Morgunblaðið - 02.10.1998, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Vetrarstarf
KFUM og K
VETRARSTARF KFUM og
K á Akureyri er að hefjast, en
félagið hefur starfað í yfir 40
ár á Akureyri. Starf yngri
deilda hefst næstkomandi
mánudag, 5. október og verða
fundir annan hvem mánudag
fyrir stráka og stelpur á aldr-
inum 9 til 12 ára. Farið verður
í ferðalag að Hólavatni í vetur.
Böm á aldrinum 9-12 ára em
velkomin en fundirnir byrja
kl. 17.30 í Sunnuhlíð.
Bingó hjá
Baldursbrá
KVENFÉLAGIÐ Baldursbrá
heldur sitt árlega bingó í safn-
aðarsal Glerárkirkju næst-
komandi laugardag, 3. október
kl. 14.
Allur ágóði rennur í minn-
ingarsjóð Júdithar Sveinsdótt-
ur sem stofnaður var 1994.
Þorvaldur Ingvarsson lækningaforstjóri á FSA
Vildum gjarnan fjölga
sérgreinum og læknum
NICK Cariglia, sérfræðingur í lyf-
lækningum og meltingarfæralækn-
ingum á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri hefur dregið uppsögn sína
til baka og mun því ekki láta af
störfum við sjúkrahúsið í lok mánað-
arins eins og til stóð. í frétt í Morg-
unblaðinu sl. laugardag var fjallað
um hræringar meðal lækna á FSA,
sem hefðu sagt upp eða væm að
fara í leyfi.
Þorvaldur Ingvarsson, sem ný-
lega tók við nýrri stöðu lækninga-
forstjóra við FSA, sagði það bæði
gott og slæmt að læknar fari í leyfi
eða segi upp. „Það sem er jákvætt
fyrir stofnunina er að vel menntaðir
einstaklingar hér eiga völ á störfum
í Reykjavík en það neikvæða er hins
vegar að það getur verið erfitt að
ráða í þeirra stað og getur oft tekið
langan tíma.“
Stöðunefnd sjúkrahússins er nú
Ferðamálaráð Islands f 1 lcelandic Tourist Board
8. og 9. október að Fosshótel KEA, Akureyri
Dagskrá:
Fimmtudagur 8. október.
kl. 13.00 Setning, Birgir Þorgilsson
formaður Ferðamálaráðs
kl. 13.10 Ávarp, Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
Pallborð 7. Staða og framtíð íslenskrar ferðaþjónustu.
kl. 13.25 Magnús Oddsson, ferðamálastjóri
kl. 13.40 Þorkell Sigurlaugsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskipa
kl. 13.55 Ómar Óskarsson,
framkvæmdastjóri Austurleiðar/SBS
kl. 14.10 Helgi Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýnar
kl. 14.25 Hrönn Greipsdóttir,
framkvæmdastjóri Hótel Sögu
kl. 14.40 Fyrirspurnir
kl. 15.20 Kaffihlé
kl. 15.50 Ávarp samgönguráðherra, Hr. Halldór Blöndal
kl. 16.00 Afhending umhverfisverðlauna FMR fyrir 1998
kl. 16.15 Fundarhlé.
kl. 16.30 Óvissuferð I boði heimamanna.
kl. 19.30 Fordrykkur í boði samgönguráðherra
Kvöldverður og skemmtun í boði Eyfirðinga
Föstudagur 9. október.
Pallborð 2.
Tækifæri og nýjungar í ferðaþjónustu við
þröskuld nýrrar aldar.
Guðmundur Malmquist,
forstjóri Byggðastofnunar
Haukur Birgisson,
markaðsstjóri Ferðamálaráðs
Guðmundur Kjartansson,
framkvæmdastjóri Island Tours
Bjarni P. Hjarðar,
forstöðumaður rekstrardeildar H.A.
Fyrirspurnir
Hádegisverðarhlé.
Kynning á samtökum ferðaþjónustunnar
(SAF)Þorleifur Þór Jónsson,
framkvæmdastjóri Hópferðamiðstöðvarinnar
Almennar umræður og afgreiðsla ályktanna.
Kaffihlé
Ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjórar:
Arnar Páll Hauksson, deildarstjóri RÚVAK
Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps
Ráðstefnugjald kr. 6.000,-
Innifalið í ráðstefnugjaldi eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar.
