Morgunblaðið - 30.09.1998, Page 51

Morgunblaðið - 30.09.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998 5 ffl OIGiTAL Thx DIGITAI ANTONtO BANDERAS Frá leikstjóra Goldeneye og framleiðendum Men In Black MÁGNAÐ BÍÓ /DD/ Mittíöíff HOPKINS THE MASK O F ZORRO Sýnd í A-sal kl. 5, 9 og 11.30. b. í. 12. Sýnd kl. 9 og 11. aua Sýnd kl. 5. ano ★ wm/NEí * = ALUÖRIiBIO! naPP»?y -— — STflFR/TiMT siœrsia tjalohi með =Z — = = HLJÓÐKERFI í j UV =E= =t*-= ÖLLUM SÖLUM! www.vortex.is/stiornubio/ ANTONJO BANDERAS Frá Leikstjóra Goldeneye og framleiðendum Men In Black HOPKINS THE MASK O F ZORRO Sýnd kl. 5, 7 og 9. b. i. 12. stiODQ ONians kikik , tk ÓHT Rás 2 .rf Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. http://www.mgm.com/speciesii - K - Kornungur flamenco-dansari í Loftkastalanum Yfir 80% áhorfenda Lærði dansinn á götunum \ JAIRO er kornungur, rétt tæplega 16 ára gamall. Hann er frá Sevilla, höfuðborg Andalúsíu á Suður-Spáni, og er af miklu dans- og tónlistarfólki kominn. Flamenco-dansinn lærði hann ungur á götum úti og naut einkum leið- sagnar foreldra sinna og frændfólks. Þrátt fyrir ungan aldur hefur þessi ungi sígauni vakið mikla athygli bæði í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan fyrir hæfileika sína. Á Spáni þykir hann eitt mesta náttúrubarn sem komið hefur fram á þessu sviði og haft er á orði að þroski hans í dansinum sé með slíkum eindæmum að þar mætti ætla að færi helmingi eldri maður. Mikið og fallegt ævintýri Jairo sagði í samtali við Morgunblað- ið í gær að hann hlakkaði mjög til að kynna list sína fyrir fslendingum. „Það verður mikið og fallegt ævintýri að koma til íslands í fyrsta skiptið og ég hlakka mjög mikið til.“ Hann kvaðst hafa byijað að dansa flamenco 8 eða 9 ára gamall. „Það er erfitt að lýsa því ná- kvæmlega hvernig maður byijar. 011 fjölskyldan stundar þetta meira og minna og þetta er nokkuð sem maður getur ekki aðskilið frá sjálfu Iifinu. Þetta er fjölskylduhefð," segir Ja- iro en þess má geta að móð- ir hans sem er aðeins rétt rúmlega þrítug þykir einnig fær flamenco- dansari. Jairo dansar svo- nefndan „hreinan" fla- menco-dans. Hann heldur tryggð við hefðina og fylgir hinum upprunalegu hugmynd- um sem liggja dansinum til grundvallar, hinni óheftu og fyr- irvaralausu tjáningu. Stíll Jairo þykir sérlega karlmannlegur, þótt hann sé enn í mótun og rót- bundinn hinum alþýðlegu hefð- um þessa listforms. Nálægð við áhorfendur Jairo leggur áherslu á að hann hafi ekkert á móti flamenco-dansi eins og hann sé kenndur í skólum en sá stíll sé honum framandi. „Minn stíll krefst annars konar undirbúnings, nálægðar við fólk- ið mitt, auk þess sem hann mótast frekar af andrúmsloftinu og við- brögðum áhorfenda," segir Jairo. Hann segir greinilegt að áhugi fólks um heim allan á flamenco fari ört vaxandi. Með Jairo í för verður þekktur flamenco-gítarleikari, E1 Piripi að nafni, en samvinna þeirra þykir einstök. E1 Piripi er einnig sígauni og af miklu tónlistarfólki kominn en verkefni þeirra tveggja er að túlka vers þau sem söngvarinn syngur og mælir fram, samkvæmt flamenco-hefð- inni. Þeir munu sýna listir sínar í Loftkastalanum á fimmtudags- og föstudagskvöld. Brosmild fegurðar- drottning ► LIA Victoria Borrero frá Panama brosir út að eyrum enda nýkjörin Ungfrú alheimur árið 1998. Daniela Kosan Montcourt frá Venesúela varð í öðru sæti og Shvetha Jaishankar frá Indlandi varð í því þriðja. Á myndinni óska þær Borrero til hamingju. 