Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 12.09.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 47 C Svo mark verði á þessu takandi þá eru þetta svörin við augum ungs drengs sem að barna hætti vill ekki láta skuggann skemma ljósið. En hann heitir Hjalti. Kristín og Björn. Hún Minna okkar er dáin. Hugurinn reikar aftur í tímann. í Marteinstungu eru að alast upp sex systkini. Á næsta bæ, Bjálmholti, eru engin böm, þar býr fullorðið fólk. En það skiptir engu máli fyrir okkur, þama er ekkert kynslóðabil. Það er borin jöfn virðing fyrir öllum háum sem lágum, mönnum og dýr- um. Sendiferðir vora margar í stóram og smáum erindagjörðum og þá þutu litlir fætur niður túnið og yfir holtið. Svo var það hættulegasti farar- tálminn, blindhæðin á Bjallanum. Þegar yfir hana var komið voi’um við hólpin. Bankað, hlustað eftir léttu fótataki. Ekki þurfti að gera boð á undan sér. Systurnar í Bjálm- holti voru örugglega heima. Síðan opnaðist hurðin. Andlitið bjai’t, brosið blítt, og faðmurinn opinn. Okkur var boðið til stofu meðan Minna töfraði fram heimsins besta kakó eftir leyniuppskriftinni sinni og ótal sortir sætabrauðs voru bornar fram. Öllu þessu vora gerð góð skil undir léttu spjalli. Þá var boðið í betri stofu, þar sem Minna settist við orgel og þá Ijómuðu and- litin. Spilað var ljúft, okkur kennd lög, ný lög, nýir textar. Einnig spilaði Minna fyrir okkur á harmonikkuna sína eða fallegu silfurlituðu flautuna. Hún var jafn- víg á þetta allt. Þá heilluðust litlar sálir af hinum fallega grammófóni sem gaf frá sér minnisstæða hljóma. Mikil tilhlökkun var er jólin nálg- uðust. Jólakortin hennar Minnu með öllum fallegu myndunum og rauða jólastimplinum. Hvernig gat hún búið þau til? Jólaboðin árvissu með jólatré og söng. Við börnin fundum það að við vorum alltaf vel- komin. Þessum hlýju minningum um Minnu gleymum við aldrei. „Það er eins og gerst hafi í gær.“ Blessuð sé minning hennar. Systkinin frá Marteinstungu. nái að lækna sárin. Við hugsum hlýtt til konu sem var okkur öllum svo dýrmæt. Brynja Baldursdóttir. Anna ljósmóðir verður borin til hinstu hvílu í dag. Ég hefði svo gjarnan viljað fylgja henni til graf- ar, en því miður getur það ekki orðið, þar sem ég dvelst á erlendi'i grund. En hugurinn verður á Blönduósi í dag með ykkur, ættingj- um og vinum Ónnu. Það eru tuttugu ár síðan ég kynntist Önnu og Hauki á Röðli. Þau kynni hafa verið mér og fjölskyldu minni afar dýrmæt. Anna var einstök manneskja. Hún var sannur mannvinur, einstaklega hlý í mannlegum samskiptum, og hafði innri ró og jafnvægi, sem smitaði út frá sér. Anna var ljósmóðir Austur-Húnvetninga í áratugi. Hundruðum Húnvetninga hefur hún hjálpað í þennan heim. Hún aðstoðaði mæður við fæðingu og sængurlegu af sérstakri fag- mennsku. Ég hef því miður ekki tölu á öllum þeim fæðingum, sem við Anna unnum við í sameiningu. Samstarf okkar var alltaf ánægju- legt. Fæðingarnar voru okkur og mæðrunum langoftast ljúfar, en stundum erfiðar og fullar sársauka. Það var sama á hverju gekk, hvað viðkom meðgöngu og fæðingu, Anna var sem klettur, úraæðagóð, nærgætin en þó ákveðin. Hún var ljósmóðir af guðs náð. Ég kveð Önnu vinkonu mína og fyrrverandi samstarfskonu með söknuði. Hún var mér kær. Hún hefur nú fengið hvíld eftir langa og erfiða bai'áttu við illvígan sjúkdóm. Góðar minningar lifa. Við fjölskyldan sendum Hauki, Lilju, Sesselju og öllum aðstand- endum okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Böðvar Örn Siguijónsson. RAGNAR SMÁRASON + Ragnar Smára- son fæddist í Reykjavík 31. des- ember 1975. Hann lést 1. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 9. september Á stundum sem þessum geta fá orð lýst líðan minni. Mað- ur reynir að hugga sig með því að rifja upp orðtak eins og að þeir sem guðimir elska deyi ungir en þvílíkar útskýr- ingar duga skammt. Það er svo óraunverulegt að lífið geti breyst svona á svipstundu við það eitt að heyra nokkur orð, lík þeim sem báru manni þessar harmi þnxngnu fréttir. Það er ei'fitt að sjá á eftir Ragga. Hann var drengur sem maður bjóst við að hafa ætíð sér við hlið. Þegar á reyndi var Raggi kominn manni til bjai'gar áður en hendi var veifað og hann hugsaði sig aldrei tvisvar um er maður þurfti á hjálp að halda. Allir ei'fið- leikar huxfu eins og dögg fyrir sólu er bros hans