Morgunblaðið - 30.09.1998, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ
j40 MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998
UNNUR
MEINERTZ
+ Unnur Meinertz
var fædd í Vest-
mannaeyjum 6.
marz 1911. Hún lést
á sjúkrahúsi í
Gentofte í Dan-
mörku 29. ágúst síð-
astliðinn. Unnur
giftist Þóroddi E.
Jónssyni stórkaup-
manni 1929. Þau
slitu samvistum. Ár-
ið 1943 giftist hún
Jens Meinertz
skipamiðlara í
Kaupmannahöfn.
Unnur og Þóroddur
eignuðust einn son, Skapta,
flugumsjónarmann, f. 10.5.
1930, d. 18.12. 1962. Hann
kvæntist Valdísi Garðarsdóttur.
Börn þeirra eru Garðar, Þór-
oddur, Birgir, Guðmundur,
Steinunn og Unnur Dís. Unnur
Unnar ömmu verður helst minnst
fyrir hversu lífsglöð hún var. Eink-
unarorð hennar voru: „Það skiptir
ekki öllu máli hvemig manni líður
heldur hvemig maður tekur því sem
að höndum ber.“ Það var alltaf mik-
og Jens eignuðust
einn son, Jan, skipa-
miðlara, f. 7. maí
1944, kvæntur Mari-
eanne. Þau eiga
eina dóttur, Janne.
Unnur lærði fóta-
aðgerðir í Dan-
mörku og starfaði
við sitt fag alla ævi.
Hún rak eigin fóta-
aðgerða- og snyrti-
stofu í Gentofte í
fjölda ára og hafði
þar mat ga nema, m.
a. Islendinga. Hún
var virkur þátttak-
andi í félagi fótaaðgerðarfræð-
inga í Danmörku, sat í sljórn fé-
lagsins í mörg ár, hluta tímans
sem formaður.
Utför Unnar fór fram í Kaup-
mannahöfn föstudaginn 4. sept-
ember sfðastliðinn.
ið um að vera í kringum ömmu. Hún
var alltaf í fararbroddi í öllu sem
gert var. Hún spilaði bridge við vini
sína, saumaði, leysti krossgátur,
sótti námskeið og átti fasta miða í
leikhúsinu. Hún fylgdist alla tíð vel
+
Útför
SIGRfÐAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Sviðugörðum,
fer fram frá Gaulverjabæjarkirkju, föstudaginn
2. október kl. 14.00.
Sigurður Guðmundsson,
Selma Katrín Albertsdóttir, Davíð Axelsson
og böm.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN SÆVALDSSON,
Grænumýri 7,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 2. október kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Akur-
eyrarkirkju.
Björg Steindórsdóttir,
Hulda Kristjánsdóttir, Gestur Jónsson,
Þóra Steinunn Gísladóttir
og barnabörn.
+
Systir mín, mágkona og vinkona,
HÓLMFRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
sem andaðist á dvalarheimilinu Dalbæ, mánu-
daginn 21. september, verður jarðsungin frá
Höfðakapellu á morgun, fimmtudaginn
1. október kl. 13.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Magnús Stefánsson, Guðrún Metúsalemsdóttir
og Liv Krötö.
+
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns,
ARNÞÓRS GUÐNASONAR
bifvélavirkjameistara,
Lyngheiði 4,
Selfossi,
sem lést mánudaginn 31. ágúst sl.
Elínborg Anna Kjartansdóttir
og fjölskylda.
MINNINGAR
með hinum ýmsu málefnum. Hún
lifði lífinu lifandi til hinsta dags. Jan
sonur hennar sá um að hana skorti
ekkert síðustu æviárin og hún gat
þess vegna verið áhyggjulaus og
notið lífsins. Hún kom oft til íslands
hin síðari ár og dvaldi hjá fjölskylu
sinni.
Síðastliðið vor heimsótti hún okk-
ur, þá áttatíu og sjö ára. Þá var
verlrfall hjá SAS í Danmörku svo
hún fór ein í lest til Hamborgar og
flaug síðan til íslands. Hún fór allra
sinna ferða á litla bílnum sínum og
ætlaði greinilega að halda því áfram
því að hún endurnýjaði ökuskírtein-
ið sitt í lok júní síðastliðins, og hafði
þá keyrt í 69 ár eða frá því hún fékk
sinn fyrsta bíl átján ára. Fyrst man
ég eftir henni þegar ég kom með
pabba í heimsókn til hennar og Jens
í sumarbústaðinn þeirra „Strand-
torp“ á Norður-Sjálandi. Þessi bú-
staður og heimili þeirra í Kaup-
mannahöfn átti eftir að verða fastur
punktur í lífí mínu og systkina
minna upp frá því. Á hverju sumri
kom eitthvert okkar systkinanna í
sumardvöl til þeirra, þangað til við
vorum komin yfir fermingu. Alltaf
var okkur vel tekið af henni og
Jens, sem var okkur sem afi, og þau
dekruðu við okkur á allan hátt.
