Morgunblaðið - 12.09.1998, Page 12
12 LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landlæknir gagnrýnir gagnagrunnsfrumvarp í umsögri til ráðuneytis
Yandséð hvernig tryggja
megi persönuvernd
Fegurðar-
drottning
Islands til
Japans
FEGURÐARDROTTNING
Islands, Guðbjörg Hennanns-
dóttir, heldur til Tókýó í Jap-
an nk. þriðjudag til að keppa
um titilinn Miss International
1998.
Miss International keppnin
hefur verið haldin síðan 1961
og minnast margir þess þegar
Guðrún Bjarnadóttir sigraði í
keppnini árið 1964. Var það
fyrsti sigur íslenskrar stúlku í
alþjóðlegri fegurðarsam-
keppni.
Urslitadagurinn er 26.
september en fram að þeim
tíma mun Guðbjörg dvelja í
Tókýó við undirbúning og
kynningar.
LANDLÆKNIR telur í umsögn
sinni um endurskoðað frumvarp um
gagnagi-unn á heilbrigðissviði að
þótt ýmis atriði horfi til bóta frá
upphaflegu frumvarpi sl. vor sé
markmið frumvarpsins eftir sem áð-
ur óljóst. Ekki komi fram með skýr-
um hætti hvaða upplýsingum eigi að
safna, hvernig hægt sé að samhæfa
óskilgreindar upplýsingar og með
hvaða hætti þær eigi að auka þekk-
ingu til þess að bæta heilsu- og heil-
brigðisþjónustu.
„Landlæknir er enn þeirrar skoð-
unar að fylgt verði fyrri stefnu heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
isins þess efnis að gögn varðveitist
þar sem þau verða til og forðast
verði að smíða einn miðlægan alls-
herjargagnagunn með heilsufars-,
ættfræði- og erfðaupplýsingum um
íslenska þegna, enda vandséð
hvernig tryggja megi persónuvernd
í slíkum gagnagrunni. Núgildandi
lög, sbr. einkum lög nr. 121/1989 um
skráningu og meðferð persónuupp-
lýsinga, II.-IV. kafla, lög um rétt-
indi sjúklinga og reglur eru full-
nægjandi fyrir gerð og vinnslu með
slíka gagnagranna á heilbrigðis-
sviði,“ segir í umsögninni.
Andvígur sérleyfi til handa
markaðsaðila
Landlæknir segir einnig að telji
löggjafinn engu að síður ástæðu til
að setja lög um miðlægan gagna-
gi-unn verði að taka tillit til fjöl-
margra sjónarmiða. Leggur land-
læknir eindregið til að í stað þess að
ráðherra skipi nefnd um gerð og
starfrækslu gagnagrunns eins og
frumvarpið gerir ráð fyrir, sem
landlæknir segir að sé á skjön við
gildandi lög og tilskipun Evrópu-
sambandsins um að handhafi lejrfis-
veitingavalds skuli vera óháður póli-
tísku valdi, þá verði landlækni þess í
stað falið hlutverk nefndarinnar og
embætti landlæknis eflt með deild
sérhæfðs starfsfólks til að sinna
þessum störfum.
Hann segir jafnframt nauðsyn-
legt að skýra nánar með hvaða
hætti sjúklingur getur hafnað þátt-
töku og hvernig farið sé með upp-
lýsingar um látna menn eða þá sem
ekki geta tjáð vilja sinn. Þá leggst
landlæknir eindregið gegn því að
markaðsaðila vei'ði veitt sérleyfi til
gerðar og rekstrar gagnagrunns á
heilbrigðissviði.
Landlæknir telur hins vegar
m.a. til bóta að frumvarpið geri nú
ráð fyrir að sjúklingi verði heimilt
að hafna því að upplýsingar um
hann fari í gagnagrunninn og að
lögin taki ekki til sjúkraskrárkerfa
einstakra heilbrigðis- og rann-
sóknarstofnana og gagnasafna
vegna vísindarannsókna á sjúk-
dómum.
