Morgunblaðið - 02.10.1998, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra setti Alþingi í gær 1 umboði Forseta Islands
Hægt að fylgjast með útsend-
ingu þingfunda í gegnum Netið
ALÞINGI íslendinga, 123. löggjafarþing, var
sett í gær að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkj-
unni. Davíð Oddsson forsætisráðherra setti
þingið í umboði Olafs Ragnars Grímssonar, for-
seta íslands. Þá flutti Ragnar Amalds, sem hef-
ur lengstan starfsaldur þingmanna, minningar-
orð um látinn fyrrverandi alþingismann, Ólaf Þ.
Þórðarson. Að því búnu var Ölafur G. Einarsson
endurkjörinn forseti Alþingis og flutti hann
stutt ávarp þar sem hann skýrði m.a. frá því að
frá og með deginum í gær gætu allir sem að-
gang hefðu að Netinu fylgst með útsendingum
af þingfundum Alþingis af tölvuskjám.
Stefnuræða forsætisráðherra var því næst flutt
og eftir að þingfundi hafði verið frestað um tæp-
an klukkutíma var fjárlagafrumvarpinu útbýtt
og kosnir fjórir varaforsetar þingsins auk full-
trúa í fastanefndir.
Eftir að forsætisráðherra hafði sett þingið
skýrði hann frá því að Ólafur Ragnar gæti ekki
verið við setningu Alþingis að þessu sinni þar
sem hann væri við sjúkrabeð eiginkonu sinnar,
Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, í Seattle í
Bandaríkjunum. „Forsetafrúin hefur glímt við
erfíðan sjúkdóm og sýnt æðruleysi og kjark í
baráttu við mikið ofurefli. Ur þessum sal eru
þeim hjónum sendar hlýjar kveðjur," sagði ráð-
herra.
Minningarorð um látinn þingmann
Eftir að þingheimur hafði minnst forseta íslands
og ættjarðarinnar með húrrahrópum
tók Ragnar Arnalds, aldursforseti AI-
þingis, við fundarstjóm, Flutti hann
nokkur minningarorð um Ólaf Þ. Þórð-
arson, fyrrverandi alþingismann, sem
andaðist á heimili sínu í Borgarfírði
sunnudaginn 6. september, fímmtíu og
sjö ára að aldri. „Ólafur Þ. Þórðarson
var atkvæðamaður þar sem hann kom
að málum. Á Alþingi tók hann oft til
máls og í ræðum hans leyndi sér ekki
að hann var minnuggur, víðlesinn og
margfróður. Honum var létt um mál
og hann var ódeigur í kappræðum,
rökfastur og hnyttinn. Hann var stað-
fastur flokksmaður, ötull baráttumað-
ur fyrir hagsmunum dreifbýlisins og
umbótamálum í kjördæmi sínu,“ sagði
Ragnar m.a.
Að minningarorðunum loknum fór fram for-
setakjör og var Ólafur G. Einarsson endurkjör-
inn. Tók hann við fundarstjóm og ávarpaði
þingheim. Skýrði hann m.a. frá því að þingstörf-
um lyki í fyrra lagi á þessu þingi vegna alþingis-
kosninganna 8. maí í vor. Þingfrestun verður því
10. mars nk. Forseti Alþingis fór því næst
nokkrum orðum um húsnæðismál Alþingis og
sagði að hönnun þjónustuskála, sem fyrirhugað
væri að risi vestan við Alþingishúsið, miðaði vel
áfram, en reyna myndi á það við afgreiðslu fjár-
laga fyrir næsta ár hvort ráðist yrði þá í fram-
kvæmdir.
Alþingi fær eina sjónvarpsrás
á breiðbandinu
„Það er mér [...] sérstakt ánægjuefni að geta
skýrt frá því að frá og með deginum í dag geta
allir sem hafa aðgang að Netinu, hvar sem er í
heiminum, fylgst með útsendingu af þingfund-
um frá tölvuskjám. Þetta nýmæli skipar Alþingi
á bekk með þeim þjóðþingum sem lengst eru
komin í því að hagnýta sér möguleika Netsins til
að miðla upplýsingum um starfsemi sína,“ sagði
forseti Alþingis.
