Morgunblaðið - 25.09.1998, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stofnfundur Frjálslynda flokksins áformaður í nóvember
Tekur tvö ár að komast
út úr núverandi kerfi
SVERRIR Hermannsson segir að
það taki a.m.k. tvö ár að komast út
úr núverandi fiskveiðistjórnkerfi,
en út úr því verði menn að komast.
Það kunni að vera að „handstýra"
verði kerfinu fyrstu árin, en Frjáls-
lyndi flokkurinn, sem áformað er að
stofna í nóvember, vilji að komið
verði á frjálsu markaðskerfi í við-
skiptum með aflaheimildir þar sem
greitt verði eðlilegt afgjald til þjóð-
arinnar.
Sverrir kynnti stofnun Frjáls-
lynda flokksins á fundi með blaða-
mönnum í gær ásamt forystumönn-
um í Samtökum um þjóðareign. Þar
var kynnt yfirlýsing um megin-
stefnu framþoðsins. Svenir sagði
að meginverkefni flokksins yrði að
koma þjóðinni út úr því fiskveiði-
stjórnkerfi sem komið hefði verið á
fót. Hann gagnrýndi kerfið harð-
lega og sagði að það einkenndist af
sóðaskap og siðspillingu.
„Við þurfum tíma til að komast út
úr þessum ósköpum og við höfum
ætlað okkur a.m.k. tvö ár. Hug-
myndin er að gefa veiðar á hand-
færi og línu alfrjálsar innan 30-50
mílna. Við viljum gera kröfu til þess
að skipunum verði gert skylt að
koma með allan afla að landi. Við
viljum að togarar haldi sig utar, en
teljum koma til greina að minni tog-
arar fái að veiða á bilinu 30-50 mfl-
ur. Raunar teljum við að krókaveið-
arnar ættu að vera frjálsar í allri ís-
lenskri landhelgi þangað sem menn
geta og vilja sækja. Þetta myndi lík-
lega leiða til þess að kvóti á stærri
togurum yrði skertur," sagði Sverr-
ir.
Afgjald til þjóðarinnar
Sverrir tók fram að hann væri
ekki sérstakur talsmaður auðlinda-
gjalds í sjávarútvegi, en það væri
eðlilegt að þjóðin fengi eðlilegt af-
gjald af eign sinni. Hann sagðist
ekki vera að tala um sama gjald og
greitt væri fyrir þorskkvóta í dag,
þ.e. 85-90 kr. kg. fyrir leigu og 870
kr. kg. í varanlegri sölu. Hugmynd-
in væri að koma á frjálsu markaðs-
kerfi með viðskipti með aflaheimild-
ir eftir tvö ár. Ríkið myndi hins veg-
ar eiga og stjórna auðlindinni í um-
boði þjóðarinnar.
Sverrir sagði að hugmyndir sínar
um verð fyrir þorskkvótann væru
Morgunblaðið/Kiistinn
JÓN Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Bárður Halldórsson, varaformaður Samtaka um þjóðareign
og Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri kynntu stofnun Fijálslynda flokksins og stefnu hans.
25-30 kr. kg. Þarna væri vissulega
um talsverðar upphæðir að ræða
enda gerði hann sér vonir um að
með þessari gjaldtöku yrði hægt að
lækka tekjuskattinn. Hann sagði að
það yrði erfitt verk að snúa ofan af
þessu kerfi og því gæti svo farið að
það yrði að handstýra kerfinu til að
byrja með. Hann sagðist hins vegar
vera sannfærður um að minni bátar
og minni útgerðarstaðir yrðu sam-
keppnishæfir í nýju kerfi.
Samtök um þjóðareign fjalla um
framboðið í október
Bárður Halldórsson, varaformað-
ur Samtaka um þjóðareign, sagði að
hugmyndir Sverris féllu vel að hug-
myndum samtakanna. Það væri
hægt að hugsa sér ýmsar útfærslur
á nýju stjórnkerfí í sjávarútvegi. Sú
hugmynd hefði verið rædd að setja
einfaldlega á aflagjald á allan land-
aðan afla. Aðalatriðið væri að kom-
ast út úr því gjafakvótakerfi sem
komið hefði verið á fót og afhenda
þjóðinni á ný þá eign sem hún ætti
og af henni hefði verið tekin.
Jón Sigurðsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, sagði að hug-
takið kvótakerfi væri ónothæft í
þessari umræðu. Það yrði að gera
greinarmun á kvótasetningunni og
kvótaúthlutuninni. Væntanlegt
framboð Frjálslynda flokksins hefði
á þessu stigi ekki tekið afstöðu til
þess hvort það ætti að raska kvóta-
setningunni, en framboðið væri hins
vegar algerlega á móti kvótaúthlut-
uninni.