43 fegurðardrottningar tóku þátt í keppninni sem fram fór í Tókýó um helgina. völdu Stikkfrí KVIKMYNDIN Stikkfrí var valin besta myndin á Alþjóð- legri kvikmyndahátíð barna sem fram fór í Frankfurt um helg- ina. Þetta er í 25. skipti sem hátíðin er haldin og fékk Stikkfrí Lúkas- verðlaunin sem eru aðalverðlaun há- tíðarinnar. Hverjum aðgöngumiða fylgdi at- kvæðaseðill og fengu áhorfendur því einnig að velja bestu myndina. Er skemmst frá því að segja að Stikkfrí fékk líka áhorfendaverðlaunin og völdu yfir 80% áhorfenda hana sem bestu myndina. Krakkar réðu úrslitunum Aðaldómnefndin var skipuð fimm fullorðnum einstaklingum sem var leiðbeint af fimm börnum. í úr- skurði dómnefndarinnar sagði að myndin hefði orðið fyrir valinu „vegna þess að hún tekur á alvar- legu viðfangsefhi með kímni og hug- myndaauðgi sem snertir bæði böm og fullorðna. Afar trúverðugir leikarar sanna fyrir fullorðnum að vinátta og gagn- kvæmur skilningur hjálpa til í lífs- baráttunni þótt allt virðist ganga á afturfótunum. Sagan og hvernig henni er komið til skila er mjög sannfærandi í einu og öllu.“ Sýnd í þýskum skólum? „Þetta var mjög fmt,“ segir Ari Kristinsson, leikstjóri. „Ég reyndar stoppaði mjög stutt á hátíðinni því ég var á leið til Aþenu. En myndin fékk góðar viðtökur. Þetta var stórt FRÁ tökum á Stikkfrí. kvikmyndahús sem var fullt af börnum og tóku þau myndinni mjög vel. Ég þóttist öruggur um áhorf- endaverðlaunin þegar ég fann stemmninguna í salnum. Umræður voru eftir sýninguna og stóðu þær í einn og hálfan tíma.“ Hvaða þýðingu hefur þetta? „Þetta vekur mikla athygli á mynd- inni í Þýskalandi þar sem hún verð- ur frumsýnd eftir tvo mánuði,“ svarar Ari. „Hún fær stærri kynn- ingu fyrir vikið. Þá fengum við kauptilboð í myndina því menn vilja sýna hana í skólakerfinu í Þýska- landi næstu fimm árin. Umræðan var á þann veg að loksins hefði það tekist í norrænni mynd, sem venju- lega væru fullar af leiðinlegum siða- predikunum, að fjalla um mikilvægt málefni án þess að það yrði óbæri- lega leiðinlegt. Sú umræða á eftir að hjálpa dreifingunni mikið í Þýska- landi.“ Þreifingar í Bandaríkjunum Stikkfrí er sýnd um þessar mund- ir í tíu kvikmyndahúsum í Noregi og var uppselt á myndina fyi-stu helgarnar í Osló. Hún verður frum-sr sýnd í Israel í nóvember, Svíþjóð um jólin og snemma á næsta ári í Þýskalandi og Austurríki. Þá verð- ur hún sýnd á fjölda kvikmyndahá- tíða á næstu mánuðum og hefur verið kappkostað að tengja hátíðar- þátttöku við kynningu dreifingarað- ila í hverju landi. Stikkfrí hefur verið seld í kvik- myndahúsa- og sjónvarpsdreifingu til flestra landa Evrópu. „Hún virð- ist ætla að fá meiri bíódreifingu en íslenskar myndir hafa fengið í lang- an tíma,“ segir Ari. Auk þess standa samningaviðræður yfir um sölu myndarinnar til fleirí landa og ber þar hæst þreifingar á Bandaríkja- markaði. v Stikkfrí besta barnamyndin í Frankfurt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.