Morgunblaðið - 02.10.1998, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E-vítamín eflir
varnir líkamans
Éhilhúsið
Skólavörðustlg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, Akureyri
í tilefni frumsýningar Dr. Dolittle standa
Morgunblaðið á Netinu og Skífan fyrir léttum
leik þar sem þú getur unnið miða á myndina,
Dr. Dolittle-bol eða Dr. Dolittle-húfu.
Dr. Dolittle var ein mest sótta myndin í Ameríku í sumar en hún er frumsýnd
hér á landi um þessar mundir. Myndin er gamanmynd með Eddie Murphy
í aðalhlutverki en hann hefur kitlað hláturtaugar fólks um allan heim í á
annan áratug.
mbl.is
Taktu þátt í léttum leik á mbl.is og hver veit nema þú vinnir!
Lýsa van-
þóknun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun:
„Þroskaþjálfafélag Islands lýsir
yfir vanþóknun sinni á ráðningu
ieirri sem átt hefur sér stað í starf
t'ramkvæmdastjóra Svæðisskrif-
stofu málefna fatlaðra í Reykjavík.
Gengið er fram hjá mjög hæfum
einstaklingum m.a. þroskaþjálfa
sem hefur góða menntun og mikla
reynslu sem ekki er dregin í efa að
nýtast mundi vel í starfi fram-
kvæmdastjóra svæðisskrifstofu.
I viðtölum við fjölmiðla við hæst-
virtan félagsmálaráðherra hefur ít-
rekað komið fram að sá sem ráðinn
var hafi mikla pólitíska reynslu og
svo er að skilja að sú reynsla sé
meira metin en önnur reynsla og
fagleg þekking.
Ekki er ljóst á þessari stundu
hvenær af flutningi málaflokks fatl-
aðra frá ríki til Reykjavíkurborgar
verður, engu að síður er ljóst að í
undirbúningsvinnu þeirri sem hafin
er og á þeim óvissutíma sem skap-
ast hefur og verður við haldið á
meðan ekki er vitað hvenær og með
hvaða hætti fyrirhugaður flutning-
ur verður, skiptir öllu máli að sá
sem stýrir daglegu starfi svæðis-
skrifstofu um málefni fatlaðra hafi
góða þekkingu og reynslu á sviði
stjórnunar og starfsmannamála og
hafi jafnframt góða fagþekkingu á
málefnum fatlaðra sem og reynslu í
starfí með þeim.“
---------------
■ ANNA Rut Steinsson, klæðskeri
og Helga Rún Pálsdóttir, fata- og
hattahönnuður, sýna föt og hatta í
Galleríi Glugga á Kirsuberjatrénu,
Vesturgötu 4, frá 3. október til 11.
október.
FRÁ landbótaferð Ferðaklúbbs 4x4 í Skaftárhrepp.
Landbótaferð í Skaftárhrepp
FÉLAGAR í Ferðaklúbbnum 4x4
og Sjálfboðaliðasamtökum um
náttúruvernd fóru helgina
28.-30. ágúst sl. í landbótaferð í
Skaftárhrepp.
„Á föstudagskvöldið fóru 20
manns á sjö jeppum inn í Hóla-
skjól á Fjallabaksleið nyrðri og
höfðu menn með sér nokkrar
kerrur, nesti og góða skapið að
ógleymdum regnfatnaði.
Á laugardagsmorgni mættu
heimamenn á staðinn undir for-
ystu Jóhönnu B. Magnúsdóttur,
ferðamálafulltrúa hreppsins.
Bændur komu á dráttarvélum og
vörubfl með heyrúllur, drifu sig
nú allir út í rigninguna og var
hópnum skipt í tvennt, annar
hópurinn fór í að gera við slóða
inn í nýuppgerðan skála í Skæl-
ingum, setja þverbranda og aka
möl í úrrennsli en mikii úrkoma
gerði fólki og tækjum erfitt fyrir.
Hinn hópurinn notaði heyið úr
rúllunum til að fóðra innan
skominga sem myndast hafa
bæði af náttúrulegum orsökum
og ógætilegri umferð um við-
kvæm svæði. Heyið er mjög gott
til að stöðva uppblástur og úr-
rennsli, því það myndar fljótt
þétta þekju á sárin, bindur
þannig lausan jarðveg og vatnið
rennur ofan á því. Síðan breytist
það í gróðurmold og er auk þess
fullt af fræjum. Það var ótrúlegt
að sjá breytinguna sem varð á
brekkunum, þær litu strax miklu
betur út og gaman verður að sjá
árangurinn á næstu árum.
Um kvöldið buðu svo Skaftár-
hreppur og KÁ Kirkjubæjar-
klaustri til veislu í Hólaskjóli og
eftir góða máltíð skemmtu þátt-
takendur sér við kertaljós fram-
eftir kvöldi í góðum félagsskap.
