Morgunblaðið - 30.09.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998 27
Hin tilgátan
um átröskun
NÝLEGA var í Morg-
unblaðinu greint frá fyr-
irlestri breska geðlækn-
isins Janet Treasure um
átröskun (lystarstol og
lotugræðgi), en í máli
hennar kom fram að ný-
legar rannsóknir gefi
vísbendingu um að lyst-
arstol sé líffræðilegur
og hugsanlega arfgeng-
ur sjúkdómur. Treasure
álítm- enga eiginlega
lækningu vera til, en
viðurkennir þó að enn sé
mörgum spurningum
ósvarað og því sé mikil-
vægt að halda
rannsóknum áfram.
Astæða þess að ég blanda mér í
umræðuna er að mér finnst sú mynd
sem hér er dregin upp vera óþarf-
Tilgátan um líffræði-
legar skýringar lyst-
arstols er ein af mörg-
um, segir Sæunn Kjart-
ansdóttir, en ekki end-
anlegur sannleikur.
lega takmörkuð og dökk. Tilgátan
um líffræðilegar skýringar lyst-
arstols er ein af mörgum, ekki end-
anlegur sannleikur. Með þessum
orðum er ekki ætlunin að afneita líf-
fræðilegum breytingum, heldur
árétta að líkamleg einkenni lyst-
arstols eru oft afleiðing sveltisins
fremur en orsök þess og að hegðun-
armunstur geta erfst ekki síður er
líkamlegir eiginleikar. Þá vil ég nota
tækifærið til að minna á aðra tilgátu
um orsakir lystarstols. Hún er sú að
um sé að ræða samspil umhverfis,
sjálfsmyndar einstaklingsins og per-
sónuleikagerðar hans. Samkvæmt
þeirri tilgátu er svelti ómeðvituð að-
ferð einstaklings við að ná stjórn og
finna fyrir eigin styrk og skýringa
er leitað í samræðum við hann frem-
ur en í blóðsýni hans.
Lystarstol er algengast meðal
unglingsstúlkna og allar eiga þær
sameiginlegt að alast upp í sam-
félagi sem er gegnsýrt
af fordómum gegn eðli-
legu kvenlegu holdafari.
Það þarf því ekki að
koma á óvart þótt stúlka
sem er vansæl, án þess
að vita hvers vegna,
dragi þá ályktun að
henni muni líða betur
við að grennast. Þetta
eru þau skilaboð sem
alls staðar dynja á
henni. En fyrir stúlku
með tilhneigingu tfl lyst-
arstols verða hefðbund-
in fegurðargildi fljótlega
aukaatriði, hún verður
fyrst og fremst upptekin
af getu sinni til að gera
eitthvað erfitt. Þess vegna hafa
hungurverkir ekki sömu áhrif á
hana og annað fólk, í stað þess að
borða fagnar hún því að vera svöng,
því þá flnnst henni hún vera sterk
og ná árangri.
Meðferð lystarstols er erfið viður-
eignar, ekki síst vegna þess að flest-
ar sem við það kljást afneita lengi
vel að um vandamál sé að ræða og
afþakka alla hjálp. Þær óttast að
stjórnin verði tekin af þeim og þær
verði látnar fitna. Þess vegna er það
grundvallaratriði að stúlka með lyst-
arstol geti treyst því að meðferð-
araðilar séu bandamenn sem muni
ekki fara í valdabaráttu við hana.
Markmið meðferðar er ekki að fita
hana, heldur að hjálpa henni við að
skilja sjálfa sig og finna smám sam-
an gagnlegri leiðir til að styrkja
sjálfsmynd sína og hafa áhrif á líf
sitt. Þess má að lokum geta að nú
stendur yfir undirbúningur fyrir
sérhæfða þjónustu fyrir fólk með
átröskun á Sjúkrahúsi Reykjavíkur,
þar sem unnið verður út frá þeim
forsendum sem hér hefur verið
drepið á. Meðferð mun miða að því
að hjálpa einstaklingnum til að
skilja hvað er að gerast innra með
honum, með það að markmiði að
hann geti með tímanum sett mein-
ingu sína í orð fremur en langsóttar
og skaðlegar athafnir.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur
og sálgreinir og starfar á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur.
Sæunn
Kjartansdóttir
Fjárfestum
í lífsgæðum
FYRIR hálfri öld hófst
SÍBS handa um að reisa
Vinnuheimilið að
Reykjalundi í Mosfells-
sveit til þess að styðja
berklasjúka til sjálfs-
bjargar. Fjár var aflað
meðal landsmanna með
ýmsum hættti og brátt
óx stofnuninni svo fisk-
ur um hrygg að hún
varð stolt þjóðarinnar,
enda skipulag allt og
starfsemi á heimsmæli-
kvarða.