S Morgunblaðið/Halldór
I nýju félagsheimili
FÉLAG eldri borgara tók í gær formlega í
notkun nýtt félagsheimili í Glæsibæ við Álf-
heima. Við hátíð, sem haldin var af því tilefni,
var flutt tónlist og fjölbreytt starf félagsins
kynnt gestum. Meðal þeirra var Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri, og hér stinga þau
Páll Gíslason, formaður Félags eldri borgara,
saman nefjum. Félagið og Reykjavíkurborg
sneru bökum saman um kaup á húsnæði undir
félagsheimilið.
Ríkisspítalar
vilja gagnagrunn
með skilyrðum
STJORNARNEFND Ríkisspítal-
anna segist geta fyrir sitt leyti fall-
ist á miðlægan gagnagi'unn á heil-
brigðissviði ef ströngum skilyrðum
um gerð og rekstur gagnagrunns-
ins verður fullnægt. Þetta kemur
fram í umsögn sem stjórnarnefnd-
in hefur sent heilbrigðisráðherra
um frumvarpið.
Sjúklingar hafi upplýst
val um þátttöku
Skilyrðin sem stjómarnefndin
telur nauðsynlegt að sett verði, eru
að sjúklingar hafi „upplýst val“ um
þátttöku í grunninun, að vandlega
verði skilgreindar þær upplýsingar
sem í grunninn fara og að Ríkisspít-
alar hafi áhrif á þá skilgreiningu, að
ekki verði unnt að rekja upplýsing-
ar til einstaklinga, að aðgangur að
grunninum verði háður leyfi vís-
indasiðanefndar og tölvunefndar og
aðgangur einkaleyfishafa, heilbrigð-
isráðuneytis og landlæknis sömu-
leiðis, að vörsluaðili sé annar en
rekstraraðili og að gagnagrunnur-
inn verði eign heilbrigðiskerfisins
að einkaleyfistímanum loknum.
Miðlægur gagnagrunnur margra
hluta vegna varhugaverður
I umsögninni bendir stjórnar-
nefndin á að miðlægur gagna-
grunnur sé margi'a hluta vegna
varhugaverður. Þar verði geymdar
mjög viðkvæmar upplýsingar um
sjúklinga og mörg álitamál geti
komið fram um meðferð þessara
upplýsinga. Dreifðir gagnagrannar
geti mjög líklega þjónað vísinda-
rannsóknum jafn vel. Miðlægur
gagnagnmnur hafi því fyrst og
fremst hlutverki að gegna í við-
skiptalegu tilliti.
Stjómarnefndin segist geta sætt
sig við veitingu einkaleyfís til notk-
unar og reksturs miðlægs gagna-
grunns, enda sé ljóst að veiting
slíks einkaleyfis feli í sér mikinn
fjárhagslegan ávinning fyrir heil-
brigðiskerfið.
Andlát
Svavar Gestsson tekur þátt í samfylkingu vinstri afla
ARNMUNDUR S.
BACKMAN
ARNMUNDUR S.
Backman, hæstarétt-
arlögmaður og rithöf-
undur, er látinn eftir
langvarandi veikindi,
55 ára að aldri.
Arnmundur fæddist
á Akranesi 15. janúar
1943, sonur hjónanna
Halldórs S. Baekman
og Jóhönnu D. Am-
mundsdóttur.
Hann lauk stúdents-
prófi'fl-á Menntaskól-
anum á Akureyi-i árið
1964 og embættisprófi
í lögfræði frá Háskóla
íslands árið 1970. Ammundur
stundaði framhaldsnám í vinnu-
málarétti við Oslóarháskóla 1970-
1971. Hann hlaut lögmannsréttindi
árið 1976 og hæstaréttarlögmanns-
réttindi árið 1984.
Arnmundur starfaði sem fulltrúi
í sjávarútvegsráðuneytinu frá 1971
til 1976 er hann hóf rekstur eigin
lögfræðistofu sem hann rak til
dauðadags. Hann starfaði sem að-
stoðarmaður Svavars Gestssonar,
félags-, heilbrigðis- og
tryggingamálaráð-
herra, frá 1980-1983.
Hann gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum á
vegum rfldsins.
