Morgunblaðið - 30.09.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.09.1998, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Verkalýðsfélög mótmæla framgöngu Technopromexport Segja starfsmönnum þröngv- að til falskrar yfírlýsingar ÖRN Friðriksson, formaður Félags jámiðnaðarmanna, segir að fulltrúar rússneska fyrirtækisins Techno- promexport hafí í gær krafist þess af útlendum starfsmönnum sínum að þeir undinntuðu yfirlýsingu þess efn- is að fyrirtækið hefði staðið við alla þætti kjarasamnings, meðal annars launagreiðslur. Þá hafi þeim einnig verið sagt að ef þeir krefðust laima til jafns við innlenda starfsmenn yrðu þeir sendir heim. Öm fór ásamt túlki og ræddi við starfsmenn Technopromexport í gær. Rafiðnaðarsamband Islands hefur einnig svipaðar upplýsingar eftir trúnaðarmanni félagsmanna sinna sem starfa með útlendingun- Engin svör berast enn frá Moskvu um samkomulagsdrög um. Félögin segja bæði að jafnvel þótt takist að fá staifsmenn til að skrifa undir ofangreindar yfirlýsing- ar séu þær marklausar. Einnig sé haldlaust að senda starfsmenn heim því launum þeirra verði haldið eftir og Landsvirkjun muni koma þeim til starfsmanna. Landsvirkjun krefst svara við samkomulagsdrögum Ekkert svar hafði í gær borist frá höfuðstöðvum Technopromex- port í Moslcvu við samkomulags- drögum þeim sem gerð höfðu verið milli Landsvirkjunar og fulltrúa fyrirtækisins hér á landi vegna launagreiðslna til útlendra starfs- manna. Landsvirkjun hefur gert þá kröfu að þau verði samþykkt eigi síðar en 1. október. í drögunum er gert ráð fyrir að Landsvirkjun greiði beint fjárhæð sem nemur launakostnaði til ís- lenskrar endurskoðunarskrifstofu sem ráðin verði af Technopromex- port til að annast greiðslurnar til hvers eins starfsmanna. í fréttatilkynningu frá Lands- virkjun segir að Halldór Jónatans- son, forstjóri fyrirtækisins, hafi ritað forstjóra Technopromexport bréf á mánudag vegna dráttar á svörum frá Rússunum þar sem varað var við alvarlegum afleiðing- um þess að samkomulagið verði ekki staðfest. „Verði frekari dráttur á viðbrögð- um Technopromexport mun Landsvirkjun krefjast fundar með forsvarsmönnum Technopromex- port tafarlaust og beita jafnframt öllum tiltækum ráðum til að stuðla að launs þeirra vandamála sem hér er við að etja,“ segir þar ennfrem- ur. Morgunblaðið/Kiistinn NEMENDUR og kennarar í stóriðjugreiningu ásamt Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra, Rannveigu Rist, forstjóra ÍSAL, og Grétari Þorsteinssyni, forsteta ASÍ. Morgunblaðið/Atli Vigfússon BRÆÐURNIR á Hálsi í Ljósa- vatnshreppi, þeir Marteinn og Hólmar Gunnarssynir, ferðast á milli bæja og slá kornakra. Fyrsta kornskurð- arvél Þing- eyinga Laxamýri. Morgunblaðið. KORNSKURÐUR er hafínn í Suður-Þingeyjarsýslu, en um tíma voru bændur ekki bjartsýnir á uppskeru vegna kulda og sólarleysis í sumar. Nokkur ár eru síðan korn- rækt hófst í héraðinu, en Eyfír- ðingar hafa fram að þessu lagt til vélar til kornskurðarins. Fyrir nokkru gerðist það að bændur á Hálsi í Ljósavatns- hreppi, sem hafa ræktað korn um árabil, keyptu notaða vél frá Danmörku. Vélin er 10 ára gömul í góðu ásigkomulagi og gengur vel að skera kornið. Kornrækt er í þremur sveitum héraðsins og eru menn bjartsýn- ir á þessa nýju búgrein. BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra og Rannveig Rist, forsljóri ISAL, riðu á vaðið í kaffiboði í tilefni af stofnun Stóriðjuskólans. Auglýsing um áfengismagn í þremur ólíkum drykkjum 42% fólks mundu eftir auglýsingunni TÆPLEGA 42% fólks segjast muna eftir að hafa séð heilsíðu- auglýsingu sem birtist í Morgun- blaðinu og DV helgina 22.