Á sunnudagsmorgni mættu
fulltrúar Landgræðslunnar og
Landgræðslufélags Skaftár-
hrepps með áburð og fræ og var
enn klæðst í regngallana og ráð-
ist til atlögu við rofabörð sem
eimitt blasa við vegfarendum
rétt ofan við Hólaskjól. Upp úr
hádegi skildi síðan Ieiðir, heima-
menn héldu til búa sinna, og að-
komuinenn héldu einnig heim á
leið með viðkomu í OLIS skálan-
um á Selfossi, en þar var fyllt á
tanka farartækjanna, en OLIS
hefur af rausnarskap styrkt um-
hverfisstarf Ferðaklúbbsins 4x4,
bæði með eldsneytis-, áburðar-
og frægjöfum. Á meðan dælt var
á bflana var að sjálfsögðu rennt
ís á mannskapinn.
Það var sérlega ánægjulegt að
taka þátt í samstarfi svona
margra og ólíkra hópa og þarna
sást að hvort sem við ferðumst
um landið á velbúnum fjórdrifs-
bflum eða gangandi, eða lifum á
landsins gæðum, eigum við það
sameiginlegt að vilja umgangast
landið okkar með virðingu og
stuðla að því að ísland verði
áfram fegursta land í heimi,“
segir í frásögn Ferðaklúbbsins
4x4.
Meðferðar-
heimilið
Virkið
GÖTUSMIÐJAN opnaði meðferð-
arheimilið Virkið í júní 1998 með 14
uppbúin rúm fyrir‘aldurshópinn 16
til 20 ára. Barnaverndarstofa veitti
meðferðarheimilinu starfsleyfi fyrir
aldurshópinn 16 til 18 ára hinn 1.
september 1998. Við opnun var
ákveðið að taka ekki inn fleiri en
einn ungling á viku fyrstu mánuð-
ina, segir í fréttatilkynningu frá
Götusmiðjunni.
Einnig segir: „I þær fyrstu 14
vikur sem heimilið var opið höfðu 14
einstaklingar (10 drengir og 4 stúlk-
ur, meðalaldur um 19 ár) hafið með-
ferð í Virkinu. Heimilinu hafa borist
um tvær til fjórar óskir um innlögn
á viku frá opnun og hefur langur
biðlisti myndast.
Strax frá opnun hefur starfsemi
Virkisins vakið mikla athygli. Mikill
fjöldi unglinga sem og aðstandenda,
svo sem foreldrar, eldri systkini,
ömmur og afar, hafa sett sig í sam-
band við Virkið með óskir um inn-
lögn eða til að leita eftir upplýsing-
um, stuðningi og ráðgjöf. Alls höfðu
367 ráðgefandi símtöl verið afgreidd
(að meðaltali 26,2 á viku) vegna
sama fjölda einstaklinga, fyrstu 14
vikurnar."
------♦-♦-♦----
Evrópskir
fugladagar
í TILEFNI evi-ópskra fugladaga
3.-4. október nk. efnir Fuglavernd-
arfélags Islands til vettvangsfræðslu
fyrir almenning. Safnast verður
saman við Shell-stöðina í Skerjafirði
sunnudaginn 4. október á tímabilinu
14-16.
Fólki gefst þar tækifæri til þess að
taka þátt í skráningu fuglategunda
og fjöldi fugla sem þar kunna að
finnast. Á staðnum verða reyndir
fuglaáhugamenn til leiðbeiningar
með fjarsjár, sjónauka og fuglabæk-
ur.
------♦-♦“♦----
Breyttur af-
greiðslutími
Suðurbæjar-
laugar
FRÁ og með mánudeginum 5. októ-
ber nk. verður Suðurbæjarlaug í
Hafnarfirði opnuð kl. 6.30 alla virka
daga og opnað er kl. 8 laugardaga
og sunnudaga.
I Suðurbæjarlaug er boðið upp á
líkamsrækt, vatnsleikfimi, ung-
barnasund og skriðsundsnámskeið.
I nóvember verður opnaður í kjall-
ara laugarinnar þreksalur þar sem
rekinn verður tækjasalur og verður
þar boðið upp á æfingar undir leið-
sögn kennara.
------♦-♦-♦----
Ball fyrir
fatlaða
DANSLEIKUR fyrir fatlaða verð-
ur haldinn í Árseli laugardaginn 3.
október. Allir 13 ára og eldri eru
velkomnir. Aðgangseyrir er 400 kr.
Plötusnúðarnir Villi, Siggi, Kristján
og Jósep spila samkvæmt venju og
veitingasalan verður opin.
Sú nýbreytni verður á starfsem-
inni að böllin verða haldin fyrsta
laugardag í hverjum mánuði.
Einnig verður boðið upp á karaokee
og gestaplötusnúð. Listi yfir böll
vetrarins verður sendur út á næstu
dögum, segir í fréttatilkynningu.
------♦-♦-♦----
Land og synir á
Sauðárkróki
HLJÓMSVEITIN Land og synir
leikur og syngur á árlegu réttarballi í
kvöld, fóstudagskvöld, á Hótel Mæli-
felli, Sauðárkróki, en ekki í Keflavík
eins og sagt var í blaðinu í gær.