Bárður sagði að stjórn Samtaka
um þjóðareign væri sammála um að
ganga til samstarfs við Sverri Her-
mannsson um framboð í næstu al-
þingiskosningum. I næsta mánuði
yrði haldinn aðalfundur samtak-
anna og þá yrði lögð fyrir fundinn
ályktun þar sem lýst væri stuðningi
við framboðið. Hann kvaðst gera
sér grein fyrir að einhver andstaða
yrði við þetta innan samtakanna
enda væru í þeim m.a. formaður Al-
þýðuflokksins og formaður Alþýðu-
bandalagsins og Pétur H. Blöndal
og Arni M. Mathiesen, þingmenn
Sjálfstæðisflokksins. Síðan sam-
starf við Sverri kom til tals hefðu 6
sagt sig úr samtökunum, en um 170
gengið í þau.
Nýr stjórnmálaflokkur
Á KYNNINGARFUNDI
hjá Frjálslynda flokkn-
um í gær var eftirfar-
andi yfirlýsingu dreift
til fulltrúa fjölmiðla:
„Stjórn Samtaka um þjóðareign
og fylgismenn Sverris Her-
mannssonar hafa tekið höndum
saman um stofnun stjórnmála-
flokks, sem gefið hefir verið
nafnið Fijálslyndi flokkurinn. Til
stofnfundar mun verða boðað í
nóvembermánuði nk. Flokkurinn
býður fram í öllum kjördæmum
landsins í næstu alþingiskosning-
um.
Fijálslyndi flokkurinn er
stjórnmálahreyfing sem leggur
áherzlu á fijálsræði, lýðræði og
jafnrétti þegnanna. Hann að-
hyllist frjálst markaðskerfi og
hafnar ríkisforsjá, þar sem því
verður við komið. Flokkurinn
hafnar með öllu hvers kyns sér-
réttindum og einokun, hveiju
nafni sem nefnast, en hefir frelsi
einstaklingsins og sjálfstæði til
orðs og athafna að leiðarljósi.
Fijálslyndi flokkurinn mun
móta stefnu í öllum helztu mála-
fiokkum þjóðmála. í upphafi
leggur hann ofuráherzlu á að nú-
verandi kerfí fískveiðastjórnar
verði þegar í stað varpað fyrir
róða. Þegnum landsins verði skil-
að aftur lögmætri eign sinni,
auðlindum til lands og sjávar, til
nýtingar og arðgjafar. Þetta tel-
ur flokkurinn brýnasta verkefni
íslenzkra stjórnmála, ella muni
úlfúð og sundurlyndi verða þjóð-
inni að örlagaríku fótakefli.
Létt verði af landbúnaði hinni
lamandi miðstýringu, sem riðið
hefir atvinnugreininni á slig.
Frjálslyndi flokkurinn leggur
mikla áherzlu á vernd náttúru
landsins um leið og auðæfi henn-
ar eru nýtt, svo sem vatnsorka
og jarðhiti. Varúðar skal gætt í
viðskiptum við stóriðjuhölda
heims og fyllsta aðgát höfð
vegna framkvæmda á því sviði,
enda verði stóriðja aukabúgrein
einvörðungu en ekki meginstoð.
Flokkurinn mun beijast af al-
efli gegn fijálshyggjunni, sem
tröllríður núverandi stjórnar-
fiokkum og Ieiða mun til þess á
örfáum árum, ef ekkert verður
að gert, að á Islandi búi tvær
stéttir, stétt örfárra auðmanna
og stétt bónbjargamanna, sem
allir hinir skipa.
Fijálslyndi flokkurinn mun
taka upp hanzkann fyrir minni-
máttar í þjóðfélaginu, sjúka,
aldraða og öryrkja. Heilbrigðis-
mál eru orðin skammarmál í
landi sem státar af velmegun
sem óvíða þekkist í veröldinni.
Kjörurn aldraðra og öryrkja hef-
ir hrakað á undanförnum árum
og mun flokkurinn beita öllum
kröftum til að fá hag þeira betur
borgið.
Flokkurinn berst fyrir jafn-
rétti kynjanna og krefst sam-
ræmingar launa kvenna og
karla. Kjör hinna lægri launuðu
verði bætt frá því sem nú er. At-
vinna til handa öllum er undir-
stöðuatriði.
Það er ófrávíkjanleg krafa
Fijálslynda fiokksins að ríkis-
sjóður verði rekinn hallalaus og
taumlausri skuldasöfnun hans til
fiölda ára þar af leiðandi hætt.