-23. ágúst, þar sem borið var saman áfengismagn í þremur ólíkum drykkjum, rauðvíni, bjór og gin- blöndu, ef marka má niðurstöður könnunar Gallups í þessum efnum. Könnunin var framkvæmd 25. ágúst til 1. september og náði til 1.200 manna á aldrinum 16 til 75 ára. Nettósvönm var 71,8%. Fram kemur að karlar tóku betur eftir auglýsingunni en konur eða 46,7% karla en 37% kvenna. Þá kemur fram að höfuðborgarbúar tóku frekar eftir auglýsingunni en fólk af landsbyggðinni eða 49,3% höfuð- borgarbúa en 31,7% fólks á lands- byggðinni. Fólk með háar tekjur tók einnig frekar eftir auglýsingunni en fólk með lægri tekjur, sérfræðingar gerðu það frekar en fólk í öðrum starfsstéttum og 45% fólks sem drekkur áfengi tóku eftir auglýs- ingunni en 31,4% fólks sem drekk- ur ekki. Einnig var spurt hvort fólki hefði fundist þessar upplýsingar gagn- legar eða ekki. Töldu 46% fólks svo vera og var hlutfallið hæiTa meðal kvenna og þeirra sem drekka áfengi. í auglýsingunni kom fram að 50% meiri vínandi er í einni 33 sentilítra flösku af bjór en í blöndu af einföldu gini og sögðust tæplega 61% af þeim sem tóku afstöðu hafa tekið eftir því og voru karlar og neytendur áfengis þar í meirihluta. Þá sögðust tæplega 78% að- spurðra drekka áfengi og er hlut- fallið hærra meðal karla en kvenna, yngra fólks en eldra fólks, tekju- hærri hópa en tekjulægri og höfuð- borgarbúa en fólks á lands- byggðinni. Stóriðjuskólinn tekur til starfa STÓRIÐJUSKÓLINN tók til starfa í Álverinu í Straumsvík í gær. Skólinn veitir 325 kennslustunda nám og útskrif- ar stóriðjugreina. Kennt er fjórar stundir í senn tvisvar í viku og skal náminu ljúka á tveimur árum. Upphaf Stóriðjuskólans má rekja til samnings milli Is- lenska álfélagsins og verkalýðsfélaga í apríl 1997 að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá Islenska álfélag- inu en auk verkalýðsfélaganna og ÍSAL hafa Iðntæknistofnun og íslenska járnblendifélagið unnið að undirbúningi námsins undanfarin tvö ár. Iðntæknistofnun Islands hef- ur umsjón með gerð námsefnis og Iðnskólinn í Reykjavík ann- ast kennsluna, sem fer einkum fram í Straumsvík. Námsgreinar verða annars vegar almennar greinar, sem eru mannleg samskipti og tján- ing, fyrirtækið og þjóðlífíð, stærðfræði, eðlisfræði og raf- efnafræði og hins vegar fag- tengdar greinar, sem eru framleiðsluferli í stóriðju, tölv- ur og stýringar, eldföst efni, vélfræði með fyrirbyggandi viðhaldi, gæðasljórn og gæða- eftirlit, vistfræði og umliverfís- mál og fræðilegt efni fyrir ein- stök framleiðsluferli. í fréttatilkynningu frá fsal segir að skólarekstrinum fylgi umtalsverður kostnaður en fyrirtækið trúi því að hann fáist til baka í hæfari starfsmönnum og bættri sam- keppnisstöðu. „Við hjá Isal hlökkum til að takast á við þetta verkefni, sem verður án efa fróðlegt og skemmtilegt en umfram allt mjög gagnlegt,“ segir í fréttatilkynningu sem Rannveig Rist forstjóri undir- ritar fyrir hönd ÍSÁL. Borgarráð um Grandrokk Stendur við fyrri samþykkt BORGARRÁD hefur samþykkt að standa við fyrri samþykkt um að einungis verði heimilt að afgreiða áfengi í garði veitinga- staðarins Grandrokk við Klapp- arstíg 28, til kl. 21 alla daga vik- unnar. Akvörðun ráðsins byggist á umsögn borgarlögmanns en þar kemur fram að borgarráð hafi fyrr í sumar heimilað rýmri afgreiðslutíma eða til kl. 1 eftir miðnætti virka daga og til kl. 3 um helgar, þar sem eig- andi staðarins hélt því fram í umsókn sinni að engin vand- kvæði hefðu komið upp vegna staðarins. Því hafi verið treyst en í ljós hafi komið að lögreglan hafi þurft að hafa veruleg afskipti af staðnum. Fyrri ákvörðun borg- arráðs hafi því byggst á for- sendum sem reyndust rangar. Tillaga í stjórn Dagvistar barna Biðlistar verði opnir TILLAGA hefur verið lögð fram í stjóm Dagvistar barna um að allir biðlistar eftir plássum á stofnunum á hennar vegum verði opnir þannig að þeir sem skrá sig geti séð hvar þeir eru í röðinni og hverjir eru á undan þeim. Það voru sjálfstæðismenn í stjórninni sem lögðu fram tillöguna og í greinargerð með henni kemur fram að mikil eftirspum er eftir þjónustu og biðlistar að lengjast. Við útdeilingu á opinberum gæðum eiga leikreglur að vera skýrar og gegnsæjar og þess vegna er eðlilegt að þeir sem sækjast eftir þeim viti hvar þeir standa og geti verið full- vissir um að réttum leikreglum sé fylgt eftir. Það er best að gera með því að opna biðlistana. Á fundinum kom jafnframt fram að fulltrúar Reykjavíkurlistans væm sammála um að leita leiða til að biðlistinn verði gerður sem sýnileg- astur. Hann sé flókinn og mikilvægt að persónuvemdar verði gætt. Þá þurfi að koma fram upplýsingar um þá þætti sem hafa áhrif á biðlistann. Tillögunni var vísað til Steinunnar Hjartardóttur þjónustustjóra og sagði hún að tillagan væri í skoðun og að á næsta stjórnarfundi væri að vænta umsagnar frá henni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.