Morgunblaðið - 30.09.1998, Side 17

Morgunblaðið - 30.09.1998, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998 17 VIÐSKIPTI Hlutafe Búnaðarbankans aukið um 600 milljónir Morgunblaðið/Ásdís HLUTAFJÁRUTBOÐ Búnaðarbankans kynnt, f.v. Þórður Friðjónsson ráðuneytisstjóri, Stefán Pálsson aðal- bankastjóri, Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra og Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs. Utboði flýtt vegna vaxandi starfsemi HLUTHAFAFUNDUR í Búnaðar- banka Islands hf. heimilaði í gær bankaráði að auka hlutafé bankans um 600 milljónir kr. með útgáfu nýs hlutafjár og sölu þess til starfsfólks og almennings. Tllgangurinn er að tryggja áframhaldandi hraðan vöxt bankans. Sala til starfsfólks fer fram í október og stefnt er að sölu til al- mennings í nóvember. Gengi í al- menna útboðinu hefur ekki verið ákveðið. Hlutafé Búnaðarbanka íslands hf. er nú 3,5 milljarðar kr., allt í eigu ríkissjóðs. í stefnumörkun ríkis- stjómarinnar um skipulag á fjár- magnsmarkaði var gert ráð fyrir því að nýtt yrði að hluta heimild Aiþingis til aukningar hlutafjár í Búnaðar- bankanum í síðasta lagi í febrúar á næsta ári. Vegna mikillar aukningar í starfsemi bankans óskaði bankaráðið eftir því að þessu yrði flýtt og hefur nú verið ákveðið að hlutafjárútboðið fari fram á þessu ári. Eftir aukningu verður hlutaféð 4,1 milljarður, þar af rúm 85% í eigu ríkisins og tæp 15% í dreifðri eigu starfsfólks og almennra hluthafa. 56% aukning Finnur Ingólfsson við- skiptaráðherra sagði á blaðamanna- fundi í Búnaðarbankanum í gær, þegar ákvörðun um útboð var kynnt, að það hafí komið á óvart hvað bankinn hafi stækkað hratt og því verið óhjákvæmilegt að ráðast í aukningu hlutafjár þegar á þessu ári. Búnaðarbankinn hefur vaxið um 56% á tveimur árum, þar af um 15% á síðustu sex mánuðum. Að sögn Stefáns Pálssonar aðalbanka- stjóra er þetta meiri vöxtur en hjá keppinautunum á fjármagns- markaðnum. Hann sagði að vöxtur- inn byggðist á því að Búnaðarbank- anum hafí tekist að byggja upp öfluga verðbréfadeild innan bank- ans og það hafi tekið skemmri tíma að fá viðskiptavini og aðra sem á slíkri þjónustu þurfa að halda til að nýta sér starfsemi hennar. Eiginfjárhlutfall Búnaðarbank- ans hefur lækkað vegna hins hraða vaxtar bankans og sagði Stefán Pálsson á fundinum í gær að ef ekld hefði verið farið út í hlutafjárútboð nú hefði getað komið til þess að þurft hefði að hægja á vextinum sem alls ekki væri æskilegt, til þess að svokallað CAD-hlutfall færi ekki niður fyrir leyfilegt lágmark. Við- skiptaráðherra sagði að af hálfu eig- andans væri ákvörðun um aukningu hlutafjár tekin í þeim tilgangi að leyfa bankanum að stækka áfram og um leið að auka verðmæti hans. Starfsfólk kaupir á lægra gengi Af hinu nýja hlutafé verða 250 milljónir kr. boðnar starfsmönnum og Lífeyrissjóði starfsmanna bank- ans á gengi sem svarar til innra virðis bankans, eða 1,26%. Hver starfsmaður hefur heimild til að kaupa hlutabréf að nafnvirði 250 þúsund á þessu gengi, og söluverð hvers hlutar verður því 315 þúsund krónur. Jafnframt afsalar starfs- fólkið sér rétti til að kaupa hlutafé í almenna hluta útboðsins. Reiknað er með að sala til starfsfólksins fari fram dagana 12. til 26. október næstkomandi. Ákvörðun um sölu hlutafjár til starfsfólks á gengi sem miðast við innra virði bankans um síðustu áramót var tekin af ríkisstjórn S árs- lok 1997 sem liður í breytingu Búnaðarbankans í hlutafélag og breytingum á lífeyriskerfi starfs- manna. Framkvæmdin er með svipuðum hætti og í hlutafjárútboði Landsbanka íslands á dögunum. Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs, lagði á það áherslu á blaðamannafundinum í gær að líta verði á samninga um sölu hlutafjár til starfsmanna í tengslum við aðra samninga við starfsfólkið sem meðal annars hefði gefið eftir ríkisábyrgð á eftirlaunum sínum. Gengi ekki ákveðið Það sem eftir stendur af hluta- fjáraukningunni, 350 milljónir kr. að nafnverði, verður boðið almenn- ingi til kaups í almennu útboði. Miðað er við að hver einstaklingur geti skrifað sig fyrir allt að 500 þúsund kr. að nafnvirði á föstu gengi en ef eftirspurn verður meiri en framboðið verður hámarksfjár- hæð til hvers einstaklings skert. Fyrirkomulag sölunnar er með svipuðum hætti og við útboð hluta- bréfa í Landsbanka, nema hvað Búnaðarbankmn afgreiðir fyrst sölu til starfsfólks og tekur ekki frá hlutabréf til að bjóða út með til- boðsfyrirkomulagi. Fram kom á fundinum í gær að búist væri við það mikilli eftirspurn að ekki væri talin þörf á uppboðsfyrirkomulagi. Unnið er að undirbúningi útboðs- ins til almennings. Frumvinnan fer fram í Búnaðarbankanum en síðan verður leitað ráðgjafar hjá erlend- um sérfræðingum varðandi verðmat á bankanum og útboðsgengi. Fyrir liggja tilboð frá tveimur fyrirtækj- um í þá vinnu. Bankaráðið hefur fengið umboð til að ákvarða útboðs- gengið í samráði við við- skiptaráðherra. Gert er ráð fyrir að útboðið fari fram í nóvember. Gengi hlutabréfanna mun því ekki liggja fyrir fyrr en í lok næsta mánaðar. Viðskiptaráðherra vildi lítið gefa út á það hvort gera mætti ráð fyrir að gengi hlutabréfa Búnaðarbankans yrði svipað og gengi Landsbankabréfanna í Ijósi þess að gengi til starfsfólks er svipað, og lagði á það áherslu að hér væri um tvö ólík fyrirtæki að ræða. Sem dæmi um það benti hann á mikinn vöxt Búnaðarbankans og taldi að tekið yrði tillit til hans við verðmat. Búnaðarbankinn hefur skilað góðum hagnaði, þrátt fyrir minnkandi vaxtamun. Þannig var vaxtamunur af heildareignum 4,41% á síðasta ári en 3,98% fyrstu sex mánuði þessa árs. „Við lifúm við þetta og ekki lakara lífi en áður vegna þess að við höfum náð að stækka bankann með góðum við- skiptum," sagði Stefán Pálsson. Pálmi Jónsson bankaráðsformaður sagði að afkoma af reglulegri starf- semi á síðasta ári hefði verið sú besta í mörg ár og útlit væri fyrir enn betri afkomu í ár. „Við erum mjög bjartsýnir um afkomu bank- ans í heild og sjáum engin merki þess að það sé stöðnun framundan í vexti hans,“ sagði Pálmi. Steftit að skráningu Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að sótt verði um skráningu hluta- bréfa í Búnaðarbankanum á Aðall- ista Verðbréfaþings íslands. Til þess að fullnægja kröfum þingsins hefur ráðherra staðfest þá stefnu ríkisstjórnarinnar að eigi síðar en 1. júní árið 2000 verði meira en 25% hlutabréfa í bankanum í dreifðri eignaraðild. CanonBJC-4300 A4 lltahleksprautuprentari með skannahylki. 2ja hylkja kerfi. 2 bls. á mln. 1 llt. 5 hla. á mln. i s/h. 72D dpl upplausn. Arkamatari fyrtr 100 blöð. 'Banner prlnting', CCIPS eg Orap Medulatton tæknl. Þegar Canon tekur sig til og hætir um hetur þarf það ekki endilega að þýða að hlutirnir hreyti um lögun eða stærð. Og það er einmitt það sem heiur gerst með Canon BJC-4300 prentarann. Þetta einstaka tæki hýr nú ekki einungis yfir öllum þeim frábæru eigin- leikum sem gúður prentari þarf að hafa heldur er Canon BJC-4300 nú einnig 360 dpl 'True Culor' skanni. Með einu handtaki má skipta út blekhylkinu og setja skannahylki i staðinn. Því færðu prentara og skanna í einu tæki án þess að eyða dýrmætu v ___—____ plássi á skrifhorðinu -og varðið or CclllOIÍ oi ilir som áður það sama! NÝHERJI - Söluaðilar um land allt -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.