Morgunblaðið - 30.09.1998, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
OPEL Frontera-jeppinn var sýndur í fyrsta sinn.
SKODA Octavia-langbakur er rúmgóður og vel búinn bíll.
764 SÝNENDUR af 31 þjóðerni taka þátt í
alþjóölegu bílasýningunni í París sem
opnuð var fjölmiðlum í gær. Þar af er 61
framleiðandi fólksbíla, 16 framleiðendur
jeppa og um 384 framleiðendur varahluta
og fylgihluta. Sýningin er haldin í 100.
sinn í París.
Að þessu sinni eru kynntir 34 bflar eða
nýjungar af einhverju tagi, sem er
reyndar nokkru fleiri nýjungar en á
undangengnum sýningum. Mið- og suður-
evrópskir framleiðendur eru áberandi á
sýningunni og athygli vekja ítalskir
framleiðendur sem eru duglegir að
frumkynna bfla, þ.e. Fiat, Alfa Romeo og
Maserati.
Fjölskyldubfllinn
Zafira
Meðal nýrra bfla sem vekja athygli á
sýningunni eru sportbflamir Alfa Romeo
166 með 136-205 hestafla vélum,
framleiðslugerð Audi TT (180 hestafla, 4
strokka vél með forþjöppu), Maserati
Coupé (370 hestafla V8) og 400 hestafla
BMW M5.
Fyrir almenna bflkaupendur vöktu
athygli fjölskyldubflarnir Fiat Multipla og
Opel Zafira. Sá síðastnefndi er að koma á
markað í Evrópu en er væntanlegur til
Islands næsta vor, að sögn Hannesar
Strange, sölustjóra hjá Bflheimum,
umboðsaðila Opel. Bfllinn tekur sjö manns
í sæti í þremur sætaröðum og hefur
margbreytilegt notkunargildi þar sem
auðvelt er að færa fram miðjusætaröð,
fella sætisbök fram eða fjarlægja sætin
þannig að eftir verði aðeins framsætin.
Hannes segir að vonir standi til að hægt
verði að bjóða grunngerð bflsins á um 1,7
milljónir kr.
Skoda sýndi glæsilega Octaviu í
langbaksútfærslu með Ieðurklæðningu,
Ford kynnti Focus, arftaka Escort og
Toyota var með heimsfrumkynningu á
Bflasýningin í Parfs haldin í 100. sinn
Margir bílar frumsýndir
Meðal bíla sem kynntir eru á sýningunni er sjö manna
fjölnotabíll frá Opel sem væntanlegur er til Islands á
næsta ári og fjöldi nýrra smábíla, þ.á m. Smart,
Toyota Yaris, Peugeout 206 og VW Lupo. Guðjdn
Guðmundsson blaðamaður og Arni Sæberg
ljósmyndari kynntu sér það helsta á sýningunni.
SÉÐ yfír sýningarsvæðið. Fremst á myndinni er nýr Grand Cherokee.
smábflnum Yaris. Peugeot sýndi 206-
bflinn, sem kom á markað í Frakklandi í
fyrir rúmri viku, bæði í hefðbundinni
gerð en einnig sem sérútbúinn rallbfl með
fjórhjóladrifi og í groddalegri útgáfu af
fjalla- og ævintýrabfl. Báðir eru þó enn á
hugmyndastigi og óvíst um framleiðslu.
Volkswagen er með heimsfrumkynn-
ingu á tveimur bflum, Lupo-smábflnum og
Bora, sem kemur í stað Vento. Lupo er
3,5 m langur en tekur allt að fimm manns
í sæti. Minnsta vélin er 1 lítra, 50 hestafla.
Bora er hins vegar mitt á milli Passat og
Golf í stærð og virkar sportlegur og
traustur við fyrstu kynni. Bfllinn var
sýndur með 2,3 1, V5-vél, 150 hestafla,
með fjórum öryggisbelgjum, ABS-hemluin
og ESP-veltivörn.
Jepparnir
Heimsfrumsýning var á tveimur
jeppum, þ.e. Opel Frontera og Mitsubishi
Pajero Sport og einnig sást Grand Jeep
Cherokee í fyrsta sinn í Evrópu. Frontera
er í tveimur útfærslum, þrennra eða fimm
dyra og fáanlegur með nýrri fjögurra
strokka eða sex strokka vél. Einnig er
hann boðinn með nýrri 2,2 1 forþjöppu-
dísilvél. Hann er með rafstýrðu drifi og
hægt að setja hann í fjórhjóladrif á allt að
100 km hraða með því að þrýsta á hnapp í
mælaborðinu. Pajero Sport vakti athygli
Islendinga á sýningunni, því Pajero-
jeppinn í hefðbundinni útgáfu er nánast
hluti af íslensku landslagi. í Sport-
útgáfunni er bfllinn mun rennilegri, með
lægra húsi en smíðaður á grind, með
sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum og 150
hestafla V6-bensínvél. Þá var heimsfrum-
sýning á Suzuki Grand Vitara með 2 lítra
forþjöppudísilvél og Land Rover sýndi
nýja kynslóð Discovery sem er afar lítið
breyttur í útliti. Hann státar af nýrri
fimm strokka dísilvél með forþjöppu, 136
hestafla.