birtist. Það er eins og það hafi slokknað á vita er stýrði manni til hafnar fram hjá klettóttri strönd. Mér finnst ég bara hafa verið að spjalla við hann rétt áðan, um framtíðina, um vonir, um ham- ingjuna. Maður hugsar með sér að lífið geti bai-a ekki verið svona, að hann Raggi hafi vei'ið tekinn svona frá okkur. Takk Raggi, þú varst alltaf svo góðui; við mig og alla í kringum þig. Ég þakka fyrir allar stundirn- ar sem við áttum saman þó þær hafi verið styttri en ég hefði viljað og þú verður alltaf hjá okkur í hug- anum. Ég mun sakna þín sárt. Elsku Nanna, Smári og Edda Ósk, megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg og ég vona að sársaukinn mildist en að minning- arnar um yndislegan dreng lífi í hjörtum ykkar líkt og þær gera í mínu. Hverfúi' sól að ægisós aldan ki'appa stynur. Eg skal kveikja kertaljós hjá hvílu þinni \inur. Eg skal vaka og vagga þér vært á söngsins öldum. Handan vöku athvarf er allra á dimmum kvöldum. Við þér brosa blóma-lönd björt í töfrum sínum. Þegar lítil ljúflingshönd lokar augum þínum. Gleymdu hörmum horfins dags húmið frá þér víki. Svífðu á vængjum ljóðs og lags ljúft um draumsins ríki. (Rósberg G. Snædal.) Dagný. Kæri vinur okkar og starfsmað- ur. Það er ótrúlegt að þú skulir vera farinn frá okkur og sárt til þess að hugsa, að samverustund- irnar verði ekki fleiri. Þótt þú hafir aðeins verið hjá okkur í sex mán- uði, og kynni því ekki löng, voru þau í alla staði mjög ánægjuleg. Betri dreng og samviskusamai'i starfsmann er vart hægt að hugsa sér og erum við þakklát fyrir að hafa fengið að njóta þín þennan tíma. Við biðjum guð að styrkja fjöl- skyldu þína. Veiteg, hvarvonöll og veröid mín glædd er guðs loga. Hlekki brýt eg hugar og heilum mér fleygi faðm þinn í. (Jónas Hallgr.) Elsku Raggi, takk fyrir aUt. Vala, Guðjón og Bjarni Þór, Gv. heildverslun. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 669 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega iínulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn, ÓLI GEIR HÖSKULDSSON, Hlíðarhjalla 68, Kópavogi, lést af slysförum fimmtudaginn 10. septem- ber. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Höskuldur Pétur Jónsson, Theodóra Óladóttir, Signý Höskuldsdóttir, Dagný Ásgeirsdóttir, Óli Geir Þorgeirsson, Ása Þórarinsdóttir, Kristrún Magnúsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför FRIÐRIKS SÓLMUNDSSONAR, Stöðvarfirði. Solveig Sigurjónsdóttir, Sigurjón Friðriksson, Kristín Jóhannesdóttir, Sólrún Friðriksdóttir, Ríkharður Valtingojer, Áslaug Friðriksdóttir, Garðar Harðarson, Sólmundur Friðriksson, Guðrún Rakel Brynjólfsdóttir, Solveig Friðriksdóttir og barnabörn. + Móðir mín góð, tengdamóðir, amma og systir, SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR frá Bakka, áður Grundartúni 2, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánudag- inn 14. september kl. 14. Birna G. Hjaltadóttir, Gísli H. Sigurðsson, Hjalti, Þorbjörg og Halldór, Halldór Einarsson. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HANSÍNA JÓNSDÓTTIR, Lyngholti 20, Akureyri, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Hlíð, Akur- eyri, miðvikudaginn 9. september, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 14. september kl. 13.30. Aðalsteinn Ólafsson, Sigfús Aðalsteinsson, Ragnheiður Baldursdóttir, Guðmundur I. Gestsson, Júlfana Tryggvadóttir, Hekla Gestsdóttir, Hörður Júlíusson, Halldór Gestsson, Sigurður Gestsson, Ingibjörg Jósefsdóttir, Björn Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, MARGRÉT ÍSÓLFSDÓTTIR, sem andaðist þann 4. þ.m., verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 15. septem- ber nk. kl. 13.30. Þuríður Haraldsdóttir, Snorri Ólafsson, Haraldur Snorrason, Ingólfur Snorrason. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BJARNDÍSAR TÓMASDÓTTUR, Miklubraut 54. Sigrfður Gísladóttir, Páll Sigurjónsson, Ólafur Gíslason, Gerða S. Jónsdóttir, Helgi Gíslason, Kristín Gísladóttir, Aðalsteinn Hallgrfmsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför JÓNS MAGNÚSSONAR, Hávarsstöðum. Sigríður Beinteinsdóttir, synir og aðrir vandamenn. + Þökkum samúð og hlýju við andlát og útför JENS SKARPHÉÐINSSONAR frá Oddsstöðum, Austurbrún 4. Fyrir hönd aðstandenda, Edda Magnúsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.