Morgunblaðið - 12.09.1998, Page 14
14 LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998
AKUREYRI
MORGUNB LAÐIÐ
Svæðisvinnumiðlun Norðurlands eystra formlega opnuð
Mörg verkefni framundan
SVÆÐISVINNUMIÐLUN Norð-
urlands eystra hefur formlega ver-
ið opnuð í nýjum húsakynnum í
Alþýðuhúsinu við Skipagötu, en
hún hóf starfsemi sína 1. apríl
síðastliðinn í húsnæði vinnumiðlun-
ar Akureyrarbæjar við Glerárgötu.
Verulegar breytingar hafa orðið
á fyrirkomulagi opinberrar
vinnumiðlunar, sem áður var í
höndum hvers sveitarfélags fyrir
sig en ríkið hefur nú tekið við þess-
um málaflokkum og þar með er
landið orðið eitt vinnusvæði.
Helena Þ. Karlsdóttir, for-
stöðumaður Svæðisvinnumiðlunar
Norðurlands eystra, sagði við opn-
unina að mörg verkefni væru
framundan, m.a. verður síðar í
september farið af stað með starfs-
leitaráætlanir og námskeið verður
haldið fyrir konur í
samstarfi við Mennta-
smiðju kvenna. Þá
verður komið á fót
vinnuklúbbi, eins kon-
ar námskeiði til
leiðbeiningar fyrir fólk
í atvinnuleit.
Virk vinnumiðlun
Meðal verkefna
Svæðisvinnumiðlunar
er að aðstoða atvinnu-
leitendur við atvinnu-
leit og vinnuveitendur
við að útvega hæft
starfsfólk, teknar era
saman upplýsingar um
atvinnuástand, at-
vinnuleysi og atvinnuhorfur, upp-
lýsingar veittar um starfsval og
starfsmenntun, miðlað
er upplýsingum til út-
hlutunarnefnda at-
vinnuleysisbóta og eft-
irlit haft með að um-
sækjendur um at-
vinnuleysisbætur upp-
fylli skilyrði laga um
slíkar bætur.
A skrifstofu Svæðis-
vinnumiðlunar Norð-
urlands eystra eru 6
starfsmenn. Utan Ak-
ureyrar eru 13 skrán-
ingarstaðir.
Helena sagðist vona
að starfsemi skrifstof-
unnar skapaði virka
vinnumiðlun í kjör-
dæminu. „Það er markmið okkar
að þjónusta okkar verði fagleg og
Helena Þ.
Karlsdóttir
metnaðarfull og skili árangri sem
við getum verið stolt af,“ sagði hún.
Konur styrktar
til náms
Gissur Pétursson, forstjóri Vinn-
umálastofnunar, gerði grein fyi-ir
starfsemi stofnunarinnar og á
hvern hátt staðið hefði verið að
uppbyggingu hennar. Nefndi hann
að ánægjulegt væri að atvinnuá-
stand hefði verið jafngott og raun
ber vitni á uppbyggingartímanum.
Björn Snæbjömsson foiTnaður
stjórnar svæðisráðs sem starfar
með Svæðisvinnumiðluninni
greindi frá því að ráðið hefði
samþykkt drög að samningi við
Menntasmiðju kvenna um að
styrkja 15 konur til náms nú í
haust og sagði það gleðileg tíðindi.
Kalsaveður við komu síðasta skemmtiferðaskips sumarsins
Ævintýri fyrir
farþegana
Morgunblaðið/Kristján
Messur
AKUREYRARKIRKJA:
Guðsþjónusta á morgun kl. 11.
Sr. Birgir Snæbjörnsson mess-
ar. Fyrsti „mömmumorgunn"
vetrarins verður næstkomandi
miðvikudag, 16. september frá
kl. 10 til 12. Gengið er inn um
kapelludyr. Hjónanámskeið í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju næstkomandi föstudag,
18. september frá kl. 20 til 23.
GLERÁRKIRK J A:
Kvöldguðsþjónusta verður í
Lögmannshlíðarkmkju sunnu-
dagskvöldið 13. september kl.
21. Sr. Gunnlaugur Garðarsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund í kvöld, laugardag
kl. 20. Sunnudagaskóli fjöl-
skyldunnar kl. 11.30. Biblíu-
kennsla fyrir alla aldurshópa,
G. Theodór Birgisson. Léttur
hádegisverður á vægu verði kl.
12.30. Sama dag kl. 20 verður
samkoma í umsjá Exodus frá
Svíþjóð. Fjölbreyttur söngur,
predikun, ísraelskir dansar, fyr-
irbænaþjónusta og fleira.
Barnapössun fyrir börn yngri
en 6 ára. Heimasíða Hvíta-
sunnukirkjunnar er
www.gospel.is og Vonarlínan,
sími 4621210, símsvari allan
sólarhringinn með uppörvunar-
orð úr ritningunni.