Unnur amma var flest sumarfrí í
sumarbústaðnum og hin síðari ár
eftir að Jens dó hélt hún áfram að
vera þar ásamt tengdaforeldrum
sínum, því þar leið henni best. Síð-
ustu árin, eftir að hún hætti að
vinna, var hún í sumarbústaðnum
stóran hluta ársins. Bamabarna-
börnin voru nú farin að koma í
heimsókn, annaðhvort ein eða í
fylgd foreldra.
Þrátt fyrir búsetu sína í Dan-
mörku hafði hún reglulega sam-
band, fylgdist með lífi okkar systk-
inanna og barna okkar, var óspör á
ráðgjöf og tók mikinn þátt í lífi okk-
ar. Hún var ekki farin að tapa minni
þrátt fyrir háan aldur og fylgdist
því ekki síður með en þeir sem
yngri voru.
Elsku amma, ég þakka allar góðu
stundimar sem við áttum saman.
Þóroddur.
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minning@mbl.-
is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem við-
hengi.
Auðveldust er móttaka svokall-
aðra ASCII skráa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-texta-
skrár. Þá eru ritvinnslukerfin
Word og WordPerfect einnig
nokkuð auðveld úrvinnslu.
Um hvem látinn einstakling
birtist ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar grein-
ar um sama einstakling tak-
markast við eina örk, A-4, miðað
við meðallínubil og hæfilega
línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Til-
vitnanir í sálma eða Ijóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi.
Greinarhöfundar era beðnir að
hafa skímamöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
MARGRET FJOLA
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Margrét Fjóla
Guðmundsdóttir
fæddist á Hóli í Sæ-
mundarhlíð 3. des-
ember 1923. Hún
Iést í Seljahlíð 17.
september sfðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Seljakirkju 25. sept-
ember.
Þegar fregnin um að
Margrét Fjóla væri dá-
in kom margt upp í
hugann, meðal annars
þakklæti fyrir að fá að
hafa kynnst henni. Ég hugsaði
hvemig best væri að færa dóttur
minni þau tíðindi að amma Magga
væri dáin. Eg vissi fyrirfram að það
yrði henni erfitt því alltaf hefur
Magga skipað stóran sess í huga
hennar. Jú, það var grátur og
Dagný Fjóla sagði: „En mamma, ég
kvaddi ömmu Möggu ekki nógu
vel.“ Þetta vora hennar fyrstu við-
brögð, hún hugsaði til þeirrar
stundar þegar hún kvaddi ömmu
sína á íslandi í byrjun september og
sagði: „Svo hittumst við um jólin.“
Þetta vora kveðjuorðin.
Margrét var mjög félagslynd
kona og hafði svo mikið að gefa af
sér. Það var fastur liður hjá okkur
mæðgum þegar við komum í heim-
sókn til Islands að heilsa upp á Mar-
gréti í Seljahlíð. Áður en við fóram
frá Islandi í byrjun september
kvöddum við Möggu. Mér verður
hugsað til þeirrar stundar þegar við
sátum inni í herbergi
hjá henni. Hún var um-
kringd myndum af fjöl-
skyldunni, afa Ingólfi
og öðrum fjölskyldu-
meðlimum. Þetta um-
hverfi var mjög lýsandi
fyrir Margréti þar sem
fjölskyldan var henni
afskaplega dýrmæt. í
heimsókninni hélt hún í
hönd Dagnýjar Fjólu,
sem dáðist að arm-
bandinu sem var um
hönd ömmu og sagði:
„Amma, mikið er arm-
bandið þitt fallegt."
Margrét var ekki lengi að svara og
sagði: „Dagný mín, ég vil endilega
gefa þér það.“ Ömmubamið sagði
þá: „Nei, amma þú átt það og ég vil
að það sé hjá þér.“ Þetta var mjög
lýsandi fyrir Mai-gréti og hennar
manngerð. Henni leið best þegar
hún gat glatt aðra hvort sem var
með gjöfum eða með sinni hlýju per-
sónu.