Judith Ingólfsson sigraði glæsilega í einni þekktustu keppni fíðluleikara
„Gerbreytir
lífi mínu“
Unfflim íslenskum fíðluleikara, Judith
Ingólfsson, hefur skyndilega skotið upp
stjörnuhimininn í tónlistarheiminum eftir
að hafa sigrað á sunnudaginn með glæsi-
brag eina virtustu keppni fíðluleikara
sem háð er 1 heiminum, Alþjóðlegu fíðlu-
keppnina í Indianapolis.
Judith Ingólfsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að keppnin
hefði farið þannig fram að upphaf-
lega sendu um 200 fiðluleikarar
alls staðar að úr heiminum inn
upptökur af fiðluleik sínum. Úr
þessum upptökum væru síðan
valdir 46 þátttakendur í sjálfa
keppnina sem stæði í tvær vikur
með þremur umferðum, for-
keppni, undanúrslit og úrslita-
keppni.
„Efnisskráin í hverri umferð var
að nokkru leyti fyrirfram ákveðin,
en þó gat maður valið á milli ein-
stakra verka,“ segir Judith. „Eg
lék sónötu eftir Bach, tvær etýður
eftir Paganini og eina eftir Deb-
ussy. I undanúrslitunum lék ég
Fouré-sónötuna eftir Beethoven,
JUDITH Ingólfsson hefur
skyndilega skotið upp í
sljörnuhimininn í tónlistar-
heiminum.
nýtt verk eftir Ned Rorem og
sónötu eftir Ysaye. I úrslitakeppn-
inni lék ég fiðlukonsert nr. 5 eftir
Mozart og fiðlukonsertinn eftir
Brahms."
Fiðlukeppnin í Indianapolis er
haldin á fjögurra ára fresti og hef-
ur vaxið mjög í áliti frá því hún var
fyrst haldin 1982. Verðlaunin eru
vegleg, 30 þúsund dollarar í pen-
ingum, upptökusamningur, tón-
leikar í Carnegie Hall í New York
og 30 tónleikar víðs vegar um
Bandaríkin og Evrópu. Júdith
hlaut einnig 1.000 dollara auka-
verðlaun fyrir bestu túlkun á Bach
í keppninni. Hún hefur áður unnið
til verðlauna í fiðlukeppni, m.a.
The Concert Artist Guild Comp-
etition í Bandaríkjunum íýrr á
þessu ári og í Paganim-keppninni í
Genúa í fyrra. „Indianapolis-
keppnin hefur mesta þýðingu fyrir
mig, því verðlaununum íylgja svo
stórkostleg tækifæri til spila á tón-
leikum næstu tvö árin. Þátttaka í
svona keppni er tækifæri til að
spila dásamlega tónlist og ég átti
ekki von á því fyrirfram að vinna.
Ég hugsaði samt sem svo að ef
mér tækist að spila framúrskar-
andi vel þá ætti ég nokkra mögu-
leika. Mér fannst mikill heiður að
komast í úrslitakeppnina og þegar
tilkynnt var um niðurstöður henn-
ar var ég mjög hissa. Ég er auðvit-
að afskaplega hamingjusöm yfir
þessu öllu saman,“ segir Judith.
Hlakkar til
Islandsferðar
Aðspurð um hvaða þýðingu
þetta eigi eftir að hafa fyrir hana,
segist hún varla vera farin að gera
sér fulla grein fyrir því enn. „Það
er svo stutt síðan keppninni lauk
og ég er rétt að byrja að átta mig.
Tónleikarnir í Carnegie Hall verða
eftir u.þ.b. ár og í vetur eru einir
15 tónleikar framundan en ég veit
ekki ennþá hvar eða nákvæmlega
hvenær þeir verða. Síðan er verið
að tala um upptökur á tveimur
geisladiskum. Það er alveg ljóst að
þetta á eftir að gerbreyta lífi mínu
næstu tvö árin, því fyrir nokkrum
dögum leit framtíðin allt öðru vísi
út. Nú eru þrjátíu tónleikar
framundan, auk þess sem áður var
ákveðið, þar á meðal tónleikar með
Sinfóníuhljómsveit Islands í apríl á
næsta ári. Þar ætla ég að leika
fiðlukonsert nr. 1 eftir Sergei
Prokofieff. Ég hlakka mjög til þess
að koma til Islands en ég hef bara
komið þangað einu sinni á síðustu
árum til að heimsækja afa minn og
ömmu,“ segir Judith Ingólfsson, 25
ára gömul með virtustu verðlaun
fiðluleikara upp á vasann.
Judith er dóttir Ketils Ingólfs-
sonar eðlisfræðings og píanóleik-
ara og eiginkonu hans Úrsúlu Ing-
ólfsson. Hún bjó á íslandi til sjö
ára aldurs en fluttist þá til útlanda
og hefur búið í Bandaríkjunum
lengst af síðan. Judith er núna bú-
sett í Cleveland í Ohio þó hún seg-
ist ekki sjá fram á mjög fasta bú-
setu næstu mánuði.