Morgunblaðið - 12.09.1998, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1998 59 *
FÓLK í FRÉTTUM
BRYNDIS Garðarsdóttir og
Helga Barðadóttir fóru fram í
anddyri til þess að fá ferskt
loft.
KOLBRÚN Ólafsdóttir og
Anna Lóa Ólafsdóttir í
síuu fínasta pússi.
ÁSTA Sölvadóttir, Anna
Katrín Einarsdóttir, Ingi-
björg Bjarnadóttir, Anna
J. Sævarsdóttir, Þórunu
Marinósdóttir og Elísabet
Björgvinsdóttir.
AÐALSTEINN Björnsson, Jóhanna Runólfsdóttir, Hallmundur Hall-
grímsson og Steinar Guðnason settu í stuðgírinn.
1.200 manna sveita-
ball Stuðmanna
ÞORSTEINN og Sigríður tóku
sér smáhvfld frá dansinum.
LOKABALL Stuðmanna um
helgina var auglýst sem sveita-
ball en sumum þótti yfírskriftin
„svitaball" eiga betur við enda
var dansað uppi á stólum og
borðum fram á rauða nótt.
Ballið var haldið í Félagsheim-
ilinu á Seltjarnarnesi og var inn-
angengt í íþróttasalinn þar sem
tónleikar Stuðmanna fóru fram.
DJ Herb Legowitz kom einnig
fram í íþróttahúsinu ásamt fleir-
um og Grettir Björnsson spilaði á
harmóníku á sviði Félagsheimil-
isins.
1.200 manns á öllum aldri
sóttu ballið, jafnt Seltirningar
sem aðrir íbúar af höfuðborgar-
svæðinu enda eru Stuðmannalöjg-
in löngu orðin að þjóðlögum á Is-
landi og þykja Stuðmenn hafa
víðari skírskotun en aðrar dæg-
ursveitir.
Þetta er í fyrsta skipti sem svo
margir mæta á ball á Nesinu.
„Það var rosa stuð og umgengnin
frábær,“ segir Nanna Björg
Benediktsdóttir, sem rekur
Veisluþjónustu viðskiptalífsins í
Félagsheimilinu ásamt manni
sínum, Guðmundi Birgi Stefáns-
syni. „Stemmningin var alveg
frábær.“
Hilmar Sverrisson
heldur uppi léttri og góðri stemningu
á Mímisbar.
-þín saga!
„Alþýðlegir“ manndráparar
OPRAH Vinfríður er glæsileg
bandarísk blökkukona, sem
spjallar við fólk í vinsælum sjón-
varpsþætti vestra, en er m.a.
kunn fyrir leik í kvikmyndinni
Color Purple. Hún tekur fyrir
ákveðin viðfangsefni í þáttum sín-
um og lætur sér fátt eitt óviðkom-
andi. Um síðustu helgi ræddi hún
um eina af þessum undrapillum,
sem eiga að færa fólki náttúruna
að nýju hafi það tapað henni
vegna meiðsla, barneigna, aldur-
dóms eða legnáms. Oprah Vin-
fríður fór léttilega í gegnum allan
Viagra-skalann, en svo heitir pill-
an, sem hefur
orðið ýmsu fólki
gleðigjafi, jafnt
konum sem körl-
um. Umræðurnar urðu svo
djarfar í sjónvarpssal, að janfvel
Vinfríði varð að orði: „Ja hérna:
Og þetta segja menn bara í sjón-
varp,“ þegar hjón voru himinlif-
andi að lýsa Viagra-kynlífi sínu.
Um hundrað manns voru í áhorf-
endasal og tveir læknar til halds
og trausts við leiðbeiningagjöf.
Þeir upplýstu að pillan gæti að
vísu verið hættuleg fyrir þá, sem
ættu við hjartamein að stríða, en
þeir gætu tekið veika pillu, 25 mg.
100 mg væru handa eflingsfólki,
en algengust væri 50 mg pilla. Ja,
fyrir öllu er nú séð í veröldinni.
Fyrir utan þátt Oprah Vinfríð-
ar sýndi Stöð 2 óvenjulega breska
kvikmynd um helgina, tvö kvöld í
röð. Hún hét Oboðnir gestir.