„Ég vil einnig nota þetta tækifæri til að skýra
frá því að fyrir skömmu var undirritaður samn-
ingur milli Alþingis og Landssímans hf. um að
Alþingi fái til afnota eina sjónvarpsrás á breið-
bandi Landssímans til útsendingar frá fundum
Alþingis og á öðru sjónvarpsefni sem varðar
störf Alþingis. Allir þeir sem eru tengdir breið-
bandinu munu eiga kost á að nýta sér þessa út-
sendingu sér að kostnaðarlausu. Með þessum
samningi er tryggð samfelld útsending frá þing-
fundum í gegnum miðil sem Landssíminn áætlar
að muni ná inn á hvert heimili í fram-
tíðinni. Um léið skapast tækifæri fyr-
ir Alþingi til þess að nota rásina til út-
sendingar á öðru efni þegar ekki er
sent út frá þingfundum. í því sam-
bandi kæmi til dæmis til greina að
senda út fræðsluefni um Alþingi á
breiðrásinni. Jafnframt væri þing-
flokkum sköpuð aðstaða til að vera
með sérstaka dagskrá til að kynna
stefnumál sín sem og til að kynna þau
mál sem þeir leggja fram á Alþingi,
allt samkvæmt reglum sem forsætis-
nefnd Alþingis mundi setja.“
Varaforsetar endurkjörnir
Að loknu ávarpi forseta Alþingis flutti
forsætisráðherra stefnuræðu sína
sem er birt í heild sinni á öðrum stað hér í blað-
inu í dag. Þá var þingfundi frestað um tæpan
klukkutíma og þegar hann hófst að nýju var til-
kynnt um stofnun nýs þingflokks, þingflokks
óháðra, sem í eiga sæti Steingrímur J. Sigfús-
son, Ögmundur Jónasson, sem jafnframt er for-
maður þingflokksins, Hjörleifur Guttormsson og
Kristín Ástgeirsdóttir. Einnig var skýrt frá því
að Kristín Halldórsdóttir hefði tekið við embætti
formanns þingflokks Kvennalistans. Þá var kos-
ið um fjóra varaforseta Alþingis. Ragnai- Arn-
alds var endurkjörinn sem fyrsti varaforseti, St-
urla Böðvarsson, sem annar varaforseti, Guðni
Ágústsson sem þriðji varaforseti og Guðmundur
Árni Stefánsson sem fjórði varaforseti. Enn-
fremur voru fulltrúar kjörnir í fastanefndir
þingsins og að lokum úthlutað sætum í þingsaln-
um. Að því búnu var þingsetningarfundi slitið.
Þingflokkur
Alþýðubandalags
og óháðra
Orðið
„óháðra“
fellur út
ÁKVEÐIÐ var á þingflokks-
fundi Alþýðubandalags og
óháðra í gær að þingflokkurinn
bæri á þessu þingi heitið Þing-
flokkur Alþýðubandalagsins.
Orðið „óháðra" var þar með fellt
úr heiti hans.
Þingflokkurinn fékk heitið
Þingflokkur Alþýðubandalags
og óháðra eftir síðustu kosning-
ar þegar Ögmundm' Jónasson
komst inn á þing af framboðs-
lista Alþýðubandalagsins og
óháðra í Reykjavík, en hann var
fulltrúi óháðra á listanum.
Ögmundur hefur hins vegar
stofnað þingflokk óháðra, ásamt
Steingrími J. Sigfússyni og
Hjörleifi Guttormssyni, sem áð-
ur vora í þingflokki Alþýðu-
bandalags og óháðra. í þing-
flokki óháðra er einnig Kristín
Ástgeii’sdóttir.
Á fundi þingflokks Alþýðu-
bandalagsins í gær var enn-
fremur kosið í stjórn þing-
flokksins. Var Svavar Gestsson
endm'kjörinn formaður þing-
flokksins, Kristinn H. Gunnars-
son endurkjörinn vai-afoi-maður
og Bryndís Hlöðversdóttir end-
urkjörin ritari.
Synjað um
leyfí til að
koma saman
TÓLF náttúruverndarsamtök
og útivistai'félög og tugum lista-
manna var á miðvikudag synjað
um leyfi til koma saman á AusL
urvelli og lesa ættjarðarljóð
meðan á þingsetningu stóð í
gær. „Þetta átti að gera í þeim
tilgangi að vekja athygli á mál-
efnum miðhálendisins," sagði
Kolbrún Halldórsdóttir leik-
stjóri, sem var einn skipuleggj-
enda aðgerðanna, í gær. „Ólafur
G. Einarsson, forseti Alþingis,
hafði samþykkt að taka á móti
áskorun, en því var slegið á frest
vegna banns lögreglunnar."
