Morgunblaðið - 30.09.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998 15
Akureyrardeild Rauða kross fslands
Nýr sjúkrabfll í notkun
AKUREYRARDEILD Rauða
kross Islands hefur tekið í notkun
nýjan sjúkrabíl. Bíllinn sera er af
gerðinni Ford Econoline leysir af
hólmi elsta bíl deildarinnar sem
orðinn er 13 ára gamall.
Nýi sjúkrabíllinn, sem er búinn
215 hestafla túrbó dísilvél, er flutt-
ur inn af Brimborg hf. en honum
Náttúran er listaverk
Lifa ána-
maðkar
ástarlífi?
síðan breytt og hann innréttaður
hér á landi. Bíllinn er búinn öllum
þeim búnaði sem þarf til aðhlynn-
ingar og flutnings á sjúkum og
slösuðum m.a. hálfsjálfvirku
hjartastuðtæki en með slíku tæki
geta sjúkraflutningamenn hafið
markvissa endurlífgun strax á slys-
stað.
Þrír vel búnir bflar
Slökkviliði Akureyrar hefur ver-
ið afhentur bfllinn en það eru
einmitt starfsmenn liðsins sem
annast sjúkraflutningana. Með því
má segja að nú séu þrír vel búnir
sjúkrabflar til staðar á Akureyri en
það er einmitt sá fjöldi bíla sem ný-
legur samningur ríkisins við Rauða
kross Islands gerir ráð fyrir að séu
staðsettir á Akm-eyri.
A undanförnum árum hafa
sjúkrabflar farið i um ellefu hund-
ruð ferðir á ári og þar af fjórðung-
ur þar sem um er að ræða bráðatil-
felli. Þessi sjúkrabfll sem nú er
tekinn í notkun er sá fjórtándi í
röðinni frá því Rauði krossinn á
Akureyri byrjaði að sinna sjúkra-
flutningum árið 1931.
Morgunblaðið/Kristján
GISLI_ Kristinn Lórenzson, varaformaður Akureyrardeildar Rauða
kross íslands, t.v., afhendir Tómasi Búa Böðvarssyni slökkviliðsstjóra
lyklana að nýja sjúkrabflnum.
LIFA ánamaðkar ástarlífi? er
spurning sem Bjami E. Guðleifsson
náttúrufræðingur hjá RALA á
Möðruvöllum ætlar að velta upp á
fræðslufundi um náttúruna, í Deigl-
unni á Akureyri fimmtudagskvöldið
1. október kl. 20.30.
Þá mun Þórir Haraldsson, kenn-
ari við Menntaskólann á Akureyri,
fjalla um erfðagreiningu, undir yfir-
skriftinni; Hvað er erfðagreining?
Auk þess mun Þórarinn Hjartarson
koma með gítarinn í Deigluna og
flytja nokkur lög í hléi. Aðgangur er
ókeypis.
Hugmyndin er að halda nokkra
fundi í Deiglunni þar sem ýmis fyr-
irbæri í náttúrunni verða kynnt.
Efnistök miðast við almenning og er
tilgangurinn að kynna mönnum dá-
semdir náttúrunnar með ýmsum
dæmum. Tveir náttúrufræðingar
munu fjalla um afmörkuð svið nátt-
úrunnar út frá tveimur spurningum.
-------♦-♦-♦-----
Viðtal við ferm-
ingarbörn
VÆNTANLEG fermingarbörn í
Akureyrarkirkju vorið 1999 eru
beðin að mæta til viðtals í kirkjuka-
pellunni á morgun, miðvikudaginn
30. september.
Börn í Brekkuskóla mæta kl. 16,
börn úr Oddeyrarskóla og Lundar-
skóla eiga að mæta kl. 17 en önnur
börn mæta annað hvort kl. 16 eða
17.
-----------------
Tíu mín. mót
TIU mínútna mót verður haldið í
skákheimilinu, Þingvallastræti 18,
annað kvöld, fimmtudagskvöldið 1.
október og hefst það kl. 20. Allir eru
velkomnir. Ólafur Kristjánsson fór
með sigur af hólmi í 15 mínútna
móti sem haldið var á sunnudag, en
hann hlaut 6 vinninga af 7 möguleg-
Aksjón
Miðvikudagur 30. september
12.00^-Skjáfréttir
18.15^Kortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag.
Endursýndur kl. 18.45, 19.15,
19.45, 20.15, 20.45
21.00Þ>Bæjarsjónvarp Har-
moníkuball í íþróttahöllinni með
sænska tríóinu „Nya brödrarna
Farm“. Síðari hluti.
Margt býr
í hjartanu
Með skál og skeið að vopni
Á síðari árum hefur fólk verið að gera sér æ betur grein fyrir gilcii
góðs matarasðis fyrir heilsufar sitt.
Nú er það vísindalega sannað* að einfaldur hlutur eins og að borða
Cheerios hafrahringi reglulega getur gert gæfumuninn víð að -fyrirbyggja
hjarta- og asðaejúkdóma.
W\ má segja að eitt besta vopnið okkar í baráttu fyrir betri heilsu
sé skeið og skál - af Cheerios!
* Rannsóknir á hollustu fæðutegunda sem eru unnar úr trefjaríkum kornvörum hafa staðið yfir áratugum saman. Niðurstöður úr þessum rannsóknum liggja nú fyrir og staðfesta að
Cheerios hringirnir hafa ótvírætt hollustugildi. Ástæðan er einföld: Cheerios er unnið úr heilum höfrum, það inniheldur lítið af heildarfitu, hlutur mettaðrar fitu er lítill og í því er ekkert
kólesteról. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) telur sannað að neysla á Cheerioshringjum geti dregið úr líkum á hjarta- og asðasjúkdómum ef þeirra er neytt sem hluta af
fitulitlu og kólesterólsnauðu fæði.
Bandaríska heilbrigðisráðuneytið sem gefur reglulega út leiðbeinandi lista yfir hollustu mismunandi fæðutegunda hefur nú skipað heila hafra í efsta sæti listans. Þeir voru áður í þriðja
sæti á eftir grænmeti og ávöxtum.
YDDA/SÍA