Bretar eru sæmilegir draugatrú-
armenn og var ekki við öðru að
búast en þarna væri á ferðinni ein
ef þessum klassísku draugasög-
um þeirra. En svo var því miður
ekki, heldur einhver kjamorku-
heimsvella upp á nútímann, nokk-
urs konar innrás frá Mars séð aft-
an frá og snerti hvergi „eðlilegan"
draugagang. Islendingar eru eðli-
Iega dálítið vandlátir á drauga-
sögur. Þeir voru aldir upp við þær
öld fram af öld, allt frá tímum
Fróðárundra til Baulárvallabrest-
anna. Húskuldi og myrkur bætti
því sem þurfti við ógnir gátta og
gímalda. Jafnvel tröll og álfar
vora kallaðir til,
eins og glitvefnað-
ur á allan drauga-
flokkinn. Nú er
farið að kortleggja
álfalönd. Næst verða líklega ein-
hverjir til að mæla fyrir trölladöl-
um og finna slóð Gissurar í Botn-
um á milli byggða. Mynd Bret-
anna um hina óboðnu má líta á
sem aðfór að góðri og gildri
draugatrú. Vilji fólk fara að gera
eitthvert stáss með kjarnorkuna
og manninn endurborinn í kjarn-
orku þá tengist það miklu fremur
hinum straumlínulöguðu gildum,
sem postular á borð við Billy Gra-
ham og Benny Hinn eru að boða.
Þá kemur að þeim sjónvarps-
þætti frá síðustu helgi sem yfir-
skyggir bæði Vinfríði og Viagra-
pilluna og allan draugagang fyrr
og síðar. Þetta var þáttur í ríkis-
kassanum um sjálfan Lenín, hinn
rauða alföður vinstrimanna, en
hann var leiddur fram á skjáinn
af fyrrverandi ritstjóra Þjóðvilj-
ans, sem tókst að afflytja flest
mál á meðan hann var á dögum,
og hafði að bakhjarli tvö heims-
veldi og að auki stærstu peninga-
stofnun íslands sem útgáfufélag.
Samt lognaðist hann út af sokk-
inn í mannvonsku og hatur. Þátt-
urinn um Lenín í þýðingu og
flutningi Árna Bergmann sagði
áhorfendum engin ný tíðindi um
þennan agent Vilhjálms II Þýska-
landskeisara. Það voru heldur
engin ný tíðindi, þegar gömul
kona, fyrrum Sovétþegn, lýsti því
yfir að hún hefði, eftir að hafa
kynnt sér skjöl eftir Lenín, ekki
geta séð annað en hann hafi skip-
að fyrir um endalaus manndráp,
fangelsanir og játningar með
pyndingum.
Þessi stórdrápari var sem sagt
geymdur smurður í áratugi í graf-
hýsi á torgi í Moskvu, virtur og
elskaður af rússnesku þjóðinni að
sögn, nema þeim sem fundu sann-
leikann í Gulaginu eða Lubjanka,
þar sem ekki vai- nennt að hafa of
mikið fyrir játningum sumra. Þeir
voru einfaldlega skotnir í bakið á
löngum göngum fangelsisins, sbr
Sudoplatov, samkvæmt skipunum
arftakans, Stalíns, sem var sami
manndráparinn og Lenín. Það er
von að vinstrimenn haldi enn á
loft merkjum „hins smurða“ og
vinni síðan kosningar hist og her í
hans nafni af því þetta var allt svo
alþýðlegt.
Indriði G. Þorsteinsson
SJONVARPA
LAUGARDEGI
jafnvel
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GUÐRÚN Viktoría, Svava Grímsdóttir og Vildís Björgvinsdóttir voru
að koma úr gæsateiti og Kristín Bergmann tók á móti yfirhöfnum
4þeirra.
ÞAÐ VIRÐIST vera óþijótandi lagaval sem Stuðmenn geta hrist fram
ur erminm.
JAZZHÁTÍÐ
REYKJAVÍKUR
Stórtónleikar
Stórsveitar Reykjavíkur
á Hótel Sögu
í kvöld kl. 21:00
Stjórnandi:
Daniel Nolgárd.
Einleikari:
Sigurður Flosason
Dansleikur
að loknum tónleikum
Miljónamæringarnir,
Bjarni Ara og
Ragnar Bjarnason
Miðasala við innganginn.
Prúttsala
ÍUNO
Opið fra kl.10-12
aðeins í dag laugardag
IINO
D A N N A R K