Það er ómetanlegt fyrir barn að
fá að njóta þess að eiga stundir með
ömmu og afa. Ég er þakklát fyrir
það að barnið mitt fékk að njóta
þess að kynnast afa Ingólfi og
ömmu Möggu enda þótt kynnin hafi
ekki verið löng. Þó nógu löng til
þess að hún mun alltaf muna eftir
þeim og þau verða ávallt hjá henni.
Við sendum ykkur öllum samúðar-
kveðjur og eins og Dagný Fjóla
sagði: ,Amma er ekki ein núna því
nú er hún aftur hjá afa Ingólfi."
Jenný Davíðsdóttir.
MAGNUS GUÐBJORN
GUÐMUNDSSON
+ Magnús Guðbjörn Guð-
mundsson frá Sólbakka í
Súðavík í Álftafirði, var fæddur
í Drangavík í Árneshreppi 28.
ágúst 1930. Hann lést á heimili
Andreu dóttur sinnar hinn 14.
september siðastliðinn og fór
útför hans fram frá Súðavíkur-
kirkju 19. september.
Okkur langar að minnast þín
Maggi frændi með nokkram orðum.
Þú varst ætíð rólegur og þægilegur,
einnig mjög bamgóður enda löðuð-
ust böm mjög að þér, þar vora okk-
ar böm engin undantekning, þau
kölluðu þig alltaf Magga póst enda
var það starf þitt að keyra póstinn.
Eitt sinn þegar við buðum þér og
strákunum þínum í mat höfðum við
mjög gaman af því að þið komuð svo
uppábúnir, það var eins og við hefð-
um boðið til brúðkaups. Þegar húsið
þitt var flutt, hjálpuðum við þér að
mála og gera fínt, þú varst mjög
ánægður með húsið á nýja staðnum.
Þú vildir alltaf allt fyrir okkur
gera. Þú sást til þess að við fengjum
svartfuglsegg á vorin. Einnig gafstu
okkur ómetanlega gjöf, gamla ofn-
inn sem við munum passa mjög vel.
Við viljum sérstaklega þakka fýrir
síðustu stundir okkar saman, þegar
þú og börnin þín komuð til okkar í
kaffi þrátt fyrir veikindi þín.
Megi góður guð styrkja börnin
þín, tengdabörn og bamabörn í
þeirra miklu sorg. Megi minningin
um góðan mann lifa með okkur öll-
um.
Hvíl í friði.
Guðmundur og Salbjörg.
OLAFUR SIGURÐUR
G ÚS TAFSSON
+ Ólafur Sigurður Gústafsson
var fæddur 5. febrúar 1944.
Hann lést í Landspítalanum 6.
september síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Þjóðkirkj-
unni í Hafnarfirði 15. septem-
ber.
Kæri Óli vinur, nú ertu horfinn
yfir móðuna miklu og nú veit ég að
þér líður vel. Þú barðist hetjulega
við illvígan sjúkdóm til hins síðasta.
Oft hringdi ég til að fylgjast með
heilsu þinni og í eitt skiptið svaraðir
þú sjálfur í símann, þá helsjúkur, þá
sagðir þú við mig: „Ragna mín, við
© ÚTFARARÞJÓNUSTAN b„e
Stofnað 1990
Persónuleg þjónusta
Sími: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@itn.is
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri útfararstjóri
verðum að horfa á björtu hliðamar,
það bjargar okkur að vera bjartsýn
og berjast gegn sjúkdómnum."
Þú kvæntist 17.12. 1981 Áslaugu
Kristínu Pálsdóttur f. 12.2. 1946 frá
Stykldshólmi. Þið hjónin eignuðust
eina dóttur, Ágústu Guðrúnu, f.
20.6. 1983, áður áttir þú soninn Sig-
urð Arnar sem búsettur er á Akur-
eyri. Þú eignaðist góða eiginkonu
sem var þér stoð í lífinu. Ása er
systurdóttir mín og kom ég oft á
heimili ýkkar að Hringbraut 15 og
oft var ég stödd þar þegar þú komst
þreyttur af sjónum, þá gafstu mér
fisk í soðið og á vorin rauðmaga og
grásleppu, þetta var allt yndislega
vel frá gengið úr þínum höndum.
Óli minn, ég þakka þér allt sem
þú gerðir fyrir mig hér á „Hótel
jörð“. Guð leiði þig til góðra nýrra
heimkynna.
Ég bið góðan guð að styrkja eig-
inkonu þína, börn, móður, tengda-
föður og aðra aðstandendur í sorg
sinni.
Ragnheiður Þorvaldsdóttir,
Hafnarfirði.