Á liðnum fimmtíu ár-
um hafa miklar breyt-
ingar orðið á Reykja-
lundi. Berklaveikin er
Framlag í söfnunina,
segir Þorsteinn Sig-
urðsson, verður fjár-
festing í lífsgæðum.
úr sögunni sem vágestur en í
staðinn hafa komið brýn verkefni í
endurhæfingu fjölmarga annarra
sjúklingahópa. Og nú er svo komið
að vinnuheimilið gamla hefur þró-
ast í alhliða nútíma endurhæfing-
armiðstöð, þá stærstu á landinu,
með 200 stöðugildum,
m.a. sérfræðinga á öll-
um sviðum endurhæf-
ingar, 170 sjúkrarúm-
um, þar sem yfir 1.300
sjúklingar njóta þjón-
ustu árlega.
En þróunin verður
að halda áfram. Til þess
að bæta aðstöðuna og
sinna fleiri sem endur-
hæfingu þurfa, m.a. til
þess að grynna á 500
sjúklinga biðlista, hefur
stjórn SÍBS ákveðið að
reisa þjálfunarsal og
sundlaug - og enn á ný
er leitað til þjóðarinnar
um stuðning. í byrjun
október gefst landsmönnum kostur
á þátttöku í söfnunarátaki til þess
að hjálpa enn fleiri sjúklingum aftur
til heilsu og starfa í eigin þágu og
samfélagsins.
Framlag í söfnunina verður fjár-
festing í lífsgæðum og tryggir okk-
ur sjálfum, ástvinum okkar og
landsmönnum öllum enn betri og
skilvirkari endurhæfíngu - ef og
þegar þörfin krefur.
Góðir landsmenn, setjið Sigur
lífsins í forgangsröðina um
mánaðamótin.
Höfundur er sérkennslufræðingur.
Þorsteinn
Sigurðsson
AÐSENDAR GREINAR
Sjávarútvegurinn er undir-
staða fjölbreytts atvinnulífs
Hlutdeild sjávarafurða í heildarútflutningi
vöru- og þjónustu árin 1986-1997
í Utflutningur ~ . Hlutfall
"r sjávarafurða Utflutningur alls sjávarafurða
1986 34.627 61.961 Milljónir króna 55.9%
1987 40.322 *:tl 71.681 56,2%
1988 43.819 | 81.721 53,6%
1989 56.812 106.2821 53,4%
1990 69.897 ( 124.246 í 56,3%
1991 73.236 125.671 | 58,3%
1992 69.881 | 121.597 57,5%
1993 71.747 | 135.694 Í. 52,9%
1994 84.837 157.436 [ 53,9%
1995 83.873 !f 161.250 ] 52,0%
1996 92.587 176.761 I 52,4%
1997 93.664 190.945 ] 49,1%
FÁIR mótmæla þeiiri staðreynd
að sjávarútvegur sé_ undirstaða at-
vinnulífs á Islandi. Á undanfórnum
áratugum hefur útflutningur
sjávarafurða verið á milli 70 og 80%
af verðmæti alls vöniútflutnings
landsmanna og um 50% af gjald-
eyiústekjum þjóðarinnar koma
beint frá útflutningi sjávarafurða.
Þetta eru óumdeildar staðreyndir
sem tala sínu máli.
71,4% af verðmæti
útflutnings
í grein sem birtist í Morgun-
blaðinu laugardaginn 26. septem-
ber gerir Ingólfur Bender, hag-
fræðingur Samtaka iðnaðarins, at-
hugasemdir við orðalag í fræðslu-
auglýsingu íslenskra útvegsmanna
sem birtist helgina áður. Þrátt fyrir
málflutning Ingólfs verður því ekki
mótmælt að sjávarútvegur er mikil-
Það er æskilegt að
efnahagur landsmanna
byggist á mörgum at-
vinnugreinum, segir
Sveinn Hjörtur Hjart-
arson, en þó er ljóst að
sjávarútvegurinn verð-
ur næstu áratugi burð-
arás í atvinnu- og efna-
hagslífi Islendinga.
vægur á íslandi. Á síðasta ári voru
fluttar út vörur fyrir rúmlega 131
milljarð. Af þeirri upphæð stóðu
sjávarafurðir fyrir tæpum 94 millj-
örðum, sem er 71,4% af verðmæti
alls útflutnings. Engin önnur at-
vinnugrem kemst nálægt því að
skapa svo mikil verðmæti fyrir
þjóðarbúið. Til dæmis skilaði
stóriðja aðeins um 16 milljörðum í
útflutningstekjur árið 1996. Þess
eru fá dæmi að ein atvinnugrein
standi undir svo háu hlutfalli af
gjaldeyristekjum þjóða, það er þá
helst meðal arabískra olíuríkja.
Meiri verðmæti með
minni tilkostnaði
Þær kröfur sem gerðar eru til
íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja
hafa knúið þau til aukinnar hag-
ræðingar, tæknivæðingar og
nýsköpunar. Það hefur tekist að
skapa sífellt meiri verðmæti með
minni tilkostnaði og færri
starfsmönnum og þrátt
fyrir skertar aflaheim-
ildir hefur tekist að
auka verðmæti aflans.