Jarðvinna við Háskól-
ann á Akureyri
Framkvæmdir við
fyrstu nýbygging-
ar skólans
FYRIRTÆKIÐ GV Gröfur átti
lægsta tilboð í jarðvinnu vegna fram-
kvæmda við 2. áfanga Háskólans á
Akureyri á Sólborg. Tilboðið hljóðaði
upp á tæpar 3,2 milljónir króna sem
er 67% af kostnaðaráætlun en hún
var rúmar 4,7 milljónir króna.
Um er að ræða jarðvinnu undir
fyrstu nýbyggingar skólans sem eru
um 2.000 fermetrar og munu hýsa
kennslustofur, aðstöðu fyrir verk-
lega hjúkrun og iðjuþjálfun og skrif-
stofur og tengjast eldri húsum skól-
ans með tengigangi. Jarðvinnu skal
lokið fyrir 1. desember nk. en hönn-
un bygginga verður lokið í árslok.
G. Hjálmarsson hf. bauð tæpar
3,3 milljónir króna í verkið, eða rúm
69%, Hafnarverk ehf. bauð um 3,5
milljónir, eða tæp 74% og Afl ehf.
bauðst til að vinna verkið fyrir rúm-
ar 4,7 milljónir, sem er 99% af
kostnaðaráætlun.
AKSJÓN
Laugardagur 12. september
12.00Þ-Skjáfréttir
17.00ÞEndursýndur umræðuþáttur
frá síðasta fimmtudegi.
21.00ÞKvöldljós Kristilegt efni frá
sjónvarpsstöðinni Omega.
SÍÐASTA skemmtiferðaskip
sumarsins sigldi inn heldur
kuldalegan Eyjafjörðinn í gær-
morgun. Skipið „Vision of the
See“ var með um 2.000
farþega innanborðs. Þetta er
stærsta skipið sem komið hef-
ur til Akureyrar í sumar, 280
metra langt og 74 þúsund
tonn. Hingað kom það frá
Þórshöfn í Færeyjum og hélt
síðdegis í gær áleiðis til
Reykjavíkur en þaðan liggur
leiðin vestur um haf.
„Þetta er hreint ævintýri
fyrir farþegana. Þeir sjá
snjóinn í fjöllunum og rétt fyr-
ir neðan snjólínu eru iðagræn
tún. Þeir skilja þetta ekki,“
sagði Gunnar Arason hjá
Hafnarsamlagi Norðurlands,
KENNSLA í Tónlistarskólanum á
Akureyri hefst mánudaginn 14.
september nk. Helstu nýjungar í
starfsemi skólans þetta skólaár
eru þær, að nú verður í fyrsta
skipti boðið upp á kennslu í
hörpuleik. Þá verður sérstök
áhersla lögð á óperutónlist í vet-
ur.
Forskólakennslan hefur nú al-
farið verið færð út í grunnskóla
bæjarins og er skyldunám í 1. og 2.
bekk. Þá færist hljóðfærakennsla á
fyrstu stigum hægt og bítandi út í
grunnskólana. Það sem helst kem-
ur í veg fyrir þann flutning eru
húsnæðisþrengsh á starfstíma
grunnskólans eftir að hann varð
einsetinn.
Sú breyting hefur orðið á yfír-
stjórn skólans, að í stað rekstrar-
stjóra, Gunnars Frímannssonar,
en viðurkenndi að vissulega
væri hundleiðinlegt að taka á
móti svo stórum hópi útlend-
inga í leiðindaveðri gærdags-
ins. Margir brugðu sér bæjar-
leið, fóru í skoðunarferð að
Mývatni, eða stöldruðu við hjá
Goðafossi, en aðrir fóru í regn-
gallann og gengu um í
miðbænum líkt og þessir sem
ljósmyndari festi á filmu.
Alls komu 28 skemmtiferða-
skip til Akureyrar í sumar,
nokkru færri en síðustu tvö ár
á undan þegar þau urðu 35 og
38, en Gunnar sagði að nú
væru stærri skip en áður farin
að hafa viðkomu á Akureyri.
Giskaði hann á að farþegar
með þessum skipum væru á
bilinu 16 til 18 þúsund talsins.
Áhersla á
óperutónlist
í vetur
sem lét af störfum sl. vor, hefur
Magna Guðmundsdóttir verið
ráðin aðstoðarskólastjóri. Skóla-
stjóri er Atli Guðlaugsson.
Kennari á hörpu í vetur verður
Marion Herrera en hún á að baki
háskólanám í hörpuleik í Frakk-
landi og hefuiy starfað víða sem
hörpuleikari. í söngdeild mun
starfa sérstök óperudeild undir
stjórn Jóhanns Smára Sævars-
sonar óperusöngvara, sem jafn-
framt er nýr deildarstjóri söng-
deildar.