Ammundur skrifaði
talsvert um lögfræði-
leg málefni, m.a. bók-
ina Vinnuréttur, um
lög og rétt á vinnu-
markaði, ásamt Gunn-
ari Eydal.
Hann gaf einnig út
tvær skáldsögur: Her-
mann (1989) og Bönd-
in bresta (1990). Þriðja
skáldsaga Arnmundar, Almúga-
menn, kemur út fyrir jólin.
Þá skrifaði Arnmundur tvö leik-
rit, Blessuð jólin, sem leiklesið var
í Þjóðleikhúsinu árið 1997, og Mað-
ur í mislitum sokkum, sem var
framsýnt í febrúar á þessu ári, og
verður sýnt í Þjóðleikhúsinu í byrj-
un október.
Arnmundur lætur eftir sig eigin-
konu, Valgerði Bergsdóttur, og
þrjú böm.
Verðum að ljúka vinn-
unni í næsta mánuði
„FLOKKURINN hefur samþykkt
að stefna að sameiginlegu framboði
vinstri manna að uppfylltum ýms-
um skilyrðum og
ég vil ganga í
það af þrótti að
finna út hvort
hægt er að upp-
fylla þessi skil-
yrði því það er
öllum fyrir bestu
að fá botn í hlut-
ina,“ sagði
Svavar Gestsson alþingismaður í
viðtali við Morgunblaðið í gær.
Svavar tilkynnti félögum sínum á
fundi í Alþýðubandalagsfélagi
Reykjavíkur að hann væri hlynntur
samvinnu og myndi taka þátt í mál-
efnavinnu.
Svavar Gestsson sagði að mál-
efnavinna vegna hugsanlegs sam-
eiginlegs framboðs vinstri afla hefði
verið í gangi í sumar og hann hefði,
að beiðni formanns flokksins, Mar-
grétar Frímannsdóttur, ákveðið að
taka þátt í þeirri vinnu. Tekur
Svavar sæti í stýrihóp ásamt henni
og Jóhanni Geirdal og fulltrúum
hinna flokkanna.
„Það sem ræður ákvörðun minni
er meðal annars að ég vil fá botn í
þessi mál. Framundan er að skrifa
verkefnaskrá sem verður hið end-
anlega málefnaskjal og grundvöllur
samfylkingarinnar," segir Svavar
ennfremur og segir skjalið endan-
lega tekið til meðferðar á aðalfundi
miðstjórnar Alþýðubandalagsins
sem ráðgerður er í október.
Þingflokksfundur hjá
Alþýðubandalagi á mánudag
Svavar sagði marga flokksmenn
setja spurningai’merki við þessa
samvinnu en aðrir hefðu mikinn
áhuga á verkinu. „Þessi vinna verður
að klárast í næsta mánuði og menn
þurfa ráðrúm til að skoða framboðs-
málin sem verða flóknari í þessu
samhengi en venjulega ef af þessu
verður," sagði Svavai- Gestsson.
Steingrímur J. Sigfússon, Ög-
mundur Jónasson og Hjörleifur
Guttormsson hittust á fundi í gær til
að ræða um framtíð þeirra innan
þingflokks Alþýðubandalagsins og
óháðra. Steingrímur vildi í gær ekki
greina frá niðurstöðu fundarins.
Málið yrði rætt á þingflokksfundi
nk. mánudag, en það er fýrsti þing-
flokksfundur Alþýðubandalagsins
frá því að aukalandsfundur flokksins
var haldinn í byrjun júlí. Steingn'm-
ur sagði að starfið innan þingflokks-
ins í vetur yrði aðalmál fundarins.
Steingrímur sagði að ákvörðun
Svavars Gestssonar, að starfa
áfram innan Alþýðubandalagsins,
hefði engin áhrif á undirbúning að
stofnun nýrrar stjórnmálahreyfing-
ar á vinstra væng stjórnmálanna.
Sú vinna héldi áfram. Hann bætti
við að umhverfismál yrðu eitt af
meginmálum slíkrar hreyfingar, en
þau hefðu verið nokkuð utanveltu í
íslenskum stjórnmálum fram að
þessu.