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Ferðamálaráðs íslands, Akureyri
í síma 461-2915
kl. 10.00
kl. 10.15
kl. 10.30
kl. 10.45
kl. 11.00
kl. 11.45
kl. 13.30
kl. 13.50
kl. 14.45
kl. 15.30
að fara yfir þær þrjár umsóknir sem
bárust um stöðu yfirlæknis á slysa-
deild. Umsækjendur em Ari H.
Ólafsson og Jón Ingvar Ragnarsson,
sem starfa sem bæklunarlæknar á
FSA og Guðni Arinbjarnar, sem
starfar sem bæklunarlæknir í Nor-
egi.
Taugasjúkdómalæknir og
barnalæknir til starfa
Þorvaldur sagði að nýr tauga-
sjúkadómalæknir hafi verið ráðinn
til starfa við FSA og hóf hann störf
þann 1. október sl. Sá heitir Gunnar
Friðriksson og kom frá Svíþjóð og
skiptist starf hans á milli lyfjadeild-
ar og endurhæfíngar- og öldmnar-
deildar. Kona hans, Andrea Andrés-
dóttir, er barnalæknir og var ráðin á
bamadeild FSA sl. vor. Mikael
Clausen barnalæknir var í leyfi á
síðasta ári-og var að ljúka sinni und-
irsérgrein í barna- og ofnæmislækn-
ingum en kom aftur til starfa sl.
haust.
„Við viljum að sjálfsögðu hafa hér
sem öflugasta stofnun og vildum
gjarnan fjölga sérgreinum og lækn-
um. Svæðið sem stofnunin þjónar er
mjög stórt og við viljum þjóna því á
sem bestan hátt. En okkur vantar
lyflækni og kannski lyflækna, þar
sem ekki hefur tekist að ráða í stöðu
hjartalæknis sem losnaði nýlega.
Við þurfum lækna sem em al-
mennir lyflæknar og hafa undirsér-
grein. Með aukinni sérhæfingu í
læknisfræði verður meiri eftirspurn
eftir vel menntuðum læknum. Því
getur tekið nokkurn tíma að fylla
þetta skarð og verður sennilega ekki
gert til að byrja með nema með því
að fá hingað lyflækni með einhverja
aðra undirsérgrein, meðan beðið er
eftir hjartalækni,“ sagði Þorvaldur.
Morgunblaðið/Kristján
NÓTASKIPIN Þórður Jónasson EA og Súlan EA héldu á loðnumiðin í
gær og voru skipverjarnir á Þórði að taka nótina um borð skömmu
fyrir hádegi.
Oddeyrin
landaði síld
ODDEYRIN EA, nótaskip Sam-
herja hf., kom til Akureyrar frá
Noregi síðdegis á miðvikudag og
landaði 440 tonnum af sfld til
bræðslu í Krossanesi.
Oddeyrin var við veiðar í
norsku Íögsögunni en fékk nótina
i skrúfuna á miðunum austur af
Tromsö sl. laugardag. Skipið var
dregið inn í næstu skom, eins og
Eggert Þorfinnsson skipstjóri
orðaði það, þar sem nótin var
skorin úr skrúfunni. Hann sagði
að töluvert af sfld hafi verið á
svæðinu en hún hafi staðið djúpt,
auk þess sem straumur og óhag-
stætt veður hafi gert þeim erfitt
fyrir. Þá var skipið með loðnunót,
sem einnig hafði sín áhrif. Eggert
sagði að sfldin væri góð í
bræðslu, „heit og fín“ en sjórinn á
svæðinu var um 10 gráða heitur.
Á Akureyri var gert við
loðnunót Oddeyrarinnar áður en
skipið hélt áleiðis á loðnumiðin í
gærmorgun. Eggert var ekki al-
veg viss um hvert hann færi, þar
sem lítið hafði frést af veiðanlegri
loðnu.
Haustlitir
Og ljóð
HAUSTLITIR og ljóð er yfir-
skrift á dagskrá sem verður í
Kjarnaskógi á morgun á veg-
um Gilfélagsins.
Um er að ræða haustlita-
göngu og ljóðalestur en Aðal-
steinn Svanur Sigfússon verð-
ur leiðsögumaður. Gönguferðir
verða stuttar og léttar. Áð
verður á fegurstu stöðum
skógarins, þar sem þátttakend-
ur skemmta sér við ljóðalestur
og söng milli þess sem gægst
verður í malpokann. Lagt verð-
ur af stað úr Grófargili kl. 13 á
morgun, laugardaginn 3. októ-
ber og er þátttökugjald 500
krónur.