Hjartasérfræðingur
við FSA á förum
Leitum
lausna
HALLDÓR Jónsson framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri sagði að lausna væri nú leitað í
kjölfar þess að annar af tveimur
hjartasérfræðingum við sjúkrahúsið
er á förum innan skamms.
Aðeins einn hjartasérfræðingur var
starfandi við FSA um tíma og álagið
því afar mikið, þannig að það var for-
gangsverkefni að ráða annan. Það
náðist og tók nýr hjartasérfræðingur
til starfa í byrjun sumars. Persónuleg-
ar aðstæður ráða þvi að hann hefur nú
ákveðið að láta af störfum.
„Þetta er nokkuð sem við ráðum
ekki við, en erum að vinna í því að
leysa málið, skoða hvaða möguleikar
eru í stöðunni. Ég er hæfílega
bjartsýnn á að lausn fínnist og vona að
okkur takist að leysa þetta mál fljótt,“
sagði Halldór.
Óperugalakvöld og heil ópera
meðal verkefna
Eftir nám hér á landi fór Jóhann
í framhaldsnám við sameiginlega
óperudeild Royal College og Royal
Academy of Music í London. Að
loknu einsöngvaraprófi réðst hann
til starfa við óperuhúsið í Köln í
Þýskalandi, þar sem hann hefur
stariað undanfarin þrjú ár.
Verkefni söngdeildar verða
m.a. óperugalakvöld, sem kór
skólans og einsöngvarar munu
taka þátt í ásamt öðrum og svo
heil ópera að vori. Einnig er
stefnt að Master Class í ár og
fleira. Kennarar söngdeildar eru
auk deildarstjóra þau Michael J.
Clarke og Sigríður Elliðadóttir.
Undirleikari deildarinnar er Ric-
hard J. Simm.
Boðið upp á kennslu í hörpuleik í tónlistarskólanum
Aöalfundur Leik-
félags Akureyrar
Valgerður
endur-
kjörin for-
maður
VALGERÐUR Hrólfsdóttir
bæjarfulltrúi var endurkjörin
formaður Leikfélags Akur-
eyrar á aðalfundi félagsins í
vikunni. Birgir Karlsson var
kjörinn ritari stjórnar LA í
stað Ingvars Björnssonar og
Þráinn Karlsson var endur-
kjörinn meðstjórnandi.
Valgerður er jafnframt
formaður leikhúsráðs en auk
hennar sitja í ráðinu Þröstur
Ásmundsson, fyrir hönd bæj-
arins, og Sólveig Jónsdóttir
fyrir hönd starfsmanna LA.
Fjárhagserfiðleikar Leik-
félags Akureyrar hafa verið
nokkuð til umræðu síðustu
mánuði en málefni félagsins
eru nú til meðferðar hjá
menningarmálanefnd bæjar-
ins. I reikningum síðasta
starfsárs, frá ágúst 1997 til
júlí í ár, kom fram halla-
rekstur upp á um 10 milljónir
króna að sögn Valgerðar for-
manns og þá eru langtíma-
skuldir félagsins um 6 millj-
ónir króna.
8 milljónir fyrirfram
Valgerður sagði að félagið
hefði þegar fengið fyrirfram-
greitt frá bænum, um 8 millj-
ónir króna, af fjárveitingum
næsta árs. „Málefni félagsins
eru í vinnslu í bæjarkerfinu
og ekkert nema gott um það
að segja. Og þessi umræða,
eins og í menningarmála-
nefnd, verður vonandi líka til
þess að opna félagið enn
frekar."
Valgarður Baldvinsson,
fyrrverandi bæjarritari, var
gerður að heiðursfélaga LA á
aðalfundinum, fyrir vel unnin
störf í þágu félagsins en Val-
garður sat í leikhúsráði fyrir
hönd bæjarins í 11 ár.
Kór Akureyrar-
kirkju
Vetrar-
starfið að
hefjast
VETRARSTARF Kórs Ak-
ureyrarkirkju hefst næst-
komandi þriðjudag, 15. sept-
ember, og eru mörg
skemmtileg verkefni
framundan hjá kórnum. Þar
má nefna jólasöngva kórsins í
desember, kaffitónleika með
veraldlegu ívafi en stærsta
verkefnið í vetur verður tón-
leikar í apríl þar sem kórar í
Eyjafjarðarprófastsdæmi og
Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands sameina krafta sína og
flytja m.a. stóra messu eftir
Charles Counod.
í kórnum eru 50 félagar,
honum er skipt í fjóra messu-
hópa sem skiptast á að
syngja við messur, en einu
sinni í mánuði syngur kórinn
allur við messu sem og á
hátíðum og við sérstök
tækifæri.
Inntaka nýrra félaga verð-
ur í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju næstkomandi
mánudag, 14. september, frá
kl. 18 til 20. Nánari upplýs-
ingar er að fá hjá Eyþóri
Inga Jónssyni, stjórnanda
kórsins.