Bætt skólastarf og aukin æðri
menntun og tækni-
menntun eru frumskil-
yrði þess að Islendingar
verði í framtíðinni sam-
keppnishæfir við aðrar
þjóðir um afkomu og lífsgæði.
Frumskilyrði að betri skóla eru
bætt kjör kennarastéttarinnar.
Flokkurinn er fijálslyndur í
trúmálum að því leyti að öllum
trúfélögum sé gert jafn hátt und-
ir höfði. Fyrir því telur flokkur-
inn að aðskilnaður kirkju og ríkis
komi til greina.
Fijálslyndi flokkurinn minnir á
að fslendingar eru Evrópuþjóð og
vill að hún starfi með öðrum
þjóðum álfunnar á jafnréttis-
grundvelli. Bægt verði frá allri
erlendri ásælni í atvinnumálum
landsmanna eða íjármálum og
fordæmdar eru tilraunir ráða-
manna til sölu mikilvægra þjóð-
hagsþátta til erlendra auðjöfra.
Gengið verði hið fyrsta úr skugga
um hvaða staða Islandi býðst í
samstarfí Evrópulanda með tilliti
til auðlinda landsins sérstaklega.
Sé þess kostur að tryggja hags-
muni landsins nægjanlega í þeim
efnum er einsætt að ganga til
fulls samstarfs svo fljótt sem
kostur er.“
Rússneskir
verkamenn
boðnir til
starfa
STARFSMANNASTJÓRAR
verksmiðju breska sælgætis-
framleiðandans Cadbury í Rúss-
landi hafa sent Fiskmarkaði
Snæfellsness skeyti þar sem
boðnir eru til starfa rússneskir
verkamenn, vanir vinnu í mat-
vælaframleiðslu.
Fram kemur að orðið hafi að
hætta starfsemi í verksmiðjunni
vegna efnahagslegra og stjórn-
málalegra aðstæðna í Rússlandi.
Meðallaun sem greidd voru í
verksmiðju Cadburys eru sögð
hafa verið 300-350 dollarar á
mánuði. Verkamennirnir eru
sagðir vel menntaðir og ensku-
mælandi.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambands Is-
lands, sem kom skeytinu áfram
til fjölmiðla, segir að kjörin séu
sambærileg þeim sem starfs-
mönnum Technopromexport
hafi verið sagt að stæðu til boða.
„Það hlýtur að vera athyglis-
vert að í ráðuneytinu liggi marg-
ar umsóknir um atvinnuleyfi þá
sérstaklega frá fiskvinnsluhús-
um og þrýst á að þær verði af-
greiddar," segir í skeyti frá
Guðmundi.
Eldhamar á
flot af eigin
rammleik
LÍNUBÁTINN Eldhamar frá
Grindavík tók niðri rétt utan við
innsiglinguna við Grindavíkur-
höfn í fyrrinótt. Var báturinn á
útleið þegar bilun varð í stýri.
Einhverjar skemmdir urðu á
ski-úfu Eldhamars og þarf bátur-
inn að fara í siipp af þeim sökum.
Björgunarsveitin Þorbjörn og
lögreglan vora kallaðar til laust
fyrir klukkan 2 aðfaranótt
fimmtudags og fóru björgunar-
sveitarmenn á gúmbát bátnum
til aðstoðar. Eldhamar losnaði af
sjálfsdáðum og gat áhöfnin með
aðstoð félaga í Þorbimi komið
bátnum að bryggju á ný.
Sigurður Óli Hilmarsson, for-
maðui- Þorbjörns, sagði blíðu-
veður hafa verið í fýrrinótt og
enga hættu á ferðum. Aðgerðum
hefði verið lokið á innan við hálf-
tíma. Hann sagði sjálfvirkt út-
kallskerfi Slysavamafélagsins
enn hafa sannað gildi sitt, hringt
væri í símboða milli 15 til 20
manna og aðeins fáar mínútur
liðið þar til slöngubáturinn var
kominn á flot. Sagði hann meðal-
viðbragðstímann vera kringum 8
til 12 mínútur.
Arnastofnun
Tveir sækja
um stöðu for-
stöðumanns
TVEIR sóttu um stöðu for-
stöðumanns Stofnunar Árna
Magnússonar á íslandi, þeir Vé-
steinn Ólason prófessor og
Sverrir Tómasson vísindamað-
ur. Upphafstími ráðningar er í
janúar á næsta ári en þá lætur
núverandi forstöðumaður Ái-na-
stofnunar, Stefán Karlsson, af
störfum fyrir aldurs sakir. Um-
sóknarfrestur um stöðuna rann
út 7. júlí sl.
Menntamálaráðherra, Björn
Bjarnason, mun skipa í stöðuna
að fenginni umsögn sérstakrar
dómnefndar.