Núverandi stöðugleiki í
efnahagsmálum bygg-
ist vissulega á sam-
stilltu átaki margra
aðila. Nú hefur loksins
verið komið upp
stjórnkerfi sem býður
upp á hagræði til
mótvægis við duttl-
unga náttúrunnar. En
um leið verður því
ekki neitað að
sjávarútvegurinn hef-
ur staðið undir marg-
háttaðri nýsköpun í ís-
lensku atvinnulífi, sem hefur verið
að skila sér í auknum útflutnings-
tekjum annarra atvinnugi-eina á
undanförnum árum. Utflutningur
á fískikössum, umbúðum, fiskinet-
um, línum, rafeindavogum, tog-
hlerum og öðrum tækjum til fisk-
veiða og fiskverkunar hefur stór-
aukist og 1996 voru slíkar vörur
fluttar út fyrir tæplega 3 millj-
arða.
Alla þessa öld hefur sjávarútveg-
ur verið undirstaða
framfara og velferð-
arþróunar á íslandi.
Hvort sem mönnum
líkar betur eða verr er
það fyrst og fremst
sjávarútvegurinn sem
hefur fært landsmönn-
um vaxandi tekjur og
lífskjör sem jafnast á
við það besta í
nágrannalöndunum.
Það er æskilegt að
efnahagur landsmanna
byggist á mörgum at-
vinnugreinum, en þó er
ljóst að sjávarútvegur-
inn verður næstu ára-
tugi burðarás í at-
vinnu- og efnahagslifi íslendinga.
Það er því mikilvægt að treysta
núverandi fískveiðistjórnunarkerfi
og snúa ekki aftur til pólitískra
ívilnana eða geðþóttaákvarðana
fyrri ára.
Höfundur er hagfræðingur LÍÚ.
Brúðhjón
Allur borðbiínaður - Glæsileg gjafavara - Briíðhjönalislar
VERSLUNIN
Laugttvegi 52, s. 562 4244.
Sveinn Hjörtur
Hjartarson
Meðvirkni
(Codependence)
Næstu námskeiö
Ráðgjafarstofu Ragnheiöar
Óladóttur, Síöumúla 33,
veröa 6. október og 3. nóvember.
Fjallaö verður m.a. um tilfinningar,
mörk, varnir, stjórnun og stjórnleysi.
SímatímI er milli kl. 11 og 12 á daginn.
Upplýsingar í síma: 5687228 og
8977225, e-mail: ragnh@mmedia.is
SAMKEPPNI
UM SLAGORÐ OG MERKI
ferðaþjónustu á Vesturlandi
(leiðrétt auglýsing)
^tvinnuráðgjöf Vesturlands og Ferðamálasamtök Vestur-
JLM lands auglýsa eftir hugmyndum að slagorði og nýju
JL JL merki (logo) fyrir ferðaþjónustu á Vesturlandi. Hug-
myndinni skal skila a.m.k. með greinilegu uppkasti og greinar-
gerð, en ekki er nauðsynlegt að útfæra hana til birtingar. Þátt-
takendur hafa frjálst val um inntak hugmyndanna, en þær þurfa
að vera stílhreinar og einkenni Vesturlands, (sagan, jöklarnir,
vötnin, náttúran), þurfa að koma fram á einhvern hátt. Lögð er
áhersla á að nýtt merkí og slagorð henti til auðkenningar á
kynningarefni, bréfsefni og nafnspjöld. Merki og slagorð þarf að
vera auðvelt að nota í svart/hvítu, sem og til þýðingar á önnur
tungumál.
FRÁGANGUR: Hugmyndum skal skilað á A4-örkum. Hver hug-
mynd skal merkt í neðra hægra homi með fimm stafa tölu.
Lokað umslag sem inniheldur nafn höfundar, heimilisfang og
símanúmer, skal fylgja með, merkt sömu fimm stafa tölu og
hugmyndin.
SKIL- Hugmyndir skulu póstlagðar til Atvinnuráðgjafar Vestur-
lands, b.t. Sigríðar H. Theodórsdóttur, Bjarnarbraut 8, 310
Borgarnesi, eigi síðar en 18. október nk.
VAL: Dómnefnd skipuð þremur einstaklingum vinnur úr hug-
myndum. Veitt verða ein verðlaun, 100.000,- kr., fyrir bestu
hugmyndina. Dómnefnd er heimilt að skipta verðlaunafénu milli
slagorðs og merkis. Verðlaunahugmyndin verður eign Atvinnu-
ráðgjafar Vesturlands, sem áskilur sér allan rétt til að nýta hana
til birtingar á kynningarefni Ferðaþjónustu Vesturlands eða á
öðrum vettvangi.
Atvinnuráðgjöf Vesturlands