búnaði hennai- sem nú er verið að kanna. Fyrir s
lendinguna vora bandaríski flugheiinn og flug-
málayflrvöld í Vestmannaeyjum sammála um að ;
einungis kæmi til greina að lenda C-17 flugvél-
inni á austur/vestur flugbraut vallarins. Norð-
ur/suður flugbrautin kom ekki til gi-eina sökum
hindrana sem era beggja megin við hana.“
Alfarið ákvörðun flughersins
Vegna þess, sem segir í tilkynningu varnar-
liðsins um þátt flugmálayfirvalda, sendi Flug-
málastjórn síðan frá sér aðra tilkynningu,
svohljóðandi: „í tilefni af fréttatilkynningu J
upplýsingafulltrúa varnarliðsins, sem dagsett
er í dag, þai- sem fjallað er um lendingu C-17
flugvélar bandaríska flughersins á Vestmanna-
eyjaflugvelli, skal tekið fram að Flugmála-
stjórn eða starfsmenn stofnunaiánnar á flug-
vellinum tóku engan þátt í þeirri ákvörðun að
lenda C-17 flugvélinni á austur/vestur flug-
braut hans. Sú ákvörðun var að öllu leyti tekin
af bandaríska flughernum, þótt heimild til
lendingar væri að sjálfsögðu veitt frá flugturni |
vallarins."