Taly og Russ
í Ljósmynda-
kompunni
SÝNING á verkum Taly og
Russ Johnson verður opnuð í
Ljósmyndakompunni í Kaup-
vangsstræti á morgun, laugar-
daginn 3. október kl. 16.
Þau hafa í sameiningu unnið
verk í ýmsa miðla frá árinu
1996, s.s. myndbönd, ljósmynd-
ir, málverk og bókverk. Russ
nam við Cooper Union og hef-
ur sýnt myndbanda- og fjöl-
miðlaverk frá 1984 en Taly út-
skrifaðist úr kvikmynda- og
sjónvarpsdeild New York-há-
skóla og hefur leikstýrt og
framleitt nokkrar stuttmyndir.
Þau Taly og Russ Johnson búa
og starfa í New York.
AKSJÓN
Föstudagur 25. september
12.00ÞSkjáf réttir
18.15ÞKortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag.
Endursýndur kl. 18.45, 19.15,
19.45, 20.15, 20.45.
21 .OOÞBæjarsjónvarp
Annáll MA frá síðasta skólaári.
(e)
Slapp með minniháttar meiðsl eftir
árekstur við fjárflutningabíl
Kraftaverk að
ekki fór verr
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli í Svalbarðskirkju
kl. 11 á sunnudag. Væntanleg
fermingarbörn komi í kirkjuna
kl. 10.30. Kirkjuskóli í Grenivík-
urkirkju kl. 13.30 á sunnudag.
Væntanleg fermingarbörn komi
í kirkjuna kl. 14.30. Kyrrðar- og
bænastund í Grenivíkurkirkju
kl. 21 á sunnudagskvöld.
SUMARLIÐI Daðason slapp svo
til ómeiddur eftir að bíll sem hann
ók lenti aftan á kyrrstæðum fjár-
flutningabíl við bæinn Húsey
skammt frá Varmahlíð aðfaranótt
miðvikudags.
Óhappið varð um kl. 1 eftir mið-
nætti, en Sumarliði var á leið til
Akiu'eyrar. Hann sagðist hafa ekið
á 80-90 kílómetra hraða eftir bein-
um vegarkafla þegar hann sá bíl
koma á móti sér. Okumenn skiptu
úr háum ljósum í lág þegar ljósin
fóru að blinda þá. „Allt í einu kem-
ur stærðarinnar trukkur inn í ljós-
geislann hjá mér, hann er alveg
ómerktur og engar viðvaranir. Bíll-
inn, sem var mjög dökkur, fyllti al-
veg út í akreinina mína, þannig að
ég sá ekkert fyrr en ég var alveg
kominn að honum. Ég skall beint
aftan á vagninn, en ósjálfrátt
beygði ég mig niður og það hefur
eflaust orðið mér til lífs,“ sagði
Sumarliði, en bíllinn fór undir allan
vagninn og stöðvaðist við hásing-
una. Ekki hefði þurft að spyrja að
leikslokum hefði farþegi verið í
bílnum.
Að sögn lögreglu á Sauðárkróki
sem fór á vettvang var um að ræða
fjárflutningabíl sem hafði verið
lengdur. Bíllinn hafði bilað og verið
skilinn eftir. Til stóð að gera við
hann fyrr um kvöldið en það gekk
ekki eftir. Lögregla sagði það afar
slæmt að skilja bíla eftir við þjóð-
veginn án þess að setja upp ein-
hvers konar viðvaranir. Að mati
lögreglunnar á Sauðárkróki geng-
ur það kraftaverki næst að ekki fór
veiT, greinilegt sé að Sumarliði sé
lánsmaður mikill og þá hafi bílbelti
komið að góðum notum, en höggið
hafi verið þungt er hann skall á
flutningabílnum.
Hrósar happi yfir
að vera lifandi
Bíll Sumarliða kastaðist eftir
áreksturinn út á veginn í veg fyrir
bílinn sem kom á móti, en ökumað-
ur hans náði að hemla áður en þeir
skullu saman. „Bíllinn sem ég ók,
Citroén Station, er gjörsamlega í
tætlum, þannig að það er í raun
óskiljanlegt hversu vel ég slapp,
með hálsmeiðsl, minniháttar
áverka og kúlu á hausnum,“ sagði
Sumarliði.
Hann kvaðst hrósa happi yfir að
vera lifandi og að einungis varð um
eignatjón að ræða, en koma hefði
mátt í veg fyrir þetta slys t.d. með
því að setja upp viðvaranir, glit-
merki eða eitthvað þvíumlíkt.