Sagði Kolbrún að þetta hefði
komið sér á óvart. Efaðist hún
um að slík ákvörðun væri rétt-
mæt í lýðræðisríki þar sem ætti
að ríkja fundafrelsi. Hún sagði
að Elísabet Jökulsdóttir skáld
hefði engu að síður staðið fyrir
framan Alþingi þegar þing-
menn gengu þaðan til Dóm-
kirkjunnar og lesið Island far-
sælda Frón eftir Jónas Hall-
grímsson.
Gott samkomulag milli þingflokka stjórnarandstöðunnar um skipan í fastanefndir Alþingis
Búist við því að Kristinn
H. taki við formennsku
í sj á varút veg'snefnd
GERT er ráð fyrir því að Kristinn
H. Gunnarsson, þingmaður þing-
flokks Alþýðubandalags, taki við
formennsku í sjávarútvegsnefnd
Alþingis á þessú þingi af Stein-
gi'ími J. Sigfússyni, þingmanni
þingflokks óháðra, sem vikið hefur
úr nefndinni. Fulltrúar í fasta-
nefndir Alþingis voru kjörnir á
þingsetningarfundi í gær og tók þá
Kristinn H. sæti í nefndinni í stað
Steingríms J.
Steingrímur segir í samtali við
Morgunblaðið að gott samkomulag
sé milli þingflokka stjómarand-
stöðunnar um skipan í fastanefndir
Alþingis og að hann hefði boðist tfl
þess að fyrra bragði að láta af for-
mannsembætti sjávarútvegsnefnd-
ar til þess að greiða fyrir góðu
samkomulagi milli þingflokkanna.
„Ég gerði mér grein fyrir því að
eitt af því sem mönnum fannst vera
komið í ójafnvægi var sú staðreynd
að tvær af þremur nefndarfor-
mannsstöðum í þingnefndum, sem
stjómarandstaðan hafði með hönd-
um, lentu hjá þessum nýja þing-
flokki okkar [þingflokki óháðra],“
sagði hann og bætti því við að það
hefði ekki verið „erfitt" eins og
hann orðaði það að láta af því emb-
ætti. „Það var ekkert sáluhjálpar-
atriði fyrir mig að vera nákvæm-
lega í þessu embætti."
Steingrímur kvaðst gera ráð fyr-
ir því að Kristín Ástgeirsdóttir,
þingmaður þingflokks óháðra, yrði
áfram formaður félagsmálanefndar
Alþingis og að þingflokkur óháðra
hefði fulltrúa í sex fastanefndum
Alþingis. Þær væru auk félags-
málanefndar, efnahags- og við-
skiptanefnd sem Steingrímur héldi
sæti í, umhverfisnefnd, mennta-
málanefnd, allsherjarnefnd og iðn-
aðarnefnd. Þá myndi þingflokkur-
inn væntanlega óska eftir því að
hafa áheyrnai'fulltrúa í flestum
öðrum nefndum þingsins. Alls hafa
þingflokkar stjórnarandstöðunnar
rétt á 37 sætum í nefndum Alþingis
fyrir utan forsætisnefnd og skipt-
ast þau sæti á milli þingflokkanna í
samræmi við þingstyrk þeirra.
Sighvatur í utanríkismálanefnd
Aðrar breytingar á nefndaskip-
an Alþingis ettir kjörið í gær eru
eftirfarandi. Ögmundur Jónasson
tekur sæti í allsherjamefnd í stað
Bryndísar Hlöðversdóttur. Ki'istín
Halldórsdóttir tekur einnig sæti í
nefndinni í stað Guðnýjar Guð-
björnsdóttur. Svavar Gestsson tek-
ur sæti í efnahags- og viðskipta-
nefnd í stað Sighvats Björgvins-
sonar. Guðný Guðbjörnsdóttir tek-
ur sæti í félagsmálanefnd í stað
Ögmundar Jónassonar. Bryndís
Hlöðversdóttir tekur sæti í heil-
brigðis- og trygginganefnd í stað
Margrétar Frímannsdóttur. Hjör-
leifur Guttormsson tekur sæti í
iðnaðarnefnd í stað Svavars Gests-
sonar. Kristín Ástgeirsdóttir tekur
sæti í menntamálanefnd í stað Sig-
ríðar Jóhannesdóttur. Margrét
Frímannsdóttir tekur sæti í um-
hverfisnefnd í stað Kristínar Hall-
dórsdóttur og Sighvatur Björg-
vinsson tekur sæti í utanríkismála-
nefnd í stað Kristínar Ástgeirs-
dóttur.